Morgunblaðið - 19.04.2007, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2007 39
ÓLAFUR Egilsson hefur
kynnt hugmynd um byggingu
olíuhreinsunarstöðvar á Vest-
fjörðum. Þetta er vond hug-
mynd, reyndar mjög vond.
Olíuiðnaði fylgir mikil meng-
un, svo mikil að víðast hvar
reyna menn að koma honum
sem lengst frá mannabyggð.
Ekki aðeins eru efnin sem unn-
in eru í verksmiðjunum stór-
skaðleg heldur fylgir þeim
meiri slysahætta en við þekkj-
um í öðrum iðnaði hér.
Til vinnslunnar er hráolía
flutt til hafnar á stórum skip-
um, og siglt er með efnin sem
úr henni eru unnin aftur frá
höfn. Lítið þarf út af að bregða
til að slys verði við flutninga og
eitur breiðist út um haf og
strendur. Skaðinn yrði meiri
en við getum látið okkur detta
í hug.
Vestfirðingar vilja byggja
upp þá ímynd að þeir nýti auð-
lindir náttúrunnar með sjálf-
bærum hætti. Þeir vísa í burt
stóriðju og vilja taka ábyrgð
gagnvart kynslóðunum sem
erfa þeirra land. Olíuiðnaður í
faðmi vestfirskra fjalla snýr
þessari ímynd í andhverfu
sína: fiskurinn fær olíubragð,
loftið mettað þungu gasi.
Það verður ekki bæði sleppt
og haldið. Ég skora á vest-
firska sveitarstjórnarmenn að
vísa hugmyndinni um olíuiðnað
til föðurhúsanna. Hún er ekki
umhugsunarinnar virði.
Hjálmar H.
Ragnarsson
Vond
hugmynd
Höfundur er tónskáld,
borinn og barnfæddur
á Ísafirði.
Eftir rúmlega 1100 ára búsetu
okkar, afkomendur víkinga, höfum
við farið þvílíkri ránshendi um
þetta fagra gróðurlendi landsins
að það er aðeins tæpur helmingur
eftir og hann er víða í tætlum.
Ótal blómtegundir og leifarnar af
kjarrskógunum eru í útrýming-
arhættu vegna lausagöngu búfjár,
en þann dag í dag.
Þrátt fyrir þessar staðreyndir
er blygðunarlaust haldið áfram að
rányrkja landið og gera það óvist-
legra fyrir afkom-
endur okkar.
Erum við gjör-
samlega sofandi og
samviskulaus?
Sigurður Þór-
arinsson, sá virti nátt-
úrufræðingur, sagði
1961:
„Búskapur sem
gengi á dýrmætasta
kapital landsins,
sjálfa gróðurmoldina,
myndi jaðra við glæp
gagnvart komandi
kynslóðum og ekki er þekking-
arleysið lengur til afsökunar.“
T.v.l.
Síðan þetta var sagt fyrir 46 ár-
um hefur frekar sigið á ógæfuhlið-
ina, því landgræðslan hefur ekki
undan uppblæstrinum. Enn einn
vansinn er sá að allt
þetta skemmda gróð-
urlendi skilar koltví-
sýringi út í andrúms-
loftið á við allan
skipaflotann okkar.
Kjósendur í vor,
gróðureyðingin á
landinu er lang-
stærsta og mest að-
kallandi vandamál
okkar í dag.
Gefið þeim flokki
sem hefur það á
stefnuskrá sinni að
koma hér á ræktunarbúskap og
stöðva gróðureyðinguna atkvæði
ykkar.
Engin þeirra hefur ennþá haft
kjark til að taka þetta mál, lausa-
göngu búfjár, á dagskrá, af ótta
við atkvæðamissi ímyndaðra hags-
munaaðila. Það gæti eins verið, ef
að er gáð, að bændur sjálfir væru
orðnir þreyttir á landníðslu, og
vildu gjarna þiggja aðstoð við að
stunda nútímaræktunarbúskap, til
sóma sinni stétt í sátt við landið,
framtíðina og okkur hin sem eig-
um það með þeim.
