Morgunblaðið - 04.04.2007, Side 34

Morgunblaðið - 04.04.2007, Side 34
34 MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF UM PÁSKANNA Páskar í Garðapreskalli Skírdagur: Á skírdagskvöld verður helgistund í Bessastaðakirkju kl. 20. Bjartur Logi Guðnason org- anisti mun leiða logjörðina ásamt söngkvartett, en sr. Friðrik J. Hjartar þjónar fyrir altari. Helgi- stund í Vídalínskirkju kl. 22. Þar fer fram afskrýðing altaris og alt- arisganga. Sr. Friðrik J. Hjartar og Nanna Guðrún Zoëga þjóna fyrir altari. Félagar úr kór Vídal- ínskirkju leiða lofgjörðina. Föstu- dagurinn langi: Guðsþjónusta í Ví- dalínskirkju kl. 11. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og Nanna Guðrún Zoëga þjóna fyrir altari, en kór Ví- dalínskirkju syngur undir stjórn Bjarts Loga Guðnasonar. Passíusál- malestur hefst að lokinni guðsþjón- ustu um kl. 11.30 og má gera ráð fyrir að lestrinum ljúki um kl. 16. Á milli sálmanna flytja Guðný Guð- mundsdóttir og Gunnar Kvaran tónverkið „Sjö hugleiðingar fyrir fiðlu og selló“ eftir Þorkel Sig- urbjörnsson. Verk Magnúsar Tóm- assonar „Handhæga settið“ verður til sýnis í kirkjunni. Páskadagur: Hátíðarguðsþjónusta verður í Ví- dalínskirkju kl. 8. Sr. Friðrik J. Hjartar og Nanna Guðrún Zoëga djákni þjóna fyrir altari og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir predikar. Morg- unverður í boði Garðasóknar að lokinni guðsþjónustunni. Hátíðar- guðsþjónusta í Bessastaðakirkju kl. 11. Bjartur Logi Guðnason org- anisti leiðir lofgjörðina ásamt Álft- aneskórnum. Sr. Jóna Hrönn Bolla- dóttir predikar og þjónar fyrir altari. Allir velkomnir. Hafnarfjarðarkirkja Frambjóðendur til alþingis fjalla m.a. um píslarsöguna í fjölbreyttu helgihaldi dymbilviku og páska. Helgihald verður fjölbreytt í Hafn- arfjarðarkirkju í dymbilviku og á páskum. Við guðsþjónusta á föstu- daginn langa, 6. apríl, kl. 14., ath. tímann, munu frambjóðendur til al- þingiskosninga, Gunnar Svav- arsson bæjarfulltrúi, Samúel Örn Erlingsson fréttamaður, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra og Ögmundur Jón- asson alþingismaður, lesa písl- arsöguna úr Jóhannesarguðspjalli og gera í fáeinum orðum grein fyr- ir gildi hennar fyrir sig. Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu og félagar úr kór kirkjunnar leiða sálmasöng. Skírdagskvöld, 5. apríl, kl. 20 fer fram helgistund með altarisgöngu. Unglingakór kirkjunnar syngur undir stjórn Helgu Loftsdóttur við undirleik Önnu Magnúsdóttur. Páskadagsmorgun, 8. apríl, hefst hátíðarguðsþjónusta kl. 8. árdegis, ath. tímann. Gunnar Gunnarsson leikur á flautu og kór kirkjunnar leiðir söng. Eftir guðsþjónustuna er boðið til páskamorgunverðar í Há- sölum Strandbergs. Laugardaginn fyrir páska, 7. apríl, kl. 20 verða haldnir gospel-tónleikar á vegum Hjálpræðishersins á Íslandi í kirkj- unni undir yfirskriftinni Horft til himins. Hera Björt Þórhallsdóttir, Kristjana Stefánsdóttir, Kurílena og Knut Anders Sören frá Noregi syngja og koma fram ásamt hljóð- færaleikurum. Páskadagskvöld, 8. apríl, kl. 20 fer fram hátíð- arsamkoma Hjálpræðishersins með miklum tónlistarflutningi. Prestar Hafnarfjarðarkirkju. Kyrravika og páskar í Laugarneskirkju Fimmtudagur 5. apríl, skírdagur: Messa kl. 20. Altarisganga – altarið afskrýtt. Sr. Hildur Eir Bolladóttir prédikar og þjónar ásamt Sig- urbirni Þorkelssyni meðhjálpara, fulltrúum lesarahóps og sókn- arnefndar. Gunnar Gunnarsson leikur á orgelið og kór kirkjunnar leiðir