Morgunblaðið - 04.04.2007, Page 60
MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 94. DAGUR ÁRSINS 2007
2& $
,7'&
/ +
,
8&
6
0 0
0 0 0 0
0
0
0
0
0
0 0 0 0
0 . 9 #6 '
0 0
0 0 0 0 0
0
:;<<=>?
'@A><?B8'CDB:
9=B=:=:;<<=>?
:EB'99>FB=
B;>'99>FB=
'GB'99>FB=
'3?''BH>=B9?
I=C=B'9@IAB
':>
A3>=
8AB8?'3+'?@=<=
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Hnífstunga
Tæplega fimmtugur karlmaður
særðist lífshættulega í hníf-
stunguárás í gærkvöldi og var flutt-
ur á slysadeild þar sem hann gekkst
undir aðgerð. Fjórir menn voru
handteknir vegna árásarinnar og
hefur einn þeirra viðurkennt verkn-
aðinn. Að sögn læknis á slysadeild
Landspítalans var maðurinn með
lífshættulega áverka. » Forsíða
Vatnsleikjagarður
Hafinn er undirbúningur að bygg-
ingu vatnsleikjagarðs í Úlfarsárdal
og verður um stærstu sundlaug
sinnar tegundar á landinu að ræða.
Um einkaframkvæmd yrði að ræða í
samvinnu við borgina. » Baksíða
Ofvirkni fullorðinna
Tveggja ára bið er eftir greiningu
á ofvirkni meðal fullorðinna hér á
landi, að sögn sálfræðings á Land-
spítala – háskólasjúkrahúsi. Talið er
að allt að tíu þúsund Íslendingar
undir fimmtugu geti átt við athygl-
isbrest með ofvirkni að stríða. » 26
Deilur í Úkraínu
Viktor Jústsjenkó, forseti Úkra-
ínu, og Viktor Janúkóvítsj, forsætis-
ráðherra landsins, takast nú á um
hvort halda eigi þingkosningar í
landinu í maí næstkomandi. Forset-
inn gaf út tilskipun þess efnis fyrir
skömmu, en Janúkóvítsj segir það
hafa verið örlagarík mistök. » 16
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Sældarlíf
Staksteinar: Að breyta leikreglum
Forystugreinar: Jarðstrengir | Bar-
inn og rændur
UMRÆÐAN»
Framboð eldri borgara
Hin góðu gildi
Jafnrétti
Náttúruvernd
Heitast 15 °C | Kaldast 6 °C
SV- og vestan 5–10
m/s en snýst í norðan
norðantil. Stöku skúrir
en él nyrðra. » 8
Lýst er eftir góðum
glæpasögum til þátt-
töku í árlegri smá-
sagnakeppni sem
nefnist Gaddakylf-
an. » 54
KEPPNI»
Lumar
þú á sögu?
TÓNLIST»
Færeyskir tónar og tón-
leikar á NASA. » 59
Umfjöllun um for-
vitnilegar bækur á
ensku sem og listar
yfir mest seldu bæk-
urnar í Eymundsson
og víðar. » 56
BÓKMENNTIR»
Forvitnileg-
ar bækur
TÓNLIST»
Sölvi Blöndal semur fyrir
Silvíu Nótt. » 52
KVIKMYNDIR»
Fimm myndir eru frum-
sýndar um páskana. » 57
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Myrti 13 ára gamall
2. Mel B léttari
3. Búningsklefar eins og rottuhola
4. Vilja Becks án Posh
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
HAFINN er undirbúningur að uppbyggingu vatns-
leikjagarðs í Úlfarsárdal eða „vatnaparadísar“, eins
og Björn Ingi Hrafnsson, formaður Íþrótta- og
tómstundaráðs Reykjavíkur, orðar það. Um einka-
framkvæmd verður að ræða. „Hún yrði stærsta
sundlaug sinnar tegundar á landinu,“ segir Björn
Ingi. „Margir Íslendingar sækja slíka garða í fríum
erlendis. Við höfum heita vatnið sem aðrar þjóðir
hafa ekki og það er ekkert því til fyrirstöðu að við
getum komið upp slíkri aðstöðu hér. Ég tel að þetta
gæti orðið samvinnuverkefni einkaaðila, borgarinn-
ar og Orkuveitu Reykjavíkur.“
Vatnsleikjagarðurinn er meðal fjölmargra fram-
kvæmda á sviði íþrótta- og tómstundamála sem ráð-
ist verður í á næstu árum á vegum borgarinnar skv.
nýsamþykktri áætlun borgarstjórnar til þriggja
ára. Verja á 500 milljónum á þessu ári og rúmlega
4,7 milljörðum á árunum 2008 til 2010 til slíkra
framkvæmda, m.a. á íþróttasvæðum, með uppbygg-
ingu íþróttahúsa og íþróttavalla.
