Morgunblaðið - 04.04.2007, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 04.04.2007, Qupperneq 32
32 MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Í TÍÐ núverandi stjórnar hafa kjör eldri borgara og öryrkja orðið óviðunandi. Í velferðarsamfélagi okkar er ekki rúm fyrir þessa hópa. Fjandskapur stjórn- valda í garð þeirra hefur aukist ár frá ári. Bótaskerðingar frá TR voru ekki til fyrir 1993. Þá hófust þær og árið 2000 urðu þær hrein- asta ómannúð og lögleysa. Gleym- um ekki síhækkuðum gjöldum til heilsugæslu og þjónustu. Eldri borgari og öryrki skilar smán- arkjarabótum sínum fljótt til rík- isins í hækkuðum gjöldum, þátttöku í lyfjakostnaði o.s.frv. Nú er svo að ef t.d. öryrki fær greiðslur úr líf- eyrissjóði og vinnur líka fyrir smá- tekjum, er strax byrjað að skerða örorkulífeyrinn. Ef tekjurnar fara krónu yfir vissa fjárhæð er sú fjár- hæð tvöfölduð og reiknast sem skuld við TR. Er hægt að vera ómannúðlegri? Trúlega vegna hræðslu við yfirvofandi framboð eldri borgara, leyfðu stjórnvöld ör- yrkjum að vinna fyrir 25 þús. kr. brúttó frá 1.1. 2007 á mán. (átti að verða 2010). Upphæðin er svo fá- ránleg að engu tali tekur. Blaðberi fær 40–50 þús. kr. á mánuði. Hvers vegna eru alltaf svona „mörk“ á tekjum? Ekkert annað en illvilji því að enga atvinnu er að fá sem gefur af sér 25 þús. kr. brúttó. Bygginga- og matvörukeðjur hafa tekið upp á að bjóða eldri borgurum vinnu. Það er virðing- arvert skref í rétta átt, en hentar betur karlmönnum. Konur sem eru öryrkjar eða komnar af léttasta skeiði fá ekki vinnu þótt þær séu vel menntaðar og geti gefið sig all- ar að vinnunni án áhyggna af börn- um og heimili. En íslensk fyrirtæki vilja ekki eldri konur. Ungdóms- dýrkunin er í algleymingi – reynsla skiptir ekki máli. Það er mikið at- vinnuleysi meðal eldri kvenna. Samtök okkar gilda jafnt fyrir unga, miðaldra og eldri borgara, þ.e. alla. Þau krefjast þess að líf- eyrir allra eldri borgara og öryrkja verði lágmark 210 þús. kr. og hækki í samræmi við launavísitölu. Ennfremur að sett verði í forgang bygging leiguíbúða fyrir eldri borg- ara og að hjúkrunarheimila- hneykslið verði leyst. Ríkið hafði bæði í fyrra og hittiðfyrra 60 millj- arða í tekjuafgang svo að gamla lumman: „engir peningar eru til“ er tóm þvæla. Þjóðfélag okkar er á skelfilegri leið. Getur verið að íslenskir stjórn- málamenn séu svona illgjarnir og vondir? Að þeir eigi ekki foreldra, frændur, frænkur, afa og ömmur, hafi ekki þekkt fólk sem er fátækt eða öryrkja og séð hvernig að þeim er búið? Að þeir sjái ekki smánarlíf- eyrinn sem verka- og launafólkið fær? Aldrei komið inn á hjúkr- unarheimili? Hvað er að þeim? Stjórnarþingmenn „vilja ekki sjá“ það ósómaþjóðfélag sem þeir hafa búið til. Þeir sitja alltof lengi, áhyggjulausir um allt, hugsa um það eitt að sitja nógu lengi, helst út stutta starfsævi sína – og allir flokkar eru ein samtrygging spill- ingar. Með vissu millibili fara fram þjóðarsafnanir fyrir „veik börn“. Þá er þjóðin samhent, vinnur sjálf- boðastörf, allir gefa og gefa. Þá gleymist að heilbrigðiskerfinu á að vera skylt að sinna veikum börnum, jafnt og öllum veikum þegnum. Fólk tekur að sér fjármögnun fyrir ríkið. – En sé hægt að veita veikum börnum, börnum með alls kyns fæðingargalla og/eða