Morgunblaðið - 30.03.2007, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 30.03.2007, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand VÁ, ÞETTA ER BLEIKBRJÓSTA, BRÚNDOPPÓTTUR DISKBÚI! ÞEIR ERU NÆSTUM ÚTDAUÐIR ÞESSI ER ÞAÐ AÐ MINNSTA KOSTI VÁ! HVAÐ ER AÐ GERAST? ER BYRJAÐ AÐ SNJÓA? JÁ, ÞAÐ MÆTTI SEGJA ÞAÐ! ÞAÐ ER KOLNIÐAHVÍTT ÚTI! HEFÐIR ERU MIKILVÆGAR UPPÁHALDS HEFÐIN MÍN ER AÐ BORÐA ALLTAF ÞRJÁR SKÁLAR AF SYKURHÚÐUÐUM SÚKKULAÐISPRENGJUM Í MORGUNMAT Á LAUGARDÖGUM EFTIR NOKKRA KLUKKUTÍMA VERÐ ÉG SVO OFVIRKUR AÐ ÉG GET EKKI SITIÐ KYRR Í MÍNÚTU ER EKKI SKRÍTIÐ AÐ UPPLIFA ÞETTA? JÚ, ÉG UPPLIFI LÆGRA TILVERU- STIG HVAÐ ER ÞETTA ?!? ÞETTA ER SÉRSTAKUR RÉTTUR Í LOK MÁNAÐARINS MANNSTU EFTIR RÉTTINUM SEM ÉG BJÓ TIL UM DAGINN SEM ÞÉR FANNST SVO GÓÐUR? ÞESSI MEÐ HUMRINUM, RÆKJUNUM OG ÖLLUM SKELFISKNUM... JÁ ! ÞETTA ER HANN... BARA EKKI MEÐ NEINUM HUMRI, RÆKJUM EÐA SKELFISKI GRÍMUR, GETUR ÞÚ LEIKIÐ EINS OG ÞÚ SÉRT DAUÐUR? JÁ, EN ÉG VIL MIKLU FREKAR LEIKSTÝRA ÁTTU ENNÞÁ ERFITT MEÐ AÐ SOFNA, ADDA? JÁ, ÉG ER SVO ÞREYTT AÐ ÉG ER HRÆDD UM AÐ SOFNA Í MIÐJU VIÐTALI DREKKTU BARA MIKIÐ KAFFI! ÉG ER BÚIN AÐ VERA AÐ ÞVÍ, EN ÉG HELD AÐ ÉG ÞURFI MIKIÐ MEIRA KOMDU SÆL. FÁÐU ÞÉR SÆTI PETER HELDUR SÉR FAST Í BÍL LÆKNISINS, KLÆDDUR Í SPÍTALASLOPP... LOKSINS STOPPAR LÆKNIRINN VIÐ HLJÓTUM AÐ VERA KOMNIR HEIM TIL HANS... NEMA AÐ VINUR HANS HAFI VERIÐ AÐ VINNA Í LOTTÓINU dagbók|velvakandi Skeyti frá Lýsingu ÞANNIG er mál með vexti að ég og maðurinn minn erum með bíl í einkaleigu hjá Lýsingu. Okkur hefur ekki gengið vel að standa í skilum. Bíllinn varð mjög fljótt alltof þungur baggi fyrir okkur, aðstæður einfald- lega breyttust. Við höfum alltaf ver- ið mjög samviskusöm við að láta vita hvernig stendur á. Við höfum aldrei bara yppt öxlum og ýtt reikning- unum lengra ofan í skúffu. Bara síð- ustu viku töluðum við við þjónustu- fulltrúa frá þeim, í staðinn fyrir að greiða des.-gjalddaga greiddi ég fyr- ir mistök jan. En það er ekki það sem ég er að skrifa um. Í gær fær maðurinn minn skeyti þar sem tekin er fram upphæðin sem við skuldum þeim (apríl er meðtalinn, þótt enn sé mars). Okkur er hótað að þeir ætli að senda málið til lögfræðings og lögmannsþóknunin sé 168.513 m/ vsk. og til að kóróna allt saman fáum við sendan reikning í dag fyrir skeytið að upphæð 10.000 kr. án vsk. + 500 kr. sendingarkostnað, samtals 13.073 m/vsk. Pósturinn tekur 1.500 kr. fyrir að senda skeyti. Mig langar svo til að vita hvort fólk sé ekki sam- mála mér í að þetta sé mjög óliðleg og léleg þjónusta. Fanný Þórsdóttir. Minningargrein um TAB MÉR barst hræðilegt símtal í gær, rétt fyrir kvöldmat. Það var vinkona mín sem hringdi og spurði: „Ertu búin að heyra fréttirnar? Það á að hætta að framleiða TAB.“ Ég fölnaði af skelfingu. Nei! Þetta getur ekki verið að gerast. Fyrst blátt Ópal og svo núna TAB-ið. Líf mitt hefur tekið gífurlegum stakka- skiptum núna á þessum tæpa sólar- hring sem er liðinn síðan ég frétti þetta. Mikið hugsanaferli hefur farið af stað. Og ég hef vafrað um gang- ana í matarbúðinni og horft tómum augum á goskælinn. Hvað tekur núna við? Mér finnst forleikur, brjóstahald- arasmellur og kjánalegur rómans í hasarmyndum allt vera mjög skemmtilegir hlutir. Því kemur varla til greina að ég fari að drekka Zero. Minningarnar flæddu yfir mig í gærkvöldi. Ég er jafngömul TAB- inu góða, er fædd í maí 1982. Ég