Morgunblaðið - 04.04.2007, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
● HÆKKUN varð á hlutabréfum í
kauphöll OMX á Íslandi í gær. Hluta-
bréfavísitalan hækkaði um 0,7% og
endaði í 7.550 stigum. Mest hækk-
un varð á bréfum Vinnslustöðv-
arinnar, eða 2,2%, bréf Actavis
hækkuðu um 2,0% og Landsbank-
ans um 1,9% Bréf Marels lækkuðu
um 0,7 og Eimskipafélagsins um
0,6%. Gengi krónunnar lækkaði um
0,12% í gær. Velta á millibankamark-
aði nam 21 milljarði.
Hækkun í kauphöllinni
● ATLANTSSKIP
hafa flutt losun
og lestun skipa
sinna frá Kópa-
vogi til Hafn-
arfjarðar. Fyrsta
losun á nýju at-
hafnasvæði í
Hafnarfirði fór
fram síðasta laug-
ardag og í vikunni
voru skipin Arn-
arnes og Spaarnegracht losuð og
lestuð í Hafnarfjarðarhöfn.
Með þessari breytingu er lokið fyrri
áfanga af tveimur í flutningum Atl-
antsskipa til Hafnarfjarðar. Annar
áfangi verður flutningur vöruhúsa-
starfsemi skipafélagsins og skrif-
stofu til bæjarins. Áætlað er að hon-
um verði lokið fyrir loks þessa árs.
Þá verður öll starfsemi fyrirtækisins
kominn á einn stað í Hafnarfirði.
Atlantsskip flytur
til Hafnarfjarðar
Skip Atlantsskip
eiga Arnarnesið.
● DANSK-íslenska fríblaðið Nyheds-
avisen er samkvæmt fregnum Berl-
ingske Tidende og fleiri miðla að
rétta úr kútnum, miðað við aukinn
lestur og meiri trú auglýsingastofa á
verkefninu, sem spá því að í sumar
hafi blaðinu fyrir alvöru tekist að
skapa sér sess á dönskum blaða-
markaði. Hins vegar er sett spurn-
ingarmerki við hve lengi og hve mikið
eigendur blaðsins eru reiðubúnir að
leggja fé í fjárfrekan reksturinn. Bent
er á að lesendum Nyhedavisen hafi
fjölgað um 28% frá janúarmánuði til
febrúar sl., eða úr 249 þúsundum í
341 þúsund lesendur.
Nyhedsavisen að
ná vopnum sínum?
ÁÆTLAÐ er að 40 til 50 lánshæf-
iseinkunnir evrópskra og banda-
rískra banka hjá matsfyrirtækinu
Moody’s verði lækkaðar og er talið
að íslensku bankarnir séu þar á með-
al. Fram hefur komið að lánshæfis-
einkunnirnar geti lækkað um einn til
þrjá flokka en þær verða birtar fyrir
10 apríl næstkomandi, en sagt er frá
þessu í Hálffimmfréttum greiningar-
deildar Kaupþings.
Í lok febrúar kynnti alþjóðlega
lánshæfismatsfyrirtækið Moodys
Investors Service breytta aðferða-
fræði við að meta lánshæfi banka.
Aukin áhersla var lögð á mögulegan
utanaðkomandi stuðning, t.d. af
hálfu ríkissjóðs viðkomandi lands
sem leiddi til þess að talsverðar
breytingar urðu á lánshæfi margra
banka. Í kjölfar þess hækkaði Moo-
dys lánshæfismat íslensku bankanna
í hæstu mögulega einkunn fyrir
langtímaskuldbindingar eða Aaa.
Fyrirtækið hlaut mikla gagnrýni
fyrir þessar breytingar og nú um
nokkra stund hefur þess verið vænst
að aðferðafræðin yrði endurskoðuð.
