Morgunblaðið - 04.04.2007, Side 12

Morgunblaðið - 04.04.2007, Side 12
ÞEGAR tölur yfir framleiðslu og sölu á nautgripakjöti fyrir síðasta ársfjórðung (des. 06–feb. 07) eru skoðaðar, má sjá að talsverð aukn- ing hefur orðið á þessu tímabili, m.v. sama tíma fyrir ári. Nemur framleiðsluaukningin 21,3%. Mest munar um aukna framleiðslu ung- nautakjöts en hún hefur aukist um 28,2% á tímabilinu. Sala á nautgripakjöti hefur verið góð og ívið meiri en framleiðslan, eða 3.333 tonn á síðustu 12 mán- uðum, þannig að gengið hefur á birgðir. Þær eru reyndar mjög litl- ar á hverjum tíma, eða aðeins sem nemur nokkurra daga slátrun, enda er mestallt íslenskt nautakjöt selt ferskt – og gott, segir á heima- síðu kúabænda, naut.is Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Grænt og gott Nautpeningurinn í Langholtskoti í Hreppum úðar hér í sig kjarngott grænfóðrið en mikil aukning hefur orðið í kjötframleiðslunni. Umtalsverð aukning fram- leiðslu og sölu á nautgripakjöti 12 MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU Vökvadælur Vökvamótorar Stjórnbúnaður Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is VIÐMIÐUNARVERÐ á þorski hækkaði hinn fyrsta apríl um 7%. Verðið hækkaði síðast hinn 7. marz um 10% og þar áður um 3% 30. jan- úar á þessu ári. Frá því fyrir um ári síðan hefur viðmiðunarverðið hækk- að um 59%. Viðmiðunarverðið gildir sem lágmarksverð í beinum við- skiptum útgerðar og fiskvinnslu. Meginforsenda fyrir þessari hækkun á viðmiðunarverði þorsks er að verð á fiskmörkuðum innanlands í marz hefur hækkað mikið milli ára eins og í janúar og febrúar og hefur það áhrif til hækkunar á viðmið- unarverði þorsks. Verð á þorski er um 50% hærra á mörkuðum nú í marz miðað við sama tíma árið 2006. Friðrik J. Arngrímsson, fram- 50% verðhækkun á þorski á mörkuðum Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Veiðar Hann var fallegur fiskurinn sem skipverjar á Narfa VE lönduðu um daginn. Verð á fiski er nú með allra hæsta móti. Því veldur gengislækkun krónunnar, mikil eftirspurn erlendis og hækkað verð á afurðum ytra. Verð á þorski í beinum viðskiptum hefur hækkað um 59% „Við höfum ekki breytt verði á fiski hjá okkur, þrátt fyrir sveiflur í báðar áttir. Verðið hefur verið óbreytt hjá okkur og við lækkuðum það ekki, þegar virðisauk- inn var lækkaður úr 14% í 7%. Reyndar hækkuðum við verð á lúðu og skötusel lítillega. Okkur þykir bezt að halda verðinu stöðugu. Það er hins vegar liðin tíð að fiskur sé ódýr,“ segir Guðbjörg Glóð Logadóttir, fram- kvæmdastjóri Fylgifiska. Fiskverð er mjög mismunandi eftir verzlunum. Mik- ið er um tilboð og margvíslega tilbúna fiskrétti, sem torveldar verðsamanburð. Yfirleitt virðast verð- sveiflur á fiskmörkuðum ekki koma fram í fiskbúðum nema að takmörkuðu leyti. Kíló af roð- og beinlausum ýsuflökum kostar 1.150 krónur hjá Fylgifiskum. Á vef Hagstofunnar kemur fram vegið með- altal fyrir verð á flökunum á síðasta ári. Það var þá 939 krónur í febrúar, 925 í maí, lægst 892 krónur í ágúst en hæst í nóvember 1.067 krónur. Það er liðin tíð að fiskur sé ódýr matvara á Íslandi Guðbjörg Glóð Logadóttir BRIM hf. hefur gengið frá kaupum á norskum frystitogara, sem er um 70 metra langur og var tekinn í notkun árið 2003. Það er norska útgerðar- fyrirtækið Nordland Havfiske sem er að selja flaggskipið Vestvind frá Melbu til Íslands. Fyrirtækið eru í eigu fyrirtækis Kjell Inge Rökke, Aker Seafoods. Guðmundur Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri Brims, segir að þessi skipakaup séu liður í að endurnýja skipaflota fyrirtækisins, en þau skip Brims sem