Morgunblaðið - 04.04.2007, Síða 52
Ég tók föður minn í nefið. Hann
var brenndur og ég stóðst ekki
mátið að blanda honum saman við
kókaín… 55
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
ÚRSLITAÞÁTTURINN í X-Factor
fer fram á föstudaginn. Af því tilefni
var boðað til blaðamannafundar í
gær þar sem keppendur í úrslitum
og dómarar sátu fyrir svörum.
Til úrslita keppa Hara-systurnar,
þær Rakel og Hildur Magnúsdætur,
og Færeyingurinn Jógvan Hansen.
Flytjendur syngja þrjú lög hvorir
um sig, m.a. verður frumflutt lagið
„Hvern einasta dag“ eftir Óskar Pál
Sveinsson og Stefán Hilmarsson,
sem var sérstaklega samið fyrir X-
Factor og verður gefið út með þeim
sem sigrar.
Sérstakir gestir í úrslitaþættinum
eru Nylon-flokkurinn og allir sem
komust í úrslit, sem flytja saman eitt
lag. Þá mun eftirminnilegasti kepp-
andinn úr áheyrnarprófunum stíga
á svið.
Mikil spenna hefur myndast fyrir
X-Factor-keppninni í Færeyjum og
verður úrslitaþátturinn sýndur í
beinni útsendingu þar. Færeyingar
munu þó ekki geta kosið sinn mann
til sigurs.
Páll Óskar Hjálmtýsson, einn
dómara, sagðist búast við að mjótt
yrði á munum milli keppenda, Einar
Bárðarson tók undir það og sagði al-
veg vera innistæðu í landinu fyrir
annarri umferð af X-Factor m.v. þá
hæfileika sem komu fram í þessari
þáttaröð.
Aðspurðir sögðust keppendur
ekki vera hræddir um að þeir
gleymdust strax eftir lokaþáttinn og
ætla að nýta þessa athygli í gegnum
X-Factor til að koma sér áfram í tón-
listarheiminum. Í lok blaðamanna-
fundarins fengu gestir að hlusta á
brot úr hinu nýja lagi, „Hvern ein-
asta dag“, og var augljóst að þar er
íslenskt eðalpopp á ferð.
X-Factor sýndur í Færeyjum
Morgunblaðið/G.Rúnar
X-Factor Páll Óskar, Hildur og Rakel í Hara, Jógvan og Einar Bárðarson.
Herra Ísland,
Jón Gunnlaugur
Viggósson,
hafnaði í 13.–44.
sæti í keppninni
um fegursta
karlmann heims
sem fram fór í Kína á laugardag-
inn. Það var Herra Spánn sem
hreppti titilinn en eins og Jón
Gunnlaugur segir á heimasíðu
sinni kom það flestum á óvart.
Þar segir Jón Gunnlaugur enn-
fremur að ferðin hafi verið
skemmtileg og mikil upplifun að
vera höfðinu hærri en almenn-
ingur í Kína og þó hann hafi ekki
gert sér miklar vonir um sigur
var hann farinn að gæla við að
komast a.m.k. inn á meðal 12
efstu keppendanna.
Herra Ísland hafði ekki
erindi sem erfiði í Kína
Staðfest hefur verið að gríndá-
valdurinn Sailesh sé á leið til lands-
ins og mun hann troða upp á
skemmtistaðnum Broadway föstu-
daginn 27. apríl. Sailesh getur
kinnroðalaust slegið um sig með
nafnbótinni Íslandsvinur þar sem
hann hefur komið á klakann alls
þrisvar sinnum áður og haldið hátt
í tuttugu sýningar um landið allt. Í
þetta sinn verður þó aðeins um
þessa eina sýningu að ræða, að
sögn aðstandenda.
Miðasala er hafin á www.midi.is,
verslunum Skífunnar og BT úti á
landi.
Sailesh á leiðinni
Í Morgunblaðinu í gær kom fram
að viðtal við Magnús Scheving lík-
amsræktarfrömuð og athafnaskáld
væri að finna í nýjasta hefti hins
virta tímarits The Economist. Það
sem gleymdist að minnast á og
margir myndu telja aðalfrétt, er að
samkvæmt viðtalinu stendur Magn-
ús í samningaviðræðum við Nin-
tendo-leikjarisann um framleiðslu á
tölvuleik byggðum á Latabæ.