safnaðarsöng. Messunni lýk- ur ekki, heldur halda viðstaddir út í náttmyrkrið hugsi yfir atburðum kvöldsins. Föstudagur 6. apríl, föstudag- urinn langi: Kl. 11 heldur messan frá kvöldinu áður áfram. Sr. Hildur Eir prédikar og þjónar ásamt Sig- urbirni meðhjálpara, lesurum, Gunnari og kórnum. Þorvaldur Halldórsson syngur einsöng. Kl. 13. Messa í sal Sjálfsbjargar í Hátúni 12. Sr. Hildur Eir Bolladótt- ir prédikar og þjónar ásamt Gunn- ari Gunnarssyni organista, Kristni Guðmundssyni meðhjálpara, Guð- rúnu K. Þórsdóttur djákna og fleir- um. Kl. 14. Messa í hjúkrunarheim- ilinu Sóltúni. Sr. Hildur Eir Bolla- dóttir prédikar og þjónar ásamt Jóni Jóhannssyni djákna. Félagar úr kór Laugarneskirkju leiða söng- inn undir stjórn Gunnars Gunn- arssonar organista og tónlistar- stjóra Laugarneskirkju. Sunnudagur 8. apríl, páskadag- ur: Kl. 8 er hátíðarguðsþjónusta. Sr. Hildur Eir Bolladóttir prédikar, Laufey Geirlaugsdóttir söngkona tónar hátíðartón, Gunnar Gunn- arsson leikur á orgelið og stýrir kór kirkjunnar sem syngur fyrir kröft- ugum almennum safnaðarsöng. Þorvaldur Þorvaldsson syngur ein- söng. Meðhjálpari er Sigurbjörn Þorkelsson. Að lokinni guðsþjón- ustunni um kl. 08.50 býður sókn- arnefnd Laugarneskirkju upp á ný- bökuð rúnnstykki með osti og marmelaði, kaffi, ávaxtasafa og dýrmætt samfélag. Allir velkomnir. Kl. 11. Sunnudagaskóli í Hús- dýragarðinum í Laugardal. Umsjón hafa Stella Rún Steinþórsdóttir, Þorvaldur Þorvaldsson, María Rut Hinriksdóttir og sr. Hildur Eir Bolladóttir. Helgihald í Krists- kirkju í Landakoti frá skírdegi til páska Fimmtudaginn 5. apríl er skírdag- ur. Kvöldmáltíðarmessa er kl. 18.00. Að messu lokinni er tilbeiðsla altarissakramentisins við Jósefsalt- arið til miðnættis. Við erum beðin af fara ekki strax úr kirkjunni (eða koma aftur seinna) heldur dvelja um stund á bæn. „Getið þið ekki beðið með mér eina stund?“ spurði Jesús lærisveina sína í grasgarð- inum. Þessum orðum Jesú er beint enn í dag til fylgjenda hans og hvetja þau okkur til að dvelja með honum á bæn. Föstudagurinn langi. Föstuboðs- og kjötbindindisdagur. Guðsþjón- usta er kl. 15. Krossferilsbæn á íslensku kl. 11. Krossferilsbæn á ensku kl. 17. Laugardaginn 7. apríl: Páskavaka hefst kl. 22. Aðfaranótt páska er helgasta nótt í kirkjuári. Það er fyrst um sinn dimmt í kirkjunni. Þá verður kveiktur páskaeldur og af honum er kveikt á páskakerti sem tákni fyrir upprisu Jesú Krists. Presturinn ber það í hátíðlegri helgigöngu inn í myrkvaða kirkj- una og syngur: Lumen Christi – Kristur, ljós vort! Í orðsþjónustunni eru lesnir valdir kaflar bæði úr Gamla og Nýja testamentinu þar sem minnst er langrar sögu sam- skipta Guðs við mennina. Að pré- dikun lokinni er skírnarvatnið blessað og allir endurnýja skírn- arheit sitt. Biskupinn mun staðfesta það með því að stökkva vígðu vatni á söfnuðinn. Sunnudaginn 8. apríl er páska- dagurinn. Biskupsmessa kl. 10.30 einnig í tilefni af 50 ára prests- vígsluafmæli Jóhannesar Gijsen biskups. Sendiherra páfans á Norð- urlöndum, hr. Giovanni Tonucci, erkibiskup, flytur hátíðarprédikun. Hátíðarmessa á ensku 18. Annan í páskum, 17. apríl, er messa kl. 10.30. Biskupsmessa á pólsku og ensku kl. 15. Ferð eldri borgara í Laugarneskirkju að Gljúfrasteini Á fimmtudaginn 12. apríl heldur eldriborgarastarf Laugarneskirkju upp í ferð að Gljúfrasteini í Mos- fellsdal til að skoða hús skáldsins. Gljúfrasteinn var heimili og vinnu- aðstaða Halldórs Laxness og fjöl- skyldu