Morgunblaðið - 30.03.2007, Qupperneq 54
54 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
TMNT kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 7 ára
Scool for Scoundrels kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15
Scool for Scoundrels LÚXUS kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15
The Hitcher kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Epic Movie kl. 4, 6 og 8 B.i. 7 ára
The Number 23 kl. 10 B.i. 16 ára
Night at the Museum kl. 3.30 og 5.40
Hot Fuzz kl. 5:45, 8 og 10:20 B.i. 16 ára
TMNT kl. 6 og 8 B.i. 7 ára
The Hitcher kl. 10 B.i. 16 ára
- Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir
Frábær gamanmynd frá leikstjóra
Old School með Billy Bob Thornton
og Jon Heder úr Napoleon Dynamite.
PÁSKAGAMANMYNDIN 2007
Of góður?
Of heiðarlegur?
Of mikill nörd?
Hjálp er á leiðinni.
Skóli þar sem góðir strákar
eru gerðir slæmir!
Lífið er leikur. Lærðu að lifa því.
Toppmyndin
í USA
PÁSKAMYNDIN Í ÁR
Bardagafimu skjaldbökurnar eru mættar aftur
í flottustu ævintýrastórmynd ársins
ÞEIR 1.800 miðar sem eftir voru á tónleika Josh Groban í Höllinni 16. maí
seldust upp á innan við fjórum mínútum í gærmorgun og því hefur verið
ákveðið að halda aukatónleika 15. maí. MasterCard-sala hefst 3. apríl en al-
menn sala daginn eftir. Aðeins er selt í númeruð sæti og miðaverð er:
12.900 kr. í sal (nær sviði), 9.900 í stúku (fjær sviði). Gjöf en ekki gjald,
myndi einhver segja þegar Josh Groban er annars vegar.
Uppselt! Aukatónleikar!
ÆFINGAR á söngleiknum Gretti
hófust að nýju á miðvikudags-
kvöldið, en Halldór Gylfason, aðal-
leikari sýningarinnar, hafði fengið
hastarlegan bakverk sem varð til
þess að fresta þurfti frumsýningu
verksins, sem fyrirhuguð var nú á
föstudag. Æfingar höfðu að mestu
legið niðri síðan á sunnudag. Ekki
verður þó hægt að frumsýna verkið
nú um helgina, enda lokasprett-
urinn í æfingum á verkinu eftir.
Ekki hefur verið staðfest hvenær
frumsýnt verður.
Æfingar hafnar
að nýju
BENNI Hemm Hemm er á hinum
svokallaða heita lista í tímaritinu
Rolling Stone sem gefið var út í
Bandaríkjunum nú í vikunni.
Þar segir meðal annars að Benni
sé einhvers konar blanda af Sufjan
Stevens og Sigur Rós og að tónlist
hans sé töfrandi og skemmtileg.
Annars er Benni nýkominn heim
úr tónleikaferðalagi um Evrópu og
hafa góðir dómar birst um tónleika
hans. Meðal annars gaf veftímaritið
Drowned tónleikum Benna á Para-
diso í Amsterdam níu af tíu mögu-
legum.
Benni Hemm
Hemm heitur
THE History Channel er nýjasta
stöðin í hinum svokallaða „allt“
pakka SkjásHeims. Á stöðinni eru
sýndir áhugaverðir þættir um ýmsa
atburði í mannkynssögunni. Áskrift
að „allt“ pakkanum mun ekki
hækka með tilkomu stöðvarinnar.
Sagan beint
í sjónvarpið
ÚTÓNN og Ísafjarðarbær hafa boð-
ið 10 erlendum blaðamönnum á
Aldrei fór ég suður og meðal þeirra
sem koma eru Mojo, Guardian og
Jan Sneum frá DR, en hann er mik-
ill aðdáandi íslenskrar tónlistar.
Erlendir blaða-
menn á Ísafirði
HLJÓMSVEITIRNAR Morðingjar
og Slugs koma fram á Grapevine
Surprise tónleikum á Bar 11 við
Laugaveg í kvöld. Tónleikarnir
hefjast klukkan 22 og er aðgangur
ókeypis.
Morðingjar og
Slugs á Bar 11
ANNAÐ kvöld heldur amerísk/
franska tónlistarkonan Uffie tónleika
á Barnum á efri hæðinni á Laugavegi
22 með Dj Feadz og Steed Lord. Uf-
fie spilar rafmagnað hiphop og gaf
meðal annars fyrir stuttu út smá-
skífu hjá Ed Banger.
Steed Lord var stofnuð fyrir rétt
rúmu ári af þeim Einari, Svölu
Björgvinsdóttur og Eðvarði en
kveikjan að bandinu var sú að Elli,
sem er bróðir Einars og Eðvarðs, gaf
Svölu takt í afmælisgjöf. Elli slóst
svo í hópinn er hann sneri heim úr
tattúnámi og þannig hefur sveitin
verið skipuð síðan. Þau koma reynd-
ar öll fram undir listamannsnöfnum,
Svala er Kali, Elli er A.C., Einar er
M.E.G.A. og Eðvarð er A.C Ban-
ana$.
Á leið til New York
Einar segir að músíkin sem þau
semja sé mikið samvinnuverkefni,
það leggi allir sitt af mörkum, en þau
eru búin að vera á fullu að semja frá
því síðasta vor og eiga á fjórða tug
laga. „Það hefur ekki verið tími til að
taka neitt upp,“ segir Einar enda
hafa þau verið á ferð og flugi, eru
meðal annars nýkomin frá Flórída og
eru síðan á leið til New York í næsta
mánuði. „Við ætlum þó að taka okkur
tíma til að gera plötu í sumar, erum
með á það á túrplaninu að spila ekk-
ert í júní, svo við náum að taka eitt-
hvað upp. Það er búið að vera allt of
mikið í gangi,“ segir hann og dæsir.
Undir „house-áhrifum“
Músíkin sem Steed Lord spilar er
taktföst og drífandi, „house-leg“ eins
og heyra mátti á lögunum „Dirty
Mutha“ og „You“ sem komust á
kreik síðasta vor. Hljóðin sem sveitin
notar eru mörg skemmtilega „gam-
aldags“ ef svo má segja, þótt tónlistin
sé nútímaleg. Einar segir að það sé
ekkert sérstakt markmið sveit-
arinnar að vera „retró“, þetta atvik-
ist bara svo þegar þau séu að velja
hljóð og takta til að vinna en óneit-
anlega séu þau undir sterkum áhrif-
um frá „house-tónlist“ fyrri tíma þó
þau séu ekki að herma eftir einum
eða neinum.
Steed Lord hitar upp fyrir Uffie á
tónleikunum annað kvöld og Einar
segir að sveitin spili fyrir vikið
styttra sett en þegar hún er ein á
ferð. „Það verður þó ekkert slegið af,
brjáluð keyrsla og brjálaður kraft-
ur,“ segir hann en meðal þekktari
laga hyggst sveitin viðra eitt nýtt lag.
Áhugasamir geta hlustað á lög með
Steed Lord á myspace.com/
steedlord.
Brjáluð keyrsla á Barnum
Retró Steed Lord hyggst bjóða upp á „brjálaða keyrslu og brjálað power“.
Hljómsveitin
Steed Lord á
yfir 40 lög á lager