Morgunblaðið - 04.04.2007, Qupperneq 25
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
Sumarhús til sölu
Björt stofa með stórum gluggum,
eldhús með góðum tækjum og
borðstofa. 2 svefnherb. og 20 fm
svefnloft. Stór verönd. Stutt í alla
afþreyingu. Leiguland. Vel staðsett
eign. Verð 12,8 millj.
Nánari upplýsingar gefur Ásdís
sölufulltrúi s. 898 3474.
47,8 fm sumarhús í Öndverðarnesi
Skógi vaxið land með útsýni. Eldhús og stofa. 2
svefnh. með plastparketi auk svefnlofts. Snyrt-
ing með handklæðaofni. Ca 30 fm verönd. Hús-
ið stendur á 5.490 fm eignarlóð. Einnig er
möguleiki að samliggjandi lóð geti fylgt.
Verð 12 millj. Nánari upplýsingar gefur Ásdís
sölufulltrúi s. 898 3474.
44 fm sumarhús í landi Jarðlangsstaða í Borgarfirði
www.heimili.is
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
BLÁSKÓGARBYGGÐ
Frístundarhús í landi Tjarnar Biskupstungum
Opið hús
laugardaginn 7. apríl milli kl. 14.00 og 16.00
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Sími
530 6500
Að Kötluás 22, 24 og 26 í landi Tjarnar Biskupstungum. Húsin
eru 87,1 fm og 104,6 fm að stærð. Húsin eru tilbúin til afhend-
ingar, fullbúin með innréttingum, gólfefnum og rafmagni. Kalt og
heitt vatn verður komið á vormánuðum. Í minni húsunum eru tvö
svefnherbergi auk svefnlofts. Í stærri húsunum eru þrjú svefnher-
bergi. Gert er ráð fyrir að settur verður heitur pottur á veröndina
á báðum húsunum. Með stærra húsinu fylgir sérstæð geymsla
með sturtuaðstöðu.
Verð frá kr. 26,0 millj.
matur
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2007 25
Ég hef verið að kenna fólkiað galdra fram góða ogholla eftirrétti og kökurmeð lítilli fyrirhöfn. Fólk
þarf bara aðeins að spá í hvað það set-
ur í kökurnar og eftirréttina og þarf
kannski bara uppskriftir og ráðlegg-
ingar um heilnæmt hráefni og aðferð-
ir áður en það byrjar að tileinka sér
hollustuhættina,“ segir Auður Ingi-
björg Konráðsdóttir, kokkur og bak-
ari hjá Manni lifandi. Auður hefur
haldið þar baksturs- og matreiðslu-
námskeið að undanförnu þar sem hún
fjallar m.a. um það hvernig hægt er
að auka hollustu í hefðbundnum upp-
skriftum og hvað hægt er að nota í
baksturinn og matargerðina til að
gera máltíðarnar hollari án þess að
minnka bragðgæðin.
Auður hefur starfað hjá Manni lif-
andi í tæpt ár og tekur að sér fyrir-
lestra og námskeiðahald í bakstri og
matargerð í fyrirtækjum og hjá öðr-
um hópum, sem þess óska. Hún lærði
matreiðslu á Hótel Holti og fór síðan
vestur um haf til Bandaríkjanna, í
Johnson and Wales University í
Providence á Rhode Island, þar sem
hún lærði bakstur og skreytingar.
Daglegt líf falaðist eftir upp-
skriftum af gómsætu hollmeti á kaffi-
hlaðborðið og varð Auður góðfúslega
við því og gaf uppskriftir af súkku-
laðiköku, hnetusmjörsnammi og
möndluköku.
Súkkulaðikaka
1 bolli fínt spelt
2 tsk. vínsteinslyftiduft
½ bolli sojamjólk
vanilla
½ bolli kakó
¼ bolli eplamauk eða banani
½ bolli hrásykur
½ bolli 70% súkkulaði, grófsaxað
Þurrefnum blandað saman í einni
skál og blautefnum í annarri. Öllu
blandað varlega saman, passa að
hræra ekki of mikið. Sett í smurt
form og bakað í um 30 mín. við 175°C.
Krem
1½ dl sojarjómi
2 msk. agave-síróp
175 g 70% súkkulaði, saxað
Suðan látin koma upp á rjóma og
agave-sírópi, hellt yfir súkkulaðið.
Þessu er síðan hellt yfir kalda kökuna
og skreytt að vild, með t.d. ávöxtum
og súkkulaðispónum.
Hnetusmjörsnammi
½ bolli sojamjólk
½ bolli hlynsíróp eða agave-síróp
½ bolli hnetu- eða möndlusmjör
2 bollar haframjöl
½ bolli rúsínur
vanilla
Setja sojamjólk, síróp og smjör í
pott og láta suðu koma upp, hræra
þangað til blandan er mjúk. Blanda
öllu saman, búa til kúlur og velta upp
úr ristuðum, möluðum möndlum eða
hnetum og kæla.
Möndlukaka
3 egg, aðskilin
½ bolli hrásykur
¼ bolli kartöflumjöl
½ bolli appelsínusafi
½ tsk. kanill
1¾ bolli malaðar möndlur
Þeyta egg og sykur, blanda kart-
öflumjöli og appelsínusafa til skiptis
út í. Bæta möndlum og kanil útí og
hræra vel með spaða. Þeyta eggja-
hvítur sér og blanda varlega út í
hræruna. Baka í um 30 mín. við
180°C. Gott að bera fram með ávaxta-
salati og þeyttum rjóma. Gott fyrir þá
sem vilja forðast glúten.
Morgunblaðið/Ásdís
Gott Auður Ingibjörg Konráðsdóttir ætlar að kenna fólki að baka kökur og gera eftirrétti á hollan hátt.
Hollar kökur og eftir-
rétti má líka galdra fram
Hvernig er hægt að auka hollustu í hefðbundnum uppskriftum og hvað er hægt að
nota í bakstur til að gera sætindin hollari án þess að minnka bragðgæðin. Auður
Ingibjörg Konráðsdóttir gaf Jóhönnu Ingvarsdóttur slíkar uppskriftir.
Súkkulaðikaka
MöndlukakaHnetusmjörsnammi
www.madurlifandi.is AUGLÝSINGASÍMI 569 1100