hans í um hálfrar aldar skeið en er nú opið almenningi sem safn. Farið verður með rútu frá Laugarneskirkju stundvíslega kl. 14. Í bakaleiðinni verður komið við í Grafarvogskirkju þar sem veit- ingar verða bornar fram og kirkjan skoðuð. Áhugasömum sem ekki eru þeg- ar skráðir í ferðina er bent á að skrá sig hjá Gunnhildi Ein- arsdóttur, kirkjuverði Laugarnes- kirkju, á þriðjudaginn 10. eða mið- vikudaginn 11. apríl í síma 588 9422 eða hjá Sigurbirni Þorkelssyni, framkvæmdastjóra Laugarnes- kirkju, sem verður fararstjóri í ferðinni í síma 863 0488. Einsöngur á páska- dagsmorgun Kór Áskirkju flytur Jóhann- esarpassíu J.S. Bachs, BWv 245, í Fossvogskirkju á skírdag, 5. apríl, og föstudaginn langa, 6. apríl. Flytjendur eru Kór Áskirkju ásamt Íslensku kammersveitinni, kons- ertmeistari Hjörleifur Valsson. Ein- söngvarar Ágúst Ólafsson barítón, Bergþór Pálsson barítón, Eyjólfur Eyjólfsson tenór, Gunnar Guð- björnsson tenór, Hallveig Rúnars- dóttir sópran og Jóhanna Ósk Vals- dóttir messósópran. Stjórnandi er Kári Þormar. Tónleikarnir hefjast kl. 17 báða dagana. Kyrravika og páskar í Hallgrímskirkju Á skírdag verður kvöldmessa í Hallgrímskirkju kl. 20. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyr- ir altari ásamt sr. Jóni D. Hró- bjartssyni og messuþjónum. Org- anisti Hörður Áskelsson sem stjórnar Mótettukórnum. Í lok messunnar verður höfð Getsem- anestund. Altarið verður afklætt og fimm rósir bornar fram og settar á altarið sem tákn um fimm sára- merki Krists. Þá verður sett fram altarisklæði sem á sér ekki hlið- stæðu hér á landi. Það er látið standa í kirkjunni yfir föstudaginn langa sem myndræn íhugun. Klæð- ið er svart og ber mynd pelíkanans. Klæðið gerði frú Unnur Ólafsdóttir listakona. Myndin af pelikananum er fornt tákn píslanna og friðþæging- arinnar. Á föstudaginn langa guðsþjón- usta kl. 11 í umsjá sr. Jóns D. Hró- bjartssonar og messuþjóna. Org- anisti og kórstjóri Björn Steinar Sólbergsson, en Mótettukórinn syngur og stýrir almennum safn- aðarsöng. Kl. 13.30 hefst lestur passíusál- manna, en að þessu sinni verða þessir lesarar: Grétar Einarsson og leikararnir Arnar Jónsson, Guðrún Ásmundsdóttir og Ragnheiður Steindórsdóttir. Á milli lestra mun Björn Steinar Sólbergsson leika á orgel kirkjunnar. Síðla kvölds þennan dag eða kl. 22 verður frum- flutt í Hallgrímskirkju óratórían Hallgrímspassía eftir Sigurð Sæv- arsson. Verkið er byggt á Pass- íusálmum Hallgríms Péturssonar. Flytjendur eru kammerkórinn Schola cantorum, og einsöngvarar úr hans röðum, sem fara með hlut- verk persóna píslarsögunnar, Jó- hann Smári Sævarsson bassi, í hlut- verki Hallgríms Péturssonar, og kammerhópurinn CAPUT. Stjórn- andi er Hörður Áskelsson. Á páskadag verða tvær hátíð- armessur, árdegisguðsþjónusta kl. 8 í umsjá sr. Birgis Ásgeirssonar og hátíðarmessa og barnastarf kl. 11 í umsjá sr. Jóns D. Hróbjartssonar. Magnea Sverrisdóttir djákni stýrir barnastarfinu. Mótettukórinn syng- ur í báðum messunum undir stjórn Harðar Áskelssonar og Björn Stein- ar Sólbergsson verður organisti. Ensk messa verður á páskadag kl. 14 í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Annan í páskum verður hátíð- armessa með fermingu kl. 11. Helgihald í Árbæj- arkirkju um bænadaga og páska Það verður mikið um að vera í Ár- bæjarsöfnuði um bænadagana og páska. Fimmtudaginn 5. apríl, skír- dag, munu á fjórða tug ungmenna fermast í tveimur athöfnum, sú fyrri hefst kl. 10.30 og sú síðari kl. 