Morgunblaðið - 19.04.2007, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ICELAND Express hefur ráðið 55
flugliða til starfa í sumar og hefur
félagið aldrei áður ráðið svo marga
flugliða í einu. Fjölgunin stendur í
beinu sambandi við fjölgun ferða
félagsins í sumar en þá bætast við
fimm nýir áfangastaðir; Basel í
Sviss, Billund í Danmörku, Eind-
hoven í Hollandi, Ósló í Noregi og
París í Frakklandi.
Samkvæmt upplýsingum frá fyr-
irtækinu bárust vel á sjöunda
hundrað umsóknir og eftir að vand-
lega hafði verið farið yfir þær allar
voru 150 manns kallaðir í viðtal þar
sem tungumálakunnátta var einnig
könnuð. Að lokum voru 55 flugliðar
ráðnir, þrír karlmenn og 52 konur.
Þjálfa þarf flugliðana nýju fyrir
starfið og hefur nýliðanámskeið
staðið yfir frá 26. mars og lýkur því
5. maí næstkomandi. Að mörgu er
að hyggja við þjálfun flugliða enda
þurfa þeir að geta sinnt allt frá
hefðbundinni þjónustu við farþega
til neyðaraðstoðar ef eitthvað fer
úrskeiðis. Mikil áhersla er lögð á
skyndihjálp, enda ekki hægt að
hringja í Neyðarlínuna í háloft-
unum.
Jafnframt hefur sérsveit lögregl-
unnar aðstoðað hópinn við að læra
hvernig eigi að afstýra vandræðum
tengdum ölvun, múgæsingi og ann-
arri hegðun svokallaðra „flug-
dólga“.
Gusugangur Á björgunarbátanámskeiði hjá Iceland Express í Varmárlaug
um síðustu helgi. Námskeiðið er hluti af flugliðanámskeiði Iceland Express.
Fleiri flugliðar en áður
ráðnir til Iceland Express
ABC barnahjálp og 10–11-verslan-
irnar hafa hafið samstarf til hjálpar
nauðstöddum börnum í þróun-
arríkjum. Samstarfið felst í sölu á
klakaboxum og selja nú allar 10–11-
verslanir klakabox til styrktar ABC
barnahjálp. Allur ágóði af klakasöl-
unni rennur til ABC barnahjálpar og
er gert ráð fyrir að hann muni nema
um einni milljón á ári. Með sam-
starfinu gerist 10–11 einn stærsti
styrktaraðilinn í Vinafélagi ABC.
ABC barnahjálp er með víðfeðm
verkefni um þessar mundir og fagn-
ar því stuðningnum. Í Pakistan er
verið að vígja fjórðu skólabygg-
inguna og í N-Úganda er ABC að
byggja heimavistir fyrir stúlkur í
flóttamannabúðum. Í Naíróbí í Ken-
ýa er götubörnum gefið heimili og
skólaganga og í Líberíu er að hefjast
stuðningur við munaðarlaus börn.
Hægt er að tilkynna stuðning á
www.abc.is eða í s. 414-0990.
Reuters
Fátækt ABC aðstoðar meðal ann-
ars götubörn í Naíróbó í Kenýa.
Klakasala til
styrktar ABC
barnahjálp
Nafn Alma Lísa Jóhannsdóttir.
Starf Deildarstjóri í búsetuþjón-
ustu hjá Svæðisskrifstofu málefna
fatlaðra á Suðurlandi.
Fjölskylduhagir Á eitt barn.
Kjördæmi Suðurkjördæmi, 2. sæti
fyrir Vinstri græn.
Áhugamál Listir, menning og úti-
vist.
Hvers vegna pólitík?
Vegna þess að mér finnst við
ekki geta gengið gegnum lífið án
þess að reyna að hafa skoðun á því
sem snertir okkur. Pólitík snýst um
það.
Er Alþingi áhugaverður
vinnustaður?