Í Hálffimmfréttum segir að af er-
lendum fréttaflutningi að dæma
virðist markaðsaðilar ytra gera ráð
fyrir að lánshæfiseinkunnir íslensku
bankanna þriggja, Glitnis, Kaup-
þings og Landsbankans, verði lækk-
aðar um allt að þrjá flokka og muni
þeir þá í versta falli hljóta lánshæf-
iseinkunnina Aa3. Ef það verður til-
fellið verða bankarnir samt sem áður
með betri einkunn en fyrir breyting-
arnar hjá Moodys í febrúar en þá var
einkunn Landsbankans A2 og ein-
kunnir Kaupþings og Glitnis A1.
Búist við lækkun lánshæf-
ismats íslensku bankanna
Moody’s birtir fljótlega endurskoðaðar einkunnir
þeirra muni njóta þeirra aðgerða í
formi hækkandi verðs hlutabréfa.“
Pólitísk óvissa
Í greinargerð sérfræðinga Grein-
ingar Glitnis er vikið að nokkrum
áhrifaþáttum sem geta haft áhrif á
hlutabréfaverð á árinu. Úrslit kom-
andi þingkosninga er einn af þeim og
óvissa sögð um hver niðurstaðan
verður. Lagaleg og efnahagsleg þró-
un í umgjörð hlutabréfamarkaðarins
sé meiri óvissu háð en ella af þessum
sökum. „Útkoma kosninganna getur
haft umtalsverð áhrif á verðþróun
hlutabréfa flestra félaga á markaðn-
um,“ segja Glitnismenn.
Glitnir spáir 37%
hækkun hlutabréfa
Úrslit þingkosninga gætu haft veruleg áhrif á markaðinn
Morgunblaðið/Golli
Hlutabréf Ef spá Greiningar Glitnis gengur eftir munu hlutabréf hækka
um 37% á árinu. Hlutabréfasalar munu hafa í nægu að snúast við skjáinn.
GREINING Glitnis kynnti í gær
nýja afkomuspá sína fyrir hluta-
bréfamarkaðinn. Horfur eru taldar
góðar á árinu fyrir félög í kauphöll-
inni og útlit fyrir áframhaldandi
hækkun hlutabréfa. Á fyrstu þremur
mánuðum ársins hækkaði úrvalsvísi-
tala hlutabréfa um 16,8%, sem er
meira en allt árið í fyrra er vísitalan
hækkaði um 15,8%.
Spáir Greining Glitnis því að
hlutabréfavísitalan eigi eftir að
hækka um 17% til viðbótar á árinu,
miðað við lokagildi hennar í lok
mars, og vísitalan muni því hækka
um 37% á þessu ári. Góð arðsemi og
stöðugur vöxtur muni stuðla að
hækkun hlutabréfanna.
Gert er ráð fyrir almennt góðri af-
komu fjármála- og fjárfestingafyrir-
tækja og að þau styðji að stærstum
hluta við hækkun á hlutabréfaverði
til ársloka. Reiknað er með að mörg
rekstrarfélaganna muni skila lakari
ávöxtun en fyrrnefnd félög. Undan-
tekningarnar er sagðar Actavis og
Bakkavör, þar megi búast við góðri
afkomu á árinu og viðburðaríkum
mánuðum framundan. Um bankana
segir m.a. í afkomuspánni:
„Við teljum að ytra umhverfi
bankanna sé nokkuð hagfellt sem
lýsir sér m.a. í því að vöxtur þeirra er
fjármagnaður með fjölbreyttari fjár-
mögnunarleiðum en áður. Við teljum
bankana hafa brugðist skynsamlega
við gagnrýni erlendra mats- og
greiningarfyrirtækja og að hluthafar
Í HNOTSKURN
»Greining Glitnis reiknarmeð að hlutdeild erlendra
fjárfesta á innlenda mark-
aðnum muni vaxa á árinu og
að dýpt hans aukist samhliða.
