Morgunblaðið - 30.03.2007, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
PÁFIÐRILDI fannst inni í sal í fyr-
irtækinu Skinney- Þinganesi á Höfn
í Hornafirði í vikunni og mun vera
fyrsta páfiðrildið sem finnst á Höfn.
Aðeins nokkur páfiðrildi berast
hingað til lands á ári og er talið að
þau berist hingað með innfluttum
varningi. Páfiðrildi koma frá Evr-
ópu.
Til ársins 2005 hafa fundist og
verið nafngreindar alls 146 teg-
undir fiðrilda sem fundist hafa hér
á landi. Þar af lifa 54 tegundir villt-
ar í náttúrunni, 34 hafa borist til
landsins fyrir eigið tilstilli með
vindum (flækingar), auk tveggja
sem óvíst er hvort fyrrgreindra á
við um. Alls eru þetta 90 tegundir.
Að auki finnast hér átta tegundir
að staðaldri innanhúss, okkur
mönnum til óþurftar, og 48 nafn-
greindar tegundir hafa borist til
landsins fyrir tilstilli okkar manna,
með farartækjum og varningi, að
því er fram kemur í grein á heima-
síðu Náttúrufræðistofnunar Ís-
lands, ni.is
Páfiðrildi Um 150 fiðrildi hafa
fundist og verið nafngreind hér.
Páfiðrildi á
Hornafirði
VILJAYFIRLÝSING var undirrituð á
miðvikudag á milli sveitarfélagsins
Skagafjarðar annars vegar og þeirra
Lilju Pálmadóttur, Hofi á Höfða-
strönd, og Steinunnar Jónsdóttur, Bæ
á Höfðaströnd, hins vegar um þá
ákvörðun þeirra síðarnefndu að færa
íbúum Hofsóss og nágrennis 25 m
sundlaug að gjöf með tilheyrandi að-
stöðu. „Við erum ákaflega hrærð og
ánægð fyrir hönd íbúa Hofsóss og ná-
grennis og munum gera það sem í
okkar valdi stendur til þess að haga málum þannig að framgangur þess-
arar byggingar geti verið sem skjótastur,“ segir Guðmundur Guðlaugsson
sveitarstjóri við Héraðsfréttablaðið Feyki. Ekki er sundlaug fyrir á Hofs-
ósi. Skagafjarðarveitur leggja hitaveitu til Hofsóss í sumar.
Stefnt er að opnun laugarinnar sumarið 2008. Sveitarfélagið skuldbind-
ur sig til þess að hraða vinnu við aðalskipulag þéttbýlis á Hofsósi. Jafn-
framt mun sveitafélagið greiða götu gefenda í þessu máli sem kostur er.
Auk þess mun sveitarfélagið sjá um rekstur sundlaugarinnar að verkinu
loknu. Þessa dagana er unnið að gerð ítarlegs samnings um verkefnið.
Gefa íbúum Hofsóss sundlaug
Lilja
Pálmadóttir
SAUTJÁN ára piltur var tekinn
fyrir hraðakstur í Ártúnsbrekku
um tíuleytið í fyrrakvöld en bíll
hans mældist á 136 km hraða. Öku-
skírteini hans var gefið út fyrr um
daginn. Fyrir umferðarlagabrot af
þessu tagi er 75 þúsund króna sekt
og svipting ökuleyfis í einn mánuð.
Stutt gaman
LANDSSAMTÖK landeigenda á Ís-
landi hafa opnað heimasíðu og er
slóðin www.landeigendur.is. Nú
eru félagar farnir að nálgast 400.
Vefurinn er hýstur hjá Bænda-
samtökum Íslands. Tilgangur sam-
takanna er að berjast fyrir því að
eignarréttur landeigenda að jörð-
um þeirra og landareignum sé virt-
ur í þjóðlendumálinu.
Landeigendur
ÁTJÁN ára piltur var stöðvaður á
Hafnarfjarðarvegi í fyrradag en
bíll hans mældist á 127 km hraða.
Sami piltur var tekinn fyrir ámóta
hraðakstur á Kringlumýrarbraut í
síðasta mánuði. Þetta eru raunar
ekki fyrstu umferðarlagabrot pilts-
ins en hann fékk bílpróf síðasta
sumar. Um haustið var hann svipt-
ur ökuleyfi í þrjá mánuði en virðist
lítið hafa lært af þeirri reynslu sé
miðað við háttalag hans und-
anfarið, segir á vef lögreglunnar.
Ítrekuð brotBARÁTTUSAMTÖKIN, Baráttu-
samtök eldri borgara og öryrkja
(BEÖ) og Höfuðborgarsamtökin
(HBS), tilkynntu í gær að þau
myndu bjóða fram lista í öllum
kjördæmum í alþingiskosningunum
í maí undir kjörorðunum jöfnuður,
lýðræði og velferð, og stefndu að
framboði í sem flestum sveitar-
stjórnum í sveitarstjórnarkosning-
unum 2010.
Arndís H. Björnsdóttir, talsmað-
ur BEÖ, og Örn Sigurðsson, for-
maður HBS, kynntu stofnun nýju
stjórnmálasamtakanna á blaða-
mannafundi á Grand hóteli í gær.
Fram kom að unnið væri að því að
skipa 10 manna stjórn og kæmi for-
maður frá BEÖ fyrsta árið en frá
HBS annað árið og þannig áfram á
víxl. Nefndir yrðu skipaðar eftir
þörfum og ætti jafnræði að ríkja á
milli fylkinga í þeim.
