Morgunblaðið - 04.04.2007, Side 27

Morgunblaðið - 04.04.2007, Side 27
daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2007 27 Ágústa Hauksdóttir, Freyja Sigurðardóttir, Magnús Emilsson, löggiltir fasteignasalar – Sími 520 7500 – Fax 520 7501 – www.hraunhamar.is SUMARHÚS SUMARH. VATNSHOLTSV. Sérlega fallegur bústaður við apavatn. Húsið stendur á fallegum stað rétt við vatnið með einstakt 360 gráðu útsýni. Húsið sem stendur á 1 hektara eignar- lóð er heilsárshús byggt úr finnskum límtrésbjálkum þar sem vandað er til alls frágangs. Húsið skilast fullbúið m/innr. og gólfefnum. Um 100 fm verönd er umhverfis húsið en það er sjálft 85 fm auk 35 fm svefnlofts. Stutt er í alla þjónustu í Reykholti og Laugarási. V. 27,9 millj. SUMARH. TIL FLUTNINGS Sérlega vandað 83 fm heilsárshús auk millilofts til flutnings. Húsið afhendist fullbúið án innréttinga og gólfefna. Rafmagn er komið í hús. Rúmgóð stofa/- eldhús með útgengi. 3 rúmgóð herb. Baðh., geymsla og þvottah. Auk millilofts sem ekki er skráð í fm tölu. (Ýmis skipti koma til greina) Verð 13,5 millj. Nánari upplýsingar veitir Svenni í síma 866 0160. SUMARHÚS BERJABRAUT - KJALARNESI Glæsil. 83 fm 4ra herb. heilsárshús á 2 hæðum við Berjabraut í landi Háls í Kjós við hlið Hvammsvíkur. Húsið er fullbúið að utan sem innan. Mjög stutt frá Reykjavík eða ca 35 mín. í akstri. Lóðin er leigulóð 2.255 fm. Mikil náttúrufegurð. V. 19,9 millj. SUMARHÚS ÁLFAHRAUN - GRÍMSNESI Glæsilega vönduð hús við Álfahraun í landi Miðeng- is. Húsin eru 60 fm auk 25 fm gestahúss, samtals 85 fm. Vegalengd frá Rvík ca 70 km. Húsin afhendast fullbúin að innan sem utan. Heilsárseignir á frábær- um stað. Hiti í gólfi (hitaveita). Svæðið skipulagt með þjónustumiðstöð o.fl. Kjarrivaxnar 7.400-9.400 fm eignalóðir. Ca 150 fm verönd m/heitum potti. Myndir á Mbl.is. Verð tilboð. SUMARHÚS EFSTADALS- SKÓGI Leigulóð 0,5 hektari. Bústaður byggður 1989. Stærð 52 fm. Svefnloft ca 20 fm. Bíslag ca 6-8 fm. 2 svefnh., gangur, bað, borðstofa, eldhús og stofa, inni-arinn. Ísskápur, eldavél og uppþvvél. Heitt og kalt vatn, rafmagn. Pallur m/heitum potti og úti- sturtu, þvottavél, þurrkari. Glæsilegt útsýni. Verð 17 millj. SUMARH. TIL FLUTNINGS Í sölu sumarhús til flutnings. Húsið er 64 fm og skiptist í samkvæmt teikningu í forstofu, gang, herb., baðh., stofu og eldhús. Sumarh. er fullb. að utan en að innan er hann fokh. Hægt að fá hann lengra komin. Uppl. veitir Svenni í s. 866 0160. SUMARHÚS BORGAR- LEYNIR - GRÍMSN Glæsilegt heilsárshús í landi Miðengis í Grímsnesi. Um er að ræða óvenju vandað og vel byggt hús á frábærum stað. Húsið er byggt á steyptum grunni og gólf steypt, allt fyrsta flokks. Húsið er 75 fm að grunnfleti en auk þess er mjög gott svefnloft ca 15 fm. 100 fm pallur umhv. húsið. 3 svefnh. stofa, eld- hús og baðh. m/útgengi á pall. Húsið er selt fullbúið að utan sem innan, m/vönduðum innr. V. 25 millj. SUMARHÚS EYRAR - HVALFJARÐARSVEIT Sérlega fallegt sumarhús á 2 hæðum, 53,5 fm auk svefnlofts ca 20 fm. Rafmagnskynding (hitakútur). Húsið er byggt á staðnum á steyptum súlum. 0,7 hektara leiguland, kjarri vaxið, í landi Eyrarskógar, hús nr. 13. Góð staðsetning, stutt frá Rvík. Eign í góðu ástandi. (Allt innbú getur fylgt, nema persónu- legir munir). Teikningar á skrifstofu. Myndir á mbl.is SUMARHÚS TJÖRN - BISKUPSTUNGUM Glæsileg sumarhús jörðinni Tjörn, Bláskógarbyggð í Biskupstungum, frístundarbyggð. Um er að ræða fullbúin 87,1-104,6 fm sumarhús. Húsin skiptast í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, baðh. 2 her- bergi, svefnloft og geymslu. Glæslegar innréttingar og gólfefni. Frábær staðsetning, stutt í sundlaugar og golf. SUMARHÚS HEIÐI - BISKUPSTUNGUM Sérlega fallegt sumarhús á þessum vinsæla stað við Tungufljótið, rétt við Reykholt í Biskupstungum. Húsið er tæplega 50 fm og auk þess er gestahús sem er 9 fm. Skipting eignarinnar: 2 