Morgunblaðið - 04.04.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.04.2007, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is FULLTRÚAR Orkuveitu Reykjavíkur og banda- ríska fyrirtækisins Cisco ætla á næstunni að kanna til hlítar hvort raunhæft sé að setja upp netþjónabú hér á landi sem nýti umhverfisvæna orku. Þetta var niðurstaða fundar sem Guðlaugur Þór Þórðarson, stjórnarformaður OR, átti með forsvarsmönnum Cisco í Kaliforníu. Jafnframt kynnti Guðlaugur Þór fyrir Cisco hvað Orkuveitan gæti boðið varðandi umhverfisvæna orku. „Cisco hefur sett sér metnaðarfull markmið í um- hverfismálum. Netþjónar fyrirtækisins í Bretlandi eru 100% knúnir umhverfisvænum orkugjöfum. Þetta hlutfall er 20% hjá netþjónum sem fyrirtækið er með í Bandaríkjunum. Fyrirtækið tekur þátt í verkefnum sem skuldbinda það til að setja markið hærra hvað þetta varðar. Þessi fundur var haldinn til að kynna fyrir fulltrúum Cisco hvað við hefðum upp á að bjóða og hvort það væri einhver flötur á samvinnu. Í stuttu máli sagt var niðurstaðan sú að þetta yrði skoðað frá öllum hliðum. Þeir bentu á að fjarlægðir sköp- uðu vissan vanda, en slíkir hlutir breytast. Ég tel mikilvægt að það liggi fyrir hvort þetta er hægt.“ Guðlaugur Þór sagði að rekstur netþjónabúa væri orkufrek starfsemi. Forsenda samstarfs Cisco við OR væri að Orkuveitan gæti boðið upp á næga orku sem byggðist á endurnýjanlegum orkulindum á hagstæðu verði. Guðlaugur Þór heimsótti fleiri fyrirtæki í heim- sókn sinni til Kaliforníu. Einnig ræddi hann við for- svarsmenn umhverfissamtaka og orkuiðnaðar í rík- inu, auk þingmanna þar. Guðlaugur Þór sagði að Grey Davis, fyrrverandi ríkisstjóri í Kaliforníu, hefði sett fram metnaðarfull markmið í umhverf- ismálum. Arnold Schwarzenegger hefði bætt í þau. „Fyrirhugað er að leggja fram frumvarp á ríkis- þinginu um að 33% af orkunni verði umhverfisvæn árið 2020. Á Íslandi er þetta hlutfall 72% í dag. Í Kaliforníu er eitt stærsta jarðhitasvæði í heimi og mikill áhugi á að nýta það. Fram að þessu hafa menn kannski mest horft á sólarorku og vindorku. Vandamálið við þessa orkugjafa er að þeir eru ekki nægilega áreiðanlegir. Orkan sem kemur úr jarð- hita og vatnsafli er áreiðanleg. Það eru hins vegar vandamál sem fylgja virkjun vatnsafls eins og við þekkjum.“ Íslendingar væru í allra fremstu röð þegar nýting jarðvarma væri annars vegar sagði Guðlaugur Þór. „Staða okkar núna er mjög góð og mikilvægt fyrir okkur að nýta þau tækifæri sem eru á þessu sviði.“ Skoða möguleika á að Cisco setji upp netþjónabú á Íslandi Viðræður Guðlaugur Þór hitti fulltrúa Cisco í Kaliforníu og ræddi við þá um hugsanlegt samstarf við OR. Tal Finney (l.t.v.), Rob Thurman, Michelle Wright Conn og Guðlaugur Þór Þórðarson. Eftir Andra Karl andri@mbl.is TÖLUVERT verður þrengt að starfsemi Landhelgisgæslu Íslands á Reykjavíkurflugvelli þegar nýtt háskólasvæði rís í Vatnsmýrinni. Auk þess sem ólíklegt er að Gæslan fái nýtt flugskýli þykir ljóst að með aukinni umferð á svæðinu verði erf- itt fyrir starfsmenn gæslunnar að komast leiðar sinnar þegar útkall ber að. Formaður skipulagsráðs borgarinnar segir mið hafa verið tekið af athugasemdum Gæslunnar og breytingar gerðar á að- alskipulaginu. Spurð um áhrif þeirrar miklu um- ferðar sem bætast mun við í Vatns- mýrinni með tilkomu háskólasamfé- lagsins segir Geirþrúður Alfreðs- dóttir, flugrekstrarstjóri Gæsl- unnar, að eins og staðan sé í dag sé ekki búið að leysa það vandamál. „Það verður erfitt fyrir útkallsvaktir okkar. Það er nógu erfitt núna, s.s. á sumrin þegar kemur góður sól- ardagur og fólk flykkist í Nauthóls- vík, fyrir okkar fólk að komast í út- köll. Einnig er ljóst að það mun þrengja verulega að starfsaðstöð- unni og fá úrræði í stöðunni. „Við höfum ekki mörg úrræði ef það er þrengt svona að okkur, nema við fengjum leyfi til að teygja okkur lengra til norðurs.