Kjósendur! Látið ekki blekkjast
af þeim sem kalla sig græna, en
hafa ekki minnst á gróðurvernd-
ina, eru bara með álverin á heil-
anum, af því það er vinsælast í
dag. Staðreyndin er sú að þau eru
lítið mál á móts við það að við ger-
um landið örfoka, af sinnuleysi og
eigingirni og algeru tillitsleysi við
þá sem erfa landið.
Landið var
fagurt og frítt
Herdís Þorvaldsdóttir
segir gróðureyðingu
mesta vandamál dagsins
Herdís Þorvaldsdóttir
»Kjósendur. Látiðekki blekkjast af
þeim sem kalla sig
græna, en hafa ekki
minnst á gróðurvernd-
ina, eru bara með ál-
verin á heilanum.
Höfundur er leikkona
og fv. formaður Lífs og lands.
Fréttir
í tölvupósti
FJÁRFESTINGARBANKI
Stjórn VBS fjárfestingarbanka hf., kt. 621096-3039, boðar til
aðalfundar, sem haldinn verður á Nordica Hótel, Suðurlands-
braut 2, Reykjavík, mánudaginn 30. apríl 2007, kl. 16:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf:
- Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess sl. rekstrarár.
- Ársreikningur fyrir árið 2006 lagður fram til staðfestingar.
- Tillaga stjórnar um ráðstöfun á hagnaði félagsins.
- Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna félagsins.
- Kosning í stjórn félagsins og varastjórn.
- Kosning endurskoðunarfélags.
2. Tillaga um breytingu á samþykktum félagsins. Gerð er tillaga um að við grein
2.1. í samþykktum félagsins verði bætt eftirfarandi málsgrein: „Stjórn félagsins
er heimilt að hækka hlutafé um allt að 199.117.000 krónur að nafnvirði með
afhendingu allt að 199.117.000 nýrra hluta til núverandi hluthafa FSP hf., kt.
460306-1670, í tengslum við samruna VBS fjárfestingarbanka hf. og FSP hf.
skv. samrunaáætlun dags. 9. mars 2007. Hluthafar skulu ekki hafa forgangs-
rétt til áskriftar að þessum nýju hlutum. Hinir nýju hlutir skulu vera í sama
flokki og með sömu réttindi og aðrir hlutir í félaginu. Heimild stjórnar félagsins
til hlutafjárhækkunar þessarar fellur niður þann 1. júlí 2007 að því marki sem
hún er enn ónotuð.“ Samrunaáætlun vegna samruna VBS fjárfestingarbanka hf.
og FSP hf. var birt í Lögbirtingarblaði þann 26. mars 2007 og hafa samrunagögn
legið frammi hjá báðum félögunum frá þeim tíma, auk þess sem þau hafa birst í
fréttakerfi Kauphallar Íslands.
3. Tillaga um samþykki á samruna við FSP hf. samkv. samrunaáætlun dags. 9.
mars 2007. Samruninn er háður samþykki Fjármálaeftirlitsins.
4. Önnur mál.
Fundargögn og atkvæðaseðlar verða afhentir hluthöfum á fundar-
stað á fundardegi frá kl. 15:00 til 16:00.
Stjórn VBS fjárfestingarbanka hf.
VBS fjárfestingarbanka hf. og FSP hf.
Stjórn VBS fjárfestingarbanka hf. og stjórn FSP hf. boða til hluthafafundar á Nordica Hótel, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, mánudaginn
30. apríl 2007, í sameinuðu félagi, enda hafi samruni félaganna áður verið samþykktur á hluthafafundi FSP hf. og hluthafafundur VBS
fjárfestingarbanka hf., samþykkt samrunann og heimild til nauðsynlegrar hlutafjárhækkunar vegna samrunans. Samruninn er háður
samþykki Fjármálaeftirlitsins.
Hluthafafundur í sameinuðu félagi hefst strax að afloknum áðurnefndum fundum.
Dagskrá fundarins er svohljóðandi:
1. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins.
2. Kosning stjórnar.
3. Kosning endurskoðunarfélags.
4. Laun stjórnar fyrir yfirstandandi starfsár að því gefnu að tillaga um breytingu á samþykktum varðandi kjör stjórnar verði samþykkt skv. lið 1.
5. Önnur mál löglega fram borin.