Bætt staða
Helsta baráttumálið er að bæta
stöðu eldri borgara og aldraðra.
Samtökin vilja að tekjur hjá líf-
eyris- og bótaþegum, öryrkjum og
þeim sem unnið hafa heima við
barnauppeldi og ekki aflað lífeyr-
isréttinda verði ekki lægri en
210.000 krónur á mánuði miðað við
núverandi launavísitölu og hækki í
samræmi við hana.
Geti lífeyrisþegi unnið skerðist
launin ekki upp að 500.000 kr.
tekjum á mánuði.
Skattleysismörk verði að lág-
marki 150.000 kr. og hækki í sam-
ræmi við launavísitölu.
Lagt er til að þjónusta við aldr-
aða og öryrkja verði færð yfir til
sveitarfélaganna og jöfnunarsjóður
þeirra efldur. Lífeyrir verði skatt-
lagður sem fjármagnstekjur.
Flugvöll á Hólmsheiði
Í málefnaskránni kemur fram að
samtökin vilja að flugvöllur verði
byggður á Hólmsheiði fyrir árslok
2011. Það verði gert með því að
selja ríkislóðir í Vatnsmýrinni, þar
sem flugvöllurinn er, fyrir um 35
milljarða og þar af fari 13 millj-
arðar í flugvöll á Hólmsheiði, um
þrír milljarðar í fjármögnun frum-
kvöðlasjóða á landsbyggðinni og um
19 milljarðar í fjármögnun þjóð-
vega.
Útþensla höfuðborgarinnar verði
stöðvuð og umhverfis-, náttúru-
verndar- og skipulagsáætlun sam-
ræmd fyrir allt landið.
Atkvæðisréttur verði jafnaður og
fjölgað í sveitarstjórnum. Ennfrem-
ur verði teknar upp þjóðaratkvæða-
greiðslur í sveitarstjórnum og á
landsvísu óski 5% kjósenda þess.
Strandbyggðir fái eðlilegan að-
gang að aðliggjandi fiskimiðum og
kvótinn verði þjóðareign en greitt
af honum eðlilegt afgjald.
Fram kom hjá fulltrúum Baráttu-
samtakanna að réttmætar óskir
skjólstæðinga þeirra með lök kjör
gætu leitt til 20 til 25 milljarða út-
gjaldaauka á ári. Til að mæta þeim
kostnaði kæmi aukið afgjald af afla-
kvótanum, lækkuð eftirlaun þing-
manna og ráðherra, hagræðing í
ríkisrekstri, 8% hátekjuskattþrep á
mánaðartekjur yfir 700.000 kr., 10%
skattur á fjármagnstekjur yfir
150.000 kr. á mánuði og 14% skatt-
ur á tekjur yfir 700.000 kr. á mán-
uði.
Baráttusamtökin
í öllum kjördæmum
Framboð Arndís H. Björnsdóttir, Örn Sigurðsson og Dóra Pálsdóttir kynna Baráttusamtökin og framboð þeirra.
Morgunblaðið/Kristinn
HJÓNANÁMSKEIÐUM vetrarins á
vegum Hafnarfjarðarkirkju lýkur
senn, en þau hafa verið haldin í 11
ár. Á þessu vori var níu þúsundasti
þátttakandinn frá upphafi skráður.
Leiðbeinandi frá upphafi hefur ver-
ið sr. Þórhallur Heimisson.
Hjónanámskeið
Steinunn
Jónsdóttir
fermingargjöf
Flott hugmynd að
Kira 3
Frábært kúlutjald með stóru fortjaldi.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
36
39
0
02
/0
7
Fermingartilboð
9.990 kr.
Verð áður 11.990 kr.
Tjöld frá 6.990 kr.
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
GEIR H. Haarde forsætisráðherra
og Valgeir Þorvaldsson for-
stöðumaður Vesturfarasetursins
skrifuðu á þriðjudag undir samning
sem tryggir Vesturfarasetrinu 137
milljónir króna á næstu fimm árum.
Undirritun samningsins fór fram á
Hofsósi að viðstöddum gestum.
Fjármununum verður varið til
áframhaldandi þjónustu Vest-
urfarasetursins á sviði menningar-
tengsla milli Íslendinga og fólks af
íslenskum ættum sem búsett er í
Norður-Ameríku. Vesturfarasetr-
inu er ennfremur ætlað að mæta
aukinni eftirspurn eftir ættfræði og
upplýsingum um uppruna og ættir
íslenskra landnema í Norður-
Ameríku, m.a. með því að veita Ís-
lendingum upplýsingar um þá sem
fluttust til Vesturheims, afkom-
endur þeirra og sögu.
Forsætisráðherra sagði við und-
irritun samningsins, að því er kem-
ur fram í fréttatilkynningu, að á
undanförnum árum hefði átt sér
stað mikil uppbygging á Vest-
urfarasetrinu og með henni hefðu
skapast mikil og góð tengsl við hina
fjarstöddu ættingja okkar í Vest-
urheimi sem mikilvægt væri að
rækta.
Morgunblaðið/Kristján
Vesturfarasetrið Því er meðal annars ætlað að mæta aukinni spurn eftir
ættfræði og upplýsingum um uppruna íslenskra landnema í N-Ameríku.
Vesturfarasetri tryggðar 137
milljónir á næstu fimm árum