Morgunblaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
PERSÓNULEGA er ég ekki sátt-
ur við boðskap leiksins, en ég virði
hins vegar rétt sendanda til að
senda leikinn inn og vil helst ekki
láta það stjórnast af geðþótta-
ákvörðun einstakra stjórnenda
hvort leikurinn sé í dreifingu eða
ekki,“ segir Svavar Lúthersson,
eigandi lénsins torrent.is og einn af
stjórnendum vefjarins, spurður um
hvað honum finnist um að tölvu-
leikur sem kennir fólki að nauðga
sé aðgengilegur í gegnum lénið
hans. Í Morgunblaðinu í gær var
fjallað um leikinn RapeLay, jap-
anskan þrívíddarleik þar sem
markmið þátttakenda er að þjálfa
sig í nauðgunum með því að
nauðga þremur kvenkyns fórnar-
lömbum, ýmist bundnum eða á al-
menningssalerni. Á þriðja hundrað
íslenskra notenda torrent.is hafa
sótt leikinn, samkvæmt heimildum
blaðsins. Notendur vefjarins eru úr
öllum aldurshópum, því engin ald-
urstakmörk eru sett á notendur.
Eins manns drasl
er annars fjársjóður
Spurður um hvort það sé ekki
siðferðileg skylda eiganda lénsins
að fjarlægja slíkan leik af vefnum
svarar Svavar því til að siðferði sé
víðtækt orð og það fari eftir hverj-
um og einum hvað sé siðlegt og sið-
laust. „Eins manns drasl er annars
fjársjóður,“ segir Svavar. Hann
segir að þótt nauðgun sé alvarleg-
ur atburður gildi það sama um
hann og morð og fjöldi leikja sé til
sölu í verslunum um land allt sem
hvetji til ofbeldis og manndrápa.
„Maður verður ekki nauðgari af því
að spila leikinn, ekki frekar en
maður verður morðingi af því að
spila morðleiki,“ segir Svavar.
Hann telur að leikurinn verði ekki
fjarlægður af torrent.is fyrr en það
sé beinlínis komið fram að hann sé
ólöglegur eða dreifing hans feli í
sér brot á lögum. „Ég hef ekki séð
neina lagagrein sem segir að efnið
sé ólöglegt,“ segir Svavar.
Að sögn Svavars hafa yfirvöld
ekki haft samband við hann vegna
málsins og segir hann það í raun
koma sér nokkuð á óvart að kyn-
ferðisbrotadeild lögreglunnar hafi
ekki haft samband við sig. Annars
býst hann við fjölgun notenda léns-
ins torrent.is, en nú eru 18.500 not-
endur skráðir á vefinn, en ekki
14.000, eins og fram kom í umfjöll-
un blaðsins í gær. „Umfjöllun sem
þessi leiðir venjulega til vinsælda,
það eru fleiri sem vita af torrent.is
fyrir vikið,“ segir Svavar.
Rannsókn málsins hafin
„Það getur hver sem er sagt sér
hvað okkur finnst um svona
skemmtun,“ segir Guðrún Jóns-
dóttir, talskona Stígamóta, spurð
um frétt blaðsins í gær. Hún bend-
ir á að 180 einstaklingar hafi leitað
til samtakanna vegna nauðgunar-
mála á síðasta ári. „Mér finnst
ótrúlegt að ofbeldi sé „normalíser-
að“ á þennan hátt, að kynferðisof-
beldi sé gert að einhverju sem
leika megi með. Það segir sig sjálft
að okkur sem störfum í þessu um-
hverfi dag frá degi finnst leikir
sem ganga út á nauðgunarþjálfun
alls ekki við hæfi.“
Yfirmaður kynferðisbrotadeildar
lögreglunnar, Björgvin Björgvins-
son, segir að rannsókn málsins sé
hafin og í athugun sé hvaða lög geti
átt við um háttsemina. „Netið er
fullt af alls konar ofbeldis- og nið-
urlægingarleikjum og það er alveg
ljóst að þetta er afar, afar ósmekk-
legur leikur,“ segir Björgvin og
tekur fram að Netið sé ekkert
venjulegt svæði; erfitt sé að koma
lögum yfir saknæma háttsemi í
netheimum og lögreglan þurfi að
hafa lagalegar forsendur til þess að
bregðast við, til dæmis með því að
hafa uppi á ábyrgðarmanni lénsins.
Eigandi lénsins segist ekki
munu fjarlægja leikinn
Umfjöllun um nauðgunarþjálfunarleikinn RapeLay vekur hörð viðbrögð
AF BLOGG.IS
Fríða Rakel Kaaber
»Svo er fólk að furða sig á þvíað nauðgunum fjölgi.
kaaber.blog.is
Hallgrímur Óskarsson
»Vonum að í þessu tilviki náiyfirvöld að stöðva útbreiðslu
þessa tölvuleiks og að þeir sem
stuðla að dreifingu efnisins sjái
samhengi þess að dreifa efni af
þessum toga og að eiga von á því
að þetta leiði til enn fleiri nauðg-
ana. ho.blog.is
Sigurður Sigurðsson
»Það hafa verið til „nauðg-unarleikir“ í langan tíma. […]
Ég tel það varla vera frétt að
þessi viðbjóður sé til og að hægt
sé að nálgast hann. ssigurds.blog.is
Ingibjörg Stefánsdóttir
»Mér finnst að minnsta kostisjálfsagt að fylgjast með
svona viðbjóði og loka þeim vef-
svæðum sem birta þetta. […] Því
þetta hlýtur að vera brot á lögum.
ingibjorgstefans.blog.is
Gunnsteinn Þórisson
»En það er of mikið hype íkringum þetta eina atvik, það
eru mun fleiri og verri leikir af
sömu gerð þarna úti, sem er hægt
að nálgast auðveldlega utan Tor-
rent.is. Það er augljóslega verið
að gera torrent.is-vefsíðuna að
skotmarki og koma höggi á hana.
gussi.blog.is
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað
ríkið af kröfu Öryrkjabandalagsins
um að viðurkennt yrði, að komist
hefði á samkomulag um að grunn-
lífeyrir þeirra, sem metnir hefðu
verið 75% öryrkjar eða meira 18
ára eða yngri, skyldi tvöfaldast en
lífeyrisviðauki þeirra, sem metnir
hefðu verið með sömu örorku 19
ára eða eldri, fara lækkandi um
2,04% fyrir hvert aldursár eftir 18
ára til og með 66 ára aldurs, að
teknu tilliti til skerðingarákvæða í
lögum.