Nintendo-leikur í smíð-
um um lífið í Latabæ?
GOLDMINE er eðlilega stórkostlegasta plata
sem út hefur komið, fyrr og síðar, og við dauð-
legir menn eigum að vera þakklátir fyrir að
Silvía Nótt, eða Silvia Night, miskunni sig yfir
okkur með óviðjafnanlegri poppsnilld sinni. Plat-
an er reyndar það stórfengleg að hún lyktar
bókstaflega af jarðarberjum. Sölvi Blöndal, tón-
listarmaður og nemi við HÍ, vélaði um tónlistina
á plötunni ásamt tveimur öðrum en segist ekki
hafa unnið hana með Silvíu Nótt.
„Ég vann hana með Ágústu Evu Erlends-
dóttur,“ segir hann, „og tók engan þátt í leikrit-
inu. Enda er búið að fella tjöldin.“
Súrrealískt
Talið berst í framhaldinu að þessum tilbúna
raunveruleika sem Silvía Nótt tilheyrir. Hvað er
raunverulegt og hvað ekki?
„Ef við lítum til söngkvenna eins og t.d. Kelis
og Paris Hilton, þá eru þær jafn raunverulegar
– eða óraunverulegar – og Silvía Nótt,“ segir
Sölvi. „Þessar söngkonur höfðu viss áhrif á
framvindu plötunnar.“
Platan var unnin síðasta sumar og Sölvi
myndaði teymi ásamt þeim Birgi Erni Stein-
arssyni og Sveinbirni Bjarka Jónssyni.
„Það var frábært að vinna með þeim tveimur
og allir voru mjög sammála um hverju ætti að
ná fram. Þá á Warren Riker mikinn þátt í loka-
útkomunni, en hann hljóðblandaði plötuna. Hann
tók hluti sem ég hélt að væru eins ýktir og
mögulegt væri og fór með þá enn lengra. Það
var eiginlega súrrealískt vinnuferli í kringum
plötuna, því þegar ég samþykkti að taka verkið
að mér, í byrjun maí, var ég ekki með neitt í
höndunum. En svo raðaðist þetta einhvern veg-
inn saman hratt og örugglega.“
Grípandi
Sölvi segist frá upphafi hafa verið einslags
línuvörður í heimi Silvíu Nætur; Gaukur Úlf-
arsson og Ágústa eru vinir hans frá fornu fari
og hugmyndirnar og húmorinn á bakvið Silvíu
voru honum því þegar tamar.
„Og það er ekki hægt að hugsa sér betri út-
gefanda að plötunni en Jakob Frímann Magn-
ússon (útgáfufyrirtæki hans, Reykjavik Records,
gefur út). Maður sem hefur gert mynd eins og
Hvíta máva veit upp á hár út á hvað þetta geng-
ur.“
Sölvi segir að í kringum Silvíu Nótt sé mikið
leikrit, en þegar einhver grunlaus kaupandi í
Þýskalandi pikki upp plötuna þá er þetta plata
með söngkonunni Silviu Night – sem er jafn
raunveruleg fyrir honum og næsta manneskja.
Trikkið hafi því legið í því að búa til plötu sem
hafi getað staðið ein, utan við gerviheim Silvíu
Nætur.
„Í raun og veru vil ég samt henda þessu mál-
skrúði frá, því að mér gæti ekki staðið meira á
sama um þennan ofurraunveruleika Silvíu Næt-
ur. Ég er fyrst og síðast að reyna að búa til eins
grípandi popplög og ég mögulega get, lög sem
geta lifað framyfir eina hlustun. Ég frelsaðist til
popps fyrir nokkrum árum, lagðist í Beach Boys
ker og sé nú og heyri glögglega að poppið er
ekki ómerkilegri list en önnur.“
Morgunblaðið/G.Rúnar
Poppari „Ég sé nú og heyri glögglega að poppið er ekki ómerkilegri list en önnur.“
Sölvi og Silvía
Sölvi Blöndal semur tónlistina á fyrstu plötu Silvíu Nætur, Goldmine
Silvia Night treður upp á NASA í kvöld ásamt
Trabant og Gullfoss og Geysi. Tónleikarnir hefj-
ast um miðnætti og er aðgangseyrir 1.500 kr.
Quarashi Sölvi með þeim Steinari
Orra og Ómari Erni árið 2003.
Stjarnan Silvía Nótt