Morgunblaðið - 30.03.2007, Blaðsíða 50
Stuttu síðar voru
Svíarnir farnir að
dansa eins og þeir ættu lífið
að leysa 56
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
VIKTOR Pétur Hannesson er 19 ára
gamall drengur sem ólst upp á Egils-
stöðum til 12 ára aldurs. Hann lauk
stúdentsprófi frá MH nú um jólin,
eftir þriggja og hálfs árs nám. „Ég
ákvað að spýta í lófana til þess að fá
þetta hálfa ár til að gera eitthvað
skemmtilegt eins og þetta,“ segir
Viktor sem leggur af stað í þriggja
mánaða Evrópuferð á morgun. Ekki
er um neitt venjulegt ferðalag að
ræða því hann ætlar að komast yfir
stóran hluta álfunnar einn síns liðs.
„Mig hefur alltaf langað til að gera
eitthvað öðruvísi og skemmtilegt.
Það sem fékk mig út í þetta var að ég
kynntist stelpu frá Kanada síðasta
sumar. Hún er ¼ indjáni og heitir
Skye. Hún er mikill ferðalangur og
hafði verið að ferðast um Ísland,
alein í tjaldi. Við urðum mjög góðir
vinir og hún heillaði mig mikið, sem
og hennar lífsviðhorf.“
Kemur vonandi aftur
Á hverjum degi mun Viktor skrifa
bréf með gamla laginu, sem hann svo
sendir til Hins hússins þar sem öll
bréfin verða hengd upp á sérstakan
vegg. Þar að auki verða bréfin föxuð
til Seyðisfjarðar þar sem þau verða
til sýnis í anddyri Hótels Öldunnar.
„Bróðir minn stakk einu sinni upp á
því að við færum saman á interrail
og ég tók vel í það. Svo hvarf hann
frá því og þá fór ég að hugsa að það
gæti verið gaman að gera þetta alveg
einn, til þess að kynnast sjálfum mér
og svona,“ segir Viktor sem ætlar
einnig að safna uppskriftum frá öðr-
um ferðalöngum, uppskriftum sem
henta bakpokaferðalöngum. Þá mun
hann taka mikið af myndum sem
hann ætlar að sýna þegar hann kem-
ur heim, auk þess sem hann stefnir
að því að gefa allt saman út á bók áð-
ur en langt um líður. Viktor óttast
ekki að verða einmana á ferðalaginu.
„Það getur auðvitað komið fyrir, en
ég er að fara þarna út til þess að
kynnast fólki, og ég ætla að gera í því
að kynnast fólki þótt maður verði að
hafa varann á hverja maður talar
við,“ segir Viktor, og bætir við að
vissulega muni hann sakna vina
sinna og fjölskyldu. „Það er fullt af
vinum og vinkonum hérna sem ég á
eftir að sakna, en ég er nú ekki far-
inn til eilífðar, ég kem vonandi aft-
ur.“
Aleinn í þriggja mánaða ferðalag um Evrópu
Morgunblaðið/ Pétur Kristjánsson
Víðförull Viktor hyggst skrifa bréf með gamla laginu, sem hann svo sendir
til Hins hússins þar sem öll bréfin verða hengd upp á sérstakan vegg.
Þær Sigrún
Sigurðardóttir
og Guðrún Ben-
ónýsdóttir opna í
Nýlistasafninu á
morgun. Þar
munu þær m.a.
sýna forvitnilegar innsetningar.
Ungar listakonur
opna í Nýló á morgun
Færeyska tónlistarhátíðin AME
fer fram á Nasa á morgun. Þá kem-
ur Teitur (til vinstri) einnig fram í
kvöld í Fossatúni í Borgarfirði
ásamt Pétri Ben. Nánari upplýs-
ingar má finna á steinsnar.is og
teitur.com.
Tónlistarhátíðin AME
hefst á Nasa á morgun
Öll spjót standa nú á Krónikunni
sem var innleidd í DV í gær því þeir
sem höfðu keypt sér 10 blaða
áskrift fyrir um kr. 2.000, sitja nú
eftir 600 krónum fátækari. Jæja,
kannski ekki öll spjót, ... en nokkur.
