Morgunblaðið - 19.04.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2007 37
2 um þrjú-
niðurlög-
ti 22, þar
Þrátt fyrir
prautað á
i eldurinn
viliðsstjóri
ón Viðar
una helst
verið end-
ki klætt að
gar. „Það
ur ofan á
rífa þá af
ð eldsvoð-
ukkutíma
ravda. Við
, eða svo-
gert vegna
að þakið
i mér ekki
slíkar að-
ðarbitann,
nig að það
nokkrar
hrunið.“
og smátt
lum ákafa
ma náðu
ldinum og
beið þá það verk að tryggja að allur
eldur væri slokknaður og að hann
myndi ekki taka sig upp aftur.
Slökkvilið var á vakt við húsið í alla
nótt auk lögreglu, en búist var við
miklum mannfjölda í miðbæinn þar
sem frídagur er hjá flestum í dag.
Sáttur við framvindu málsins
„Ég er mjög sáttur við framvindu
málsins en það er mjög sorglegt að
standa frammi fyrir því að hjarta
Reykjavíkurborgar er hreinlega að
hverfa að hluta til,“ sagði Jón Viðar
þegar slökkvilið hafði að mestu ráðið
niðurlögum eldsins. „Þetta var mjög
erfitt við að eiga og hvað varðar
verkefni slökkviliðsins er ég mjög
sáttur. Við keyrðum lengi á mönn-
um, menn voru búnir að fara í tvær
og þrjár reykkafanir sem er gífur-
lega erfitt.“
Um 80–100 manns tóku þátt í
slökkvistarfinu en þrátt fyrir að svo
alvarlegur atburður verði er ekki
hægt að sleppa öðrum verkefnum.
„Við mönnuðum allar okkar stöðvar
og fengum aðstoð frá Suðurnesjum,
auk þess sem við vorum í góðu sam-
bandi við slökkvilið í nágrannasveit-
arfélögum ef á þyrfti að halda,“ seg-
ir Jón Viðar en svo vildi til að
óvenjulega mikið var um sjúkra-
flutninga á sama tíma og barist var
við eldinn.
Kviknaði í út frá loftljósi
Rannsókn á brunanum hófst þeg-
ar um miðjan dag í gær og um hana
sjá lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
og Brunamálastofnun. Fljótlega
komu fram vísbendingar um að eld-
urinn hefði kviknað í húsnæði Frök-
en Reykjavíkur, eða Tourist book-
ing, sem m.a. er söluturn og
þjónusta fyrir ferðamenn. Bendir
ýmislegt til að kviknað hafi í út frá
loftljósi og staðfesti Stefán Eiríks-
son, lögreglustjóri á höfuðborgar-
svæðinu, þá kenningu. Hann segir
jafnframt að rannsókn miði vel.
Tæknideild og rannsóknardeild
komu snemma á vettvang og ræddu
þá þegar við nokkur vitni.
Aðspurður um brunavarnir
húsanna segir Stefán að enn sé of
snemmt að fullyrða hvað hafi vantað
og hvað verið til staðar en bendir
auk þess á að húsin séu gömul timb-
urhús og erfitt sé að fást við bruna í
slíkum byggingum.
Brunamálastofnun mun gera ítar-
lega stórbrunaskýrslu vegna elds-
voðans og er tilgangur hennar m.a.
að draga lærdóm af því hvernig eld-
vörnum var háttað í húsunum en
ekki síður hvernig slökkvistarf gekk
fyrir sig, og hvort eitthvað hefði bet-
ur mátt fara. Björn Karlsson bruna-
málastjóri segir að uppruni eldsvoð-
ans verði kannaður ítarlega, svo og
brunavarnir húsanna. „Eldvarnaeft-
irlit höfuðborgarsvæðisins hefur
farið þarna í margar skoðanir og at-
hugað húsnæðið. Þannig að til skoð-
unar hjá okkur verða skýrslur um
þessi hús sem eru sæmilega vel
skjalfestar.“
Í skýrslunni verður einnig að
finna úttekt á störfum slökkviliðs og
var Björn meira og minna á vett-
vangi í dag til að fylgjast með. Hann
segir það liggja ljóst fyrir að
slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sé
mjög öflugt og slökkviliðsmenn hafi
staðið sig afar vel í gær. „Við sem
vinnum í þessum brunamálageira
vitum það vel að hér á höfuðborg-
arsvæðinu er mjög öflugt slökkvilið.
Ég held að það sé nokkuð ljóst að
þessir menn hafi staðið sig mjög vel
en við förum betur yfir það í skýrsl-
unni.“
Morgunblaðið/Júlíus
menn unnu þrekvirki
r þegar eldur breiddist út í tvö af elstu húsum borgarinnar Austurstræti 22, þar sem
ónýtt Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá loftljósi í söluturninum Fröken Reykjavík
Morgunblaðið/Sverrir
Fjölmiðlar upplýstir Boðað var til fréttamannafundar í strætisvagni sem
stóð nærri vettvangi. Þar upplýstu Stefán Eiríksson, Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson og Jón Viðar Matthíasson fjölmiðla um hver staða mála væri.