Já, ég held það. Ég hugsa hann
sé mjög fjölbreyttur og maður fær
að takast á við flest sem er að ger-
ast í samfélaginu og hafa áhrif.
Fyrsta mál sem þú vilt koma
á dagskrá?
Ég vil berjast gegn félagslegu
órættlæti á allan hátt sem ég
mögulega get. Það nær yfir vítt
svið, t.d. stöðu kvenna, fatlaðra, ör-
yrkja o.s.frv. Það eru svo margir
hópar sem eru undir og ég vil leið-
rétta það. Svo brenna umhverf-
ismálin auðvitað á mér líka.
Þarf breytingar?
Að sjálfsögðu! Ef við viljum búa í
norrænu velferðarsamfélagi þá
verðum við að breyta.
Vil berjast
gegn fé-
lagslegu
óréttlæti
Nýir frambjóðendur | Alma Lísa Jóhannsdóttir
Að hafa skoðun Við getum ekki
farið í gegnum lífið án þess að hafa
skoðun á því sem snertir okkur.
UMSÓKNARFRESTUR um stöðu
skólameistara við Menntaskólann á
Ísafirði er runninn út. Umsækj-
endur eru Agnes Karlsdóttir fram-
haldsskólakennari, Hildur Hall-
dórsdóttir framhaldsskólakennari
og Jón Reynir Sigurvinsson aðstoð-
arskólameistari.
Miðað er við að mennta-
málaráðherra skipi í stöðuna til
fimm ára frá 1. ágúst nk.
Þrír vilja stýra MÍ
NOKKURT magn af fíkniefnum
fannst við húsleit á höfuðborg-
arsvæðinu í gær.
Talið er að þetta séu e-töflur og
amfetamín. Ein kona var handtekin
vegna málsins. Á öðrum stað á höf-
uðborgarsvæðinu fannst lítilræði af
ætluðu fíkniefni.
Karlmaður um fertugt var yf-
irheyrður vegna málsins sem telst
að mestu upplýst.
Í fyrrinótt var karlmaður á fer-
tugsaldri færður á lögreglustöð en
hann er einnig grunaður um fíkni-
efnamisferli.
Tóku fíkniefni
UMSÓKNARFRESTUR um emb-
ætti forstöðumanns Blindra-
bókasafns Íslands er runninn út.
Umsækjendur eru: Arnþór Helga-
son framkvæmdastjóri, Guð-
mundur Guðmarsson skjalastjóri,
Hólmfríður B. Petersen bókasafns-
fræðingur, Magnús A.G. Wilde
nemi, Sóley Guðmundsdóttir
þroskaþjálfi, Þóra Sigríður Ingólfs-
dóttir bókmenntafræðingur og Örn
Ólafsson háskólakennari.
Miðað er við að mennta-
málaráðherra skipi í stöðuna til
fimm ára frá 1. júlí 2007 nk.
Blindrabókasafnið
T I L B O Ð S D A G A R
Í M O T O R M A X
Motor Max Reykjavík - Kletthálsi 13 - Sími 563-4400
Motor Max Egilsstöðum - Sími 470-5080 / 470-5070
Motor Max Akureyri - Sími 460-4350
Opnunartímar í Kletthálsi:
Fimmtud.: 10 - 16. Fös.: 9 - 18. Lau.: 10 - 16.
Bjóðum fellihýsi, pallhýsi, hjólhýsi og tjaldvagna,
2006 árgerð, á einstöku verði á tilboðsdögum
MotorMax 19. til 22. apríl.
Komdu í MotorMax og gríptu þetta tækifæri.
Takmarkað magn.
