Morgunblaðið - 04.04.2007, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
BORGARSTJÓRN samþykkti á fundi sínum
fyrir helgi að setja í auglýsingu tillögu að
breyttu deiliskipulagi fyrir Laugaveg 33–35 og
Vatnsstíg 4. Í kjölfarið lögðu borgarfulltrúar
Vinstri grænna og Frjálslyndra fram bókun
þess efnis að þeir legðust nú sem fyrr gegn
niðurrifi húsanna, sem og annarra gamalla
húsa við Laugaveg milli Vatnsstígs og Frakka-
stígs. Auglýsingin stendur í sex vikur og fer
skipulagið þá aftur fyrir skipulagsráð til frek-
ari meðferðar. „Ef allt gengur fyrir sig með
eðlilegum hætti má ætla að menn geti farið að
hefja uppbyggingu á þessum reit síðla sumars
eða í haust,“ segir Hanna Birna Kristjáns-
dóttir, formaður skipulagsráðs.
Á fundi skipulagsráðs hinn 14. mars sl. var
lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi
fyrir reitinn en samkvæmt henni er m.a. bygg-
ingarmagn aukið. Tillagan lýtur hins vegar
ekki að niðurrifi húsanna, þar sem ákveðið var
fyrir um fjórum árum núgildandi deiliskipulag
fyrir Laugaveg – og vakti þá mikla athygli. Á
fundi skipulagsráðs óskuðu Svandís Svav-
arsdóttir, fulltrúi VG, og Ásta Þorleifsdóttir,
áheyrnarfulltrúi Frjálslyndra, eftir að fá bók-
að að sú breyting sem var til umfjöllunar væri
sorglegt dæmi um þá stjórnlausu sókn í aukið
byggingarmagn á lóðum við Laugaveg sem ylli
því að sérstaða þessarar elstu verslunargötu
væri óðum að hverfa.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsókn-
arflokks og Samfylkingar óskuðu þá bókað:
„Uppbygging í þessum reit er í góðu samræmi
við löngu samþykkt deiliskipulag við Lauga-
veginn, sem var full samstaða um í skipulags-
ráði á síðasta kjörtímabili. Uppbyggingin
skapar tækifæri til að bæta til muna aðstöðu
fyrir þjónustu og verslun á þessum hluta
Laugavegar og treystir þannig enn frekar
stöðu þessarar mikilvægu verslunargötu borg-
arinnar.“
Engar tillögur að nýbyggingum
Aðspurð út í andstöðuna við niðurrif vísar
Hanna Birna í bókunina þar sem kemur fram
að deiliskipulagið var samþykkt á síðasta kjör-
tímabili, þegar R-listinn var við völd. Hún seg-
ir auglýsinguna núna því ekkert hafa að gera
með niðurrif húsanna, sem þegar er heimilað.
Þegar blaðamaður spyr hvort tillögur séu
komnar að þeim byggingum sem eigi að rísa
segir Hanna að svo sé ekki, hvorki á þessum
reit né við Laugaveg 41 og 45 – sem einnig hef-
ur staðið nokkur styr um.
Hanna Birna segist telja að ef allt gangi fyr-
ir sig með eðlilegum hætti ætti að vera hægt
að hefja uppbyggingu á lóðunum síðsumars
eða í haust, en það velti á lóðareigendum.
Tillaga lögð fram undir yfirskriftinni
„Ný sátt um Laugaveginn“
Svandís Svavarsdóttir segir það gamla sögu
og nýja í skipulagsmálum að annaðhvort sé
fólk að gera athugasemdir of snemma eða of
seint. Hún segir að ekki sé sátt um skipulagið
og telur að skortur sé á tilfinningu og skilningi
á mikilvægi, sögu og samhengi Laugavegar.
Svandís nefnir að Torfusamtökin hafi verið
endurreist og mikill áhugi sé á að halda sam-
hengi í götumynd Laugavegar.
„Ég bind vonir við að hægt sé að ná nýrri
sátt um götuna og mun leggja fram tillögu
undir yfirskriftinni „ný sátt um Laugaveginn“
áður en við klárum þennan vetur í borg-
arstjórn. Ég vona að það verði skilningur á því
að það er þörf á að skoða Laugaveginn út frá
öðrum forsendum en gert var á síðasta kjör-
tímabili.“
Aðspurð hvaða möguleika hún sjái nefnir
Svandís m.a. að hægt sé að halda framhliðinni
á gömlum húsum, byggja vel inn í reitinn og
nýta þannig byggingarmagnið töluvert vel.
Hún segir það hins vegar töluvert dýrari nálg-
un en annars væri farin. „En við þurfum að
leita einhverra leiða, því það eru ekki aðeins
verktakarnir sem eiga þessar lóðir, það eru Ís-
lendingar. Þetta er ekki einkamál þeirra sem
eru að byggja á reitunum.“
Jafnvel hægt að hefja uppbyggingu á
reitnum síðla sumars eða í haust
Morgunblaðið/Ómar
Gömlu húsin Laugavegur 33 var byggt sem íbúðarhús árið 1902 og árið 1910 var komin versl-
un á neðri hæðina. Líklegt verður að teljast að ný bygging komi í staðinn á næstunni.
Í HNOTSKURN
»Núgildandi deiliskipulag fyrirLaugaveg var samþykkt árið 2003.
Þá var gefið leyfi til að rífa eða flytja á
þriðja tug húsa. Nýverið var auglýst
breytt skipulag fyrir Laugaveg 33–35.
