Morgunblaðið - 04.04.2007, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 04.04.2007, Qupperneq 56
56 MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is NÝ GRÍNMYND FRÁ SÖMU OG GERÐU SHAUN OF THE DEAD / KEFLAVÍK MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ MEET THE ROBINSONS kl. 5:50 LEYFÐ WILD HOGS kl. 8 B.i. 7 ára THE HITCHER kl. 10:10 B.i. 16 ára / AKUREYRI MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 6 - 8 LEYFÐ ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ WILD HOGS kl. 8 - 10 B.i. 7 ára 300 kl. 10 B.i. 16 ára RENÉE ZELLWEGER VAR TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE SEM BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI. „HREIN UNUN FRÁ BYRJUN TIL ENDA“ eeee SUNDAY MIRROR SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ AUDREY TAUTOU eee - S.V., Mbl eee - K.H.H., Fbl SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ GAD ELMALEH STÆRSTA GRÍNMYNDIN Í BANDARÍKJUNUM Á ÞESSU ÁRI SANNSÖGULEG MYND UM BEATRIX POTTER, EINN ÁST- SÆLASTA BARNABÓKA- HÖFUND BRETA FYRR OG SÍÐAR SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is BECAUSE I SAID SO kl. 6 - 8:15 - 10:30 LEYFÐ MISS POTTER kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ WILD HOGS kl. 6 - 8:15 - 10:30 LEYFÐ THE GOOD GERMAN kl. 8 B.i. 16 ára 300 kl. 10:20 B.i. 16 ára LADY CHATTERLEY kl. 8 (Frönsk mynd) TELL NO ONE (NE LE DIS À PERSONNE) kl. 5:40 (Frönsk mynd) HORS DE PRIX kl. 5:50 (Frönsk mynd) eeee VJV, TOPP5.IS SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ e STÓRLÖGGUR. SMÁBÆR. MEÐAL OFBELDI. „FYNDNASTA SPENNUMYND ÁRSINS“ - GQ eeee - LIB Topp5.is eeeee - Sunday Mirror eeeee - Cosmo BESTA MAMMA Í HEIMI GETUR LÍKA GERT MANN GEÐVEIKANN SAGAN hefst þar sem Richard Novak ligg- ur sárkvalinn á heimili sínu, svo kvalinn reyndar að hann hringir í neyðarlínuna, enda er hann sannfærður um að hann sé að lifa sínar síðustu stundir. Þegar hann er kominn á sjúkrahúsið finnst ekkert að hon- um og þótt hann fái slík kvalaköst aftur, að vísu ekki eins slæm og það fyrsta, finna læknar ekkert athugavert. Lesandinn áttar sig aftur á móti fljótlega á því að Novak er sjúkur á sál, ekki líkama, og þessi sársauki er til kominn vegna þess að hann lifir inn- antómu lífi. Framundan er mikið ferðalag þar sem Novak bjargar hesti úr jarðfalli við heimili hans (rímar við jarðfallið í sálinni), myndar trúnaðarsamband við grátandi konu í stór- markaði, bætir samskiptin við aldraða for- eldra sína, sem virðast reyndar hafa lítinn áhuga á börnum sínum yfirleitt, sættist við bróður sinn, bjargar stúlku undan morð- óðum nauðgara og svo má telja. Mest er um vert að hann nær loks að kynnast syni sínum sem hann hefur ekki hitt árum saman. Af bókinni má ráða að lífið í Los Angeles sé í meira lagi súrrealískt, svo mengað sé líf í borginni af kvikmyndaiðnaðinum að allir séu fastir í götóttu kvikmyndahandriti þar sem lífið er ekki spurning um það sem er heldur það sem sýnist. Smám saman verður Novak meðvitaður um delluna sem viðgengst í kringum hann, sem veitir von um að ná að sigrast á sársaukanum í sálinni, þótt hann haldi áfram að makka með, sé enn hluti af þessu sérkennilega samfélagi. A.N. Homes er þekkt (alræmd) fyrir bæk- ur þar sem hún tekur á ýmsum snúnum og vandasömum málum og gerir það oft á krassandi hátt. Ólíkt fyrri verkum hennar er þessi bók skrifuð í gamansömum tón þótt viðfangsefnið sé háalvarlegt. Hún er líka sannkölluð skemmtilesning, lipurlega skrif- uð og bráðfyndin á köflum. Ristir vissulega grunnt, en viðeigandi í ljósi þess að verið er að skrifa um borg þar sem allt ristir grunnt, líka átakanlegir atburðir og harmþrungin örlög. Jarðfall í sálinni A.M. Homes – This Book Will Save Your Life. Granta gefur út 2007. Árni Matthíasson 1. Viltu vinna milljarð? – Vikas Swarup 2. Íslensk orðabók I-II – Mörður Árnason ritst. 3. Hringur Tankados – kilja Dan Brown 4. Sér grefur gröf – Yrsa Sigurðardóttir 5. Arfur Nóbels – Lisa Marklund 6. Flugdrekahlauparinn – Khaled Hosseini 7. Sálmabók – Ýmsir 8. Stafsetningarorðabók – Dóra Hafsteinsdóttir ritst. 