Morgunblaðið - 19.04.2007, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.04.2007, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT NOKKRAR bílsprengjur urðu nær 200 manns að bana í sjítahverfum Bagdad í gær og hafa aldrei fallið fleiri á einum degi í hryðjuverkum í borginni. Eru ódæðisverkin mikið áfall fyrir tilraunir Bandaríkja- manna og íraskra stjórnvalda til að auka öryggi borgarbúa. Sprengjurnar sprungu í fimm hverfum en mest var mannfallið er ein þeirra sprakk við fjölsóttan markað í Al-Sadriyah-hverfinu. Þeyttust lík og líkamshlutar í allar áttir og margar bifreiðar stóðu í ljósum logum á eftir. Talið er, að þarna hafi um 140 manns látið lífið. Mikil reiði greip um sig meðal fólks eftir blóðbaðið og hrópuðu margir ókvæðisorð um Nuri al- Maliki forsætis- ráðherra og áætlanir hans um aukna örygg- isgæslu. Í annarri mestu spreng- ingunni týndu 18 lífi en hún var við eftirlitsstöð íraska hersins í einu mesta fá- tækrahverfinu í Bagdad, Sadr-borg. Allar sprengingarnar beindust gegn sjítum en að auki fundust í gærmorgun lík 18 sjíta, sem höfðu verið pyntaðir. Líklegt er, að sjítar hyggi á grimmilegar hefndir. Hátt í 200 manns létu lífið í hryðjuverkaárásum í Bagdad Daglegt brauð Brunnið lík flutt burt eftir ódæðið. STEFNT er að því að koma upp Dick ens-garði í London og þeim, sem þangað leggja leið sína, á að finnast sem þeir séu komnir inn í annan heim, í fátækrahverfi borgarinnar á 19. öld. Þar munu skítugir rottufangarar hlaupa á eftir völskunum og ekki verður þverfótað fyrir vasaþjófum og öðrum misindislýð. Raunar verður boðið upp á svo ótalmargt enda er sá heimur, sem Charles Dickens lýsti í sögum sínum, svo óendanlega fjöl- breyttur. Segjast aðstandendur garðs- ins ekki efast um það andartak, að garðurinn muni slá rækilega í gegn. Fyrirhugað að koma á fót Dickens-garði í London Horfinn heimur Meðal annars svona verður umhorfs í garðinum. VALERY Giscard d’Estaing, fyrr- verandi forseti Frakklands, hefur lýst yfir stuðningi við hægrimann- inn Nicolas Sarkozy í staðinn fyrir miðjumanninn og samflokksmann sinn Francois Bayrou í frönsku for- setakosningunum. Giscard d’Estaing, sem er 81 árs gamall, segir í viðtali við franska dagblaðið Le Parisien, sem birt er í dag, að Sarkozy búi yfir þeirri reynslu og hafi þau pólitísku áhrif sem Frakklandsforseti þurfi á að halda. D’Estaing, sem var forseti á árunum1974-1981, segir að meiri- hluti franskra þingmanna styðji Sarkozy ólíkt Bayrou. Fær stuðning D’Estaings AP Sarkozy á kosningafundi í gær. GEORGE W. Bush Bandaríkja- forseti gaf í gær stjórnvöldum í Súdan „lokatækifæri“ til að hleypa friðargæsluliðum Sameinuðu þjóð- anna inn í Darfur-hérað, ella yrðu refsiaðgerðir samtakanna gegn Súdan hertar. Fá lokatækifæri 25 liðsmenn íslamskrar hreyfingar biðu bana í árásum Nígeríuhers ná- lægt borginni Kano í gær eftir að hreyfingin varð 13 manns að bana í árás á lögreglustöð. Hreyfingin gerði árásina til að hefna morðs á róttækum íslömskum klerki. Drápa hefnt Toronto. AFP. | Öflug hátíð heimilda- kvikmynda, Hot Docs, hefst í