fötluðum börnum þá hjálp að þau lifi verða þau fljótt 18 ára og þar með full- orðið fólk. Þá eru mörg þeirra ör- yrkjar, andlega og/eða líkamlega vanheil – og þá byrjar sultarlíf þeirra. Smánarlega lágar bætur sem allt er gert til að skerða, líf á stofnunum þar sem umönnun er upp og niður og aðstandendur líða. Andlega veilt fólk er litið hornauga, þótt hið gagnstæða sé fullyrt á há- tíðastundum. Hið sama gildir um þá sem lenda í neyslu vímuefna eða áfengis. Þjóð- félagið þykist í orði vera ánægt með að fólk leiti sér hjálpar, „fari í með- ferð“. Á borði er þetta fólk litið hornauga og talað um „aumingja“. Hvers vegna skyldi þessu fólki ella vera sagt við útskrift að krossa við „nei“ ef í atvinnuumsókn er spurt hvort viðkomandi hafi átt við neyslu- og/eða geðræn vandamál að stríða? Svona er hræsnin, fordóm- arnir blómstra. Hugleiðum líka stöðu SÁÁ – alltaf í fjárskorti; sýnir það góðan hug ráðamanna til þeirr- ar þjóðarnauðsynlegu stofnunar? Við lesum sífellt um hræðileg slys þar sem „fólk kemst lífs af“, eftir legu í öndunarvél vikum sam- an. Er fylgst með því, lífi þess og afkomu? Fréttum við frá sjúkra- deildum hvort það varð heilbrigt eða liggur lamað og þaðan af verra? Ef til vill fyrirvinnur heimila? Fólki almennt detta hvorki slys, örorka né alvarlegir sjúkdómar í hug og að verða þar með baggi á stjórnvöldum. Þess vegna eru kjör eldri borgara og öryrkja því fjar- læg. Ef slíkt hendir „ekki ég“ fólk- ið, kynnist það fyrst ósóma þeirrar stjórnar sem hér hefur farið með völd sl.12 ár. Þrautagöngu í gegn- um illviljað kerfi, bætur sem er ólif- andi af. Fólk situr í áhyggjum fá- tæktargildru, lífsneistinn slokknar þegar það hefði mesta þörf fyrir að- stoð og gleði inn í líf sitt. „Ung(ur) í dag, lífeyrisþegi á morgun“ mætti segja. Mikið er rætt um lífeyrisárin sem besta ævi- skeiðið. Svo gæti verið ef almennur lífeyrir væri tilhlökkunarefni. Hvað sannar betur að alþingis- mennska á ekki að verða lífsstarf? Burt með þaulsætnar, veru- leikafirrtar, ómannúðlegar og hug- sjónalausar stjórnir. Hámarkssetu á þingi þarf að lögfesta. Hvers vegna er nú knýjandi þörf á framboði eldri borgara og öryrkja? Eftir Arndísi H. Björnsdóttur Höfundur er formaður Baráttusamtaka eldri borgara og öryrkja. Vegna mikils aðstreymis aðsendra greina í aðdraganda alþingiskosninganna verður formi þeirra greina, sem lúta að kosningunum, breytt. Er þetta gert svo efnið verði aðgengilegra fyrir lesendur og auka mögu- leika Morgunblaðsins á að koma greinunum á framfæri fyrir kosningar. Alþingiskosningar FYRIR ber að frásagnir fjöl- miðla snarskekkja upplýsingar um það efni sem greina átti frá. Fyrir nokkrum dögum var því lýst á ársfundi Orkustofnunar á Akureyri að álitamál sé hve mikl- ar niðurgreiðslur eigi að vera á raforkuverði í dreifbýli and- spænis möguleikum til þess að auka orkusparnað með umbótum á húsnæði. Ríkisútvarpið skýrði frá þessu með þeim hætti að allmargir skildu sem svo að sú stefna hafi verið tekin að draga mjög úr eða jafnvel fella niður allar nið- urgreiðslur á raforkuverði í dreif- býlinu. Þetta er fjarri öllu lagi. Á þessu ári verður varið tæpum 1.100 milljónum króna til niður- greiðslna og tengdra verkefna. Á síðasta ári var tæpum milljarði króna varið í sama skyni. Auk nið- urgreiðslna