Á fundinum verða lagðar fram eftirfarandi tillögur um breytingar á samþykktum:
- Gerð er tillaga um að við samþykktir félagsins verði bætt eftirfarandi grein sem verður grein 2.1.1: „Stjórn félagsins er heimilt að auka hlutafé þess um allt að 100.000.000 kr. að
nafnverði, með áskrift allt að 100.000.000 nýrra hluta. Þar af hefur stjórn félagsins heimild til þess að ráðstafa allt að 30.000.000 kr. að nafnverði til starfsmanna félagsins
og 20.000.000 kr. að nafnverði á frjálsum markaði og falla hluthafar frá forkaupsrétti sínum skv. 34. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög varðandi þetta hlutafé, samtals allt að
fjárhæð 50.000.000 kr. að nafnverði. Þessir nýju hlutir, samtals allt að fjárhæð 100.000.000 kr. að nafnverði, skulu vera í sama flokki og með sömu réttindi og aðrir hlutir
í félaginu. Þeir skulu veita réttindi í félaginu frá skrásetningardegi hlutafjárhækkunarinnar. Stjórn félagsins er falið að ákveða nánari útfærslu á hækkun þessari m.t.t. verðs
og greiðsluskilmála. Heimild þessi gildir til 1. júní 2010. Stjórn félagsins er heimilt að ákveða að áskrifendur greiði fyrir hina nýju hluti að hluta eða öllu leyti með öðru en
reiðufé.“
- Gerð er tillaga um að grein 3.5.4. í samþykktum félagsins verði breytt og verði svohljóðandi: „Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna félagsins til næsta aðalfundar.“
- Gerð er tillaga um að við samþykktir félagsins verði bætt eftirfarandi grein sem verður grein 4.1.1: „Framboðum til stjórnar félagsins skal skilað skriflega á skrifstofu félagsins
a.m.k. 3 virkum dögum áður en aðalfundur er fyrirhugaður. Framboðum skulu fylgja þær staðfestingar um hæfi sem krafist er af stjórnarmönnum í fjármálafyrirtækjum á
hverjum tíma skv. lögum og reglum um fjármálafyrirtæki.“
Fundargögn og atkvæðaseðlar verða afhentir hluthöfum á fundarstað á fundardegi við upphaf fundar.
Stjórn VBS fjárfestingarbanka hf. Stjórn FSP hf.
Stjórn FSP hf., kt. 510400-2670, boðar til aðalfundar, sem
verður haldinn á Nordica Hótel, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík,
mánudaginn 30. apríl 2007, kl. 16:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf:
- Stjórn félagsins skýrir frá hag félagsins og rekstri þess á liðnu starfsári.
- Efnahagsreikningur og rekstrarreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram
ásamt athugasemdum endurskoðanda félagsins til staðfestingar.
- Stjórn félagsins kjörin og endurskoðandi eða endurskoðunarfélag.
- Tekin ákvörðun um hvernig skuli fara með hagnað félagsins á reikningsárinu
og um arð og framlög í varasjóð.
- Ákvörðun tekin um greiðslur til stjórnar og endurskoðanda/endurskoðunar-
félags fyrir störf þeirra á starfsárinu.
- Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.
2. Tillaga um samruna FSP hf. við VBS fjárfestingarbanka hf., á þann veg að FSP
hf. verði sameinað VBS fjárfestingarbanka hf. með yfirtöku eigna og skulda.
Samanlagt útgefið heildarhlutafé hins sameinaða félags skal eftir sameiningu
nema að nafnverði allt að 414.827.000 kr. eða 414.827.000 hlutir. Hluthafar
í FSP hf. skulu fá hlutafé að nafnverði 199.117.000 kr. eða 199.117.000 hluti
í sameinuðu félagi. Samrunaáætlun var birt í Lögbirtingarblaði þann 26. mars
2007 og hafa samrunagögn legið frammi hjá báðum félögunum frá þeim tíma,
auk þess sem þau hafa birst í fréttakerfi Kauphallar Íslands.
Fundargögn og atkvæðaseðlar verða afhentir hluthöfum á fundar-
stað á fundardegi frá kl. 15:00 til 16:00.
Stjórn FSP hf.
Aðalfundur
Hluthafafundur