dag í Toronto í dag og þykir ljóst að hart verði deilt um eina myndina. Hún fjallar um feril Óskars- verðlaunahafans Michaels Moore sem þekktur er m.a. fyrir ádeilur á George W. Bush Banda- ríkjaforseta og menn hans. Myndina gerðu Rick Caine og Debbie Melnyk. Sögðust þau hafa verið aðdáendur Moore og fullyrða enn að hann hafi gert mikið fyrir greinina. En rannsóknir þeirra leiddu í ljós heldur ógeðfelldan kar- akter Moore, þau segja hann sekan um bæði svik og ósannindi. Moore húðflettur Michael Moore UM 400 reykingamenn afhentu í gær yfirvöldum í Kaupmannahöfn 61.000 undirskriftir gegn tóbaks- varnalögum sem taka gildi 15. ágúst. Þá verða reykingar m.a. bannaðar innandyra á kaffi- og veitingahúsum í Danmörku. Gegn reykbanni HELMINGUR alls ungs fólks í Kosovo vill koma sér burt úr héraðinu vegna þess, að þar er enga framtíð að finna. Kemur það fram í könnun, sem Sam- einuðu þjóðirnar létu gera. Könnunin var gerð meðal 1.200 manns, Albana, Serba og fólks af öðrum þjóðarbrotum. Atvinnuleysi er mjög mikið í héraðinu og 57% þeirra, sem búa við sára fátækt, eru yngri en 25 ára. Þetta veldur því meðal annars, að rúmlega 90% unga fólksins hafa engan áhuga á að taka þátt í stjórnmála- starfi. Öryggisráð SÞ er um þessar mundir að ræða stöðu Kosovos, hvort það eigi að fá sjálfstæði eða heyra áfram undir Serbíu. Ungt fólk vill burt frá Kosovo Í HNOTSKURN »Eitt sinn bað kennari nem-endur um að rita nafnið sitt á lista. Cho ritaði aðeins spurningarmerki á listann og svaraði engu þegar kennarinn spurði hvort þetta væri nafnið hans. »Cho var handhafi Grænakortsins sem merkir að hann mátti búa í Bandaríkj- unum þótt hann væri ekki með ríkisborgararétt. Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is HEGÐUN Cho Seung-hui, unga námsmannsins sem myrti 32 og loks sjálfan sig í Virginíu í vikunni, varð æ undarlegri síðustu vikurnar sem hann lifði. Herbergisfélagi hans, Jos- eph Aust, sagði að Cho hefði sjaldan talað við aðra stúdenta á garðinum þar sem hann bjó. Cho var búinn að vera enskunemandi í fjögur ár og að sögn kennara var hann að sumu leyti góður námsmaður en ákaflega ein- rænn og ljóst að mikil, innibyrgð reiði þjakaði hann. Lögreglan hefur nú greint frá því að Cho hafi verið sendur í geðrannsókn síðla árs 2005. „Ég reyndi að tala við hann fyrr á árinu þegar hann flutti inn,“ sagði Aust. „Hann svaraði aðeins með einsatkvæðisorðum eða þagði. Hann horfði nánast aldrei í augun á mér.“ Cho skildi eftir sig langt bréf, fullt af bræði, þar sem hann að sögn heimildarmanna fáraðist yfir „ríkum krökkum“ í skólanum og siðspill- ingu. „Þið komuð mér til að gera þetta,“ skrifaði hann. Að sögn lög- reglu var Cho sendur í sálfræðimat eftir að tvær skólasystur hans höfðu lagt fram kvörtun gegn honum vegna áreitni. Kvartanirnar bárust í nóvember og desember árið 2005. En á sama tíma höfðu enskukenn- arar Chos lýst yfir áhyggjum sínum vegna ofbeldisfullra skrifa og and- félagslegrar hegðunar hans. Ungu konurnar sem kvörtuðu undan honum voru ekki á meðal þeirra sem dóu í skotárásunum tveim á