Morgunblaðið - 04.04.2007, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Í FYRIRLESTRI á vegum
Félags þjóðfræðinga í dag,
kynnir Helga Einarsdóttir
þjóðfræðingur efni MA-
ritgerðar sinnar við háskólann
í Cork á Írlandi. Valkyrjur,
hórur og heilagar meyjar:
Ímyndir og hlutverk írskra yf-
irnáttúrulegra kvenna. Helga
fjallar um breyttar ímyndir
írskra yfirnáttúrlegra kvenna
frá heiðnum tíma til nútíma
kaþólsks samfélags. Þróun og breytingar þessara
kvenímynda verða ræddar í menningar- og trúar-
legu samhengi með áherslu á breytt kynhlutverk
við kristnitöku. Erindið hefst kl. 17.15 í Odda.
Fræði
Valkyrjur, hórur
og heilagar meyjar
Helga Einarsdóttir
ÖRN Árnason leikari, söngvari
og skemmtikraftur verður
gestur Antoniu Hevesi píanó-
leikara á Hádegistónleikum í
Hafnarborg kl. 12 á hádegi í
dag.
Örn syngur íslensk leik-
húslög eftir Jóhann G. Jó-
hannsson og Þórarin Eldjárn
við undirleik Antoníu, sem er
listrænn stjórnandi Hádeg-
istónleikaraðarinnar.
Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund
og eru hugsaðir sem tækifæri fyrir fólk til að njóta
góðrar tónlistar í hádegishléi. Ókeypis aðgangur
meðan húsrúm leyfir.
Tónlist
Lögin úr leikhúsinu
hjá Erni og Antoníu
Örn Árnason
FJÓRÐI fyrirlesturinn um
dauðasyndirnar sjö í fyr-
irlestraröð Borgarbókasafns
Reykjavíkur verður í dag kl.
17:15. Þá fjallar Valgerður
Dögg Jónsdóttir um öfundina.
Fyrirlestraröðin er fengin að
láni frá Akureyri en þar stóð
Amtsbókasafnið að henni
ásamt fleiri aðilum fyrr í vet-
ur. Fyrirlesarar koma úr ýms-
um áttum og lítur hver við-
fangsefnið sínum augum, eins og vera ber.
Dagskráin, sem tekur um klukkustund, fer fram í
aðalsafni Borgarbókasafns í Tryggvagötu 15 og er
öllum opin meðan húsrúm leyfir.
Fræði
Aumur er
öfundlaus maður
Vonda drottningin
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is
Allt frá barnæsku hafa Pass-íusálmar séra HallgrímsPéturssonar verið tón-skáldinu Sigurði Sævars-
syni sérlega hugleiknir. Einkum
virðist sem útvarpslestur sálmanna –
og sérstaklega þau vers sem sungin
voru – hafi náð varanlegri fótfestu
hjá tónskáldinu á barnsaldri. Því má
segja að óratorían Hallgrímspassía
eftir Sigurð Sævarsson, sem frum-
flutt verður á föstudaginn langa í
Hallgrímskirkju, eigi sér töluverðan
aðdraganda og er hún óneitanlega
þýðingarmikil fyrir tónskáldið.
Flytjendur verksins eru kamm-
erkórinn Schola cantorum og ein-
söngvarar eru sömuleiðis úr hans
röðum. Hrólfur Sæmundsson, bari-
tón, fer með hlutverk Jesú, Benedikt
Ingólfsson, bassi, syngur Pílatus og
Gísli Magnason fer með hlutverk
Júdasar. Jóhann Smári Sævarsson,
bassi, fer með stærsta hlutverk
verksins sem er sögumaðurinn Hall-
grímur Pétursson. Hljóðfæraflutn-
ingur er í höndum og kammerhóps-
ins Caput en stjórnandi er Hörður
Áskelsson. Þess má geta að Schola
cantorum var nýverið tilnefndur til
tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs
2007.
Kveður við nýjan tón
Hallgrímspassía Sigurðar er
þriðja óratórían sem byggð er á
Passíusálmum Hallgríms Péturs-
sonar og er flutt í Hallgrímskirkju.