»Með innlimun KauphallarÍslands í OMX hafi sýni-
leiki fyrirtækjanna á al-
þjóðamarkaði aukist.
»Jafnframt geti það hafttalsverð áhrif ef eitthvað í
heimsbúskapnum fæli erlenda
fjárfesta frá Íslandi.
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
UM 450 milljóna tap varð af rekstri
Nýsis í fyrra á móti liðlega 1,6 millj-
arða króna hagnaði árið 2005. Tekið
skal fram að eignasafn félagsins
stækkaði gríðarlega í fyrra; heildar-
eignir Nýsis í árslok námu 44,9 millj-
örðum króna á móti 16,4 milljörðum
króna í árslok 2005. Þannig má nefna
að fasteignaeign Nýsir jókst úr 11,9
milljörðum í 25,4 milljarða, verð-
mæti lóða og fasteigna í byggingu
jókst úr um 900 milljónum í 4,3 millj-
arða króna, óefnislegar eignir fóru
úr 470 milljónum í 4,3 milljarða og
eignarhlutir í hlutdeildarfélögum
námu 2,57 milljörðum á móti 210
milljónum í árslok 2005.
Fjármagnsgjöld nær sexfaldast
Þegar horft er á rekstrarreikning-
inn munar mestu um svokallaða
matsbreytingu fjárfestingaeigna,
þ.e. væntanlega uppfærslu á gang-
verði fasteigna, sem skilaði félaginu
1,9 milljörðum 2005 en 366 milljón-
um í fyrra. Tekjur félagsins nær
þrefölduðust milli ára, fóru úr tæp-
um 1,4 milljörðum 2005 í 3,95 millj-
arða í fyrra. Rekstrarhagnaður fyrir
fjármagnsliði nam 1,3 milljörðum á
móti 2,3 milljörðum 2005. Nettó fjár-
magnsgjöld jukust hins vegar gríð-
arlega eða úr 344 milljónum 2005 í
2,17 milljarða króna í fyrra, þannig
að tap fyrir skatta nam 525,5 millj-
ónum á móti 1,98 milljarða hagnaði
2005. Jákvæð tekjuskattsfærsla upp
á 75 milljónir gefur 450 milljóna tap.
Nýsir keypti tvö fasteignafélög í
Danmörku í fyrra og tók yfir tvö
verkefni í einkaframkvæmd á Bret-
landi; á haustmánuðum keypti Nýsir
UK 69% hlut í breska fasteigna-
stjórnunarfélaginu Operon. Stærsta
verkefni félagsins hér innanlands er
uppbygging tónlistar- og ráðstefnu-
húss, hótels og fleiri mannvirkja við
austurhöfnina í Reykjavík en Nýsir
á helming í Eignarhaldsfélaginu
Portus sem stofnað var kringum
verkefnið.
Eignir Nýsis um 45 milljarðar
Tap af rekstrinum 450 milljónir og eiginfjárhlutfall lækkar úr 24% í 14%
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verk Stærsta verkefni Nýsis er að-
ild að byggingu tónlistarhússins.
JÓHANN Óli
Guðmundsson,
eigandi Wireless
Broadband Sys-
tems (WBS), hef-
ur keypt allt
hlutafé í HIVE,
en áður hafði
hann einnig
keypt öll hluta-
bréf í fjarskipta-
félögunum Atl-
assíma og eMax. Félögin fjögur
verða sameinuð undir merkjum
HIVE. Hið nýja félag mun einbeita
sér að svokallaðri fjórðu kynslóð
þráðlausra fjarskipta (4G) þar sem
öll þjónusta, svo sem sími, sjónvarp,
hvers konar nettengsl og mynd-
veitur (e. Video-on-Demand), er
veitt á þráðlausu svonefndu IP-
formi. Farsímar fyrir fjórðu kyn-
slóðina eru í hraðri þróun og
standa vonir til að þeir komi á neyt-
endamarkað undir lok þessa árs,
segir í tilkynningu frá Hive. Er
gagnahraðinn tífaldur á við þriðju
kynslóðar farsíma.
