Morgunblaðið - 30.03.2007, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 30.03.2007, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2007 35 Hafnfirðingar ganga til kosninga um deiliskipulag bæjarins vegna fyrirhugaðrar stækkunar álversins í Straumsvík hinn 31. mars nk. Morgunblaðinu hafa borist margar greinar þar að lútandi. Til að gera greinarnar aðgengilegri fyrir lesendur blaðsins og til að auka möguleika Morgunblaðsins á birtingu fyrir kosningarnar, verður útliti þeirra breytt. Hafnfirðingar kjósa ÞAÐ er ekki ýkja langt síðan að ég var fylgjandi því að álframleiðendum á Íslandi yrði heimilað að stækka við sig. Í árslok 1995, fyrir rúmum áratug, fór fram atkvæða- greiðsla á Alþingi um stækkun álversins í Straumsvík. Ég var í hópi þeirra sem studdi heimildina fyrir aukinni orku- sölu til álversins. Ég setti fram fyr- irvara um mengunarvarnir en sagði jafnframt: „Það verður svo ekki fram hjá því horft að þessi framkvæmd mun skipta miklu máli fyrir atvinnulíf þjóðarinnar og atvinnustigið í land- inu. Sönnunarbyrði er þar af leiðandi mikil, ætli menn að hafna þessum samningi. Þar sem þetta fer saman við þá staðreynd að hér er fyrst og fremst verið að fjalla um orkusölu og skatta, þá hef ég ákveðið að segja já.“ Nú bregður svo við að ég er and- vígur stækkun sama álvers. Hvers vegna? Allt aðrar aðstæður Í fyrsta lagi eru aðstæður allt aðrar á Íslandi nú en fyrir 12 árum. Þá voru framleidd 90 þúsund tonn af áli í land- inu. Nú eru komnar heimildir fyrir 916 þúsund tonnum og yrði talan 1.106 þúsund tonn ef Alcan í Straumsvík fengi sínu framgengt! Læt ég þá ótalin áformuð álver á Húsavík og í Helguvík. Á það er að líta að þau rök sem áður voru sett fram um að við ættum ekki að reiða okkur um of á sjávarútveginn, hafa ekki öll eggin í sömu körfunni, eru nú að snúast upp í andhverfu sína. Nú eru menn að setja öll eggin í álkörfu! Árið 1995 var heildarframleiðsla raf- orku 4.650 GWst, þar af sala til stór- iðju 2.391 GWst. Árið 2005 var heild- arframleiðsla raforku 7.647 GWst, þar af til stóriðju 5.193 GWst. Eftir að stjórnvöld ákváðu að gera álfram- leiðslu að uppistöðuatvinnuvegi á Ís- landi með stórfelldum virkjunum hef- ur mönnum orðið sífellt ljósara hve takmörkuð auðlind orkan raunveru- lega er. Fjölgar í hópi þeirra sem ekki vilja binda þá orku sem við virkjum marga áratugi fram í tímann til stór- iðju. Með tilkomu Kárahnjúkavirkj- unar stefnir í að raforkusala til stór- iðju verði 9.793 GWst eða u.þ.b. 80% af áætlaðri 12.200 GWst heildarfram- leiðslu raforku. Virðisaukinn meiri í öðrum at- vinnugreinum Í öðru lagi hefur komið á daginn að virðisaukinn fyrir álframleiðslu er mun minni en í öðrum atvinnugrein- um. Við álframleiðslu í eigu erlendra aðila má gera ráð fyrir að aðeins um 30% af tilkostnaðinum við þessa starfsemi verði eftir í okkar hagkerfi, raforkusalan, vinnulaun, þjónusta og skattar. Í sjávarútvegi er þetta hlut- fall talið vera um 80% og í ferðaþjón- ustu um 70%. Í ýmsum hátæknistörf- um er þetta hlutfall einnig mög hátt. Álframleiðsla á Íslandi er þannig ekki arðvænleg atvinnugrein miðað við ýmsa aðra kosti. Þegar horft er til annarra atvinnu- greina þarf að hafa í huga að ál- framleiðslan er ekki hlutlaus gagn- vart þeim. Það hefur sýnt sig að framkvæmdir tengdar stækkun ál- vera valda illkynja þenslu, keyra fjár- magnskostnað upp en það bitnar á öllum atvinnurekstri í landinu og heimilunum að sjálfsögðu. Þessi ruðningsáhrif eru verulega skaðleg. Við verðum að horfa á þessa stað- reynd af mikilli yfirvegun og raunsæi. Þetta snýst um að velja og hafna: Því meira ál, því minna af öðru! Örlagarík ákvörðun Svæðið við Straumsvík er tvímæla- laust