Hinar tvær eru annars vegar sam-
nefnt verk eftir Atla Heimi Sveins-
son, sem Mótettukórinn flutti ásamt
stórri blásarasveit og hópi leikara í
sjónvarpi árið 1988. Þá var Passía
Hafliða Hallgrímssonar frumflutt ár-
ið 2001 og hljóðrituð ári síðar; verk
fyrir kór, hljómsveit og tvo einsöngv-
ara. Verk Atla og Hafliða eru mjög
ólík að sögn Harðar Áskelssonar
stjórnanda, þótt bæði byggist á text-
um Passíusálmanna og í verki Sig-
urðar Sævarssonar kveður við enn
annan tón.
„Ég vildi byrja með algjörlega
hreint borð með því að skírskota ekki
í eitt eða neitt og gera alveg nýtt
verk,“ segir tónskáldið Sigurður
Sævarsson.
Það má vissulega segja að nálgun
Sigurðar að Passíusálmunum sé sér-
stök og nýstárleg. Eins og Sigurður
áréttar sjálfur þá reynir hann að
forðast hvers kyns skírskotanir og
hann smíðar formgerðina alveg upp
á nýtt. Það sem vekur sérstaka at-
hygli er að aðalhlutverk óratóríunnar
er Hallgrímur sjálfur þar sem hann
kemur fram sem sögumaður en hann
er einmitt sunginn af Jóhanni Smára
Sævarssyni, bróður tónskáldsins.
„Hallgrímur kemur þarna fram
eins og guðspjallamaður og segir
söguna og lýsir því sem er að ger-
ast,“ segir Sigurður.
„Upphaflega ætlaði ég mér að búa
til verk sem væri svipað lestrinum
eins og ég man eftir honum úr út-
varpinu. Síðan breyttist verkið
skyndilega í það að vera hádrama-
tískt,“ lýsir Sigurður.
„Ég fann það síðan hversu mikið
Hallgrími er niðri fyrir í sálmunum –
hann er reiður og sorgmæddur í
senn. Þá fannst mér stuðlarnir, höf-
uðstafirnir og rímið allt í einu ekki
skipta máli,“ heldur Sigurður áfram.
„Þegar maður fer svo að grafa
dýpra ofan í textann þá finnur maður
sífellt meira fyrir tilfinningu Hall-
gríms sem er á bak við þetta allt
saman. Ég læt í rauninni textann
leiða mig áfram og hann gerir það.
Ég vinn þetta svolítið þannig að ég
les textann og reyni svo að sjá hann
fyrir mér eins og bíómynd eða ein-
hvers konar senu og svo sem ég tón-
list við senuna. Orð Hallgríms eru
alltaf í forgrunni en ég er ekki að
laga til orðin hans að músíkinni
minni; orðin koma fyrst og músíkin
síðan.“
Þetta er í fyrsta sinn sem Sigurður
starfar með Schola cantorum og
hann fer ekki leynt með ánægju sína
með það samstarf.
„Þetta er algjört æði. Það er rosa-
lega gott að vinna með svona miklu
fagfólki sem kemur svolítið með sitt
að verkinu líka. Það er alltaf ynd-
islegt að finna fyrir því þegar fólk
leggur sig allt í verkefnið.“
Kyrrlátt og kröftugt í senn
Eins og Sigurður nefnir er heil-
mikil dramatík í verkinu sem knúin
er áfram af bæði söngvurum og
hljóðfæraleikurum.
„Óratóríuformið er náttúrulega
skylt óperunni þar sem dramatíkin
kemur til sögunnar og persónuskipt-
ing. Það eru bara ekki tjöld í óratórí-
unni – þar liggur stóri munurinn,“
útskýrir Hörður Áskelsson stjórn-
andi verksins. Jesús, Pílatus, Júdas
og Hallgrímur hafa sem fyrr segir
allir sína einsöngvara.
„Og þegar lýðurinn hrópar þá
hrópar allur kórinn; meira að segja
hljómsveitin fær að hrópa með,“ lýsir
Hörður.
