Morgunblaðið - 04.04.2007, Síða 39

Morgunblaðið - 04.04.2007, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2007 39 MINNINGAR ✝ Jón Magnússonfæddist í Reykjavík 20. jan- úar 1930. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Suð- urnesja 28. mars síðastliðinn. For- eldrar hans voru Magnús Ólafsson, f. 1885, d. 1967 og Jó- nea Sigurveig Jóns- dóttir, f. 1889, d. 1977. Systkini Jóns voru Úlfar, f. 1922, d. 2000, Guðrún, f. 1923, d. 1993, Ólafur, f. 1927, d. 1976 og Sigurveig, f. 1930, d. 1931. Hálfbræður voru Guðjón Sæmundsson, f. 1913, d. 1993 og Hjörtur Jónsson, f. 1920, d. 2006. Eftirlifandi eru Rannveig, f. 1929 og Guðmundur, f. 1925. Hinn 7. desember 1957 kvænt- ist Jón Lilju Þórðardóttur, f. 12. september 1930. Þau eiga fjögur börn, þau eru: Hrafnhildur, f. 1957, gift Karli Antonssyni, Númi, f. 1959, kvæntur Ásdísi Gunnlaugsdóttur, Sigurveig Una, f. 1961, gift Jónasi Péturssyni og Sif, f. 1970, gift Iljaz Sada. Fyrir átti Lilja Hörð, f. 1951, d. 1990. Afa- börn eru tólf og langafabörn fjögur. Jón kom til Keflavíkur árið 1955 eins og svo margir aðrir þegar tækifærin buðust með komu varn- arliðsins. Hann vann þar ýmis til- fallandi störf. Árið 1958 réðst hann til starfa hjá Fiskiðj- unni í Keflavík sem verkstjóri. Því starfi gegndi hann í 10 ár. Eftir það gerðist hann leigubílstóri, var einn af stofn- endum Bifreiðastöðvar Keflavík- ur. Hann stundaði akstur leigu- bíla til 75 ára aldurs. Jón var fljótlega kosinn til ýmissa trún- aðarstarfa fyrir félag leigubíl- stjóra. Hann var um árabil í for- ystu Fylkis og Freys, félags leigubifreiðastjóra. Í öllum sínum störfum var Jón valinn í ábyrgð- arstörf,. Útför Jóns verður gerð frá Keflavíkurkirkju í dag, og hefst athöfnin klukkan 11. Á vorsins dögum vaknar allt af dróma þá vermist lund og eflist hugans þrá, þá minningarnar mildum skreytast ljóma um mæta æsku, sem er liðin hjá. Og gott er þá á góða vini minnast og glaðar stundir fyrr á æskutíð, þá var ljúft að lifa, mætast, kynnast, þá létt var för um draumalöndin fríð. Þótt tíminn líði, brott sé æskan blíða er birta enn um minninganna fjöld. Og margan daginn margt sé við að stríða að morgni blessun ljómar þúsundföld. Því að einn er sá, er æðstar vonir fyllir og engum bregst, það góður drottinn er og líkt og vorsól vermir allt og gyllir. Hann veitir frið sem dýrastur reynist mér. (Ólafía Árnadóttir.) Minningin um góðan föður og tengdaföður lifir með okkur alla tíð. Hrafnhildur og Karl. Elsku Pabbi. Á kveðjustund leitar hugurinn gjarnan til þess sem löngu er liðið. Minningar um ánægjulegar samverustundir birtast ein af ann- arri, sem ég geymi í hjarta mínu. Ég vil þakka þér fyrir allt. Þú stóðst þig eins og hetja í gegnum öll veikindin og var það langur tími. Nú er því lok- ið og þú hefur fengið hvíldina. Ég kveð þig, elsku pabbi, með söknuði og þakklæti. Þín dóttir Una. Elsku pabbi, ég trúi því varla að þú sért farinn og komið sé að kveðju- stund. Hamingjuríkasta minningin sem ég á um þig er frá því fyrir mörgum árum þegar þú varst ungur maður, hamingjusamur og hafðir fulla heilsu. Ég var lítil stelpa þá. Ég hafði vaknað þegar þú fórst á fætur, fann þig kátan og glaðan. Þú dans- aðir með mig um herbergið, það var gaman. Svo eins og oft áður sat ég hjá þér meðan þú rakaðir þig, raul- andi eitthvert skemmtilegt lag. Svo