Morgunblaðið - 04.04.2007, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2007 19
MENNING
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
SKÁLDSAGA Halldórs Laxness
Sjálfstætt fólk er nú komin út í
Portúgal í íslenskri þýðingu Guð-
laugar Rúnar Margeirsdóttur.
Guðlaug Rún
hefur verið bú-
sett í Portúgal
undanfarið 21
ár og hafði
portúgölsk
bókaútgáfa
samband við
hana í því
skyni að þýða
verk íslenska
nóbelsskáldsins.
„Bókin er þessa dagana að
koma í bókaverslanir í Portúgal
og bindur útgefandi vonir við góð-
ar viðtökur ytra. Útgefandi stefn-
ir að markaðsátaki á næstunni í
kjölfar útgáfunnar þar sem hér
þykir um merkilegt ritverk að
ræða, með tilliti til sérstöðu
verksins, en Halldór fékk Nób-
elsverðlaun fyrir verkið árið 1955.
Segja má að nóbelsskáldið okkar
sé lítið sem ekkert þekkt í Portú-
gal, en vonir standa til að nýja
þýðingin muni breyta því,“ segir
Guðlaug Rún.
Þetta mun vera í fyrsta sinn
sem verk Halldórs Laxness kem-
ur út á portúgölsku í Portúgal. Ef
viðtökur við Sjálfstæðu fólki reyn-
ast góðar hefur portúgalski útgef-
andinn, Cavalo de Ferro, hug á
frekari þýðingum úr safni Hall-
dórs og gerir Guðlaug Rún þá ráð
fyrir að taka að sér frekari þýð-
ingar.
„Þessi þýðing var mjög krefj-
andi og tímafrek og var ég reglu-
lega í tölvusambandi við portú-
galskan bókmenntaráðgjafa á
vegum útgáfunnar sem staðfærði
málfar. Ég hef haft mikið álit á
Halldóri sem nóbelsskáldi og
hafði lesið eitthvað eftir hann á
mínum yngri árum. Þessi vinna
færði mig þó nær honum enda býr
verkið yfir ótrúlegum gullmolum.
Svona vinna verður eins og
barnið manns þegar með-
göngutíminn er svona langur, en
eitt og hálft ár er liðið síðan ég
hófst handa. Þegar kemur loks að
fæðingunni þá heldur maður ekki
barninu sínu heldur þarf að láta
það frá sér þótt manni finnist eins
og maður sé aldrei alveg tilbú-
inn,“ segir Guðlaug Rún í samtali
við Morgunblaðið, en hún er nú
stödd hér á landi í stuttu fríi eftir
vinnutörnina.
Fjölskyldan á leið til Íslands
Guðlaug Rún býr í strandbæn-
um Figueira da Foz fyrir norðan
Lissabon ásamt portúgölskum
eiginmanni sínum og tveimur
börnum þeirra. Þau hyggja hins
vegar á flutning til Íslands á
næstunni. Hún stundaði nám við
Coimbra-háskóla í samnefndri
borg þar sem hún lagði stund á
tungumál og bókmenntir. Hún
hefur m.a. starfað sem fararstjóri,
viðskiptatengill og verið fulltrúi
Íslendinga á heimssýningunum í
Hannover og Lissabon.
Sjálfstætt fólk eftir Lax-
ness komin út í Portúgal
Morgunblaðið/Ásdís
Þýðandinn Krefjandi og tímafrek þýðing á Sjálfstæðu fólki.
PACIFICA-kvartettinn var stofnaður fyrir tíu
árum. Hann er af mörgum talinn einn besti
strengjakvartett Bandaríkjanna og hafa þau
fjórmenningar hlotið mikið lof gagnrýnenda,
bæði fyrir tónleikaflutning sinn sem og útgefn-
ar plötur. Á því virðist lítið lát en gagnrýnandi
The New York Times, Anthony Tommasini, er
mjög hrifinn af nýlegri plötu sveitarinnar,
Declarations: Music Between the Wars.
Á plötunni flytur kvartettinn þrjú verk sem
samin voru á níu árum snemma á síðustu öld.
Í dómnum segir meðal annars að gæði plöt-
unnar hafi ekki komið gagnrýnanda á óvart
þar sem hann hafi áður heyrt til stórgóðrar
spilamennsku kvartettsins.
„Pacifica gerir styrkleika verksins fullkomin
skil í kraftmiklum flutningi sínum,“ segir með-
al annars um flutning þeirra á strengjakvar-
tett nr. 2 eftir Leos Janacek.
Kvartettinn er skipaður þeim Sigurbirni
Bernharðssyni, Simin Ganatra, Brandon Va-
mos og Masumi Rostad.
Pacifica Sigurbjörn er annar frá vinstri.
Pacifica
þykir góður