áður voru í eigu ÚA voru komin til ára sinna. Guðmundur seg- ir að ekkert liggi fyrir hvort þessum kaupum fylgi aðrar breytingar á skipastól Brims. Hann vill ekki gefa upp hvert kaupverð skipsins er. Frá þessu er greint á norskum fréttavefjum og þar kemur fram að gert er ráð fyrir að söluhagnaður norska fyrirtækisins gæti orðið um 400 milljónir króna. Sala skipsins er háð endanlegri skoðun á því og er gert ráð fyrir að skipið verði afhent fyrir lok júnímánaðar. Vestvind er frystiskip, var upphaflega smíðað til veiða á rækju og bolfiski. Síðustu ár- in hefur verð á rækju verið svo lágt og olíuverð svo hátt að útgerð skips- ins hefur engum hagnaði skilað af rækjuveiðunum. Ætlunin er að finna nýrra skip, sem verður ódýrara í rekstri. Með því móti getur fyrirtæk- ið dregið úr útgerðarkostnaði, sem gæti numið 100 milljónum króna fyr- ir skatta. Þá er gert ráð fyrir að þessar breytingar losi fé sem nemi allt að einum milljarði króna. Brim keypti nýlega frystitogarann Kleifa- berg og hefur tekið við útgerð hans. Brim kaupir norskt skip FORSÆTISRÁÐHERRA hefur skipað nefnd til að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn. Í nefndinni eiga sæti Róbert R. Spanó, prófessor í lögfræði við HÍ, sem er formaður, Sigrún Júl- íusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf við HÍ, Jón Friðrik Sigurðsson, yf- irsálfræðingur á LSH, og Ragnhild- ur Bjarnadóttir, dósent í sálfræði við KHÍ. Ritari nefndarinnar er Aa- got V. Óskarsdóttir, sérfræðingur hjá Lagastofnun HÍ. Nefndinni er í fyrstu ætlað að kanna starfsemi vistheimilisins Breiðavíkur á ár- unum 1950 til 1980. Nefndinni er ætlað að skila skýrslu um könn- unina til forsætisráðherra eigi síð- ar en 1. janúar 2008. Nefnd um með- ferðarheimili ÞRÍR ráðherrar í ríkisstjórn Ník- aragva skrifuðu á dögunum undir samstarfssamning við Þróunarsam- vinnustofnun Íslands. Gísli Pálsson umdæmisstjóri ÞSSÍ í Níkaragva skrifaði undir samstarfssamn- ingana fyrir hönd Íslendinga. Und- irritunin vakti umtalsverða athygli fjölmiðla og fjallað var um sam- starfið við Íslendinga á öllum helstu sjónvarpsstöðvum landsins, segir í frétt frá ÞSSÍ. Atlantshafsströndin er fátækasti hluti landsins og hefur ríkisstjórnin, sem tók við völdum í janúar, lagt áherslu á þróun á þeim svæðum í öllum málaflokkum. ÞSSÍ í Níkaragva ÞJÓÐGARÐURINN á Þingvöllum, Umhverfisstofnun, Landsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur hafa samið um samstarf sín á milli um vöktun á lífríki Þingvallavatns. Vöktunin mun veita mikilvægar upplýsingar um ýmsa grunnþætti í lífríki vatnsins sem er nauðsyn- legur þáttur í verndun þess. Mark- miðið með vöktuninni er að beita samfelldum langtímamælingum svo unnt verði að kortleggja hugs- anlegar breytingar á lífríkinu í vatninu vegna meintra álagsþátta svo sem nýtingar vatnsins, frá- rennslis, vatnsmiðlunar eða vega- gerðar. Morgunblaðið/Golli Náttúra Séð yfir Þingvallarvatn. Vöktun á Þingvöllum ÞREMUR ítölskum ferðamönnum var komið til bjargar á mánudag á Öxarfjarðarheiði, þar sem þeir höfðu fest bíl sinn í vondu færi og krapa. Vegurinn var lokaður og voru merkingar uppi við, bæði á ís- lensku og ensku. Festu bíl sinn LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð- inu stöðvaði á mánudagsmorgun akstur konu á fertugsaldri vegna gruns um ölvun undir stýri. Það væri vart í frásögur færandi nema að konan var með barn sitt, á leik- skólaaldri, í bílnum. Konan má bú- ast við sekt, sviptingu ökuleyfis og að mál hennar verði sent barna- verndaryfirvöldum. Ölvuð með barn FRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.