ÖBÍ krafðist einnig viðurkenn-
ingar á því að ríkinu bæri að greiða
sérhverjum öryrkja nánar til-
greindar skaðabætur í samræmi við
kröfuna.
Í dómi segir að kröfur ÖBÍ hafi
verið reistar á því, að komist hefði á
bindandi samningur þessa efnis
milli aðila, sem kynntur var á
blaðamannafundi 25. mars 2003 og
að ríkið hefði vanefnt hann. Dóm-
urinn vísar m.a. til þess, að í frétta-
tilkynningu, sem dreift var á fund-
inum, hafi m.a. komið fram að gert
væri ráð fyrir allt að tvöfaldri
hækkun grunnlífeyris þeirra sem
yngstir yrðu öryrkjar og að skip-
aður yrði starfshópur til að gera
endanlegar tillögur að breytingum
á almannatryggingalögum. Dómur-
inn vísar þá til þess, að fljótlega eft-
ir kynningu samkomulagsins hafi
komið í ljós að forsvarsmenn ÖBÍ
töldu að samið hefði verið um
ákveðna hlutfallslega lækkun
grunnörorkulífeyris frá tvöföldun-
inni, sem miðuð var við 18 ára ald-
ur. Í gögnum, sem lutu að sam-
komulaginu, hafi hvergi komið fram
að bundið hefði verið fastmælum
hver hækkun yrði á lífeyri þeirra,
sem yrðu öryrkjar 19–67 ára. Ekki
hefði heldur verið getið um hver
kostnaðurinn væri af breytingunum
að öðru leyti en því, að í tilkynning-
unni sagði að hann yrði rúmur
milljarður kr. á ársgrundvelli. Gegn
þessu var ekki talið að ÖBÍ hefði
sannað, að sú tilhögun, sem dóm-
kröfur þess byggðust á, hefði verið
þáttur í samkomulaginu og að ekki
hefði annað verið leitt í ljós en að
koma hefði átt í hlut starfshópsins
að móta nánari tillögur.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Gunnlaugur Claessen, Árni
Kolbeinsson, Garðar Gíslason,
Hrafn Bragason og Markús Sig-
urbjörnsson.
Starfshópurinn átti að
móta nánari tillögur
ÖBÍ tókst ekki að sannfæra Hæstarétt í máli gegn ríkinu
„ÉG HUGSA að ég muni selja það
og nota peninginn,“ segir Sigrún
Þórólfsdóttir, vinningshafi í happ-
drætti DAS, um forláta Harley Dav-
idson-vélhjól sem hún hlaut í vinn-
ing, ásamt þremur milljónum króna
í reiðufé. „Við erum að byggja og
veitir ekkert af peningunum.“
Hún segir munu koma í ljós hvað
hún og eiginmaður sinn, Magnús H.
Björnsson, fái fyrir hjólið, líklega
verði einhver afföll af fullu verði.
Aðspurð hvort það myndi ekki
kitla Magnús að fá eitt stykki Har-
ley til að þeysa á í vinnuna segir
Sigrún að „örugglega þætti honum
það ekkert leiðinlegt“. Af því verði
e.t.v. einn góðan veðurdag síðar.
Hún bætir því við að vinning-
urinn hafi komið eins og þruma úr
heiðskíru lofti, byggingarkostn-
aður sé fram yfir áætlanir og „stór-
kostlegt að fá svona glaðning“.
Sigrún hefur tekið þátt í happ-
drættinu með sama númerið í um
fimm ár og mun vinningsféð nýtast
einkar vel til að leggja lokahönd á
framtíðarheimilið sem er nú rétt
tilbúið undir tréverk.
„Eins og þruma úr heiðskíru lofti“
Við vélfákinn Hjónin Magnús H. Björnsson og Sigrún Þórólfsdóttir þakka Sigurði Á. Sigurðssyni, forstjóra DAS.
ÓLAFUR Walle-
vik, prófessor í
byggingarverk-
fræði við Háskól-
ann í Reykjavík,
hlaut á miðviku-
dag ein virtustu
verðlaunin í heimi
byggingariðnað-
arins fyrir
„frammúrskar-
andi framlag“ til steinsteypurann-
sókna.
Ólafur, einn helsti sérfræðingur
heims í flotfræði steypu, hlaut verð-
launin á hinni virtu CANMET/ACI-
steypurannsóknaráðstefnu í Varsjá
og segir í umsögn dómnefndar að
valið hafi staðið á milli fjölda hæfra
manna víðsvegar að úr heiminum.
ACI er eitt stærsta félag steypusér-
fræðinga í heimi og segir í umsögn-
inni að Ólafur hafi kynnt fræði sín á á
fjórða tug námskeiða í 15 löndum.
Ólafur hefur starfað hjá Rannsókna-
stofnun byggingariðnaðarins og m.a.
rannsakað hástyrkleikasteypu.
Í fremstu
röð í steypu-
rannsóknum
Ólafur Wallevik