er meðal annars um að ræða framlög til stofnkostn- aðar hitaveitna, framlög til orku- sparnaðar og húsaviðgerða og fleira. Mikið hefur verið rætt um að orkukostnaður í dreifbýlinu hafi hækkað verulega síðustu tvö til þrjú ár, eftir að nýskipan raforku- mála var komið á. Yfirlit frá Rarik bendir ekki til þess að þetta eigi sér stoð í veruleikanum. Miklu fleiri njóta sambærilegs verðs eða 5–15 % lækkunar í raunverði á tímanum frá 2004 heldur en þeir sem hafa þurft að taka á sig hækkanir. Þær hækkanir sem þó hafa orðið eru hjá flestum innan við 15 % á þessum tíma. Greining á ástæðum verðhækk- ana á raforku í dreifbýli á þessum sama tíma leiðir ekki til þess að sömu ástæður finnist hjá öllum eða flestum þeim sem hafa orðið fyrir hækkunum. Svo virðist sem einkum sé um atviksbundnar hækkanir að ræða. Í þessu efni ber að hafa í huga að það getur skipt máli meðal annars hvort um er að ræða vel einangruð hús eða ekki, og einnig ber að hafa í huga að niðurgreiðslur eiga aðeins við um íbúðarhúsnæði. Nauðsynlegt er að vanda grein- ingu slíkra ástæðna og velja af kostgæfni þau úrræði sem koma til greina í hverju atviki. En sú stefna ríkisstjórnarinnar liggur alveg fyrir að mæta þörfum fólks- ins í dreifbýlinu með nið- urgreiðslum og aðstoð við hita- veitur og einnig við viðgerðir á húsnæði. Jón Sigurðsson Niðurgreiðslur á raforkuverði Höfundur er formaður Framsóknarflokksins Í bígerð eru kaup á björgunarþyrlum fyrir Landhelgisgæslu Íslands (LHG). Við það er miðað að í þyrlusveit LHG verði þrjár nýjar, stórar og langdrægar björgunarþyrlur, auk núverandi Dauphin-þyrlu Gæsl- unnar. Þessum áformum ber að fagna og á dómsmálaráðherra heiður skilinn fyrir það áræði og þá framsýni sem hann hefur sýnt við upp- byggingu öryggisþátta íslenskra borgara. Í umræðum um þessi áform hefur verið rætt um þann kost að setja eitt af þessum björgunartækjum niður á Akureyri þar sem það væri í tengslum við varasjúkra- hús landsins, miðstöð sjúkraflugs og mun nær sjófar- endum fyrir norðan og austan land en björgunartæki sem staðsett væri í Reykjavík. Viðbragðstíminn skiptir sköpum Það sem skiptir sköpum við björgunarstörf er viðbragðstími og ferða- tími á slysstað. Vegalengdin milli Akureyrar og Reykjavíkur eru 135 sjómílur í beinni loftlínu og bætast við 30-40 mílur ef fljúga þarf með ströndinni. Ef fljúga á TF-LIF, þyrlu Gæslunnar, í dag frá Reykjavík og norður fyrir land þá þarf þetta mikilvæga björgunartæki að stoppa – lenda og taka eldsneyti – þar sem flugþol hennar er takmarkað við 625 sjómílur. Ef þyrlan væri hins vegar staðsett á Akureyri hefði hún flugþol upp á um 300 sjómílur hvora leið og að auki gæti tímasparn- aður skipt sköpum fyrir þann sem í nauðum væri staddur og þyrfti að- stoðar þessa björgunartækis. Þyrla sem staðsett væri á Akureyri gæti þjónað öllu Norðurlandi, Vestfjörðum, Austurlandi og e.t.v. víðar. Fyrsta skrefið... Það liggur í augum uppi að björgunartæki, sem eiga að geta brugðist við áföllum um allt land og á miðum umhverfis landið, þjóna best til- gangi sínum með því að þau verði staðsett sem næst hugsanlegum verkefnum sínum. Því er óhjákvæmilegt að byggja upp þennan þátt ör- yggismála landsins með þeim hætti í framtíðinni að björgunarþyrlur verði staðsettar í öllum fjórðungum