Morgunblaðið - 04.04.2007, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skráðu þig fyrir 15. maí 2007.
MA
í skattarétti
„ÞETTA hefur verið vandamál undanfarin ár,“ seg-
ir Daníel Friðjónsson, formaður stjórnar Lúðra-
sveitar Reykjavíkur, um veggjakrot á Hljómskál-
anum við Fríkirkjuveg. Um þessar mundir er húsið
útbíað í slíku kroti og raunar hefur veggjakrot víða
verið til ama í borginni í vetur.
Daníel segir sveitina ekki eiga peninga til að
mála yfir krotið á húsinu um leið og þess verður
vart. „Við höfum varla efni á að mála húsið einu
sinni, hvað þá oft,“ segir hann. Nýtt krot bætist við
í hverjum mánuði, en lúðrasveitin beri kostnað af
viðhaldi við húsið. Hann segist vonast til að málað
verði yfir veggjakrotið á Hljómskálanum með vor-
inu.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
„Höfum varla efni á að mála“
RÍKISSAKSÓKNARI hefur ákært tvo menn
vegna mengunarslyss á Eskifirði 27. júní í
fyrra, þegar klórgas slapp út í kjallara sund-
laugarbyggingar og olli því að fjöldi fólks veikt-
ist. Ákæran á hendur stöðvarstjóra Olís á
Reyðarfirði og eins undirmanns hans var þing-
fest hjá Héraðsdómi Austurlands í gær og geta
mennirnir átt allt að þriggja ára fangelsi yfir
höfði sér.
Í ákæru er stöðvarstjóra Olís gefið að sök að
hafa afgreitt þúsund lítra tank, sem merktur
var 80% ediksýra, í stað þúsund lítra af 15%
klórlausn sem átti að dæla í klórtank sundlaug-
arinnar á Eskifirði. Honum er einnig gefið að
sök að hafa gefið undirmanni sínum fyrirmæli
um að fara með tankinn og dæla innihaldi hans
á klórtank laugarinnar.
Undirmaðurinn er ákærður fyrir að dæla 200
lítrum af ediksýrunni í klórtankinn án þess að
ganga úr skugga um hvort í honum væri klór-
lausn. Þetta hafi leitt til þess að ediksýran
blandaðist 300 lítrum af klórlausn sem fyrir var
í klórtankinum og við það myndaðist hin eitr-
aða lofttegund klórgas. Í kjölfarið hafi 45
manns orðið fyrir eitrunaráhrifum, þar á meðal
sviða í augum, uppköstum, ertingu og verkjum
í öndunarfærum og lungum, sem í alvarlegustu
tilfellum leiddu til mikilla öndunarerfiðleika.
Ákært er fyrir brot á 165. gr. almennra
hegningarlaga þar sem fangelsi er lagt við því
ef einhver bakar öðrum tjón m.a. með út-
breiðslu skaðlegra lofttegunda. Mun það vera
mjög sjaldgæft að höfðað sé mál fyrir brot á
þessari hegningarlagagrein. Tekið er á brotum
sem þessum í 28. kafla hegningarlaga um al-
mannahættu.
Aðalmeðferð í málinu fer fram 22. maí n.k.
hjá Héraðsdómi Austurlands.
Ákært vegna mengun-
arslyss á Eskifirði
Ljósmynd/Helgi Garðarsson
Eitrað andrúmsloft Sundlaugargestir og aðrir
nærstaddir glímdu við öndunarerfiðleika og
uppköst er klórgasið myndaðist.
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt karlmann á þrí-
tugsaldri til sjö mánaða fangels-
isvistar fyrir innbrot og þjófnað.
Maðurinn sem á að baki nokk-
urn sakaferil hlaut síðast dóm í
Hæstarétti í maí 2005 og var þá
dæmdur í árs fangelsi.
Hann fékk reynslulausn í mars á
síðasta ári og rauf því skilyrði
hennar með brotum sínum.
Játaði brotin
Maðurinn játaði brotin en hon-
um var gefið að sök að hafa brotist
inn í verslun á Akureyri og stolið
þaðan tóbaki, sælgæti og fimmtán
þúsund krónum í reiðufé.
Einnig var hann ákærður fyrir
innbrot í íbúðarhús í Hafnarfirði
þar sem meðal annars var stolið
rafhlöðum, hleðslutæki fyrir GSM-
síma, sokkum og snyrtivörum.
Freyr Ófeigsson dómstjóri kvað
upp dóminn. Eyþór Þorbergsson
fulltrúi lögreglustjórans á Akur-
eyri sótti málið af hálfu ákæru-
valdsins.
Stal sokk-
um og raf-
hlöðum
Dæmdur í 7 mánaða
fangelsi í héraðsdómi
BJÖRGVIN G. Sigurðsson hefur
fyrir hönd Samfylkingarinnar í
allsherjarnefnd óskað eftir fundi í
nefndinni til að fara yfir stöðuna í
kjaradeilu fangavarða og yfirvalda.