Skulda þrjú tölublöð
Að sögn aðstandenda Aldrei fór
ég suður hefur fjöldi fólks hringt
og spurt hvort miðar á hátíðina séu
uppseldir. Sannleikurinn er sá að
engir miðar eru til sölu. Aðgangur
er ókeypis og öllum opinn.
Engir miðar til sölu á
Aldrei fór ég suður
Í aðdraganda kosninga er siður
að flokkarnir blási til alls kyns
skemmtana. Ein slík, sem nú er í bí-
gerð, eru stórtónleikar sem Ungir
jafnaðarmenn hyggjast halda á
NASA 28. apríl og mun dagskráin
ekki vera af verri endanum, ef
marka má sögusagnir.
Það verður að
skemmta lýðnumEftir Arnar Eggert Thoroddsenarnart@mbl.is
TEITUR er sá færeyski tónlistarmaður sem far-
ið hefur lengst með tónlist sína út fyrir heima-
landið. Teitur hefur síðan 2003 ferðast linnulít-
ið um allan heim og haldið á bilinu 200 til 300
tónleika á ári. Þá kom fyrsta plata hans, Poetry
& Aeroplanes (2003), út undir merkjum Univer-
sal. Færeyingar segja því „okkara Teitur“ alveg
eins og þegar við tölum um hana Björk okkar.
Teitur hefur verið búsettur í London und-
anfarin fjögur ár og var nýkominn úr tónleika-
ferð um Ástralíu þegar blaðamaður hitti hann í
færeyska sjómannaheimilinu í Brautarholti.
Önnur plata Teits, Stay Under The Stars,
kom út í fyrrahaust. Þá hafði hann yfirgefið
Universal, stofnsett eigið merki og samið sjálf-
ur við dreifingaraðila.
„Nú, maður lenti í svona dæmigerðu máli
þarna hjá Universal,“ segir Teitur. „Ég var beð-
inn um að semja meira af „svona“ lögum fyrir
næstu plötu en ég hafði aðrar hugmyndir.
Þannig að ég fór frá Universal og það hefur
gengið mjög vel síðan. Ég hef reyndar verið
sýnilegri eftir að ég fór að gera þetta sjálfur.“
Teitur mun svo gefa út nýja plötu í maí og
verður hún öll sungin á færeysku. Kallast hún
Káta hornið, eftir þekktu staðarminni í Þórs-
höfn.
„Plötunni verður dreift í Færeyjum og á Ís-
landi og ég læt það nægja. En tek hana með
mér á túr fyrir þá sem hafa áhuga. Ég hef ekki
hugmynd um hvernig þessari plötu verður tekið
og ef ég á að vera hreinskilinn, þá er mér alveg
sama. Þetta er plata sem mig langaði virkilega
til að gera, burtséð frá hugsanlegum sölutöl-
um.“
Teitur segir að nokkur pólitísk lög verði á
Káta horninu. Og þegar rætt er við hann er
auðheyrt að hann er mikill Færeyingur.
„Það er eins og maður sjái hlutina skýrar
þegar maður stendur utan við þá,“ segir hann.
„T.d. með þessi mál samkynhneigðra í eyjunum.
Ég skil vel að margir Færeyingar hafi orðið fúl-
ir yfir því að aðrar þjóðir séu að skipta sér af
og dæma okkur. En um leið verðum við að tak-
ast á við það þegar svona mál koma upp og auð-
vitað getum við ekki málað okkur út í horn ef
við viljum taka meiri þátt í samvinnu þjóð-
anna.“
Teitur segir að tilurð plötunnar megi rekja til
aukins sjálfstrausts. Reynsla og þroski hafi bók-
staflega hellst yfir hann á þeim fáu árum sem
hann hefur starfað sem atvinnutónlistarmaður.
„Áður fyrr leit ég fyrst og fremst á mig sem
lagahöfund en núna er ég farinn að líta á mig
sem listamann. Eftir að hafa byggt upp ferilinn
undanfarin ár er ég frjálsari til að gera ná-
kvæmlega það sem mig langar til að gera.“
„Okkara Teitur“
Færeyski tónlistarmaðurinn Teitur treður upp á NASA annað kvöld
Þroskaður Færeyski tónlistarmaðurinn Teitur Larsen hefur marga fjöruna sopið þrátt fyrir ungan aldur og er nú ein skærasta stjarna Færeyinga.
Morgunblaðið/G.Rúnar