landsins. Við hæfi er að fyrsta skrefið í þeirri uppbyggingu verði tekið á Akureyri. Björgunarþyrla á Akureyri eftir Kristján Þór Júlíusson Höfundur er forseti bæjarstjórnar Akureyrar og skipar 1. sæti á D-lista Sjálfstæðisflokks í Norðausturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. HEFJA þarf til vegs á ný hin góðu gildi sem felast í náungakær- leika, velferð barna og fjölskyldulífi. Kjör lífeyrisþega verður að stór- bæta. Tryggja þarf aukinn rétt þeirra til launatekna án skerðingar grunnlífeyris. Kja- ramunur innan ein- stakra hópa þjóð- félagsins hefur aukist gífurlega á síðustu árum og ógnar samstöðunni. VG leggur áherslu á umhyggju fyrir nátt- úrunni og verðmætum hennar, að þeim sé ekki spillt fyrir komandi kynslóðum. Atvinnumál – umhverfismál VG krefst þess að látið verði stað- ar numið í frekari stóriðju en í stað þess verði kröftum og fjármunum varið til að byggja upp aðra atvinnu- kosti, s.s. matvælavinnslu, ferða- þjónustu, hátækni- og þjónustu- iðnað á forsendum heimafólks á hverju svæði. Tryggja þarf sam- keppnisstöðu atvinnulífs og búsetu vítt og breitt um landið, m.a. hvað varðar aðgengi fjármagns fyrir minni fyrirtæki á landsbyggðinni. Jöfnun flutningskostnaðar er for- gangsmál. Landbúnaður – Sjávarútvegur VG vill efla ferðaþjónustu, mat- vælaframleiðslu og landbúnað. Fjöl- skyldubúin og sjálfseignarbóndinn eiga að vera grunneiningin í land- búnaði. Uppkaup og söfnun jarða á fárra hendur er ein mesta ógnun við byggð og atvinnulíf til sveita. Hátt verð á jörðum og framleiðslurétti gerir ungu fólki nánast ókleift að taka við eða stofna til búskapar. Þessu verður að breyta. Grípa þarf til markvissra aðgerða sem auð- velda og hvetja til nýliðunar í sjáv- arútvegi og landbúnaði. End- urheimta þarf skilgreind fiskveiðiréttindi til sjávarbyggð- anna. Ný sókn í menntamálum Efling menntunar í heimabyggð er forsenda blómlegrar byggðar. Þetta skynjar fólk og barátta kenn- ara og íbúa hefur svo sannarlega skipt sköpum þegar verja þarf líf- akkeri byggða sem felst í skólunum, hvort heldur um litla grunnskóla eða framhaldsskóla er að ræða. Nauðsynlegt er að efla menntun á öllum skólastigum. Starfsmenntun og tæknimenntun er mikilvæg for- senda framfara. Sjálfstæður háskóli á Ísafirði er sérstakt baráttumál Vestfirðinga. Stórátak í samgöngum VG vill að gert verði stórátak í fjarskiptum og vegagerð. Loforð ríkisstjórnarinnar í þeim efnum hafa verið margsvikin. Fram- kvæmdir í vegamálum 2006 eru þær minnstu um áratuga bil. Góðir vegir inn til dala og út til stranda ásamt fjarskiptum er forsenda fyrir sam- keppnishæfri búsetu og atvinnulífi. Félagshyggja og samhjálp í stað einkavæðingar Sala Símans kom hart niður á þjónustustigi við dreifbýlið. Einka- væðing raforkunnar er komin á fulla ferð. Ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks sendi Rík- isútvarpið upp í einkavæðing- arvagninn. Vinstri græn munu beita sér fyrir hagsmunum almennings og vinda ofan af einkavæðingu grunn- þjónustunnar. Velferð fyrir alla á grunni hugsjóna félagshyggju og samhjálpar er baráttumál Vinstri grænna. Hin góðu gildi hafin til vegs á ný Eftir Jón Bjarnason Höfundur er þingmaður Vinstri grænna. vaxtaauki! 10% Fréttir á SMS Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.