Morgunblaðið - 19.04.2007, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 19.04.2007, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2007 41 Það er með ólíkingum að fjár- málaráðherra skuli í aðdraganda kosninganna rjúka fram á ritvöll- inn í Mbl. 31.3 2007 og láta í ljós þá miklu andúð sem þingflokkur hans hefur sýnt eldri borgurum þessa lands á síðastliðnum 12 ár- um. Flokkur hans á ekki minni þátt í því ófremdarástandi sem eldri borgarar standa frammi fyrir en Framsóknarflokkurinn með sína 2 ráðherra á tímabilinu. Eldri borgarar hafa nú verið knúnir til þess að rísa upp og andmæla þessum ósóma með því að bjóða fram til alþingiskosninga árið 2007 og freista þess að ná þannig fram þeim kjarabótum er þeir fyllilega eiga rétt á. Er ekki rétt að fjármálaráð- herra fari með rétt mál er hann lýsir fjálglega að samkomulag rík- isstjórnar hans og kjaranefndar þeirrar sem ríkisstjórnin stofnaði til 2006 og lauk störfum í júlí sama ár, með þvinguðum samn- ingum, séu í góðum gír. Margrét Margeirsdóttir formað- ur FEB lýsti því ágætlega í blaða- grein hvernig þau viðskipti fóru fram, þar sem "Davíð varð að semja við Golíat" – fulltrúa rík- isvaldsins. Eftir 30 fundi sem nefndin sat, var eftirtekjan það rýr að varla tók að skrifa undir það plagg af hálfu viðsemjenda FEB. Á meðan á fundarsetu stóð var ætíð við- kvæðið af hálfu ríkisvaldsins að ríkissjóður hefði ekki fjármagn til frekari leiðréttinga. Á sama tíma var bruðlað af hálfu ríkisins svo sem í stofnun fleiri sendiráða og í titilembætti hjá Sameinuðu þjóð- unum, sem er sennilega vonlaust dæmi og þeim fjármunum kastað á glæ og var þar var engu til spar- að. En sanngjarnar leiðréttingar sem eldri borgarar fóru fram á voru útilokaðar af samninganefnd stjórnvalda. Margrét lýsir enn- fremur í grein sinni hvernig hópur embættismanna virtist engan skilning hafa á þessum bágu kjör- um eldri borgara sem samninga- nefndin bar fram. – Enda gleym- um því ekki að samninganefnd eldri borgara var alveg miður sín að hafa skrifað undir þetta plagg, og það kom berlega í ljós að FEB í Reykjavík ætlaði ekki að láta hér við sitja, því á aðalfundi félagsins 17. febrúar 2007 voru samþykktar með öllum greiddum atkvæðum, ályktanir til ríkisstjórnar sem þyrftu leiðréttingar með strax. Þetta veit Árni Mathiesen fjár- málaráðherra og því eru tilskrif hans nú í Morgunblaðinu eins og stormur í vatnsglasi – eins og frægt er þegar ráðherra verður ráðþrota í málflutningi sínum. Árni veit að kjör eldri borgara hafa verið skert í gegnum bóta- flokka TR á umliðnum árum í stjórnartíð Davíðs Oddssonar, þegar Geir Haarde var fjár- málaráðherra. Kjör eldri borgara hafa hríðversnað undir stjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks og eru nú 40-50% lakari en á hin- um Norðurlöndunum sem við vilj- um alltaf miða okkar hag við. Frumvarp flutt á mettíma Háttvirtur fjármálaráðherra; það er ekki sama hver á í hlut þegar kemur að eftirlauna- frumvarpi því sem samþykkt var á mettíma í þinginu um eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþing- ismanna og hæstaréttardómara sem varð að lögum númer 141/ 2003. Einnig er rétt að geta þess hér að stór hópur og sennilega mikill meirihluti Sjálfstæðisflokksins er mjög gott fólk og vill láta gott af sér leiða samanber ályktun frá landsfundi flokksins 2001 er sýnir glögglega að þar kom fram álykt- un þess efnis að landsfundarmenn eru á öðru máli en þingflokkurinn á alþingi. Þar segir meðal annars orðrétt: „Landsfundur leggur áherslu á að afnema skuli tekju- tengingu lífeyrisgreiðslna al- mannatrygginga til þeirra sem náð hafa 67 ára aldri. Í stað grunnlífeyris, tekju- trygginga, heimilis- uppbótar og sér- stakrar heimilisuppbótar (tekjutryggingarauki) eigi sérhver ein- staklingur rétt á til- teknum eftirlaunum á mánuði sem ekki verða skertar með neinum hætti. Eftirlaun samsvari a.m.k. framangreindum greiðslum óskertum og taki árlega breyt- ingum við verðlags- breytingar.“ Síðar í ályktuninni segir: „Landsfundur telur að hið fyrsta þurfi að fást niðurstaða um hvort skattleggja eigi ávöxtunarþátt lífeyr- issjóðsgreiðslna eins og aðrar fjármagns- tekjur en stór hluti lífeyrissjóðsgreiðslna samsvarar ávöxtun þess fjár sem við- komandi greiddi í líf- eyrissjóð á starfsferli sínum og því eðlilegt að sá hluti verði skatt- lagður sem fjármagnstekjur.“ Staða eldri borgara og öryrkja væri allt önnur í dag ef þessi sam- þykkt hefði verið borin fram af þingflokknum á alþingi. - Leiðrétt- ingar eru allt sem þarf – þær koma ekki af sjálfu sér, þess vegna sendi ég áskorun þess efnis að Árni Mathiesen skoði aftur þær tillögur er aðalfundur FEB í Reykjavík sendi til ríkisstjórnar eftir aðalfund sinn í febrúar sl. og ég vænti að ráðherrann sé þá bet- ur meðvitaður um þau málefni sem brenna á eldri borgurum þessa lands – en láti ekki eins og Framsóknarmaddaman Siv Frið- leifsdóttir – að hér sé allt í lukk- unnar standi og engu þurfi við BÚTASAUMINN að bæta! Bútasaumur Einar H. Guðmundsson svarar fjármálaráðherra um málefni eldri borgara »Kjör eldri borgaraeru eins og stagbætt flík, þar sem stjórnvald- ið níðist endalaust á kjörum eldri borgara í gegnum bótaflokka TR. Einar Guðmundsson Höfundur er stjórnarmaður í baráttu- samtökum eldri borgara og öryrkja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.