“ Hún segir að verið sé að skoða þessi mál innan Gæslunnar um þessar mundir. Afar þröngt er nú orðið um starf- semina á Reykjavíkurflugvelli og hefur verið brugðist við því með bráðabirgðalausn, á næstunni verð- ur komið fyrir gámum sem nýtast munu en Geirþrúður bindur þó vonir við að húsnæðið verði stækkað. Haukur Hauksson, fram- kvæmdastjóri flugvalla- og leið- sögusviðs Flugstoða, segir stórkost- leg vandræði með landsvæðið umhverfis Gæsluna vegna þrengsla. „Þetta þýðir mikil þrengsli fyrir gæsluna og flugvöllinn í heild. Borg- in hefur tekið þessa ákvörðun, út- hlutað þessu svæði til HR og á sín- um tíma þegar það var í undirbúningi var ekki einu sinni beðið um umsögn frá flugmála- yfirvöldum.“ Fyrirvari settur á skipulagið Hanna Birna Kristjánsdóttir, for- maður skipulagsráðs borgarinnar, segir að rætt hafi verið við Gæsluna á sínum tíma og fundir verið haldnir. „Við töldum okkur hafa tekið mjög mikið mið af þeim athugasemdum sem fram komu,“ segir Hanna Birna og bætir við að ákveðnar breytingar hafi verið gerðar á aðalskipulags- tillögunni sem sneru m.a. að því að setja fyrirvara við skipulag á svæð- inu næst flugbrautunum. Hanna Birna vísar einnig í tillögu sem samþykkt var í framhaldi af fundum með forsvarsmönnum Gæsl- unnar en þar segir m.a.: „Gert er ráð fyrir að núverandi starfsemi Landhelgisgæslu Íslands geti verið áfram á svæðinu og jafnframt er heimilt að endurnýja húsnæði henn- ar í samræmi við nýtt deiliskipulag fyrir viðkomandi reit.“ Innan Landhelgisgæslunnar er verið að skoða áhrif nýs háskólasvæðis á starfsemina á Reykjavíkurflugvelli Verulega þrengt að               !"  #$!  %&$" ! '!"(!    BJÖRN Jóhann Björnsson hefur á ný tekið við fréttastjórn viðskipta- fréttadeildar Morgunblaðsins. Hann hefur undanfarin misseri verið einn af kvöldfrétta- stjórum blaðsins, jafnframt því að hafa umsjón með Viðskiptablaði Morgunblaðsins á fimmtudögum. Hann var ráðinn fréttastjóri við- skiptafréttadeild- ar í nóvember 2005 og gegndi því starfi þar til á síðasta ári er breytingar urðu á stjórnskipulagi ritstjórnar og hann varð einn af kvöldfréttastjórum blaðsins. Þar á undan starfaði Björn á innlendri fréttadeild og skrifaði þá mikið um atvinnutengd málefni, svo sem virkjanamál og stóriðju. Björn fæddist 20. maí 1967 á Sauð- árkróki. Hann varð stúdent frá Fjöl- brautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki 1987 og stundaði nám í íslensku og fjölmiðlafræði við Há- skóla Íslands um þriggja ára skeið. Hann hefur m.a. verið blaðamaður á Degi, bæði nyrðra og í Reykjavík, og á DV en réðst til starfa á Morgun- blaðinu haustið 2000. Björn Jóhann er kvæntur Eddu Traustadóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau tvö börn. Fréttastjóri viðskipta- frétta á ný Björn Jóhann Björnsson ♦♦♦ SETT hafa verið upp ný gangbraut- arljós yfir Háaleitisbraut í því augnamiði að auka öryggi skóla- barna og annarra vegfarenda. Nýju ljósin eru norðan við verslunarmið- stöðina Miðbæ og verða þau tekin í notkun í dag. Ljósin eru af nýrri gerð umferðarljósa sem skynja gangandi vegfarendur. Skynjarinn fylgist með vegfarandanum og lætur græna ljósið loga þar til hann er kominn yfir. Með þessu fyrirkomulagi er ljós- stýringin aðlöguð þeim sem eru lengur á leiðinni og ennfremur er ak- andi umferð aðeins stöðvuð þann tíma sem nauðsynlegt er hverju sinni. Eins og á öllum gangbrautar- ljósum þurfa gangandi vegfarendur að ýta á hnapp til að panta ljósin. Ný gang- brautarljós TVÆR fjölskyldur taka þátt í óp- erunni Cavalleria Rusticana, sem verð- ur frumsýnd í Íslensku óperunni á annan í páskum. Þetta er samstarfs- verkefni óperunnar og Óperukórs Hafnarfjarðar og það er stofnandi hans og stjórnandi, Elín Ósk Ósk- arsdóttir, sem syngur aðalkven- hlutverkið og eiginmaður hennar, Kjartan Ólafsson, er aðstoðarkórstjóri og syngur í kórnum eins og Heimir Þór Kjartansson sonur þeirra. Annar einsöngvari, Hörn Hrafnsdóttir, á for- eldra í kórnum; Hrafn Andrés Harð- arson og Önnu Sigríði Einarsdóttur. Auk þeirra eru nokkur hjón og pör í kórnum þannig að sterk fjölskyldu- stemning ríkir í hópnum. Fjölskyldu- söngur í Óperunni Morgunblaðið/Kristinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.