Morgunblaðið - 30.03.2007, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 30.03.2007, Qupperneq 25
mælt með … MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2007 25 Fatnaður á spottprís í Kolaportinu Um helgina mun Fjölskylduhjálp- in gangast fyrir fatamarkaði í Kola- portinu. Seldur verður nýr og lítt notaður fatnaður á spottprís, engin flík mun kosta meira en fimm hundruð krónur. Um að gera að drífa sig í portið og skoða hvað er í boði; nýtt sem notað. Margt að gerast á íþróttasviðinu Íslandsótið í badminton fer fram um helgina í TBR-húsinu. Mótið hefst í dag, föstudag, klukkan hálfsjö. Úrslit hefjast á sunnudag klukkan 13. Baráttan í handboltanum er í al- gleymingi og má þar nefna að Fylk- ir og Haukar verða í fallbaráttunni í Fylkishöll klukkan 18 á morgun, laugardag. Toppslagurinn verður í Digranesi þar sem HK tekur á móti Val klukkan 16.15. Stjörnustelpur geta orðið Íslandsmeistarar með því að leggja Akureyrarstelpur að velli. Leikurinn hefst klukkan 16 í Ás- garði í Garðabæ. Blásarasveit Reykjavíkur í Salnum Á morgun, laugardag, verður Blásarasveit Reykjavíkur með tón- leika í Salnum í Kópavogi kl. 17. Þar verður meðal annars frumflutt útskriftarverkefni Benedikts H. Hermannssonar sem er betur þekktur sem Benni Hemm Hemm, auk verka eftir Richard Strauss (1864–1949) og Kurt Weill (1900– 1950). Una Sveinbjarnardóttir leik- ur á fiðlu. Færeyskir dagar á Nasa Færeyingar halda áfram að gera það gott hér á klakanum og um helgina verður hægt að berja nokkra þeirra augum. Tónleikarnir hefjast á laugardag kl. 22. Fram koma Eivör Pálsdóttir, Brandur Enni, Högni Lisberg og Teitur. Að- gangseyrir er 2.200 krónur. Út um mela og móa … Fréttir bárust af því í vikunni að lóan væri komin. Nú er um að gera að grafa upp kíkinn, drífa sig út í göngutúr og vita hvort dýrðarsöng- urinn er farinn að heyrast í holtum og hæðum. Þá má nota kíkinn til að svipast um eftir henni, nú eða öðr- um fuglum. Og fyrst skórnir eru á annað borð komnir á fæturna er um að gera að hafa göngutúrinn nógu langan og njóta útivistarinnar. Skíðafæri sunnanlands Fréttir bárust líka af því í vik- unni að skíðafærið í Bláfjöllum væri með eindæmum gott. Er ekki rétt að krossa putta og vona að færið haldist eitthvað þó að allt útlit sé fyrir hlýindi og vætusama tíð um helgina. Góður dagur með fjölskyldunni Oft er gott að eiga einn dag til að gera ekki neitt. Sofa frameftir og snæða morgunverð í rólegheitunum með fjölskyldunni. Kíkja í góða bók og gefa sér svo góðan tíma til að elda dýrindis málsverð. Morgunblaðið/Ómar Morgunblaðið/ÞÖK Ekki fer öllu hallandi með aldrinum. Eldri borgarar taka betur eftir jákvæðum upplýsingum sem tengjast tilfinningum í kring um sig en aðrir. Þetta eru nið- urstöður nýrrar rann- sóknar sem forskning.no greinir frá. Vísindamennirnir sem stýrðu rannsókninni telja eldri fullorðna í betra and- legu jafnvægi en þeir sem yngri eru, sérstaklega þegar kemur að því að túlka tilfinningalegar upp- lýsingar úr umhverfinu. Í rannsókninni skoðuðu 150 þátttakendur mismun- andi myndir sem fyrirfram var búið að flokka sem já- kvæðar, hlutlausar eða neikvæðar. Mynd af fal- legu sólarlagi eða skál með súkkulaðiís var t.a.m. flokkuð sem jákvæð, hlut- laus mynd gat verið af stól eða gaffli og neikvæð af dauðum ketti eða bílslysi. Þátttakendurnir fengu að sjá hverja mynd í nokkrar sekúndur og flokkuðu þær jafnóðum með aðstoð tölvumúsar. Á meðan fylgdust vís- indamennirnir með heilastarfsemi þeirra. Í ljós kom að unga fólkið tók betur eftir myndum sem voru neikvæðar á meðan þeir sem eldri voru lögðu jafn mikla áherslu á það sem var jákvætt. Vísindamennirnir benda á að þetta hljóti að endurspeglast á ýmsan hátt, s.s. í því hvernig fólk hagar ákvörð- unum sínum eftir aldri. Unga fólkið var á aldrinum 15 til 25 ára og fyrri rannsóknir hafa sýnt að fólk á þessum aldri tekur meira eftir neikvæðum tilfinningalegum upplýs- ingum en jákvæðum. Hið nýja í rann- sókninni er hins vegar að hjá eldri fullorðnum, á aldrinum 55 ára, var meira jafnvægi milli þess hversu vel þeir tóku eftir neikvæðum og jákvæð- um myndum. Í meira jafnvægi með aldrinum AP Gömul Jákvæð og í jafnvægi. daglegt líf

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.