á tvær eldri systur og það er aldrei haldið matarboð eða einhverjum skemmtilegum áföngum fagnað án þess að TAB-ið sé með okkur líka. Núna veit ég ekki hvernig páskarnir hjá fjölskyldunni verða. Ekki nema við leggjum í hringferð um landið og kaupum upp allan lagerinn í öllum búðum og hverri einustu þjóðvega- sjoppu sem við finnum. Ég skil nú alveg markaðsrökin sem liggja að baki. Við systurnar þrjár og einhverjar örfáar hræður í viðbót erum kannski ekki nóg til að halda TAB-inu á floti. Grimmdin er mikil í gosdrykkjaheimi og litla TAB-ið var ekki nógu sterkt til að standa það af sér. En þetta voru frá- bær 25 ár. Ég á eftir að sakna þín, TAB. Takk fyrir allt. Björk Konráðsdóttir. Ari ég fann lyklana LYKLAKIPPA fannst á gatnamót- um Starhaga og Suðurgötu. Hún er merkt Ara og á henni hanga tveir húslyklar og LEGO-merki. Sími 846-3901. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is STJÓRN Fuglaverndar harmar að Umhverfisstofnun skuli hafa veitt Verkfræðistofu Sigurðar Thorodd- sen leyfi til að drepa hátt á annað þúsund sílamáfa með eiturefnum í grennd við þéttbýli Reykjavíkur og Innnes öll. Notkun efna til fugladráps hér á landi hefur verið bönnuð lengi og að mati Fuglaverndar er fráleitt að hefja slíka iðju að nýju, enda hafi ekki verið sýnt fram á að mávar eða aðrir fuglar valdi þvílíku tjóni eða usla að aðrar löglegar aðferðir til að halda þeim í skefjum dugi ekki. Í frétt frá Fuglavernd segir að sökum skorts á náttúrulegri fæðu hafi sílamáfar orðið óvenjuáberandi þar sem aðra og lakari fæðu er að hafa, eins og brauðið á Reykjavík- urtjörn eða grill í úthverfum. „Síla- máfur er vissulega afræningi en þess eru engin dæmi hérlendis að hann hafi eyðilagt fuglabyggðir einn og sér. Sveitarfélögin sem standa að þessari tilraun ættu að líta sér nær en óvíða er eins mikil eyðilegging búsvæða fugla og á Innnesjum. Eyðilegging búsvæða hefur mun alvarlegri afleiðingar heldur en afrán sílamáfa á fáeinum andarungum,“ segir í tilkynning- unni. „Vandamálin sem nefnd hafa ver- ið í samandi við sílamáfinn hafa hvorki verið skilgreind né rannsök- uð. Því fer Fuglavernd fram á að þetta eitrunarleyfið verði tafarlaust afturkallað og skorar á umhverf- isráðherra að beita sér fyrir því.“ Fuglavernd telur fráleitt að leyfa eiturefni til fugladráps Í ÁLYKTUN sem samþykkt var á fundi Félagsráðgjafafélags Íslands á alþjóðadegi félagsráðgjafa 27. mars er vísað til margra rannsókna á al- varlegum afleiðingum fátæktar á lífsskilyrði fólks. Alvarlega fátækt er að finna í íslensku samfélagi og kem- ur hún m.a. í veg fyrir að fólk taki þátt í athöfnum daglegs lífs, segir í ályktuninni. Rannsóknir félagsráð- gjafa bæði hér á landi og erlendis benda til að fátækt ali á félagslegri einangrun bæði barna og fullorðinna sem ýtir undir vanmátt, kvíða og vonleysi – oft frá einni kynslóð til annarrar. „Lausnin felst ekki í plástrastefnu sem felur í sér skammtímasjónarmið heldur þarf að vinna að stefnumótun sem felur í sér að uppræta fátækt til frambúðar. Liður í þeirri viðleitni er m.a. öflugt velferðarráðuneyti og al- tæk velferðarþjónusta. Hækka þarf laun þeirra sem lifa á samfélagslaun- um og skapa aðstöðu til að komast upp úr þeirri fátæktargildru sem er við lýði í dag, segir í ályktun Fé- lagsráðgjafafélags Íslands. Fátækt elur á einangrun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.