Morgunblaðið - 04.04.2007, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2007 15
HEILDARVELTA í kauphöll OMX
á Íslandi nam 350 milljörðum króna
í marsmánuði. Er veltan fyrstu þrjá
mánuðina orðin 1.329 milljarðar
króna, sem er 3% aukning frá sama
tíma í fyrra. Velta með hlutabréf í
kauphöllinni er 822 milljarðar það
sem af er árinu, sem er 18% aukn-
ing frá síðasta ári. Velta á skulda-
bréfamarkaði það sem af er ári er
495 milljarðar króna og er því um
15% samdrátt að ræða borið saman
við fyrsta ársfjórðung síðasta árs.
Úrvalsvísitalan hækkaði um
16,9% á ársfjórðungnum og vísitala
fjármálaþjónustu hækkaði um
19,2% á sama tíma.
18% meiri velta
með hlutabréf
ÚTLIT er fyrir að að minnsta kosti
eitt svissneskt farsímafyrirtæki fái
úthlutað leyfi til starfrækslu GSM
1800 kerfis hér á landi. Í gær voru
opnuð tilboð í tíðniheimildir fyrir
starfrækslu slíkra kerfa hjá Póst-
og fjarskiptastofnun.
Fjögur fyrirtæki lögðu fram til-
boð, tvö erlend og tvö íslensk: Ami-
telo AG (Sviss), BebbiCell AG
(Sviss), Núll-Níu ehf og IP fjar-
skipti ehf.
Allt að tveimur umsækjendum
verður úthlutað tíðniheimildum.
Sérhver tíðniheimild gildir fyrir allt
landið.
Hverjum umsækjanda var úthlut-
að stigum og verður farið eftir
þessari stigagjöf við úthlutun leyf-
anna, að sögn Hrafnkells V. Gísla-
sonar, forstjóra Póst- og fjarskipta-
stofnunar. Við útreikning stiganna
var miðað við hver áætluð út-
breiðsla viðkomandi farsímakerfis
verður eftir eitt og hálft ár og eftir
þrjú ár. Stigafjöldi umsóknar er
reiknaður á þann veg að prósentu-
tala útbreiðslu við hvorn áfanga fær
mismunandi vægi þannig að því
fyrr sem útbreiðslu er náð fást
fleiri stig.
Úthlutun í lok apríl
Heildarstigafjöldi bjóðenda skv.
tilboðum var eftirfarandi:
Amitelo AG var með 127,5 stig,
en gert er ráð fyrir 95% útbreiðslu
eftir þrjú ár. BebbiCell AG var með
123,0 stig og er gert ráð fyrir 94%
útbreiðslu eftir þrjú ár. Núll-Níu
ehf. var með 118,0 stig og áætlaða
útbreiðslu upp á 80% eftir þrjú ár.
IP fjarskipti ehf. voru með 97,5 stig
og er gert ráð fyrir 65% útbreiðslu
eftir þrjú ár.
Að sögn Hrafnkells er miðað við
að þau fyrirtæki tvö sem eru með
hæsta stigatölu fái úthlutað leyf-
unum. Hins vegar segi í útboðslýs-
ingu að sé munur á stigatölu ákveð-
ins fyrirtækis og þess fyrirtækis
sem flest stig fékk, innan við 10%
sé hægt að horfa til annarra þátta
við úthlutun leyfanna.
Leyfum verður úthlutað í lok
þessa mánaðar og hafa fyrirtækin
tvö, sem fá leyfin afhent, eitt og
hálft ár til að ná fyrstu dreifing-
armarkmiðum sínum, eins og áður
segir. Að þremur árum liðnum
verður dreifingin að hafa náð því
marki sem áður hefur verið lýst. Að
sögn Hrafnkells hefur Póst- og fjar-
skiptastofnun yfir nokkrum úrræð-
um að ráða komi til þess að fyr-
irtæki standi ekki við loforð um
dreifingu. Fyrsta úrræðið væru
dagsektir, en stofnunin hefur ætíð
þann möguleika að svipta fyrirtæki
rekstrarheimild sé dreifing langt
frá áætluðum markmiðum og lítið
útlit fyrir að það breytist.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Kerfi Tvö ný farsímakerfi verða komin í gagnið eftir eitt og hálft ár, gangi
áætlanir eftir. Útbreiðsla kerfanna á að hafa náð hámarki eftir þrjú ár.
Styttist í opnun tveggja
nýrra farsímakerfa
Tvö svissnesk fyrirtæki sækja um leyfi
til starfrækslu farsímakerfis á Íslandi
RÍKISSTJÓRNIN hefur
ákveðið að ráðstafa umtals-
verðum hluta af innstæðu
ríkissjóðs í Seðlabankanum
til að efla eiginfjárstöðu
bankans um 44 milljarða
króna.
