Morgunblaðið - 30.03.2007, Qupperneq 45
1938–1943 og var á því tímabili rit-
stjóri kirkjulegs æskulýðsblaðs. Hinn
23. maí 1943 vígðist hann prestur ís-
lenska safnaðarins í Seattle í Wash-
ingtonríki, en var svo árið 1951 kall-
aður til að gegna þjónustu lúterska
safnaðarins á Gimli í Manitoba. Þar
þjónaði hann til ársins 1955 en hvarf
þá aftur vestur að hafi til safnaðar í
Kelso. Þar var hann árin 1955–1957.
Á Gimli þjónaði séra Harald fjórum
sóknum, þ.e. á Gimli, í Húsavík, Ár-
nesi og á Mikley í Winnipegvatni. Þar
að auki var hann prestur elliheimilis-
ins Betel á Gimli. Hann ávann sér ein-
stakar vinsældir meðal íbúanna á
þessum slóðum. Á Gimli hafði hann
forustu um byggingu nýrrar og
glæsilegrar kirkju sem var mikið af-
rek og tókst með samstöðu fólks und-
ir farsælli forustu hans.
Hinn 15. júní 1940 kvæntist séra
Harald. Kona hans er Kristbjörg
Ethel. Foreldrar hennar voru Kristín
Ingibjörg Ólafsdóttir Vopni og Hann-
es Kristjánsson. Frú Ethel hefur
reynst manni sínum traustur lífsföru-
nautur og stutt hann drengilega í lífi
og starfi. Glöð og hlý gestrisni og góð-
vild er báðum sameiginlegt og þess
hafa margir notið. Fimm urðu börn
þeirra. Þau urðu fyrir þeirri sáru
reynslu, að sonur þeirra Wallace Har-
ald lést langt um aldur fram. Hann
var skólastjóri og við hann bundnar
miklar vonir. Kona hans heitir Jean
Sigmar, f. Stewart. Fjórar dætur lifa.
Kristín Margrethe, Karen Ethel,
Thora Stefanie og Emelie. Dæturnar,
tengdabörn og niðjar eru nú gleðin
stærsta í lífi þeirra hjóna.
Árið 1957 urðu þau óvæntu en
ánægjulegu tímamót í lífi þeirra, að
séra Harald var beðinn að taka að sér
kennslu við guðfræðideild Háskóla
Íslands. Flutti fjölskyldan því hingað
heim og dvaldi hér í tvö ár. Þetta var
þeim að vísu mikið átak, en jafnan
segja þau, að þetta hafi verið eitt
ánægjulegasta tímabilið í lífi þeirra.
Séra Harald ávann sér brátt vinsæld-
ir og reyndar vináttu nemenda sinna.
Hann flutti ferskan blæ með sér inn í
starf kirkjunnar hér og kynnti ýmsa
nýbreytni. Þau hjón og börn þeirra
eignuðust hér góða vini og hafa þau
styrkt þau bönd með heimsóknum
hingað og frábærri gestrisni í garð
þeirra, er komið hafa vestur til þeirra.
Að dvölinni hér heima lokinni þjón-
aði séra Harald söfnuðum einkum
vestur á strönd Kyrrahafs. Síðast var
hann prestur í Our Redeemer’s Lut-
heran Church í Seattle og þar lauk
hann þjónustu árið 1987. Um þessar
mundir dvelja hjónin á heimili dóttur
sinnar og tengdasonar, Kristínar og
Steve. Heimilisfang þeirra er: 509
Poppy Hill Road Corralitos, Calif-
ornia 95076, USA.
Séra Harald S. Sigmar er að eðli fé-
lagslyndur og hefur tekið að erfðum
hæfileika til forustu og frumkvæðis.
Hann er tónvís og hagmæltur og hef-
ur samið fögur lög og ljóð. Hann er
gæddur glaðhlýrri kímni og á auðvelt
með að gleðjast með glöðum. Hlýtt
hjartalag hans hefur og margan stutt
í sorg og andstreymi. Ræðumaður er
hann ágætur og fer þar saman glögg
þekking og íhugun efnis og mjög lif-
andi flutningur þess. Að baki býr
sannfæring lifandi trúar á Drottin
Jesú sem djúptæk lífsreynsla hefur
gefið mildan mátt.
Þeir bræður séra Eric og séra Har-
ald, voru sannir synir Hins evangel-
ísk-lútherska kirkjufélags Íslendinga
í Vesturheimi. Báðir unnu þeir því fé-
lagi vel, meðan það var og hét, og
margvíslega áttu þeir ríkan þátt í því
að efla samskipti íslensku safnaðanna
vestan hafs og austan. Sú var tíð að
skiptar skoðanir og ólík trúarafstaða
varð þess valdandi að upp hófust
harðar deilur í ræðu og riti, sem á
ýmsan hátt höfðu skaðleg áhrif á
samlíf fólks báðum megin hafsins.
Strengur trúar og þjóðrækni brast þó
aldrei að fullu og þegar frá leið urðu
samskiptin nánari að nýju og fullyrða
má, að starf safnaða vestan hafs hafi á
margan hátt orðið kirkjunni hér
heima hvatning og fyrirmynd. Gagn-
kvæm kynni og heimsóknir presta
vestur og austur yfir hafið hafa
reynst mikilvægur þáttur í þessu
sambandi. Allt hefur þetta orðið til
þess að nú um langt tímabil hefur sí-
vaxandi velvild og samhygð blessað
samskiptin ríkulega.
Það er í alla staði eðlilegt að þakka
þetta, er við minnumst afmælis séra
Haralds S. Sigmar, því að hann á hér
mikinn og merkan hlut að máli.
Í dag munu margir vinir þeirra
hjón senda vestur yfir hafið hugheilar
hamingjuóskir og biðja þeim og ást-
vinum þeirra blessunar Guðs.
Bragi Friðriksson.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2007 45
Smáauglýsingar sími 569 1100
Fyrirtæki
Tangarhöfða 9
Sími 893 5400 • lms.is
Spádómar TómstundirVerslun
Vinkjallarinn.is Nú er rétti tíminn
til að framleiða sitt eigið vín fyrir vor-
ið og sumarið. Vefverslun þar sem
allir fá eitthvað við sitt hæfi. Góð til-
boð. Suðurhrauni 2b, sími 564 4299.
Plastmódel í miklu úrvali.
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600
www.tomstundahusid.is
ÞjónustaHúsbílar
Húsbílar beint frá Þýskalandi.
Getum útvegað allar stærðir og
gerðir af húsbílum. Upplýsingar
husbilar@visir.is eða 517 9350.
Veiði
Veiðferðir til S-Grænlands
í sumar. Stangveiði, sauðnaut og
hreindýr. Leitið upplýsinga
Ferðaskrifstofa
Guðmundar Jónassonar ehf.
S.: 511 1515
www.gjtravel.is
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Til sölu lítil heildsala, rekin sam-
hliða öðru. Gott tækifæri fyrir þá sem
eru þegar með góða dreifingu í versl-
anir, söluturna o.þ.h. Upplýsingar á
arangur@visir.is.