svefnh., svefn- loft, stofa, eldhús með borðkróki, baðh. og gesta- hús. Landið er kjarri vaxið. Sérlega falleg staðsetn- ing. Eign sem vert er að skoða. V. 12,5 millj. átta metra fyrir utan þriggja stiga línuna, sem fór beint ofan í og jafnaði leikinn. Samtals skoraði hann 31 stig í leiknum og hefur ekki skorað meira í úrvals- deildinni. Eini gallinn á frábærum leik hans var að KR skyldi ekki vinna. Á mánudag var röðin komin að félaga Brynj- ars, Darra Hilm- arssyni, sem varð tví- tugur í mars. Í sigrinum gegn Snæfelli skoraði hann 23 stig, hitti úr þremur af fjór- um þriggja stiga skotum, öllum sex tveggja stiga skotum sínum og tveimur vítaskotum. Darri er ein- staklega fórnfús leikmaður og gerir alla þessa litlu hluti, sem ekki sjást í tölfræðinni, en geta skipt lykilmáli. Unun er að fylgjast með þegar Darri og Brynjar eru báðir inni á vellinum í einu. Brynjar hefur ávallt spilað upp fyrir sig í yngri flokkunum þannig að þeir hafa leikið saman og þekkja hvor annan svo vel að þeir þurfa ekki að tala saman. Þeir hafa verið mjög sigursælir í yngri flokk- unum hjá KR og sömuleiðis með landsliðinu. Á morgun gefst tæki- færi til að sjá þá spila saman með KR-liðinu í oddaleik gegn Snæfelli í Vesturbænum. ÚrvalsdeildarliðKR í körfubolta hefur sýnt góðan leik í vetur og getur með sigri á Snæfelli á morgun komist í úrslit gegn annað hvort Grindavík eða Njarð- vík. Í liðinu eru tveir ungir menn, sem eiga framtíðina fyrir sér. Í síðustu tveimur leikj- um hafa þeir átt hvor sinn stórleikinn og má segja að þar með hafi þeir stimplað sig inn í úrvalsdeildina fyrir al- vöru. Brynjar Þór Björns- son er aðeins 18 ára gamall, en er að leika sitt þriðja tímabil og spilar eins og leikmaður með miklu meiri reynslu. Ekki fer á milli mála hvað býr í Brynjari, en Víkverja hefur iðulega fundist hann ekki fá boltann nógu mikið í leikjum. Í þriðja leikn- um gegn Snæfelli á laugardag var leikur KR-liðsins í molum og ekkert gekk upp þar til Brynjar tók til sinna ráða. Hann sýndi að hann er óhræddur við að skjóta þegar eng- inn annar þorði að taka af skarið. Hann skoraði reyndar aðeins úr einu af sex tveggja stiga skotum sínum, en hitti úr öllum ellefu vítaskot- unum, sem hann fékk, og sex af 11 þriggja stiga skotum. Þar á meðal var eitt skot, sem hann tók sjö eða      víkverji skrifar | vikverji@mbl.is Þingeysk ljóð eftir 40 höfunda,sem allir voru fæddir og búsettir í Þingeyjarsýslum, komu út árið 1940. Þessi bók er fágætlega góð og sýnir glögglega, hversu mörg skáld og snjallir hagyrðingar bjuggu í Þingeyjarsýslum á þessum tíma. Heiðrekur Guðmundsson á Sandi kvað: Þegar vindur þyrlar snjá, þagna og blindast álar Það er yndi að eiga þá auðar lindir sálar. Indriði Þorkelsson á Ytrafjalli orti: Hrós um dáið héraðslið hamast sá að skrifa, sem er ávallt illa við alla þá, sem lifa. Jón Þorsteinsson á Arnarvatni orti í harðindum: Sýndu oss aftur almátt þinn, eins og fyrr við sjóinn; vak þú hjá oss, Herra minn, hastaðu nú – á snjóinn! Hér er vorvísa eftir Kristján Ólason á Húsavík: Sólin yljar mó og mel, mönnum léttir sporin. Svellin gráta sig í hel, – sárt er að deyja á vorin. Þórarinn Sveinsson í Kílakoti orti: Örðugan ég átti gang, yfir hraun og klungur. Einatt lá mér fjall í fang frá því ég var ungur. pebl@mbl.is VÍSNAHORNIÐ Ljóð úr Þingeyjar- sýslum ÞEIR eru vissulega skrautlega skreyttir kjólarnir sem hér sjást en öllu óvenjulegra er þó að þeir eru unnir úr pappír enda sá efniviður al- gengari til annarra nota. Kjólana þrjá er að finna á sýningu í Aþenu í Grikklandi en með sýning- unni sem nefnist Rip er leitast við að kanna klæðileika pappírs. Er notkun þessa efniviðar við gerð fatnaðar þannig rakin og meðal þess sem þar er að finna eru pappírsklæði fá- tækra japanskra bænda og pínu- kjólar með pólitískum frösum. Reuters Hátísku-pappírsklæði AUGLÝSINGASÍMI 569 1100

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.