Morgunblaðið - 04.04.2007, Síða 50
50 MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞAÐ STENDUR Í BLAÐINU AÐ ÞAÐ SÉ
NÝ SKRÍMSLAMYND Í SJÓNVARPINU
ÉG ÆTLA AÐ ATHUGA
HVORT ÞAÐ SÉ EITT-
HVAÐ VARIÐ Í HANA MAMMA!
ÉG ÆTLA AÐ
POPPA
ÞÚ ERT
AUMUR,
LJÓTUR,
HEIMSKUR...
ÉG GET EKKERT Í
ÞVÍ GERT...
ÞAÐ TEKUR ALLAN
DAGINN AÐ TELJA UPP
ÞAÐ SEM ER AÐ ÞÉR!
BÍDDU AÐEINS! KLUKKAN
ER BARA ÁTTA... FINNST
ÞÉR Í LAGI AÐ DAGURINN
MINN BYRJI SVONA?
ÉG SVER ÞESS EIÐ...
AÐ VERNDA
DROTTNINGUNA, BÓLU,
OG LAND HENNAR,
SLEPJUMÖRK
ÞETTA Á
EFTIR AÐ
VERA LANGUR
VETUR
HVERNIG
VAR
ÞETTA?
FULLKOMIÐ!
ÉG HELD AÐ VIÐ ÞURFUM
EKKI AÐ HAFA ÁHYGGJUR AF
MÚSUNUM FRAMAR
FERÐA-
SKRIFSTOFA
AF HVERJU
VILTU ALLTAF
KLIFRA UPP
EMPIRE STATE?
GETUR ÞÚ EKKI
PRÓFAÐ AÐ KLIFRA
UPP EFFEL-
TURNINN EINU
SINNI?!
ERTU BÚIN AÐ VERA
VAKANDI LENGI?
JÁ, ÉG VAKNAÐI
KLUKKAN TVÖ
OG GAT EKKI
SOFNAÐ AFTUR
ÞANNIG AÐ ÉG ÁKVAÐ
AÐ REYNA AÐ LESA
MÉR TIL UM SVEFNLEYSI
Á INTERNETINU
KOMSTU AÐ
EINHVERJU?
JÁ, ÞAÐ ER
MIKIÐ LÍF Á
SPJALLRÁSUM
UM SVEFNLEYSI
AF HVERJU HEFUR ÞÚ
SVONA MIKINN ÁHUGA Á
BLÓÐINU ÚR PARKER?
VEGNA ÞESS
AÐ BLÓÐIÐ HANS
VIRKAR EINS OG
SÝKLALYF
EF ÉG NÆ AÐ FÁ
EINKALEYFI FYRIR ÞVÍ
ÞÁ VERÐ ÉG RÍKUR
ENGIN FURÐA AÐ HANN
TÓK ÚR MÉR NÓGU MIKIÐ
BLÓÐ TIL ÞESS AÐ OPNA
SINN EIGIN BLÓÐBANKA
dagbók|velvakandi
Fjalakötturinn
SÍÐASTLIÐIÐ sunnudagskvöld fór
ég á sýningu hjá Fjalakettinum á
myndina Still life eftir Zhang Ke Jia.
Miðinn kostaði 900 kr. Gestum var
tilkynnt að töf yrði á sýningunni
vegna tæknilegra vandamála. Eftir
hálftíma var salurinn opnaður án
þess að við okkur væri sagt orð.
Neðri hluti myndarinnar var rauður,
toppurinn grænn og miðjan svart-
hvít. Lýsingin í myndinni var of dökk
og andlit komu fram sem svartir
flekkir. Ég spurði í afgreiðslunni
hvort eitthvað væri að og fékk þær
upplýsingar að myndin ætti að vera
svona og að hún væri svarthvít. Rest-
in af myndinni var afar slæm upplifun
þar sem myndin var alvarlega óskýr.
Þegar heim var komið komst ég að
því að kvikmyndin á að vera í lit.
