Morgunblaðið - 04.04.2007, Side 13

Morgunblaðið - 04.04.2007, Side 13
kvæmdastjóri LÍÚ, segir að skýr- ingin á hækkun viðmiðunarverðsins, sé auk hækkunarinnar á fiskmörk- uðunum, áhrif af gengislækkun ís- lenzku krónunnar og hækkanir á af- urðaverði erlendis. Minna selt í marz Sala á fiskmörkuðum í marz í ár var minni en í fyrra vegna mikilla ógæfta um miðjan mánuðinn. Nú nam salan 12.672 tonnum að verð- mæti um 2,2 milljarða króna. Á sama tíma í fyrra voru seld 13.686 tonn að verðmæti 1,6 milljarðar króna. Verð- ið hefur hækkað gríðarlega milli ára. Meðalverð á þorski í marz nú var 257 krónur á kíló af slægðum fiski og fór hæst í 334 krónur. Í marz í fyrra var meðalverðið 170 krónur og fór hæst í 239 krónur. Meðalverð á slægðri ýsu nú var 158 krónur og fór hæst í 336. Í fyrra var meðalverðið 101 króna. Svipaðar verðhækkanir hafa orðið á óslægðum fiski. Fyrstu þrjá mánuði þessa árs voru seld 32.100 tonn á fiskmörkuðunum að verðmæti 5,5 milljarðar króna. Meðalverð á slægðum þorski nú var 259 krónur og á ýsu 161 króna. Á sama tíma í fyrra var salan 33.200 tonn að verðmæti 4 milljarðar króna. Meðalverð á slægðum þorski var þá 170 krónur og á slægðri ýsu 106 krónur. Miðað við hið nýja viðmiðunar- verð, er verð á þorski í beinum við- skiptum nú 135 krónur fyrir eins kílós þorsk, slægðan, 185 krónur fyr- ir þriggja kílóa fisk og 260 krónur fyrir þann stærsta, átta og hálft kíló og þyngri. Laun sjómanna og tekjur útgerðar hafa hækkað í sömu hlutföllum, 50%, fyrir þorsk á mörkuðum og 59% fyrir þorsk í beinum viðskiptum á um- ræddu tímabili. Laun sjómanna og tekjur útgerðar eru bundin ákveðnu hlutfalli af aflaverðmæti hverju sinni. Í HNOTSKURN »Nú fást mest 260 krónurfyrir slægðan þorsk í föst- um viðskiptum útgerðar og fiskvinnslu »Meðalverð á þorski í marznú var 257 krónur á kíló af slægðum fiski og fór hæst í 334 krónur »Sala á fiskmörkuðum ímarz í ár var minni en í fyrra vegna mikilla ógæfta um miðjan mánuðinn MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2007 13 E N N E M M / S ÍA / N M 2 7 0 0 1 Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00 Umboðsmenn um land allt Njarðvík 421 8808 Akranesi 431 1376 Höfn í Hornafirði 478 1990 Reyðarfirði 474 1453 Akureyri 464 7940 ER KOMINN! Qashqai er glænýr tímamótabíll frá Nissan. Þessi fjórhjóladrifni borgarjeppi sem beðið hefur verið með þvílíkri eftirvæntingu á Íslandi á eftir að koma verulega á óvart, enda helsti tískubíllinn í evrópskum borgum. Qashqai sameinar eiginleika töff borgarbíls og harðsnúins fjallajeppa. Qashqai – allt á einu bretti. KOMDU OG REYNSLUAKTU Nissan Qashqai 4x4 Verð frá 2.550.000 kr. LANDSSAMBAND íslenskra út- vegsmanna auglýsir styrk til fram- haldsnáms í fiskifræði, sjávarvist- fræði eða sjávarlíffræði. Styrkurinn er ætlaður nátt- úrufræðingum sem hafa lokið eða eru að ljúka grunnnámi í háskóla (BS-prófi) og hyggjast hefja fram- haldsnám erlendis á næsta skólaári. Styrkupphæð er kr. 700.000 LÍÚ veitir námsstyrk VERÐ sjávarafurða lækkaði lítillega í febrúar, eða um 0,2% frá mánuðin- um á undan mælt í erlendri mynt (SDR). Afurðaverð á erlendum mörkuðum er samt sem áður nálægt sögulegu hámarki og hefur hækkað um 12% á síðustu tólf mánuðum. Í ís- lenskum krónum lækkaði afurðaverð í febrúar um 3,6% frá mánuðinum á undan. Síðastliðna tólf mánuði hefur afurðaverðið hækkað um 23% mælt í íslenskum krónum. Þessi útreikn- ingur er byggður á tölum Hagstof- unnar. Fjallað var um þetta í Morgun- korni Glitnis: „Verð á mjöli hækkaði um ríflega 7% (í SDR) í febrúar og er sögulega hátt. Mjölverðið í febrúar var um 74% hærra en á sama tíma í fyrra. Helstu ástæður fyrir háu mjölverði eru minni uppsjávarfiskkvóti í lönd- um S-Ameríku, mikil eftirspurn frá fiskeldi í Kína og stöðug eftirspurn frá laxeldisfyrirtækjum. Góðar horfur í ár Hagur sjávarútvegsfyrirtækja hefur vænkast undanfarið með hækkun á afurðaverði og lækkun gengis krónunnar. Nú hefur krónan reyndar hækkað undanfarnar vikur en afurðaverðið er enn hátt á erlend- um mörkuðum. Ytri aðstæður eru því enn hagfelldar fyrir sjávarút- vegsfyrirtækin. Horfur fyrir yfir- standandi ár eru ágætar, sterk spurn er eftir afurðum á erlendum mörkuðum og gengisspár gera ráð fyrir nokkru veikari krónu en nú er.“ )* )+     +* ++ ,* ,+             "#$ % %&% #   * #  + ,                     !  Hátt verð á fiski SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ hefur birt auglýsingu til sveit- arstjórna um úthlutun byggða- kvóta. Þar kemur fram að sveit- arstjórnir eru umsóknaraðilar fyrir byggðarlögin í sveitarstjórnarum- dæmunum og annast samskipti við ráðuneytið vegna úthlutunarinnar. Umsóknarfrestur um byggðakvóta rennur í dag, 4. apríl. Byggðakvóti FISKISTOFU hefur borist færeysk reglugerð um veiðar á kolmunna í færeyskri lögsögu. Reglugerðin tekur einnig til íslenskra skipa með leyfi til kolmunnaveiða í færeyskri lögsögu. Þessi reglugerð tekur á svæðalokunum, notkun á aflaskilju og setur reglur um meðafla. Kolmunni við Færeyjar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.