Morgunblaðið - 03.03.2007, Page 60
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 LAUGARDAGUR 3. MARS 62. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 200 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Austan 10–15
m/s en 3–8 m/s
suðvestanlands.
Víða rigning eða
slydda en dálítil snjókoma
eða él norðvestanlands. » 8
Heitast Kaldast
5°C 0°C
FULLTRÚAR fyrir þjóðhátíðarstemningu
í Eyjum, sem hugðust setja upp 32 fer-
metra þjóðhátíðartjald í Smáralindinni
þar sem sýning undir yfirskriftinni Eyjan
okkar hefst í dag, fengu ekki að slá upp
tjaldinu vegna eldhættu. „Við ætluðum að
fara að koma tjaldinu inn, en þegar ég
hringdi í gær, fimmtudag, til að spyrja
húsvörðinn hvort þeir gætu komið tjaldinu
í geymslu til að við gætum flutt það á virk-
um degi, sem er auðveldara, var okkur
sagt að málin yrðu skoðuð, með tilliti til
eldvarna,“ segir Helgi Ólafsson, fulltrúi
þjóðhátíðarstemningar. „Daginn eftir var
okkur svo tjáð að ekki væri við þetta kom-
andi, samkvæmt ákvörðun stjórnenda í
Smáralind og Eldvarnaeftirlitsins. Ég
frétti það síðan að þetta myndi sleppa til ef
við skærum toppinn ofan af tjaldinu og
hefðum tvö slökkvitæki í þessum 32 fer-
metrum. Þar sem þetta er tjalddúkur upp
á ríflega 100 þúsund krónur leist okkur
ekki of vel á tjaldskurðinn.“
Þeir sem standa að sýningunni voru
leiðir yfir þessum málalokum og buðu
fulltrúum þjóðhátíðar bás í Smáralind,
sem þeir hafa sætt sig við.
Fengu ekki
að tjalda
Á HEIMASÍÐU Bjarkar
Guðmundsdóttur kem-
ur fram að nýjasta
breiðskífa hennar kem-
ur út hinn 7. maí næst-
komandi og að platan
muni bera heitið Volta.
Fjöldi tónlistarmanna
leggur Björk lið á plöt-
unni, meðal annarra
Mark Bell úr LFO’s,
Chris Corsano, trommuleikari Sonic
Youth, og 10 radda íslenskur kvennakór.
Áður hefur verið greint frá því að Antony
Hagerty úr Antony and the Johnsons taki
einnig þátt í gerð plötunnar.
Hún skal
heita Volta
Björk
Ný plata Bjarkar
kemur út 7. maí
TAP á rekstri fjölmiðla- og afþrey-
ingarfélagsins 365 hf. nam 6.943
milljónum króna í fyrra. Árið áður
var hagnaður félagsins 718 milljónir.
Mest munar um gjaldfærðan kostnað
vegna aflagðrar starfsemi sem nam
5.716 milljónum. Rekstrareiningar
sem lagðar hafa verið af, en falla und-
ir reglulega starfsemi ársins 2006,
eru meðal annars NFS, DV og tíma-
ritaútgáfa.
Hagnaður 365 hf. fyrir afskriftir,
fjármagnsliði og skatta (EBITDA)
nam 1.552 milljónum króna í fyrra.
Hagnaður félagsins af sölu á dreifi-
kerfi ljósvakamiðla var hins vegar
meiri, eða 1.586 milljónir.
Dagsbrún var skipt upp í tvö félög
á síðasta ári, 365 hf. og Teymi. Í des-
ember var greint frá endurskipu-
lagningu félaganna og höfðu þau þá
bæði selt eignir og lækkað skuldir.
Pósthúsið fært á núll í bókhaldi
Í tilkynningu frá 365 hf. segir að
ákveðið hafi verið að taka niður eign-
arhlut félagsins í Pósthúsinu ehf.,
sem sér um að dreifa Fréttablaðinu.
Eignarhluturinn, sem er um 37%,
verður því færður á núll í bókhaldi.
Jafnframt segir í tilkynningunni
að stjórnendur félagsins standi
frammi fyrir ákveðnum áskorunum í
rekstri. Til að mynda hafi kostnaður
við dreifingu Fréttablaðsins farið
vaxandi á undanförnum misserum og
líklegt sé að sá kostnaður eigi eftir að
þyngjast eitthvað áfram. Unnið sé að
hagræðingu á því sviði.
Þá segir í tilkynningunni að í upp-
hafi þessa árs hafi orðið sveiflur á
auglýsingamarkaði og dregið hafi úr
sölu á auglýsingamarkaði prentmiðla
en salan hafi hins vegar aukist hjá
ljósvakamiðlum. | 18
Óviðunandi uppgjör
Forstjóri 365 hf. segir félagið hafa tekið á sig miklar af-
skriftir vegna endurmats á verðmæti fjárfestinga
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
STARFSMENN Samkeppniseftir-
litsins framkvæmdu húsleit hjá
fimm aðilum í ferðaþjónustunni í
gærmorgun auk Samtaka ferða-
þjónustunnar og lögðu hald á gögn
vegna gruns um ólögmætt samráð.