Fyrirtæki Jóhanns Óla, WBS,
hefur á undanförnum árum unnið
að tækniþróun fyrir fjórðu kynslóð-
ina bæði hér á landi og í Þýska-
landi. Sameinað félag hyggst efla
og bæta núverandi þjónustu við
hátt í 20 þúsund viðskiptavini og
ryðja 4G nýjungum braut með nýj-
um tæknilausnum og lækkuðu
verði. Í kjölfarið er stefnan sett á
markaðsfærslu kerfisins á al-
þjóðamarkaði.
Allur gagnaflutningur fyrir far-
síma, heimasíma, nettengingar,
sjónvarpsrásir og myndveitur fer
fram í loftinu og verða kaplar inn í
hús fyrir vikið óþarfir.
Jóhann Óli
kaupir Hive
Jóhann Óli
Guðmundsson
"
# $
%
#
&
'()
*+ ,
$
-.!/ !
=9
'1
3>"'0!?'1
3>'1
3>'@! '@7+
3'0!?'1
)"('0!?'1
+'0!?'1
0''1
1'A ?B'6
*!?C''1
'6 '1
,'1
,>'+'1
2! ! )!D'+$D11'1
#!'1
0.1
A/'1
+'0!?'1
E> '0!?' '1
E> >'0!?'1
F$'1
-,G'3)
H& '1
H& ('1
5!('1
2
2D!B''2!! '"1
-
%34&
)'0 '1
?$'1
%%'
%%'
%%'
!
!
"
#
#!
"
"
!
#
"?
H' '' ''*!?''''''''''2
;1;
1:
1:
<1<<
91=
;;1:<=19;
;1<991:;
=;11
9
:19
1<
<
;
1;;19<
;1;<
1
91;
;
;1
=19;;1<:9
:1
1
;;:1
91
;
9=1
;1
1;1:9
1;1:==
=1
<
1:9
;1;
19
1;==1<<<
1<9
=
9
<
:<
9<<<
9:
99;<
9<
9:<
==<
;<=<<
=
;<
<
;
;:<
;
<<
:
<
=9
9<
9:<
;9
<
''
:
=<
''
''
''
=
:
<<
:=
;<<<
9::
99=<
<
9<
==
<
;<<<<
=
=<
<
;
:<
;<
;
<
:=<
=:
<<
9<
''
''
;
<<<
''
''
''
''
5?' '!
3H1'I'3!! +$(
"?
;
;
:
;
<
:9
:
9
;<
=
''
''
J
"1"
11
<<
=11
<<
=11
<<
=11
<<
=11
<<
=11
<<
=11
<<
=11
<<
=11
<<
=11
<<
=11
<<
=11
<<
=11
<<
=11
<<
=11
<<
=11
<<
11
<<
=11
<<
11
<<
1=1
<<
=11
<<
=11
<<
=11
<<
=11
<<
1=1
<<
1;1;<<
:1=1
<<
-,G6
-,G
!
!
8
8
-,G
7)G
!
!
8
8
JK'L
!
!
8
8
+H2A
J3G
!
!
8
8
-,G8;
-,G'%<
!
!
8
8
● SEÐLABANKINN byrjar að lækka
stýrivexti sína í júlí nk. Þetta er mat
greiningardeildar Landsbankans
sem telur að niðurstaða íbúakosn-
inganna í Hafnarfirði renni stoðum
undir slíka spá, þó enn séu miklar
líkur á áframhaldandi stóriðjufram-
kvæmdum hér á landi á næstu ár-
um. Óvissa sé hins vegar um tíma-
setningar framkvæmda. Hverfandi
líkur séu á því, að í slíkar fram-
kvæmdir verði ráðist fyrr en í fyrsta
lagi á næsta ári.
Vaxtalækkun í júlí