13.30. Á föstudaginn langa verður guðsþjónusta kl. 11, sr. Sigrún Ósk- arsdóttir þjónar fyrir altari. Lit- hanían flutt. Magnús Guðmundsson syngur einsöng og Bryndís H. Gylfadóttir leikur á selló. Kirkju- kórinn leiðir almennan safn- aðarsöng undir stjórn Krizstine Kalló Sklenár. Dagurinn er tekinn snemma sunnudaginn 8. apríl á páskadegi. Hátíðarguðsþjónusta hefst kl. 8.00 árdegis, sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar. Guðmundur Hafsteinsson leikur á trompet. Bjarni Atlason syngur einsöng. Kirkjukórinn leiðir hátíðarsöng undir stjórn Krisztine Kalló Sklenár. Eftir guðsþjón- ustuna er kirkjugestum boðið í safnaðarheimilið í páskamorg- unverð. Fjölskylduguðsþjónusta er kl. 11.00. Hátíðleg stund þar sem ungum sem eldri er mætt með upp- risuboðskapinn. Öll börn fá lítið páskaegg þegar heim er farið. Mánudaginn 9. apríl, annan dag páska, er fermingarmessa kl. 10.30. Kvöldvaka í Fríkirkj- unni í Hafnarfirði Að kvöldi föstudagsins langa verð- ur dagskrá í Fríkirkjunni í Hafn- arfirði sem hefur yfirskriftina kvöldvaka við krossinn. Kvöldvak- an hefst kl. 20.30. Flutt verður vönduð dagskrá í tali og tónum sem tengist atburðum föstudagsins langa. Stór kross hangir í kórdyr- um og þar undir verða tendruð sjö kertaljós meðan sunginn er sálm- urinn Ég kveiki á kertum mínum við krossins helga tré. Síðustu orð Jesú á krossinum verða lesin og í lok stundarinnar verða öll ljós í kirkjunni slökkt og kirkjugestir yf- irgefa kirkjuna myrkvaða. Kór Frí- kirkjunnar leiðir söngdagskrá und- ir stjórn Arnar Arnarsonar. Listaflétta í Langholtskirkju Listaflétta og tónleikar föstudaginn langa, 6. apríl, kl. 20. Kór Lang- holtskirkju flytur föstutónlist. Ljóðalestur – dans – myndlistarsýn- ing. Passíusálmalestur í Hallgrímskirkju Í Hallgrímskirkju á föstudaginn langa verður lesið úr Passíusálm- unum sem er í umsjón Grétars Ein- arssonar en lesendur auk hans verða leikararnir Arnar Jónsson, Guðrún Ásmundsdóttir og Ragn- heiður Steindórsdóttir. Flutning- urinn verður óvenjulegur að því leyti að lesendur skipta ekki heilum sálmum milli sín heldur einstökum erindum eftir efni og samhengi. Þau hafa líka hugsað sér að nýta rými kirkjunnar meira en venju- lega og færa sig smám saman innar og nær altarinu. Björn Steinar Sól- bergsson organisti sér um tónlist- arflutning milli lestra. Átta kristin trúfélög saman á skírdag Að morgni skírdags, 5. apríl, kl. 11 verður haldin samkirkjuleg guðs- þjónusta í kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg. Högni Valsson, for- stöðumaður fríkirkjunnar Veg- arins, predikar og safnaðarprestur Óháða safnaðarins, sr. Pétur Þor- steinsson, leiðir stundina. Fulltrúar hinna safnaðanna í Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga á Íslandi flytja bænir, fólk frá Aðventkirkjunni, Hvítasunnukirkjunni, Íslensku Kristskirkjunni, Kaþólsku kirkj- unni og Þjóðkirkjunni. Hjálpræð- isherinn annast tónlistarflutning og söng með Miriam Óskarsdóttur og Óskar Jakobsson í forystu. Allir eru innilega velkomnir á þessa sam- kirkjulegu bæna- og lofgjörð- arstund í Óháða söfnuðinum. Hátíðarguðsþjónusta á páskadagsmorgun í Laugarneskirkju Hátíðarguðsþjónusta verður í Laugarneskirkju á páskadags- morgun kl. 8. Sr. Hildur Eir Bolla- dóttir prédikar og Laufey Geir- laugsdóttir söngkona tónar hátíðartón. Organisti og kórstjóri er Gunnar Gunnarsson. Kór Laug- Morgunblaðið/ÓmarBessastaðakirkja

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.