kvaddir þú, flautandi á leið í vinnuna. Ég vona að þér líði svona núna, sért frískur og glaður er ég kveð þig í hinsta sinn. Þú veittir mér öryggi og hlýju alla ævi og margar góðar stundir. Þú varst yndislegur faðir. Ég þakka þér fyrir það. Þín dóttir, Sif. Ég kynntist Jóni fyrst sumarið 1978. Þá hafði ég sem ungur maður ráðið mig til sumarvinnu, suður með sjó. Ástæða þess að Suðurnesin urðu fyrir valinu var reyndar sú, að fyrr um veturinn hafði ég hitt stúlku (Unu dóttur Jóns) sem ég heillaðist mjög af. Skemmst er frá því að segja að við felldum hugi saman. Þá kom að því að Una vildi kynna mig fyrir foreldrum sínum. Ég kveið því rosa- lega, því mér skildist að Jón væri nokkuð harður í horn að taka. Sá kvíði var óþarfur, því þau hjónin Lilja og Jón tóku mér opnum örm- um. Nú tæpum 30 árum síðar get ég sagt, að ekki hefur borið skugga á samskipti okkar. Jón hafði ákveðnar, en ávallt sanngjarnar skoðanir á hlutunum. Hann kom til dyranna eins og hann var klæddur. Eitt lærði ég af Jóni öðru fremur, sem var að vera trúr uppruna sínum. Vera ekki að eyða orku í að vera ein- hver annar en maður er. Það í raun einfaldar allt að koma fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig. Akkúrat þetta hef ég reynt að brýna fyrir börnum mínum, þeim Ingibjörgu, Oddi, Pétri og Jökli, sem Jón var ávallt hlýr, tryggur og ráð- góður afi. Takk fyrir árin sem við áttum saman. Elsku Lilja, Hrafnhildur, Númi, Una og Sif. Guð gefi ykkur styrk í sorginni. Jónas Pétursson. Elsku afi, það sem okkur er efst í huga núna er hversu heppin við vor- um að fá að kynnast þér og njóta samveru þinnar. Þegar litið er á okkur systkinin þá sést vel að þú áttir töluvert í okkur öllum, bæði útliti og háttalagi. Alltaf fannst okkur jafn gaman að kíkja til ykkar ömmu á Faxabrautina og seinna Kirkjuveginn, sást þá alveg greinilega hversu vænt þér þótti um okkur. Sérstaklega fannst þér gam- an þegar litlu prinsessurnar, langaf- astelpurnar, komu með, þá ljómaði allt húsið. Það sem okkur dettur helst í hug þegar við hugsum til þín eru allar sögurnar af ferðalögunum sem þið amma fóruð í og þú varst duglegur að deila með okkur. Einnig fannst okkur alltaf jafn gaman og þér, þeg- ar þú stríddir ömmu með því að vera ósammála henni í flestu, bara til að ögra henni aðeins, en það var auðvit- að allt í gríni gert eins og við vitum öll. Einnig er alveg frábært að rifja upp sögurnar af skipulagshæfileik- um þínum, sérstaklega þeim sem lutu að því að raða. Margar sögur eru af kössum sem blómstruðu þeg- ar þeir voru opnaðir og bílum sem allt komst í sem þú vildir að færi í þá. Einnig hafðir þú alltaf mikinn áhuga á öllu sem við tókum okkur fyrir hendur, hvort sem það var í námi, starfi eða öðru. Hefðum við auðvitað viljað hafa þig með okkur í brúðkaupunum í sumar og haust en þinn tími var kominn. Varst þú búinn að vera veik- ur það lengi að við erum óendanlega þakklát fyrir allan þann tíma sem við fengum með þér, og sérstaklega að þú hafir fengið að hitta prins- essurnar okkar. Hvíl í friði, elsku afi okkar. Lilja Dögg, Jón Hrafn, Marta, Uni Hrafn, makar og langafadætur. Elsku afi. Með þessu fallega versi viljum við þakka þér fyrir allt. Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með frjóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt lit og blöð niður lagði líf mannlegt endar skjótt. (Hallgrímur Pétursson.) Saknaðarkveðjur, Ingibjörg Tinna, Jökull, Pét- ur Hrafn, Lilja, Oddur, Ásta og langafadrengurinn Tóm- as Ingi Oddsson. Jón Magnússon ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RÖGNVALDUR ÓLAFSSON, Skagfirðingabraut 11, Sauðárkróki, lést á Dvalarheimili aldraðra, Sauðárkróki, sunnu- daginn 25. mars. Útför hans fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugar- daginn 7. apríl kl. 14.00. Dóra I. Magnúsdóttir, Hólmfríður Rögnvaldsdóttir, Guðmundur G. Halldórsson, Ólína Rut Rögnvaldsdóttir, Stefán Skarphéðinsson, Halla S. Rögnvaldsdóttir, Haukur Steingrímsson, Magnús H. Rögnvaldsson, Sigríður Valgarðsdóttir, Sigurbjörg Rögnvaldsdóttir, Ólafur Jónsson, afabörn og langafabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, dóttir og systir, ELÍN KRISTÍN ÞORSTEINSDÓTTIR, Stuðlabergi 12, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 25. mars sl. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ásmundur Sigvaldason, Harpa Rún Ásmundsdóttir, Styrmir Sæmundsson, Bjarni Sæmundsson, Sunna Gunnarsdóttir, Breki Bjarnason, Elín Bjarnadóttir, Guðrún Gunnarsson, systkini og fjölskyldur þeirra. ✝ Elsku bróðir okkar, JÓHANN GUÐLAUGSSON, lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn 1. apríl. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 11. apríl kl. 13:00. Þeir sem vilja minnast hins látna vinsamlegast láti líknarstofnanir njóta þess. Lilja Guðrún Guðlaugsdóttir, Jón Guðmundur Guðlaugsson. ✝ Elskuleg eiginkona, móðir, dóttir, systir, mágkona og tengdadóttir, ELÍN INGA BALDURSDÓTTIR, Suðurgötu 80, Hafnarfirði, sem andaðist á heimili sínu í Hafnarfirði sunnu- daginn 1. apríl, verður jarðsungin frá Víðistaða- kirkju miðvikudaginn 11. apríl kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið í Neskirkju. Gunnar Valdimarsson, María Björg Gunnarsdóttir, Baldur Pálsson, Hlíf Brynja Baldursdóttir, Eiríkur Már Hansson, Aðalbjörg Baldursdóttir, Slawomir Brodowski, Páll Baldursson, Þórunn Björg Jóhannsdóttir, Valdimar Magnússon, Bentína Sigrún Viggósdóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og systir, HULDA SIGURBJÖRG HANSDÓTTIR, Laufvangi 16, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 2. apríl. Ólafur H. Friðjónsson, Katla Þorkelsdóttir, Guðlaug Hanna Friðjónsdóttir, Guðrún H. Friðjónsdóttir, Árni Kr. Sigurvinsson, Friðrik H. Friðjónsson, Sólveig H. Friðjónsdóttir, Júlíanna H. Friðjónsdóttir, Magnús Pétursson, Guðlaugur H. Friðjónsson, Guðrún Elísabet Jónsdóttir, Kristín J. Ármann, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR SIEMSEN, Grandavegi 47, Reykjavík, lést að kvöldi sunnudagsins 1. apríl á líknardeild Landspítala, Landakoti. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 16. apríl kl. 15.00. Árni Siemsen, Sigríður Siemsen, Guðjón Haraldsson, Ólafur Siemsen, Auður Snorradóttir, Elísabet Siemsen, Guðmundur Ámundason, barnabörn og barnabarnabörn. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bil- um - mælt í Tools/Word Count). Minningargreinar Það var mér mikill heiður að fá að kynnast tengdaföður mínum. Hann var mikill og góður maður. Iljaz Sadat. Afi minn, ég elska þig mikið. Þú ert langbesti afi minn, ég mun alltaf sakna þín og ég mun aldrei gleyma þér. Sandra Dögg. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.