Morgunblaðið - 30.03.2007, Blaðsíða 26
Eftir Unni H. Jóhannsdóttur
uhj@mbl.is
Ég veit ekki af hverju en mjög margirsöngvarar hafa ástríðu fyrir matar-gerð,“ segir Hallveig Rúnarsdóttirsópransöngkona um leið og hún skellir
bananamúffunum inn í ofninn. „Þessar eru nán-
ast heilsusamlegar, það er bæði heilhveiti og ban-
anar í þeim,“ segir hún og glottir stríðnislega.
„Ég tel mér a.m.k. trú um það. Þær eru æðisleg-
ar, heitar með smjöri og ískaldri mjólk.“
En matargerðin er ástríða eins og söngurinn.
Samt syngur hún eiginlega aldrei við elda-
mennskuna og hlustar heldur ekki á tónlist.
„Þögnin er líka sígild og stundum þarf maður að
taka sér frí frá vinnunni.“ Og það gerir hún í eld-
húsinu. Eyðir heilu tímunum í að undirbúa máltíð
fyrir fjölskyldu og vini. „Mér finnst mjög gaman
að bjóða fólki í mat.“
Uppskriftir eru heilagar í huga Hallveigar og
þeim má ekki breyta. „Ég fer alltaf nákvæmlega
eftir uppskriftunum. Já, kannski svona eins og
eftir réttu nótunum. Ég get ekki sett eitthvert
annað hráefni í uppskriftina sisona, nema þá þeg-
ar ég breyti uppskriftinni verulega, eins og ég
gerði með rísottóið með kindakjötinu. Hún er
upprunalega úr Gestgjafanum en ég gerði nokkr-
ar breytingar. Sá réttur er einn af þeim bestu
sem ég hef eldað á mínum húsmæðraferli og kitl-
ar marga bragðlauka. Kindakjötið er mjög
bragðmikið og raunar bragðmeira en lamb. Þeg-
ar ég byrjaði að nota það í matargerð var það
reyndar mun ódýrara en nú, en fyrst og fremst
valdi ég það vegna þess að mér fannst það betra.
Vitaskuld veltir maður matarverði mikið fyrir sér
og það þarf ekki alltaf dýrt hráefni til þess að
búa til góðan mat. Maður hefur ekki alltaf efni á
að hafa nautalundir.“
Sjónvarpskokkarnir bresku Nigella Lawson og
Jamie Oliver eru í uppáhaldi hjá söngkonunni
sem einmitt lærði og bjó um tíma í Englandi.
,,Bókin hennar Nigellu er eins og biblían mín og
ég leita oft í smiðju hennar. Rækjuforrétturinn
er frá Jamie Oliver og er ekki bara góður heldur
er hentugt að hafa hann í forrétt með flóknum
réttum. Hann tekur aðeins 8–10 mínútur í fram-
leiðslu,“ segir söngkonan sem svo sannarlega er
á skemmtilegum nótum í matargerðinni.
Rækjur með rauðu chili,
engifer og hvítlauk
fyrir fjóra
16 risarækjur
2–3 stk. rauður chilipipar, smátt skorinn
2 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir eða kramdir
þumalstór biti af ferskri afhýddri engiferrót
1 sítróna
handfylli af steinselju, gróft söxuð
4 stórar sneiðar ciabattabrauð, ristaðar
salt og nýmalaður pipar
ólífuolía eftir þörfum, extra virgin
Hreinsið fræin úr chilipiparnum og skerið
hann smátt. Saxið hvítlauksgeirana eða kremjið,
afhýðið engiferrótina og tætið niður með rifjárni.
Blandið þessum hráefnum saman og setjið í skál.
Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið rækjur ásamt
chili, hvítlauk og engifer í um þrjár mínútur.
Bætið þá við ólífuolíu eftir smekk og kreistið saf-
ann úr sítrónunni yfir. Saltið og piprið.