Um var að ræða skrifstofu Samtaka
ferðaþjónustunnar, Heimsferðir,
Terra Nova, Plúsferðir, Úrval-Út-
sýn og Ferðaskrifstofu Íslands.
Að sögn Páls Gunnars Pálssonar,
forstjóra Samkeppniseftirlitsins,
var um eðlilegt og hefðbundið eft-
irlit stofnunarinnar að ræða.
Að sögn Ernu Hauksdóttur,
framkvæmdastjóra SAF, taldi Sam-
keppniseftirlitið að meint lögbrot
hefði falist í því af hálfu SAF að
setja í fréttabréf leiðbeiningar um
það hvernig farið væri að því að
reikna matarverðslækkun út frá
virðisaukaskattslækkuninni. „Það
telja þeir trúlega brot á samkeppn-
islögum,“ segir hún og kveður ekki
hafa verið rætt á sínum tíma hvort
það myndi orka tvímælis að setja
þessi skilaboð í fréttabréfið. „Það
eru allir að koma þessu á framfæri,“
bendir hún á. „ASÍ, Neytendasam-
tökin og fleiri eru að koma því á
framfæri að matur eigi að lækka um
6% og gos um 14%,“ segir hún er
hún tilgreinir vsk-lækkunina. „Aft-
ur á móti er þetta mjög flókið hjá
veitingahúsunum vegna þess að á
sama tíma fellur niður endur-
greiðsla sem þau hafa haft. Við vor-
um því með ákveðna formúlu fyrir
hvern og einn. Þetta telur Sam-
keppniseftirlitið vera lögbrot.“
Húsleit framkvæmd
á ferðaskrifstofum
Í HNOTSKURN
»Á fjórða tug ferðaskrif-stofa eru aðilar að
Samtökum ferðaþjónust-
unnar.
»Ekki er ljóst hvenærSamkeppniseftirlitið
lýkur rannsókn á meintum
samkeppnislagabrotum.
»Samtök ferðaþjónust-unnar þverneita ólög-
mætu samráði.
Ferðaskrifstofur grunaðar | 4
TVEIR ökumenn voru fluttir á
slysadeild Landspítalans í Foss-
vogi eftir þriggja bíla árekstur
sem átti sér stað á mótum Hring-
brautar og Njarðargötu í Reykja-
vík um hálfníuleytið í gærkvöldi,
samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu. Að
sögn lögregluvarðstjóra var þó
um minniháttar meðsl að ræða en
ekki lá fyrir vitneskja um bílbelt-
anotkun.
Tildrög slyssins voru þau að
tveir bílanna komu hvor úr sinni
átt eftir Njarðargötu og beygði
annar inn á Hringbraut í veg fyrir
bílinn sem kom á móti. Lentu þeir
harkalega saman með fyrr-
greindum afleiðingum auk þess
sem þriðji bíllinn laskaðist þegar
hinir lentu utan í honum. Slysa-
rannsóknardeild lögreglunnar
kom á svæðið til að afla gagna og
er slysið nú til rannsóknar hjá um-
ferðardeild lögreglunnar.
Tveir bílanna sem mest
skemmdust voru fluttir á brott
með kranabíl enda óökufærir eftir
áreksturinn.
Lögreglan segir ekki mikið um
árekstra á þessum stað.
Gatnamótunum er stýrt með
umferðarljósum og má ætla að
rannsókn beinist m.a. að stöðu
þeirra.Morgunblaðið/Júlíus
Tveir
slösuðust
ÓSKAÐ hefur verið eftir því að
sænska lágfargjaldafélagið FlyMe
verði tekið til gjaldþrotaskipta og
strax í gær var Sterling farið að fljúga
á leiðum FlyMe innanlands í Svíþjóð
og bjóða farþegum FlyMe afslætti og
endurgjaldslausar ferðir með breyttri
bókun.
Hefur Sterling óskað eftir því að fá
leigðar þær sex vélar sem FlyMe hef-
ur verið með í rekstri. Pálmi Haralds-
son, stjórnarformaður Northern
Travel Holding, móðurfélags Sterl-
ing, segir í Morgunblaðinu í dag að
Sterling hafi þar til á miðvikudag í
þessari viku verið í viðræðum um yf-
irtöku á FlyMe. Ekkert varð af þeim
áformum. „Staðan var einfaldlega svo
slæm á félaginu að ég mat ástandið
þannig að mun ódýrara væri fyrir
okkur að gera þetta sjálfir. Þarna eru
gríðarleg sóknarfæri fyrir Sterling,“
sagði Pálmi og undir það tekur Almar
Örn Hilmarsson, forstjóri Sterling, í
blaðinu í dag. Fons, eignarhaldsfélag
Pálma og Jóhannesar Kristinssonar,
átti 20% hlut í FlyMe þar til sl. haust
að hann var seldur eftir ágreining við
meðeigendur um flugreksturinn, að
sögn Pálma. | 18
Sterling ætlar að
leigja vélar FlyMe
Sænska félagið í gjaldþrotaskipti
♦♦♦