eitt fegursta byggingarland á öllu Faxaflóasvæðinu. Vilja menn hefta stækkunarmöguleika Hafn- arfjarðar til suðurs vegna stækkunar álvers? Ljóst er að verði af stækkun álvers- ins mun mengun aukast umtalsvert og mun það skerða möguleika fyrir íbúabyggð og annan atvinnurekstur. Viljum við heimila nánast þref- öldun álversins í Straumsvík þannig að úr verði eitt stærsta álver í Evr- ópu; inni í byggð sem í ofanálag er þéttbýl og á sér mikla vaxtarmögu- leika? Ákvörðun um að heimila stækkun álvers Alcans er því ör- lagarík ákvörðun. Ég fjalla hér ekki um umhverf- isþátt þessa máls í víðu samhengi. Það má aldrei gleymast, ekki eitt and- artak, að því umfangsmeiri sem stór- iðjan verður á Íslandi þeim mun meira verðum við að virkja og þá hugsanlega fórna dýrmætum nátt- úruperlum. Spurningin er svo einnig hin hvort við séum aflögufær til er- lendra risafyrirtækja. Komum við ekki til með að eiga nóg með okkur sjálf þegar litið er til næstu áratuga? Þetta eru meginástæður þess að ég leggst gegn því að veita álverinu í Straumsvík heimild til að færa út kví- arnar. Því meira ál því minna af öðru Eftir Ögmund Jónasson Höfundur er þingmaður Vg. SEM áhorfandi frá landi sem á nóg af viðfangsefnum hvað varðar mál- efni sem betur mætti huga að, þá er ég svo mikill Íslandsvinur að ég verð að blanda mér í umræðuna um stækkun álversins. Kannski er búið að spyrja spurninganna en hér eru þær: 1. Af hverju eru Hafnfirðingar spurðir álits í þessu máli, sem snertir allt höfuðborgarsvæðið, sem er eitt stórt svæði án múra á milli? Af hverju ekki að spyrja alla á svæðinu, því allir á höfuðborgarsvæðinu munu verða fyrir miklum áhrif- um? 2. Ef það er svo óhagstætt að reka álverið í Straumsvík í núverandi mynd sem eigendur segja að það sé – þá er kannski betra að fá nýja eigendur? td. Íslendinga sjálfa? Stækkun álvers í Hafnarfirði Frá Benedikte Thorsteinsson Benedikte Thorsteinsson, Nuuk, Grænlandi. FYRIR 40 árum hóf svissneska álfyrirtækið Alusuisse að reisa ál- verksmiðjuna við Straumsvík. Um þá framkvæmd var hart deilt í þjóð- félaginu, einkum vegna þeirra áhrifa sem erlent fyrirtæki og erlent fjármagn gæti haft á mál hér innanlands. Sviss- lendingar voru þó litnir mildari aug- um en t.d. Bandaríkjamenn á þeim tíma. Það hefði ekki þýtt að nefna Alcan eða Alcoa. Fyrsta verk- smiðjan framleiddi reyndar aðeins 30 þús. tonn af áli á ári. Nú stendur fyrir dyrum að fimmtánfalda þá tölu. Á laugardaginn kemur, 31. mars munu Hafnfirðingar væntanlega taka ákvörðun um, hvort okkar bíð- ur stærsta álver í Evrópu í túnfæt- inum eða ekki. Löngum hefur það verið drjúgt til atkvæðaveiða, að veifa atvinnuhagsmunum og pen- ingum framan í kjósendur. Minnug þessa hefur einn besti ímynd- arsmiður landsins – ef ekki sá harð- asti, verið kallaður til leiks hjá Alcan og við höfum orðið vitni að dýrustu kosningabaráttu, sem háð hefur ver- ið hérlendis til þessa í einstöku bæj- arfélagi. Líklega er hvert atkvæði í Hafnarfirði komið í 100 þúsundir króna og kannski verður álíka tala fyrir hvert mannsbarn í bænum, komin úr kassa Alcan áður en yfir lýkur? Verði stækkun samþykkt má kalla það hrein atkvæðakaup, þar sem er- lent auðfyrirtæki kaupir sér aðgang að heilu bæjarfélagi, hin fyrstu síðan á dögum dönsku einokunarkaup- mannanna og það má rétt ímynda sér áhrifin, þegar álverið hefur stækkað nærri þrefalt. Þá mun lítið leggjast fyrir bæjarfulltrúana ellefu og mannlíf allt með einum eða öðr- um hætti háð tilveru risaálversins. Álverið getur svo gengið kaupum og sölum og hagsmunir Hafnfirðinga verða háðir „skaplyndi og gjafmildi“ forstjóra og eigenda enn frekar en nú er. Í þessari kosningabaráttu er starfsmönnum Alcan