Morgunblaðið - 19.04.2007, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 19.04.2007, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Ugglaust mun að ýmsum flögra, að greinarhöfundur sé skriffinnur bak við eftirfarandi þjóðlífslýsingu: „Mér stendur stuggur af þeirri terroristastjórn sem ríkir á Ís- landi, bæði í stjórnmálum og við- skiptalífi, og reynir að gera þá menn hlægilega og kalla ofsókn- arbrjálaða sem hafa orð á því óttaástandi sem hún hefur skap- að. Þannig reynir hún að þagga niður í þeim eins og öðrum. Stofn- anir eru lagðar niður ef þær eru ekki stjórnvöldum þóknanlegar. Í hjarta okkar vitum við öll að á Ís- landi ríkir óttastjórn á öllum svið- um. Og mér svíður hvernig mis- réttið í samfélaginu hefur aukist á örskömmum tíma: Að Íslendingar geti ekki lengur talað um eina þjóð í landinu. Mér blöskrar það frelsishjal sem þeir hafa uppi sem vilja fullkomið ófrelsi, frelsi til að einoka. Ég hef skömm á þeim for- svarsmönnum fyrirtækja sem í fjölmiðlum segjast fagna nýrri samkeppni en eru á sama augna- bliki að reyna að finna leið til að drepa keppinautinn með góðu eða illu eða, ef það er ekki hægt, til að kaupa hann út af markaðnum. Hræsnin er ofboðsleg. Og réttlæt- iskennd minni er misboðið.“ Höfundur þessa pistils, sem birtist í Morgunblaðinu 27. marz 2005, er maður, sem aldrei hefur látið draga sig á pólitískan bás. Hann vill hafa algjört frelsi, eins og hann sjálfur segir, og telur frjálslyndi og mannúð lýsa lífs- viðhorfum sínum bezt. Nafn hans er Jóhann Páll Valdimarsson, bókaútgefandi. Þeir taki til sín sem eiga. Sverrir Hermannsson Stjórnarfar? Höfundur er fv. alþingismaður. OFT má sjá greinar í blöðum landsins og umfjallanir í frétta- þáttum um þá miklu fjölgun ör- yrkja sem orðið hefur og er megin ástæða þess sú að fólki með geð- raskanir fer fjölgandi. Þá er fjölg- unin sérstaklega mikil meðal ungs fólks þ.e. fólks undir 35 ára aldri. Margir hafa komið með sína skoðun á af hverju svo sé. Sumir segja að álag nútímaþjóðfélags sé örsökin, aðrir segja að nýrri kyn- slóðir séu einfaldlega latari og veiklyndari en þær eldri og enn aðrir segja að þetta sé vegna þess að fólk er meira vakandi fyr- ir geðsjúkdómum í dag. Þetta er ekki lengur eins mikil skömm og þótti hér áður og fordómum hefur farið fækkandi þó nóg sé af þeim enn. Þá er hinsvegar spurningin; hvernig er tekist á við þessi vandamál? Hvernig er hægt að fækka þeim sem eru öryrkjar vegna geð- raskana? Hvað er hægt að gera þegar ein- staklingur er ekki nógu veikur til að vera lagður inn á deild en er ekki nógu frískur til að sinna daglegu starfi s.s. skóla, vinnu, heimili eða öðru? Fólk með geðraskanir þarf að hafa fasta rútínu. Það þarf að hafa eitthvað sem fær það til að fara fram úr rúminu á morgnana og takast á við daginn. Starfsend- urhæfing er því yfirleitt ákjósan- legasta lausnin á því máli. Í starfsendurhæfingu fær ein- staklingurinn þá rútínu sem hann þarf en um leið er líka tekið tillit til hans persónulegu getu og hæfni. Í starfsendurhæfingu fær fólk hin ýmsu verkefni til að leysa úr, auðveld og erfið sem henta hverj- um og einum. Ef við miðum t.d. við það starf sem fer fram í iðju- þjálfun geðsviðs við Hringbraut þá er þar unnið við smíðar, saum, leir, fjölritun, ýmis tölvuverkefni o.m.fl. Fólki er falið verkefni sem líklegt er að það ráði við fyrst um sinn þegar það byrjar og svo smám saman verða verkefnin og kröfurnar meiri. Verkefni sem öðrum finnast mjög auðveld geta verið mjög erfið og krefjandi fyrir mikið veika einstaklinga. Verkefnin snúast þó ekki ein- göngu um að búa til hluti. Fé- lagsleg samskipti er líka stór hluti af starfinu og því hafa t.d. fé- lagsfærnihópar verið í boði í iðju- þjálfun Geðsviðs við Hringbraut en vegna manneklu hefur það þó ekki verið í boði eftir áramót. Fólk