9. Skólinn hans Barbapabba – Annette Tison Eymundsson Eftir Þormóð Dagsson thorri@mbl.is Þrátt fyrir glæsta ímynd á draumaborgin Hollywood sér ýmsar dökkar og ógeðfelldar hliðar og það eru svosem eng- ar fregnir. Völd og peningar bjóða yfirleitt spillingunni heim. Í bókinni The Whole Equation; A History of Holly- wood sem kom út árið 2004 dregur kvikmyndagagnrýn- andinn David Thomson ým- isleg óhreinindi kvikmynda- iðnaðarins í Hollywood upp á yfirborðið. Það gerir hann með því að segja sögur nokk- urra misþekktra einstaklinga sem hafa komið á einhvern hátt að draumaverksmiðjunni og brennt sig á henni. Um leið reynir höfundur að uppgötva og afhjúpa hið raunverulega eðli þessarar umræddu verk- smiðju og sérstaklega með hvaða hætti henni hefur tekist að móta fólk og skoðanir þess allt frá fyrri hluta síðustu ald- ar. Bókin spyr meðal annars hvort Hollywood sé trúar- brögð sem eru að verða til eða hvort þau séu gömul og næst- um dauð? Thomas einblínir á tvo þætti í þessu rannsóknarverkefni um Hollywood; annars vegar skoðar hann fólkið sem gerði kvikmyndirnar frægar og hins vegar hvernig þær voru fjár- magnaðar. Skoðar hann meðal annars fólk eins og D.W. Grif- fith, Charlie Chaplin, Louis B. Mayer, David O. Selznick, Francis Ford Coppola, George Lucas, Bette Davis og Nicole Kidman. Áhrif Hollywood eru – hvað sem öllu líður – gíf- urlega mikil og ná víða en Thomson segir meðal ann- ars í bókinni að það hafi í rauninni verið óvænt und- ur að Hollywood skyldi verða þessi áhrifamikli fjöldaframleiðandi. Thom- son er greinilega mjög umhugað um þetta mikla áhrifavald sem Hollywood hefur gagnvart gíf- urlegum fjölda fólks. Á sama tíma er hann sér meðvitandi um þá hættu sem slíku áhrifavaldi fylgir þar sem auðveld- lega er hægt að nota það til að ráðskast með hug- myndir og skoðanir fólks. Bókinni lýkur svo á nokk- uð rosalegri spurningu: „Hvað hafa kvikmynd- irnar gert okkur?“ Umfram allt peningar Titill bókarinnar, The Whole Equation, er til- vísun í setningu úr skáld- sögunni The Last Tycoon, sem skrifuð er af Scott Fitzgerald, en hann dagaði uppi sem heldur ógæfusaman handritshöfund í Hollywood þrátt fyrir glæsta fortíð. Í sögu Fitzgeralds er þessi setning notuð um togstreitu fjármagns og listrænnar hugsjónar í kvikmynda- iðnaðinum. Líkt og Thomson velti Fitzgerald mikið fyrir sér hinu raunverulega eðli draumaverk- smiðjunnar. Í The Whole Equation dregur höfundurinn upp mynd af kvik- myndaiðnaðinum í borginni sem stórri ráðgátu uppfullri af við- skiptajöfrum, útgefendum, um- boðsmönnum, verkalýðsfélögum, þrýstihópum og umfram allt; pen- ingum. David Thomson hefur fengið mikið lof í gegnum tíðina fyrir skrif sín um kvikmyndir og kvikmynda- iðnaðinn og þykir hafa sérlega öfl- uga og túverðuga rödd í þeim efn- um. Honum tekst jafnframt að vera laus við öfgafullan málflutning þó svo að hann spyrji stundum heldur stórt. Þá er stíll Thomsons mjög skemmtilegur og fleytir lestrinum áfram um bæði bjartar og skítugar slóðir í frásögnum af draumaverk- smiðjunni Hollywood. Þó er tölu- vert meira af skítugum frásögnum. Forvitnilegar bækur: The Whole Equation Trúin á Hollywood BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. Nineteen Minutes – Jodi Picoult. 2. Shopaholic & Baby – Sophie Kinsella. 3. Daddy’s Girl – Lisa Scottoline 4 .Whitethorn Woods – Maeve Binchy 5. For a Few Demons More – Kim Harrison 6. Step on a Crack 7. Sisters – Danielle Steel. 8. Heart-Shaped Box – Joe Hill. 9 .The Double Bind – Chris Bohjalian. New York Times 1. Harry Potter and the Deathly Hallows – J.K. (Barnaútgáfa) Rowling 2. Harry Potter and the Deathly Hallows – J.K. Rowling (Fullorð- insútgáfa) 3. The Interpretation of Murder – Jed Rubenfeld 4. Restless – William Boyd 5. Heart-shaped Box – Joe Hill 6. This Book Will Save Your Life – A.M. Homes 7. Half of a Yellow Sun – Chimamanda Ngozi Adichie 8. Suite Francaise – Irene Nemirovsky, et al. 9. The Tenderness of Wolves – Stef Penney Waterstones

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.