»Svandís Svarsdóttir, fulltrúi Vinstri-hreyfingarinnar – græns framboðs í
borgarstjórn, segir að ekki sé sátt um
deiliskipulagið og mun leggja fram til-
lögu um „nýja sátt um Laugaveginn“.
Samþykkt að setja til-
lögu að breyttu deili-
skipulagi fyrir Lauga-
veg 33–35 í auglýsingu
ÁKVEÐIÐ hefur verið að skoski
arkitektinn Graeme Massie vinni
áfram að útfærslu tillögu sinnar um
breytingar á miðbæ Akureyrar, og
skili hugmyndum eftir tvo mánuði.
Massie, sem átti verðlaunatillög-
una um miðbæinn í samkeppninni
sem Akureyri í öndvegi stóð fyrir,
fundaði með forráðamönnum bæjar-
ins í byrjun vikunnar.
Framkvæmdum við fyrirhugaðar
breytingar á miðbænum – síkið sem
Massie lagði til og fleira – var slegið á
frest í fyrra. Að sögn Sigrúnar Bjark-
ar Jakobsdóttur bæjarstjóra í gær
bókaði bæjarráð á sínum tíma að
áfram yrði unnið á grundvelli hug-
myndar Massies. „Ráðið féll ekki frá
hugmyndinni fyrir fullt og allt,“ sagði
hún aðspurð, en umferðarspá fyrir
Glerárgötu og Drottningarbraut
hefði þurft að vinna til þess að koma í
veg fyrir hugsanleg vandamál seinna
meir. Einnig að huga frekar að legu
og gerð síkisins og tengingum við
Hafnarstræti.
Bæjarstjóri segir að hugmynd
Massies, afrakstur af hugmyndasam-
keppni, hafi verið nauðsynlegt að
vinna betur. „Niðurstöður vinnunnar
ættu að liggja fyrir í byrjun júní og þá
er hægt að taka afstöðu til þeirra
hönnunarkosta sem liggja fyrir.“
Massie lagði m.a. til að mjókka
Glerárgötu, frá Sjallanum inn að
Kaupvangsstræti, þannig að aðeins
verði ein akrein í hvora átt og fjöldi
stæða verði báðum megin götunnar.
Arkitektinn sagði við Morgunblaðið í
fyrra mikilvægt að gera sér grein fyr-
ir því að fólk og bílar geti átt samleið á
svæði eins og miðbænum, en hann tel-
ur slæmt að bíllinn hafi forgang. Og
hann leggur áherslu á að bílastæðum
muni ekki fækka í miðbænum, þrátt
fyrir allt, verði hugmyndir hans að
veruleika.
Vegna flókinna lagna frá Símahús-
inu við Hafnarstrætið var talið
ómögulegt annað en síkið yrði mun
styttra en tillagan gerði ráð fyrir.
„Væri allt fullkomið hefði aldrei verið
vafi á því að síkið næði alveg upp að
Hafnarstræti. En mér finnst sjálfsagt
að líta á hindranir sem tækifæri en
ekki vandamál og fyrst umræddar
tengingar eru allar neðanjarðar getur
vel verið að hægt sé að fjarlægja ein-
hver hús sem ekki var gert ráð fyrir
og búa þannig til stærra almennings-
svæði – eða að síkið verði eins og upp-
haflega var áætlað,“ sagði Massie við
Morgunblaðið í fyrra.
Massie skilar
hugmyndum að
útfærslu í júní
BLÓMLEGT verður í listalífinu næstu daga, m.a. í
myndlistinni. Verk Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur eru til
sýnis í Gallerí + og Halldóra Helgadóttir sýnir í Ket-
ilhúsinu; Halldóra er þarna við eitt verkanna sem
prýða veggi hússins, þar sem ýmiss konar lítil blóm
njóta sín vel, stærri en fólk á að venjast.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Listin blómstrar í dymbilviku
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ á
Akureyri hefur á skömmum tíma
fengið tæpar 30 milljónir að gjöf frá
tveimur einstaklingum.
Nýverið var skýrt frá því að FSA
barst í fyrra erfðagjöf eftir Kjartan
Guðmundsson, 25 milljónir króna.
Kjartan fæddist á Mosvöllum í
Bjarnadal í Önundarfirði 7. septem-
ber 1918 og lést á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri 18. október 2005.
Hann var kvæntur Elínu Stefáns-
dóttur sem lést 1996. Kjartan starf-
aði lengst af sem bóndi á Svalbarði á
Svalbarðsströnd og síðar sem iðn-
verkamaður á Akureyri. „Kjartan
var mikill mannvinur og vildi láta
gott af sér leiða í þágu mannúðar-
mála sem lýsir sér vel í þessari gjöf.
Heildarandvirði gjafarinnar var um
25 milljónir króna,“ segir á vef FSA.
Fyrir skömmu barst sjúkrahúsinu
einnig peningagjöf að upphæð fjórar
milljónir frá einstaklingi sem ekki
vildi láta nafns getið.
„Þessar gjafir eru kærkomnar og
renna báðar til gjafasjóðs FSA. Pen-
ingunum verður varið til kaupa á
tækjum og búnaði í þágu sjúklinga,“
segir á vef FSA.
Veglegar gjafir til FSA
Iðnverkamaður arfleiddi spítalann að 25 milljónum króna
AKUREYRI