„Ég myndi segja að áferðin á verk-
inu væri mjög kyrrlát – mjög íhug-
andi. Það mætti segja að þetta væri
eins konar íhugunartónlist þar sem
gjarnan er staldrað við og hvílt. Svo
koma oft mjög kröftugir og drama-
tískir drættir þar sem lögð er áhersla
á spennu og kraft.“
Tónleikarnir fara sem fyrr segir
fram á föstudaginn langa og hefjast
þeir kl. 22. Almennt miðaverð er
2.500 kr. en 2.000 kr. fyrir aldraða,
öryrkja og námsmenn. Forsala miða
fer fram í Hallgrímskirkju.
Óratórían Hallgrímspassía frumflutt á föstudaginn langa í Hallgrímskirkju
Reiði og sorg Hallgríms
JÓHANN Smári Sævarsson syngur Hallgrím Pétursson í Hallgrímspassíu
eftir bróður sinn, Sigurð Sævarsson tónskáld. Schola Cantorum og kamm-
erhópurinn Caput flytja undir stjórn Harðar Áskelssonar.
Morgunblaðið/Einar Falur
Píslarsagan í Hallgrímskirkju
BRETAR efna um þessar mundir til
ljóðasamkeppni í tilefni af því að
tvö hundruð ár eru liðin frá því að
þrælasala var bönnuð þar í landi.
Það er breska listráðið sem stendur
fyrir samkeppninni, og þema henn-
ar er þrældómur.
Meðal þeirra sem munu keppa að
verðlaununum eru virt skáld, eins
og Bernardine Evaristo, sem heim-
sótti Ísland á breskri bók-
menntahátíð hér, árið 2002; Fred
D’Aguiar og Paul Farley, en list-
ráðið pantar sérstaklega ljóð af
þessu tilefni hjá virtum skáldum.
D’Aguiar sem ríður á vaðið nú í
apríl minntist, þegar tilkynnt var
um keppnina, textabrots úr skáld-
sögu Faulkners, Sálumessu nunnu:
„Við þekkjum öll orð Faulkners:
„Fortíðin er aldrei farin“ og það á
sérstaklega við um þrælahald sem
enn er til umræðu í dag. Ef við
gleymum ekki fortíðinni, gætum
við reynt að komast hjá því að end-
urtaka þau mistök sem við höfum
gert. Það væri svolítil miskabót fyr-
ir sársauka þolendanna í mein-
gjörðum mannkynssögunnar.“
Peter Hewlett forstöðumaður
listráðsins benti á hve frásagn-
arlistin og kveðskapur væru sterk-
lega tengd þrælahaldi.
„Listráðið vonar að ljóða-
samkeppnin kveiki neista í brjóst-
um óþekktra sem þekktra skálda
og sé hvatning til yrkinga í hefð
frásagnarlistarinnar.“ Keppnin er
eingöngu opin skáldum sem ekki
hafa gefið út ljóðabók í fullri lengd.
Sigurljóðið verður gefið út með
þeim ellefu ljóðum valinkunnu ljóð-
skáldanna sem listráðið pantar, og
verðlaunaskáldið fær í kaupbæti
fimmhundruð pund, eða um sextíu
og fimm þúsund krónur.
Ljóðað
fyrir frelsi
Bretar minnast af-
náms þrælahalds
með ljóðasamkeppni
Bernardine Evaristo
Í HNOTSKURN
» Hallgrímspassía er óratóríaeftir tónskáldið Sigurð Sæv-
arsson sem frumflutt verður á
föstudaginn langa í Hallgríms-
kirkju.
»Flytjendur verksins erukammerkórinn Schola Can-
torum og hljóðfæraflutningur
er í höndum kammerhópsins
Caput. Stjórnandi er Hörður
Áskelsson.
»Kammerkórinn Schola Can-torum var nýverið til-
nefndur til tónlistarverðlauna
Norðurlandaráðs árið 2007.
» Stærsta hlutverkið er per-sóna Hallgríms Péturssonar
en hann er sögumaður verksins.
Hutverk Hallgríms er í höndum
Jóhanns Smára Sævarssonar,
bassa, sem er bróðir tónskálds-
ins.