með geðraskanir er oft með mjög lítið sjálfstraust og á erfitt með dagleg samskipti við aðra. Sjálfstraustið eflist við að klára verkefni sem viðkomandi taldi jafnvel að hann gæti ekki gert, verkefni sem fólst í að búa til hlut sem viðkomandi er ánægð- ur með eða að veita öðrum aðstoð með sín verkefni. Þetta er eins og að tilheyra einum stórum vinahóp þar sem maður hefur stuðning frá starfsfólki og öðrum skjólstæð- ingum. Maður skiptir máli. Ég hef sjálf verið skjólstæð- ingur iðjuþjálfunar Geðsviðs við Hringbraut síðan um haustið 2005, eða í eitt og hálft ár. Á þeim tíma hef ég tekið miklum bata þó ég sé ekki enn komin á leiðarenda. Þegar ég byrjaði gat ég ekki talað þegar ég var með hóp af fólki í kringum mig. Ég var mjög feimin, allt sem ég gerði var ómögulegt og ég kunni ekki neitt. Ég átti erfitt með að sinna dag- legu lífi og vera sú manneskja sem ég vil vera. Í dag er allt mun auðveldara, þökk sé því góða starfi sem fram fer á iðjuþjálfunardeildinni. Sjálfstraust mitt hefur eflst til muna, ég geri hluti nú sem ég hefði aldrei haft þor í að gera áð- ur eins og t.d. að skrifa þessa grein. Ég er ekki eins feimin og ég var og get nú haldið uppi góð- um samræðum í herbergi fullu af fólki. Ég trúi á sjálfa mig, ég geri hlutina eins vel og ég get og ég kann bara býsna mikið! Ég ber sjálf ábyrgð á mínum bata en öll þurfum við þó aðstoð, hvort sem við eigum við geð- sjúkdóm að etja eða annað. Starfs- fólkið á iðjuþjálfunardeild Land- spítalans við Hringbraut hefur hjálpað mér að ná þeim bata sem ég hef náð. Þau hafa opnað augu mín og sýnt mér hve dugleg ég er, hve góð ég er og að ég skipti jafn miklu máli og allir aðrir. Hér á Íslandi hefur alltaf verið sagt að hver og einn eigi rétt á þeirri heilbrigðisþjónustu sem hann þarfnast. Sviðsstjóri geðsviðs Landspít- alans hefur nefnt í fjölmiðlum að hugsanlega þurfi að draga úr þjónustu deildarinnar og þ.a.l. beina skjólstæðingum deildarinnar annað. Hvernig er hægt að vísa einum frá en öðrum ekki? Einn á rétt á þjónustunni en hinn getur bara farið eitthvað annað? Eitt er víst að ef deildinni verð- ur lokað eða þjónusta við skjól- stæðinga skert þá er stórt skref stigið afturá bak í geðheilbrigð- isþjónustu landsins sem er skömm. Margir einstaklingar missa þráðinn og verða jafnvel það veik- ir aftur að þeir þurfa á innlögn að halda og öðru slíku. Tala ungra öryrkja á Íslandi mun ekki lækka, svo mikið er víst. Hvað verður um okkur skjól- stæðingana ef þjónustan verður skert? Skiptum við ekki máli? Hvað verður um okkur? Kristjana Mjöll Jónsdóttir skrif- ar um mikilvægi iðjuþjálfunar fyrir fólk með geðraskanir » Í dag er allt munauðveldara, þökk sé því góða starfi sem fram fer á iðjuþjálfunardeild- inni. Kristjana Mjöll Jónsdóttir Höfundur er skjólstæðingur iðjuþjálfunar Geðsviðs Landspítalans við Hringbraut. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn -hágæðaheimilistæki Ef þú kaupir Miele þvottavél eða þurrkara færðu kaupverðið endurgreitt með betri meðferð á þvott- inum. Þetta tryggir tromla af nýrri gerð, (einkaleyfi Miele) lengri ending vélarinnar en gengur og gerist, auk fullkomnusta tækni sem völ er á. Íslenskt stjórnborð Íslenskar leiðbeiningar Stórt hurðaop 20 ára ending Eirvík kynnir sportlínuna frá Miele vi lb or ga @ ce nt ru m .is Baldursnes 6, Akureyri | Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 588 0200 | www.eirvik.is Hreinn sparnaður AFSLÁTTUR 30% Miele gæði ÞVOTTAVÉL frá kr. 99.900 Verið velkomin í glæsilegar verslanir Eirvíkur á Akureyri og í Reykjavík og kynnið ykkur Miele þvottavélar. Gerð Listaverð TILBOÐ Þvottavél W1514 142.714 99.900 1400sn/mín/5 kg Þvottavél W1714 172.286 119.900 1400sn/mín/6 kg Þurrkari T7644C 135.571 94.900 Rakaþéttir/6 kg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.