Opið í dag sumardaginn fyrsta
í verslun okkar á Kletthálsi 13.
www.motormax.is
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
„ÉG Á nú ekki að gera annað en að
klippa á borðann í þetta skiptið. Svo
er það kannski einhver annar sem á
að synda vígslusundið. Ég er nefni-
lega orðin svo gömul að ég er hætt að
synda. Ef ég syndi núna þá leggst ég
helst á bakið og læt mig fljóta,“ sagði
Klara Klængsdóttir, fyrrverandi
kennari í Mosfellsbæ, hlæjandi þegar
blaðamaður sló á þráðinn til hennar í
gær vegna þeirra frétta að hún myndi
víga nýja sundlaug í Mosfellsbæ í dag,
á sumardaginn fyrsta. Klara, sem hef-
ur líklega kennt fleiri börnum að lesa í
bænum en nokkur annar, synti vígslu-
sundið í Varmárlaug þegar hún var
tekin í notkun 17. júní árið 1964.
Klara verður 88 ára á þessu ári en
hún var ákaflega farsæll kennari á ár-
um áður. Kenndi hún fyrst í Brú-
arlandsskóla en síðar í Varmárskóla
þar til hún hætti kennslu eftir um
fimm áratuga starf. Sjálf bjó hún
lengi í kennaraíbúð að Brúarlandi.
„Ég er alin upp eins mikið í vatni og
á þurru landi,“ segir Klara en hún
hefur alla tíð búið í Mosfellsbæ. „Ég
er alin upp á Álafossi undir handjaðri
Sigurjóns Péturssonar, sem átti þá
verksmiðjuna. Hann var mikill
íþróttakappi og var m.a. oft glímu-
kóngur Íslands. Hann hafði alltaf
íþróttanámskeið á sumrin. Dóttir
hans, Sigríður Sigurjónsdóttir, lærði
sundkennslu í Danmörku og kenndi
sund. Hún kenndi mér sund og svo fór
ég að kenna sund með henni.“
Á þeim árum var synt í útilaug að
Álafossi sem stífluð var í ánni. Einnig
kom snemma innilaug á svæðinu.
Klara menntaði sig síðar sem
kennari og kenndi allar götur eftir
það í Mosfellsbæ.
„Það mætti segja mér það að Sig-
urjón hafi lagt grunninn að þeirri
miklu íþróttauppbyggingu sem verið
hefur í Mosfellsbæ,“ segir Klara.
„Hann var mikill áhugamaður um
íþróttir og framsýnn maður, það var
hann.“
Skrúðganga verður frá Kjarnanum
í Mosfellsbæ í dag kl. 13 og vígsla
nýrrar íþróttamiðstöðvar í Lækj-
arhlíð hefst með hátíðlegri athöfn kl.
13.40.
Sundlaugin hefur þegar verið opn-
uð almenningi.
Morgunblaðið/Ásdís
Farsæl Klara Klængsdóttir kennari vígði Varmárlaug árið 1964 og í dag
vígir hún nýja laug við Lágafellsskóla.
Vígir nýja sundlaug
„Ég er alin upp eins mikið í vatni og á þurru landi“
SKOTIÐ var á strætisvagn á Grens-
ásveginum á þriðjudagskvöld og hef-
ur lögreglan tekið málið til rannsókn-
ar. Í vagninum var vagnstjóri ásamt
fimm farþegum og sakaði þá ekki.
Skotið kom í hliðarrúðu við farþega-
innganginn og brotnaði rúðan. Talið
er að um loftriffil hafi verið að ræða.
Að sögn vagnstjórans, sem ók leið 17,
hafði hann vart fyrr hleypt út farþega
á biðstöð á Grensásveginum en annar
maður nálgaðist vagninn og skaut á
hann með vopninu. Skotárásin varði í
örfá augnablik og síðan hvarf byssu-
maðurinn. Lögreglan sendi lið á stað-
inn og lokaði svæðinu á meðan vett-
vangsrannsókn fór fram. Tæknideild-
armenn frá lögreglunni könnuðu
svæðið og er málið í frekari rannsókn.
Talið er að árásarmaðurinn sé á bilinu
20–25 ára gamall. Hann var klæddur
hettupeysu með appelsínugulu merki
á bakinu. Er hans nú leitað vegna
rannsóknarinnar.
Skotið á strætisvagn