óspart att í slaginn, myndaðir og nafngreindir í bak og fyrir og sýndir öllum bæj- arbúum. Skyldu allar þessar fyr- irvinnur missa starfið, ef tillagan verður felld? Vilt þú, kjósandi góður, bera ábyrgð á því? Hvað skyldu margir starfsmenn Alcan hafa þorað að segja nei við myndatökunni? Kannski fá þeir starfslokasamning og sagt að þegja fram yfir 2010? Kosningarnar um stækkun álvers- ins eru grafalvarlegar og munu fara á spjöld sögunnar, hvernig sem fer. Verði tillagan felld, mun þeim at- burði að líkindum verða jafnað við björgun Sigríðar í Brattholti á Gull- fossi eða stíflusprengingu þing- eyskra bænda í Laxá vegna fyr- irhugaðs uppistöðulóns í Laxárdal. Verði tillagan samþykkt, verður ál- gatan greiðari og meirihluti bæj- arstjórnar í Hafnarfirði, sem kennir sig við frelsi, jafnrétti og bræðralag, þurfa að hugsa sinn gang. Kannski þarf hann að axla ábyrgð á gengi Samfylkingarinnar í komandi al- þingiskosningum? Verður Hafnarfjörður keyptur 31. mars? Eftir Reyni Ingibjartsson Höfundur er íbúi í Hafnarfirði og nágranni álversins. ÉG ER ekki vanur að skipta mér af pólitík, en ég get ekki orða bundist yfir því hversu stórlega tvísaga Sam- fylkingin er í afstöðu sinni gagnvart ál- verinu í Straumsvík. Í Kastljósþætti 13. mars sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir efnislega þá skoðun sína, að kosning Hafnfirðinga um álverið næði ein- göngu til þess deiliskipulags sem bæjarstjórnin samþykkti. Hún sagði það stefnu Samfylkingarinnar að slá öllum álversáformum á frest og var á henni að skilja að þetta vildi hún knýja í gegn, hvernig svo sem kosn- ingin í Hafnarfirði færi. Með öðrum orðum, ef Hafnfirðingar skyldu sam- þykkja stækkun álversins, þá vill hún beita ríkisvaldinu til að stoppa stækkunina, strika kosninguna út og valta yfir vilja Hafnfirðinga. Hins vegar man ég eftir því að Össur Skarphéðinsson kom í sjón- varp fyrir nokkru og var að mæra þá ákvörðun bæjarstjórnar Hafn- arfjarðar að láta álversmálið í hend- ur hins almenna kjósanda. Hann minntist ekkert á það þá, að Sam- fylkingin ætlaði að valta yfir vilja Hafnfirðinga ef niðurstaða þeirra væri ekki Samfylkingunni að skapi. Þá þykir mér framburður bæj- arstjórans, Lúðvíks Geirssonar, orka mjög tvímælis. Ég mætti sjálfur á fund fyrir nokkru sem haldinn var undir yfirskriftinni „Hagur í Hafn- arfirði“ þar sem Lúðvík bæjarstjóri var frummælandi. Hann lýsti sam- komulagi bæjarstjórnar við Alcan um deiliskipulag og var ekki annað á honum að heyra en bæjarstjórnin hefði verið vel ásátt um stækkun ál- versins. Samkomulag hefði náðst um alla þætti skipulags, s.s. góða fjar- lægð frá íbúðabyggð, umhverf- isvernd og losun lofttegunda. Hann minntist hvergi á að hann væri and- vígur stækkuninni. Allir sem hlustuðu á hann á þessum fundi hljóta að hafa verið á þeirri skoðun að hann væri fylgjandi stækkun. Skömmu síðar heyrði ég í honum í sjónvarpinu, að hann ætti enn eftir að gera þetta upp við sig hvort hann væri fylgjandi stækkun eða ekki. Ég held að allir Hafnfirðingar sem nú ganga til atkvæðagreiðslu líti svo á að þeir séu ekki aðeins að greiða at- kvæði um deiliskipulag, heldur hvort þeir eru með eða móti stækkun ál- versins. Í þeirra huga er þetta eitt og sama málið. En á samfylkingarmönnum er það helst að heyra að þeir vilji vings- ivangsa með þetta mál fram og aftur og hafa það í hendi sér að geta gengið gegn vilja Hafnfirðinga eftir at- kvæðagreiðsluna, samþykki þeir ál- verið. Er það furða að fylgið sé að hrynja af Samfylkingunni? Samfylkingin stórlega tvísaga í álversmálinu Eftir Björn Matthíasson Höfundur er hagfræðingur og búsettur í Hafnarfirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.