Ristið ciabatta-brauðsneiðarnar og setjið fjór-
ar rækjur á hverja brauðsneið. Dreifið svo
ólífuolíublöndunni með kryddjurtunum jafnt yfir
sneiðarnar. Skreytið með steinselju.
Berið fram með vel kældu, góðu hvítvíni, helst
fremur sætu. Hallveig mælir með Villa Maria
Riesling.
Himnaríkisrísottó með kindakjöti
250 g kindalundir eða file (má nota lamb)
2 msk. ólífuolía
1 l lamba- eða kjúklingasoð
nokkrir saffranþræðir (má nota ¼ tsk. túrmerík)
2 msk. smjör
1 meðalstór blaðlaukur, skorinn í sneiðar
1–2 hvítlauksgeirar, saxaðir
100 ml þurrt hvítvín
2–3 tómatar, smátt saxaðir
maldonsalt
nýmalaður pipar
300 g arborio-hrísgrjón
2 msk. parmesanostur
fersk basilíka
Skerið kjötið í litlar, þunnar sneiðar, saltið og
piprið eftir smekk og brúnið á pönnu í einni mat-
skeið af olíu og leggið til hliðar. Setjið saffran-
þræðina í kjötsoðið og hitið það að suðu í potti og
látið svo malla á lægsta hita. Bræðið smjörið og
afganginn af olíunni í öðrum potti með þykkum
botni og mýkið blaðlauk og hvítlauk. Bætið hrís-
grjónunum út í og blandið öllu vel saman. Hellið
hvítvíninu út í og látið gufa upp af. Bætið kjöt-
soðinu nú smám saman út í, ½–1 ausu í senn, og
látið gufa vel upp af á milli. Látið malla í um 10
mínútur og bætið þá tómötunum og kjötbitunum
út í og líka safanum af kjötinu. Haldið svo áfram
að bæta kjötsoðinu við og látið malla á lágum
hita í um 15 mínútur. Takið pottinn af hellunni
þegar hrísgrjónin eru búin að soga í sig allan
vökvann og blandið parmesanostinum saman við.
Saltið og piprið eftir smekk og stráið basilíkunni
yfir, enda er hún góður bragðauki. Berið fram
með nýrifnum parmesan og afganginum af hvít-
víninu.
Banana- og hnetumúffur
12 kökur
1½ bolli hveiti
½ bolli heilhveiti (má vera meira eða minna á
kostnað hveitisins)
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. kanill
½ tsk. matarsódi
1⁄8 tsk. múskat
2⁄3 bollar pekanhnetur gróft saxaðar
1 stórt egg
¾ bolli púðursykur
6 msk. matarolía
1½ bolli stappaðir bananar (ca. tveir góðir ban-
anar) vel þroskaðir
1 tsk. vanilludropar
½ tsk. salt
Blandið saman í skál hveiti, heilhveiti, lyfti-
dufti, matarsóda, kanil, múskati og salti ásamt
hnetunum. Hrærið vel saman í annarri og stærri
skál egginu, sykrinum, olíunni og stöppuðu ban-
önunum. Blandið síðan þurrefnunum saman við
hræruna en gætið þess að hræra deigið ekki of
mikið, það á ekki að vera slétt.
Forhitið bakaraofn í 180°C. Smyrjið múffuform
(fyrir 12 kökur) eða raðið pappírsformum á ofn-
plötu og skiptið deiginu jafnt á milli þeirra. Bakið
í 15–18 mínútur eða eða þar til hægt er að stinga
tannstöngli í köku án þess að loði við hann.
Listagóðar Forréttur a la Jamie Oliver sem er í miklu uppáhaldi hjá söngkonunni. Bragðlaukabúgalú Í rísottóið notaði Hallveig kindakjöt sem er mjög bragðgott.
Ástríða Hallveig getur dundað sér tímunum saman í þögn við eldamennsku.
Gómsætar Hinar nánast heilsusamlegu bananamúffur eru afar gómsætar.
Syngjandi glaður ástríðukokkur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
matur
26 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