„Staðan er að mati okkar mjög
alvarleg og teflir í tvísýnu starf-
semi fangelsa landsins. Það stefnir í
neyðarástand í íslenskum fang-
elsum leysist kjaradeilan ekki og
teljum við ófært að bíða þar til eftir
kosningar með umfjöllun allsherj-
arnefndar um málið,“ segir í til-
kynningu frá Björgvin.
Björgvin óskar eftir að á fundinn
komi fulltrúi fangavarða og fulltrúi
dómsmálayfirvalda, fangels-
ismálastjóri og dómsmálaráðherra.
Björgvin vill einnig að á fund-
inum verði rædd sú staða sem uppi
er í fangelsismálum vegna húsnæð-
iseklu, biðlista eftir betrun og
„þeirra viðvarandi mannréttinda-
brota sem framin eru á þeim föng-
um sem vistaðir eru við hörmulegar
aðstæður í fangelsinu á Skóla-
vörðustíg,“ eins og segir í tilkynn-
ingu Björgvins.
Stefnir í neyð-
arástand í
fangelsum
ÞEIR sem áttu leið um Ólafsbraut-
ina í Ólafsvík um hádegið í gær ráku
upp stór augu, þegar þeir gengu
framhjá húsi númer 50. Þar var Pól-
verjinn Zbigniew Pienkowski að slá
blettinn, en það telst til tíðinda að
menn taki til við slík verk svona
snemma vors. Zbigniew sá greini-
lega ástæðu til þess og býr kannski
að reynslu frá gamla landinu.
Fyrsti sláttur
í Ólafsvík
Morgunblaðið/Alfons
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
gæsluvarðhaldsúrskurð héraðs-
dóms Reykjaness yfir ungum karl-
manni vegna fjölmargra auðgunar-
og fjármunabrota, auk fíkniefna-
og umferðarlagabrota á tveggja
mánaða tímabili.
Segir í dómi héraðsdóms að kom-
ið hafi í ljós að maðurinn sé í mikilli
óreglu og án atvinnu. Er það mat
lögreglu að hann muni halda áfram
afbrotum ef hann verði látinn laus,
en hann fjármagnar fíkniefna-
neyslu með innbrotum. Maðurinn
mun sitja í gæslu til 23. apríl nk.
Í mikilli óreglu
og án atvinnu
TÍÐARFAR í mars var fremur óró-
legt. Það var þó lengst af hagstætt til
landsins, en til sjávarins var gæfta-
lítið og tíðin talin slæm. Samgöngu-
truflanir á heiðarvegum voru með
tíðara móti sökum illviðra, en snjór
var með minna móti í lágsveitum
miðað við árstíma. Þetta kemur fram
í yfirliti frá Veðurstofu.
Þrátt fyrir hlýindi vel yfir með-
allagi voru þrír marsmánuðir á síð-
ustu árum hlýrri en þessi (2003, 2004
og 2005). Meðalhiti í Reykjavík
mældist 2,2 stig og er það 1,7 stigum
ofan meðallags. Á Akureyri var með-
alhitinn 2,0 stig sem er 3,3 stigum of-
an meðallags. Á Hveravöllum var
meðalhiti -3,6 stig og er það 2,3 stig-
um ofan við meðallag. Á Höfn í
Hornafirði var meðalhitinn 3,1 stig.
Úrkomusamt var í mánuðinum. Í
Reykjavík mældist úrkoman 129
mm og er það 57% umfram meðallag
og mesta úrkoma í mars frá árinu
2000, en þá mældist hún 146 mm.
Sólskinsstundir í Reykjavík
mældust 101 og er það 10 stundum
undir meðallagi marsmánaðar. Á
Akureyri mældust sólskinsstund-
irnar 51 og er það 26 undir með-
allagi. Þetta er minnsta sólskin í
mars á Akureyri síðan 1981, en
ámóta sólarlítið var þó 1994.
Hæsti hiti sem mælst hefur í
marsmánuði
Lægsti hiti á landinu í mars mæld-
ist á Kolku nærri Blöndulóni, -21,4
stig, en lægsti hiti í byggð mældist í
Möðrudal 20. mars, -19,9 stig. Hæsti
hiti mældist á Sauðanesvita hinn 31.,
16,9 stig. Hiti fór í 18,4 stig á Dala-
tanga síðar um kvöldið hinn 31. Það
hámark telst til aprílmánaðar í bók-
um Veðurstofunnar. 28. mars árið
2000 mældist hiti á Eskifirði 18,8
stig og er það hæsti hiti sem mælst
hefur í marsmánuði hér á landi, en á
mannaðri stöð hefur hiti orðið hæst-
ur á Sandi í Aðaldal 27. mars 1948.
Frekar órólegt tíð-
arfar í marsmánuði