Morgunblaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 22
Stundum finnst mér líka gott að
sækja kyrrðina út í náttúruna. Ég
er nefnilega í gönguhóp með vin-
konum mínum og förum við
gjarnan saman í gönguferðir
um borgina eða utan hennar
og veljum þá mismunandi
leiðir hverju sinni.
|föstudagur|25. 5. 2007| mbl.is
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Ég er í fyrsta lagi ákaf-lega heimakær mann-eskja og finnst því gottað geta slakað á heima
um helgar til að safna kröftum fyr-
ir komandi viku.
Ég sæki mjög mikið í kyrrð og
ró af öllu tagi og reyni svo að
rækta fjölskyldubönd og náin vina-
sambönd sem mest og best með
heimsóknum og samveru fyrir utan
það að fara svo reglulega í leikhús
og bíó þegar ég get og svo auðvit-
að á dans þegar hann er í boði.
Það er orðið mikið framboð í hin-
um lifandi menningargeira og ég
reyni að sjá allt það sem koll-
egarnir eru að fást við hverju
sinni,“ segir Jóhanna Jónas, leik-
kona og magadanskennari hjá
Magadanshúsinu.
Þegar spurt er um uppskrift af
góðri helgi svarar Jóhanna því til
að laugardags- og sunnudags-
morgnar séu sínar helgistundir.
„Þá vakna ég tiltölulega snemma
og á mína yndislegu slökunar- og
hugleiðslumorgna því það er svo
gott að slaka á þegar kyrrt er í
borginni. Ég eyði svo helgunum
með vinum og vandamönnum, fer í
matarboð og hitti vinkonurnar á
kaffihúsum. Café París er í sér-
stöku uppáhaldi enda bý ég rétt
við Tjörnina, í 101. Stundum finnst
mér líka gott að sækja kyrrðina út
í náttúruna. Ég er nefnilega í
gönguhóp með vinkonum mínum
og förum við gjarnan saman í
gönguferðir um borgina eða utan
hennar og veljum þá mismunandi
leiðir hverju sinni.“
Hafði prófað alla flóruna
Léttleiki, mjúkar hreyfingar,
fegurð, litadýrð og skemmtileg
tónlist munu setja svip sinn á
vorhátíð Magadanshússins sem
haldin verður með pomp og prakt í
kvöld í Salnum í Kópavogi kl. 20.
Þar ætlar fimmtíu manna hópur
nemenda og kennara, frá tíu ára
aldri til sextugs, að troða upp
með fjölbreytilegum magadöns-
um, m.a. með karabísku og þjóð-
dansa-ívafi. Einnig mun brasilíska
magadansmærin Josy Zareen, sem
rekur Magadanshúsið, sýna listir
sínar, en hún er nýkomin frá
Stokkhólmi þar sem hún lenti í
þriðja sæti í alþjóðlegri maga-
danskeppni.
Það eru ekki nema þrjú og hálft
ár síðan Jóhanna uppgötvaði
magadansinn sem líkamsrækt-
arform, en áður segist hún hafa
prófað alla líkamsræktarflóruna og
flakkað vítt og breitt um líkams-
ræktarsali í gegnum árin. „Það var
svo ekki fyrr en ég fór í minn
fyrsta tíma til Josy sem ég fann
mína réttu hillu og það leið svo
ekkert á löngu áður en ég fór sjálf
að kenna byrjendum og síðar
lengra komnum. Svo hef ég á
undraverðan hátt náð þriðja sæt-
inu í Íslandsmeistarakeppninni í
magadansi tvö ár í röð og hefði
aldrei trúað því svona fyrirfram
að ég gæti eitthvað slíkt.“
Hlúir að móðurlífi
og baki
Að mati Jóhönnu er
magadansinn allra
besta líkamsrækt
sem völ er á fyrir
konur. „Konur í
Austurlöndum fjær
þróuðu þessar hreyfingar fyrir
mörgum þúsundum ára til þess að
hlúa að móðurlífinu, bakinu og
brjóstkassanum í því augnamiði að
stuðla að heilbrigðri frjósemi og
styrkri mjaðmagrind til að eiga
auðvelt með að ala af sér börn.
Síðar þróaðist magadansinn svo
líka út í listformið. Það ríkir
ákveðinn misskilningur um að
magadansinn sé eingöngu listdans,
en svo er alls ekki því í reynd er
magadansinn afskaplega merkileg
líkamsrækt sem maður svitnar
duglega í fyrir utan hvað hann er
félagslega skemmtilegur. Hann
bæði hlúir að heilbrigði konunnar
og ræktar kvenlíkamann auk þess
sem kvenlegur þokki fylgir maga-
dansinum,“ segir Jóhanna.