mánudag. Aðrir sem rætt hefur verið við minnast þess að þeir hafi talað um að Cho væri líklegur til að feta í fótspor þekktra raðmorð- ingja sem gengið hafa berserksgang á skólalóðum og myrt fólk af handa- hófi. Ofbeldisfull ljóð Cho ritaði ljóð sem þóttu vel gerð en mettuð grófum ofbeldislýsingum, einnig nokkur leikrit sem sumir lýstu sem martröð. „Það sem hann skrifaði, leikritin, var virkilega hroðalegt,“ sagði skólafélagi hans, Stephanie Derry. Einn af kennurun- um, Nikki Giovanni, sagði ljóðin hafa verið ógnandi en í fyrstu hefði hún talið að hann væri aðeins að kanna þanþolið, nemendur vildu oft vita hve langt þeir gætu gengið í grófu orðbragði. Annar kennari, Lucinda Roy, tjáði skólayfirvöldum áhyggjur sínar af Cho og varð úr að hún tók hann í einkatíma um hríð. En hún sagðist aldrei hafa kynnst nemanda sem átti í jafn miklum vanda með sjálfan sig. Gerði Roy samning við aðstoðar- mann sinn um að þegar hún nefndi á nafn látinn prófessor ætti aðstoðar- maðurinn að kalla þegar á öryggis- vörð, svo ógnvekjandi fannst henni framkoma Cho oft vera. Fjölskyldan Cho býr í úthverfi í Washington, þar sem foreldrar hans reka fatahreinsun, að sögn The New York Times. Viðbrögð í Suður-Kór- eu við fréttunum hafa verið á ýmsa lund. Hafa sumir sagst skammast sín fyrir að fjöldamorðinginn skuli hafa verið suður-kóreskur. Einnig óttast margir að ódæðið ýti undir andúð á S-Kóreumönnum vestra og kynþáttahatur. Enn aðrir benda á að þjóðernið skipti í raun engu máli, morðin hafi verið verk einstaklings, og S-Kóreumenn ættu þar enga sök sem þjóð. Og erlendir nemendur við Virginia Tech-háskólann sögðust ekki vera hræddir um að málið myndi valda þeim erfiðleikum þótt togstreita milli kynþátta og þjóðar- brota sé útbreitt vandamál í Banda- ríkjunum. Ljóst þykir að harmleikurinn og sorgin yfir látnum félögum og kenn- urum hafi fremur orðið til að auka samstöðu meðal nemenda í háskól- anum. Margir nemendur minnast nú með aðdáun 76 ára gamals prófess- ors frá Ísrael, Liviu Librescu, sem talinn er hafa bjargað lífi margra stúdenta með því að hindra Cho í að komast inn í kennslustofu nógu lengi til að nemendur gátu stokkið út um glugga og forðað sér. Cho tókst hins vegar að skjóta Librescu til bana. „Þið komuð mér til að gera þetta“ Cho skildi eftir sig bréf þar sem hann fordæmdi skóla- félaga sína Reuters Morðinginn NBC greindi í gær frá því að Cho hefði sent stöðinni mynd- band daginn sem hann framdi morðin. Þar eys hann úr skálum reiði sinnar. LÖGREGLUMENN í Malatya, um 650 km austan við Ankara í Tyrk- landi, handtaka mann sem grun- aður er um aðild að morði á tveim starfsmönnum kristilegs útgáfufyr- irtækis og einum manni að auki, Þjóðverja. Hinir látnu fundust bundnir á höndum og fótum og skornir á háls á skrifstofu útgáf- unnar en áður höfðu henni borist hótanir að sögn framkvæmdastjór- ans, Mamza Ozant. Þjóðernissinnar hafa sakað útgáfuna um að reyna að boða fagnaðarerindið í landinu en um 99% Tyrkja eru múslímar. Reuters Kristnir myrtir í Tyrklandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.