Þetta kom fram í ræðu
Geirs H. Haarde forsætisráð-
herra á ársfundi Seðlabank-
ans sl. föstudag.
Fyrir var eiginfjárstaða
bankans rúmir 48 milljarðar
króna í lok febrúar sl. Í til-
kynningu frá forsætisráðuneytinu segir að með þessari ákvörðun sé enn-
fremur fylgt eftir þeirri stefnumörkun ríkisstjórnarinnar að styrkja stöðu
Seðlabankans. Ríkissjóður hafi í fyrra tekið erlent lán til fimm ára upp á
einn milljarð evra, um 88 milljarða króna á núvirði, og endurlánað bank-
anum til að styrkja gjaldeyrisforða hans.
Morgunblaðið/Ómar
Eigið fé Seðlabankans aukið
AÐALFUNDUR
Actavis Group
fer fram í dag og
m.a. verður ný
stjórn kjörin. At-
hygli vekur að
forstjóri fyr-
irtækisins, Ró-
bert Wessman, er
í framboði til
stjórnar og kem-
ur þar nýr inn í
stað Karl Wernerssonar, sem ekki
gefur kost á sér. Aðrir frambjóð-
endur hafa setið í stjórninni áður,
þ.e. Björgólfur Thor Björgólfsson
stjórnarformaður, Magnús Þor-
steinsson, Andri Sveinsson og
Sindri Sindrason. Frambjóðandi í
varastjórn, sem ekki hefur verið áð-
ur hjá Actavis, er Baldur Guðnason,
forstjóri Eimskipafélagsins.
Fátítt er að forstjórar skráðra fé-
laga á markaði hér á landi sitji í
stjórnum fyrirtækjanna, nema þá
sem starfandi stjórnarformenn, líkt
og t.d. með Sigurð Einarsson í
Kaupþingi. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Actavis er Róbert
Wessman ekki að stíga úr stóli for-
stjóra, til að taka við stjórnarfor-
mennsku, en að loknu kjöri mun ný
stjórn skipta með sér verkum.
Þess má geta að Róbert og félög í
hans eigu eiga samanlagt um 136
milljónir hluta í Actavis, eða 4,1%
af heildarhlutafé. Markaðsvirði
hlutarins er um 10 milljarðar kr.
Róbert Wessman í stjórn Actavis
Róbert
Wessman
HAGNAÐUR Sparisjóðs Vestmannaeyja fyrir skatta nam 391 milljón
króna á síðasta ári og hagnaður eftir skatta 320 milljónum, samanborið við
192 milljónir árið 2005. Heildarrekstrartekjur námu 1,3 milljörðum og
gjöld tæpum 900 milljónum króna, að meðtöldum afskriftum.
Bókfært eigið fé sparisjóðsins í árslok 2006 var 1,3 milljarðar og hafði
hækkað á árinu um 40,6%. Þess má geta að Sparisjóður Hornafjarðar og
nágrennis sameinaðist sparisjóði Eyjamanna á síðasta ári. Innlán og verð-
bréfaútgáfa sjóðsins námu í árslok 7,6 milljörðum og hækkuðu um 66,7% á
árinu. Heildarútlán að meðtöldum fullnustueignum námu í árslok 6,6 millj-
örðum sem er hækkun um 60% milli ára.
Sparisjóðurinn í Eyjum í gróða
635BM
18"/20"
415C
16"/18"
324C
17"/18"
530 5700
Fellsmúla 24,
108 Reykjavík
Réttarhálsi 2,
110 Reykjavík
587 5588
Ægisíðu 102,
107 Reykjavík
552 3470 431 1777
Dalbraut 14,
300 Akranesi
555 1538
Reykjavíkurvegi 56,
221 Hafnarfjöður
566 8188
Langatanga 1a,
270 Mosfellsbær
HjólbarðahöllinGúmmívinnustofanHjólVest Hjólbarðaviðgerðin Dekkið Bæjardekk
26
41
/
T
ak
tik
2
9.
03
.0
7
635 C
17"/18"
Öflug hjólbarðaþjónusta
...og rétti tíminn fyrir sumardekkin
undir bílinn þinn. Komdu við
hjá okkur, við byggjum á
áratuga reynslu og þekkingu.
-sérfræðingar í dekkjum-
Kynntu þér
Dekkjahótelið.
Við geymum dekkin fyrir þig
og þau bíða þín þegar þú
þarft næst á þeim að halda.
(ath. gildir aðeins fyrir Hjólbarða-
höllina og Gúmmívinnustofuna)
Flottar felgur.
Kynntu þér úrval álfelga
hjá okkur.
Ekki amalegt að skella nýju
setti undir í leiðinni.
Það verður gaman í sumar!