Með góðri sveiflu Jó-
hanna Jónas er mikið
fyrir kyrrð og ró,
en hefur þó ekki
síður gaman af
að taka spor-
ið í maga-
dans-
inum.
Litríkt Skrautlegir búningar tilheyra.Stuðlar að frjósemi
og styrkir magagrind
M
or
gu
nb
lað
ið/
Go
lli
Eyjólfur F. Pálsson og Halldór
Halldórsson eru alltaf að hugsa
um mat og jafnvel draumfarir
þeirra snúast um fisk. » 24
matur
Ingibjörg Ólafsdóttir hannar og
saumar glæsifatnað eftir pönt-
un og hjá henni er svissneskt
silki í uppáhaldi. » 25
tíska
Gullrétturinn í matreiðslukeppni
grunnskólanna kom frá Rimaskóla
og uppskriftin lofar góðu.
Innbakaður íslenskur lax
1-2 laxasteikur, roð- og beinlausar
¼ tsk. salt
¼ tsk. svartur pipar
1 tsk. gorgonzola-ostur
1 plata tilbúið smjördeig
1⁄2 poki klettasalat
4-6 dvergsperglar
4-6 dverggulrætur
1 msk. hlynsíróp
1 tsk. kjúklingakraftur
1⁄2 granatepli
1 egg
1 msk. smjör
Fletjið deigið þunnt út og skerið
út tvo aflanga ferninga, annar á að
vera 1 cm stærri en laxastykkið á
alla kanta og hinn 2 cm stærri en
laxinn á alla kanta. Gerið mynst-
urrönd í miðjan stærri ferninginn
með laufabrauðsjárni. Smyrjið peru-
og eplamauki á miðjan minni fern-
inginn, leggið laxinn ofan á og
kryddið með salti og pipar. Smyrjið
smá af peru- og eplamauki ofan á
laxinn. Leggið stærri ferninginn of-
an á og gangið fallega frá köntunum.
Penslið deigið með þeytta egginu.
Bakið við 250°C í 7–8 mínútur eða
þar til smjördeigið er fallega gullið.
Suða er því næst látin koma upp á
vatni, krafti, sírópi og smjöri. Gul-
rætur settar í sjóðandi vatnið og
látnar sjóða í eina mínútu áður en
sperglinum er bætt út í og soðið
áfram í eina mínútu. Hristið salatið
saman í stórri skál með dressing-
unni rétt áður en borið er fram. Setj-
ið salatið í aflanga hrúgu á hlið
disksins og dreifið granatfræjum yf-
ir. Leggið laxinn ofan á og bætið
dressingu og laukmauki meðfram
salatinu. Leggið gulræturnar eins
og sólargeisla á diskinn með græna
toppinn frá fiskinum. Leggið sperg-
ilinn á milli gulrótargeislanna.
Peru- og eplamauk
1 pera
1 grænt epli
2 msk. hrásykur
1 tsk. rifinn límónubörkur
Afhýðið epli og peru, en gott og
auðvelt er að rífa ávextina með grófu
rifjárni. Setjið allt hráefnið í pott og
sjóðið við vægan hita í 10-15 mín.
Hrærið í allan tímann. Framreiðið
með fiski eða kjöti.
Matsuhisa-dressing
70 g mjög smátt saxaður laukur
30 g kikkoman-sojasósa
12 g hrísgrjónaedik
6 g sykur
5 g dijon-sinnep
5 g vatn
10 g sesamolía
hvítur pipar á hnífsoddi
Hrærið vel saman í skál og fram-
reiðið með fiski eða kjöti.
Sælkeraréttur
grunnskóla-
meistaranna
Girnilegur Innbakaður lax að hætti krakkanna í Rimaskóla.
meistaramatur
Besti tími dagsins: Góð morgunstund.
Uppáhaldsmaturinn: Vel matreitt grænmetisfæði.
Fallegasta gönguleiðin: Innan um stokka og steina í Hafnarfirði.
Besta sundlaugin: Suðurbæjarlaugin í Hafnarfirði.
Uppáhaldsmatsölustaðurinn: Maður lifandi.
Leiðinlegast: Að vera innan um neikvæði og þröngsýni.
Skemmtilegast: Að hlæja yfir fáránleika lífsins í góðum félagsskap.
Jóhanna mælir með …
daglegtlíf