Morgunblaðið - 19.04.2007, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.04.2007, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2007 11 FRÉTTIR Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is ÞORVALDUR Gylfason prófessor segir að mikill efnahagsávinningur fælist í því fyrir Íslendinga að ganga í Evrópusambandið (ESB) og vill hefja viðræður um aðild. Ragnar Arnalds, fyrrverandi alþingismaður, segir ESB hins vegar draum um nýtt stórríki. „Það er valdadraumur stjórnmálamanna í Evrópu, ekki draumur fólksins. Það er verið að safna völdum í eina miðstýrða yfir- stjórn, ólýðræðislegt bákn sem er fjarlægt kjósendum.“ Ragnar og Þorvaldur komu fram á fundi um Evrópumálin í Háskólan- um á Akureyri á þriðjudaginn. Framsal fullveldisréttar Ragnar sagði að megineinkenni aðildar að ESB væri framsal full- veldisréttar; aðildarríki ESB afsali sér t.d. rétti til þess að gera sjálf- stæða viðskiptasamninga við ríki ut- an sambandsins. Væru Íslendingar í ESB væri þeim t.d. bannað að ræða við Kínverja um fríverslunarsamn- ing eins og nú væri verið að gera og gæti orðið mikill búhnykkur fyrir þjóðina. Samningar, sem nú eru í gildi við þjóðir utan ESB, myndu falla úr gildi við inngöngu. Varðandi fjárhagshliðina sagði Ragnar mjög dýrt að ganga í ESB. Líklega myndi aðild kosta Íslend- inga 12 milljarða árlega og aðeins um helmingur af því fengist til baka. Ragnar sagði mikil verðmæti í húfi varðandi fiskveiðar. Hann nefndi kolmunna; Íslendingar hafi átt í átökum við Breta um þær veiðar síðasta áratug, ekki hafi náðst sam- komulag en hefði Ísland verið í ESB og sambandið samið „við sjálft sig“ hefði aflaverðmæti þjóðarinnar á þessu tímabili, vegna þessarar einu tegundar, verið tugum milljarða króna minna en raunin varð. Svo nefndi hann landhelgina. „ESB hefur sem meginreglu, og hef- ur aldrei gert undantekningu, að taka yfir stjórn og yfirráð 200 mílna landhelgi þjóða.“ Þetta væri ein aðal- ástæðan fyrir því að Íslendingar hafi ekki gengið í Evrópusambandið og mikil andstaða hefði verið á Alþingi fyrir því. „Er það beinlínis eftirsókn- arvert að framselja völdin yfir fisk- veiðistjórninni til Evrópusambands- ins?“ spurði Ragnar, og botnaði spurninguna svona: „Fiskveiði- stjórnun í Evrópusambandinu hefur mistekist hrapallega; þeir eru ein- hverjir mestu skussar á því sviði sem þekkjast.“ Þorvaldur sagði samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) eina helstu lyftistöng undir þau um- skipti sem átt hafa sér stað í íslensku efnahagslífi undangengin ár. Samn- ingurinn hafi reynst Íslendingum vel en hann dugi þó ekki til fulls; skapi aðeins tvo þriðju af þeim efnahagsá- vinningi sem er í boði og fengist ef Íslendingar stigju skrefið til fulls og gengu ótrauðir inn í ESB. „Hvað er það sem helst vantar á?“ spurði Þor- valdur og svaraði: „Aukin sam- keppni til þess að halda verðlagi á Ís- landi í skefjum.“ Hann fullyrti að matarverð myndi lækka mikið við inngöngu Íslands í ESB – sú væri t.d. reynsla Finna og Svía. Hann sagði samkeppni myndu stóraukast, vextir lækka og verðbólga minnka. Þorvaldur segir spurninguna um aðild að ESB ekki bara reiknisdæmi heldur snúist hún öðrum þræði um pólitík. Ekki hafi verið reiknaðir út kostir og gallar þegar Ísland gekk í NATO 1949 heldur hafi það verið fé- lagsskapur sem menn hafi viljað vera í en vissulega hafi verið mistök að þjóðin kysi ekki um það. Ísland fari í viðræður við ESB „Við ákváðum að deila fullveldinu með Atlantshafsbandalaginu þegar við gengum þangað inn,“ sagði Þor- valdur og kvaðst líta ESB sömu aug- um og NATO og fullveldisafsal við inngöngu í ESB gæti allt eins orðið styrkur eins og galli. Hann vill að Ís- lendingar fari í viðræður við ESB um aðild, á næsta kjörtímabili, og samningur verði síðan lagður í þjóð- aratkvæðagreiðslu. „Mér þætti það hörmulegt ef þeir sem lögðu svo ríka áherslu á að það að þjóðin fengi að ákveða hvort við gengum í NATO fyrir rösklega hálfri öld legðust nú gegn því að þjóðin fái að útkljá þetta mál í þjóðaratkvæðagreiðslu.“ Ávinning- ur eða af- sal um of?  Afsal fullveldis og mikill kostnaður  Verðlag, vextir og verðbólga lækka Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Já eða nei Ragnar Arnalds og Þorvaldur Gylfason takast í hendur að fund- inum loknum. Birgir Guðmundsson fundarstjóri er á milli þeirra. the illusion of perfection Gleðilegt sumar! Velkomin í kynningu í Snyrtistofu Jónu Tryggvagötu 28, á morgun föstudag, kl. 13-17. 3 spennandi nýjungar frá La Prairie: • Lip Renewal Concentrate • Lip Line Plumper • Revitalizing Eye Gel www.laprairie.com Tryggvagötu 28 • Reykjavík sími 552 5005 Bjóðum 10% kynningarafslátt og sumarglaðning.         M O R G U N V E R Ð A R F U N D U R S A M TA K A AT V I N N U L Í F S I N S Á G R A N D H Ó T E L G Ó Ð I R Í S L E N D I N G A R - erlent starfsfólk á íslenskum vinnumarkaði Miðvikudagur 25.apríl 2007 kl. 8:00-10:00 Rannveig Sigurðardóttir forstöðumaður greiningardeildar Seðlabanka Íslands Ragnar Árnason forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA Sólveig Jónasdóttir verkefnastjóri, Alþjóðahúsi Umræður Fundarstjóri: Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA Þátttökugjald kr. 1.500 með morgunverði Skráning á www.sa.is Fréttir í tölvupósti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.