Morgunblaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2007 19 MENNING Athafnasemi á myndlistarsvið-inu á Akureyri takmarkastekki við viðburði á Lista- sumri, heldur ríkir þar í bæ mikill myndlistaráhugi og gróska í sýn- ingarhaldi allan ársins hring. Lista- safnið á Akureyri hefur fyrir löngu sannað gildi sitt með metnaðarfullu sýningarhaldi, líkt og hið einstæða Safnasafn við Svalbarðsströnd.    Gróskuna í listalífi bæjarins máekki síst rekja til starfsemi Myndlistaskólans á Akureyri sem nýlega fagnaði 33. starfsári sínu með árlegri útskriftarsýningu. Skólinn býður upp á nám á há- skólastigi í myndlist og listhönnun og er sem slíkur valkostur við höfuðborgarsvæðið. Skólinn stend- ur einnig fyrir námskeiðum fyrir börn, unglinga og fullorðna og þarf ekki að fjölyrða um mikilvægi þeirrar starfsemi í samfélaginu. Myndlistaskólinn á Akureyri er viðurkenndur af menntamálaráðu- neytinu og styrktur af ríki og bæ en tryggja þyrfti fjárhagslegan rekstrargrundvöll hans til fram- tíðar.    ÁAkureyri eru starfrækt fjöl-mörg sýningarrými og gallerí. Pistilhöfundur brá sér norður á dögunum og heimsótti sýningar- rýmið galleriBox sem Menningar- miðstöðin Listagil við Kaupvangs- stræti hefur umsjón með og rekið er af hópi myndlistarmanna sem hafa þar vinnustofur. Á sýningu Þór- unnar Eymundardóttur „Hornberi“ hafði Boxinu verið pakkað inn og sviðsett þar nokkurs konar gægju- sýning með hreindýraívafi. Næsti sýnandi er Margrét H. Blöndal sem tilnefnd var til íslensku sjónlistaverðlaunanna á síðasta ári en stofnað var til þeirra að frum- kvæði Listasafnsins á Akureyri.    Listalífið er sérstaklega blómlegtvið Kaupvangsstrætið. Í Jónas Viðar Gallery sýnir nú Þorvaldur Þorsteinsson en hann er Akureyr- ingur að uppruna og hóf einmitt myndlistarnám sitt í Myndlistaskól- anum. Áhugaverðar myndlistarsýn- ingar hafa verið í Populus Tremula, menningarsmiðju í Listagilinu. Í Deiglunni í Listagilinu sýnir um þessar mundir Pétur Örn Friðriks- son verk sem lúta m.a. að ferðalög- um og farartækjum.    Brekkugatan státar af tveimurgalleríum. Þar er Gallerí DaLí rekið, ásamt vinnuaðstöðu, af tveimur nemendum Myndlistaskól- ans, þeim Sigurlínu M. Sveinbjörns- dóttur eða Línu, sem nú sýnir í gall- eríinu í tengslum við útskrift sína, og Dagrúnu Matthíasdóttur. Fram- tak þeirra endurspeglar þann myndlistaráhuga sem starfsemi skólans hefur í för með sér.    Gallerí + við Brekkugötu 35 hef-ur verið starfrækt frá 1996 af hjónunum Guðrúnu Pálínu Guð- mundsdóttur og Joris Rademaker – af löngun til að skapa „viðbót“ (sam- anber „+“) í listaflóru bæjarins. Nú er þar sýning Aðalheiðar S. Ey- steinsdóttur, sem framlengd hefur verið þrisvar sinnum vegna mikillar aðsóknar. Vel heppnuð sýning Að- alheiðar samanstendur af skúlptúr- um og lágmyndum auk blárrar birtu úr lofti og er byggð inn í rým- ið. Í sumar verður þarna sýning Guðrúnar Pálínu sem fjallar um sjálfsmynd hennar út frá stjörnu- korti. Gallerí + er rekið í sjálfboðavinnu og nýtur lítilla sem engra styrkja og virðist sú vera raunin með ýmis önnur sýningarrými á Akureyri – þau virðast ekki rekin með hagnað að leiðarljósi. Mikilvægt er að styðja við bakið á slíkri hugsjónastarfsemi sem er mikilvægur þáttur í aðdrátt- arafli bæjarins. Kraumandi listalíf Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Spýtukall Frá sýningu Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur, sem framlengd hefur verið þrisvar sinnum í Galleríi + vegna mikillar aðsóknar. Galleríið er rekið af hjónunum Guðrúnu Pálínu Guðmundsdóttur og Joris Rademaker. AF LISTUM Anna Jóa »Listalífið er sér-staklega blómlegt við Kaupvangsstrætið. Í Jónas Viðar Gallery sýn- ir nú Þorvaldur Þor- steinsson en hann er Ak- ureyringur að uppruna. annajoa@simnet.is EDEN - HVERAGERÐI Málverkasýningu Bjarna Jónssonar listmálara lýkur á annan í hvítasunnu Dreg i› í áskr iftar leikn um á lau gard agin n 3 HIÐ nýja Start Art á Laugavegi vígði á Listahátíð nýtt sýningarrými á efri hæð gallerísins með sýning- unni MÍNÍ VOTT í tilefni útkomu bókarinnar MEGA VOTT. Bókin MEGA VOTT er vegleg og vönduð bók um stórsýningu með sama nafni sem fimm listakonur héldu í Hafnar- borg síðastliðið haust. Þar er að auki að finna myndir frá tímamótagjörn- ingi Rúríar við Drekkingarhyl á Þingvöllum. Litla sýningin í Start Art er einnig eins konar skráning og úrvinnsla á stóru sýningunni svo úr verða sjálfstæð bergmálsverk. Anna Eyjólfsdóttir sýnir nýja formstúdíu sem byggir á vínglösum og vísar í svipað verk sem hún var með í Hafnarborg ásamt nokkurs konar skrásetningarskúlptúr sem bundinn er saman með byggingar- einingum. Þórdís Alda leikur sér með ljósmyndir úr þvottaskúlptúr sínum og tekst að endurlífga agnar- lítil myndræn brot með ljósmyndum sem jafnvel rata svo í nýtt samhengi. Rúrí sýnir tvö lítil, þrykkt verk á glerplötum sem vísa til þagnaðra fossa og Ragnheiður sýnir nær- myndir af plexíglersmannverum sín- um. Þessi brotakennda og fínlega úr- vinnsla eða bergmál af stóru sýning- unni er vel heppnað. Bókin er þrek- virki sem einstaklingsframtak og endurspeglar þá orku og frumkvæði sem listakonurnar eru þekktar fyrir. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Rúrí Í Startart er að finna myndir frá tímamótagjörningi Rúríar við Drekkingarhyl á Þingvöllum. Sýning um sýningu MYNDLIST START ART, Laugavegi 12 b Sýningin stendur til 28. maí. Opið kl. 11-17 virka daga og 13-17 um helgar. Aðgangur ókeypis. Sýningin MÍNÍ VOTT og bókin MEGA VOTT. Anna Eyjólfsdóttir, Jessica Stockholder, Ragnhildur Stefánsdóttir, Rúrí og Þórdís Alda Sigurðardóttir Þóra Þórisdóttir ÁSKRIFTASÍMI 569 1100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.