Á næstu dögum verður gengið til samninga um
uppbyggingu líkamsræktarstöðvar við hlið Vestur-
bæjarlaugar og boðar Björn Ingi einnig átak í gerð
lítilla gervigrasvalla við flesta skóla í borginni. Þá
verða frístundakort fyrir sex til 18 ára innleidd og
varið til þeirra rúmum tveimur milljörðum.
Hafin er vinna á vettvangi skipulags- og bygg-
ingasviðs og framkvæmdasviðs borgarinnar að
skipulagi fyrir vatnsleikjagarðinn í Úlfarsárdal
Björn Ingi kveðst sjá fyrir sér að einhver aðili muni
taka vatnsleikjagarðinn að sér og jafnvel verði rekið
þar hótel og heilsuþjónusta eins og þekkist víða er-
lendis. Áætla megi að þetta gæti orðið verkefni upp
á einn til tvo milljarða króna. | Miðopna
Vatnaparadís við Úlfarsfell
Stórátak boðað í uppbyggingu á íþróttasvæðum Heilsuræktarstöð við Vest-
urbæjarlaug Sparkvellir við skóla í borginni Stórt íþróttahús í Suður-Mjódd
Fjör Börn í borginni munu fagna vatnagarði.
Í HNOTSKURN
»Ganga á til samninga við íþróttafélöginFylki og Fjölni um uppbyggingu fim-
leikahúsa hjá þessum félögum.
»Nú er gert ráð fyrir að reist verði munstærra íþróttahús fyrir ÍR í Mjódd en
áður var fyrirhugað.
»Fjárframlög í gerð lítilla gervigrasvallavið skóla borgarinnar verða tvöfölduð.
»KR-ingar fá knatthús í Frostaskjóli ogVíkingur gervigrasvöll í Stjörnugróf.
EINMUNA blíða var á Austurlandi í
gær og þarf að fara suður að Mið-
jarðarhafinu að minnsta kosti til
þess að finna dæmi um sambæri-
legar hitatölur og fyrir austan, en
hitinn slagaði víða í 20 stig og rúm-
lega það. Líklegt er að hitamet apr-
ílmánaðar hafi fallið þegar sjálfvirk
veðurathugunarstöð í Neskaupstað
mældi 21,2 gráðu hita í gær og hit-
inn á Dalatanga og Kollaleiru
mældist einnig tæp 20 stig.
„Þetta var vordagur í dag, en
vorið er ekki komið endanlega, því
segja má að næstu dagar séu svolít-
ið vetrarlegir,“ sagði Haraldur Ei-
ríksson, veðurfræðingur á Veð-
urstofunni, en spáð er kólnandi
veðri í dag og frosti víða norð-
anlands og austan strax í kvöld og
næstu daga. Hitafallið er því mikið
og ekki fer að hlýna aftur eitthvað
fyrr en líður að helginni. Þá er jafn-
vel spáð hvassri norðanátt og snjó-
komu fyrir norðan á sunnudag, en
spár svo langt fram í tímann eru
óvissar og öruggast að fylgjast vel
með veðurfréttum.
Ástæðan fyrir vorveðrinu í gær
var hæð fyrir sunnan landið sem
dældi heitu lofti sunnan úr hafi yfir
landið og köldu lofti suður á bóginn
sem gerði það að verkum að víða
var fremur kalt á norðanverðu
meginlandi Evrópu.
Einmuna
veður-
blíða
Hlýindi Hvað gæti verið meiri vorboði en vorlaukarnir sem nú gægjast upp
úr moldinni? Ragnheiður Þorsteinsdóttir, sem er fjögurra, að verða fimm,
settist niður í blíðviðrinu á Egilsstöðum í gær og virti fyrir sér smáblóm.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
EITT SMÁBLÓM
ATHAFNAMAÐURINN Björgólfur
Thor Björgólfsson hélt upp á fer-
tugsafmæli sitt á dögunum á Ja-
maíka í fé-
lagsskap nánustu
vina sinna og
ættingja. Sam-
kvæmt áreið-
anlegum heim-
ildum
Morgunblaðsins
var bandaríski
tónlistarmað-
urinn 50 Cent
meðal þeirra sem skemmtu gestum
í afmælinu. Ekki fékkst staðfest
hvaða tónlistarmenn komu fram
auk hans, en þeir munu hafa verið
fleiri.
50 Cent
Skemmti
afmælisgestum
ÞRÍR unglingspiltar voru handteknir
í gær fyrir líkamsárás á sextán ára
pilt sem beið eftir strætisvagni á bið-
stöð í Breiðholti. Hann var fluttur á
slysadeild en mun ekki hafa verið al-
varlega slasaður.
Að sögn lögreglunnar var aðdrag-
andi árásarinnar sá að piltarnir komu
á bíl og stöðvuðu hann þar sem pilt-
urinn beið eftir vagninum. Fóru þeir
út úr bílnum og réðust skyndilega á
piltinn. Lögreglan náði piltunum og
viðurkenndu þeir árásina en ekki kom
fram hvað þeim gekk til með henni.
Sá sem barinn var þekkti ekki piltana.
Ráðist á 16 ára
pilt í Breiðholti
♦♦♦