Mér þykir framtak Fjalakattarins
til íslenskrar bíómenningar vera frá-
bært. En hér er ekki aðeins verið að
brjóta á bíógestum heldur er þetta
einnig mikil óvirðing við kvikmynd-
ina. Má segja að Fjalakötturinn hafi
lítinn áhuga á útbreiðslu menningar
þegar svona er farið með verkin sem
þau sýna.
Ég hvet alla þá sem sátu í Tjarn-
arbíói hinn 1. apríl á kvikmyndunum
Kyrrmynd kl. 8 og Dong kl. 10 að fá
endurgreiðslu á miðum.
Kvikmyndaáhugamaður.
Hugdetta
ÉG VAR yfir mig hissa þegar ég opn-
aði útvarpið hinn 29. mars sl. Ég
heyrði Ragnheiði Ólafsdóttur vera að
flytja hugvekju sína fyrir hönd
Frjálslynda flokksins. Hún talaði
fjálglega um yfirsýn sína, þarfir sinn-
ar þjóðar. Hvað ætlar öryrki að gera í
framboð? Reiknar hún með því að
einhver vilji nýta hennar krafta til
þess að reyna þjóðina á þeirri rand-
arönd sem hún rúllar núna? Ætlar
hún að vinna allt það starf í sjálfboða-
vinnu eða býst hún við því að hún sem
öryrki fái þingmannskaup? Ætlar
hún að stíga út af öryrkjaþrepinu og
vinna sem heilbrigður þingmaður?
Ég held að ég treysti ekki þeirri konu
til að vinna af heilindum fyrir mig,
eða aðra í þessu þjóðfélagi. Eftir
framkomu hennar við mig, að ég tali
nú ekki um framkomu hennar í sam-
bandi við systur mína og mág. Þau
eiga sameiginlega um sárt að binda
eftir samstarfið við þessa konu. Þá
var hún að vinna í fyrirtæki sínu hér á
Þingeyri sem hét Steinar og málmar.
Ég óska Frjálslyndum til hamingju
með þessa orðhvötu konu. Hvernig
getur öryrki unnið í grjótburði?
Kristjana Vagnsdóttir.
Fugl í slæmum félagsskap
LÍTILL gulur og ögn grænleitur fugl
með bláan blett við gogg, nokkuð
harður í horn að taka, barst inn með
heimilisköttunum í Vesturási að
kvöldi 2. apríl. Goldendelicious, en
það er fuglinn kallaður á meðan ekki
fást nánari uppl., ber sig afar vel en
væri til í að hitta eigendur sína aftur.
Þeir eru beðnir að hafa samband við
Ingu í síma 899 9375 sem fyrst enda
er fuglinn fullvinsæll á heimilinu.
Inga.
Þakkir
ÉG VAR svo heppin, eftir langa bið,
að komast í mjaðmaaðgerð hjá frá-
bærum lækni, Brynjólfi Jónssyni.
Þökk sé honum. Eftir aðgerðina fæ
ég inni í gegnum Guðnýju, öldr-
unarlækni, á deild L2 á Landakoti, og
þökk sé Guðnýju fyrir þá hjálp. Síðan
má segja frá því frábæra starfsliði
sem þar er. Það er varla hægt að
skýra hvað mikið þær gefa frá sér
elskulegheit og kærleika. Alveg frá-
bært starfslið, eins og ein fjölskylda.
Guð blessi þau öllsömul og kærar
þakkir fyrir alla hjálpina.
Sjöfn Helgadóttir.
Gullúr tapaðist
GULLÚR af gerðinni Gucci tapaðist
miðsvæðis í Reykjavík, nánar tiltekið
einhvers staðar á þessu svæði: frá
Hótel Sögu að Lækjargötu, þaðan að
Hlemmi eða í Skerjafirði. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma 561-6668.
Fundarlaun.
Köttur í óskilum
KÖTTUR, hugsanlega af „Oriental-
shorthair“-tegundinni, svart-yrjóttur
að lit, hefur verið viðloðandi við hús
eitt í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík.
Upplýsingar í síma 588-5762.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Handbók með ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir!
Fæst á ESSO, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is