Morgunblaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2007 21 LANDIÐ Eftir Guðlaug Albertsson Patreksfjörður | Pat- reksfirðingar fögnuðu því á dögunum að Pat- reksfjarðarkirkja er orðin hundrað ára gömul. Eftir hátíðar- messu var þessara tímamóta minnst og kirkjunni færðar gjaf- ir. Nýlega afhentu for- svarsmenn útgerðar- og fiskvinnslufyrir- tækisins Odda hf. söfnuðinum hús fyrir safnaðarstarfið. Oddi hf. festi nýlega kaup á húsi sem stendur nálægt Patreksfjarðar- kirkju og áður hýsti skrifstofur og enn fyrr var Samvinnubankinn þar til húsa. Tilgangurinn með kaupun- um var fyrst og fremst að færa söfn- uðinum húsið að gjöf til notkunar sem safnaðarheimili. Er þetta gert í tilefni af eitt hundrað ára vígsluaf- mæli Patreksfjarðarkirkju og 40 ára afmælis Odda hf. nú í vor. Þeir Sigurður Viggósson fram- kvæmdastjóri og Jón Magnússon, aðaleigandi fyrirtækisins, afhentu söfnuðinum húsið á aðalsafnaðar- fundi er haldinn var á dögunum. Í máli Sigurðar Viggóssonar kom fram að fyrirtækið teldi mikilvægt að styðja við og styrkja þá starfsemi innanbæjar sem horfði mannlífi og samfélagi til heilla. Hann tók fram að ekki hefði alltaf verið bjart fyrir stafni í rekstri fyrirtækisins, ekki fremur en hjá Kristi í eyðimörkinni forðum, en alltaf hefði það þó komið standandi niður og nú um nokkurra ára skeið hefði rekstur þess verið með ágætum og efldist dag frá degi. Sóknarprestur, sr. Leifur Ragnar Jónsson, þakkaði fyrir hönd sóknar- barna, höfðinglega gjöf fyrirtækisins og þann hug sem stjórnendur þess sýndu kirkjunni og því starfi sem kirkjan stæði fyrir. Sagði hann þenn- an hug dýrmætan og ekki síður þakkarverðan þann hug og þá trú á samfélagið og byggð í Patreksfirði sem fyrirtækið sýndi með þessari rausnarlegu gjöf. Sóknarnefnd hyggst fljótlega ráð- ast í miklar endurbætur á húsinu en nokkur þörf er á því. Ómetanleg störf Í tilefni afmælis Patreksfjarðar- kirkju hafa farið fram miklar end- urbætur á kirkjunni. Skipt hefur verið um við í gólfi, kirkjan máluð að innan og utan, skipt um hurðir og stjörnur settar í loftið, svo nokkuð sé nefnt. Í lok afmælishófsins kvaddi sóknarprestur sér hljóðs og þakkaði öllum þeim sem komið hafa nálægt starfi kirkjunnar. Sagði hann störf þeirra ómetanleg fyrir söfnuðinn og samfélagið í heild. Gáfu hús fyrir safnaðarheimili Ljósmynd/Guðlaugur Gjöf Gestur Rafnsson tekur við lyklum að húsinu af Jóni Magnússyni og Sigurði Viggóssyni. Mýrdalur | Níu smáhýsi hafa verið flutt inn í Þakgil á Höfðabrekkuafrétti. Þegar þau verða tilbúin, sem áætl- að er að verði um miðjan næsta mánuð, verður hægt að fá þar gistingu. Hjónin Helga Ólafsdóttir og Bjarni Jón Finnsson hafa rekið ferðaþjónustu í Þakgili frá árinu 2001. Þau út- bjuggu þar tjaldsvæði og ýmsa aðra aðstöðu. Meðal ann- ars grófu þau út úr hellisskúta sem margir ferðamenn koma við í. Þau keyptu efni í bjálkahús frá Finnlandi á síðasta ári og settu saman í Vík í vetur. Sumarhúsin eru níu talsins og þau voru flutt á bílum inn í Þakgil í vikunni. Það gekk vel, að sögn Helgu, og engin óhöpp urðu á leiðinni. Segir hún að eftir sé að standsetja húsin fyrir útleigu en vonast til að því verki ljúki um miðjan júní. Í hverju húsi verður svefnpokapláss fyrir fjóra gesti ásamt litlum eld- húskrók og salernisaðstöðu. Helga lætur vel af nýtingu þjónustunnar í Þakgili. Hún segir að umferðin fari vaxandi ár frá ári og umferð um veginn sé nú orðin svipuð og um Dómadalsleið, svo dæmi sé tekið. Þakgil er í hrikalegu landslagi, umgirt fjöllum og náttúrufegurð er mikil. Helsta afþreying ferðafólks er að njóta veðurblíðunnar og fara í göngu- ferðir um fjöll og gil. Eins skoða margir fossinn í Þakgili sem Helga vill láta heita „Kúlufoss“ vegna þess hvernig hann er. Svo eru nokkrar jeppaleiðir þarna í afréttinum. Helga segir að eftirspurn sé eftir gistingu í húsum. Oft sé í hópum fólk sem frekar vilji gista inni. Nú verði sá valkostur í boði. Helga býr öll sumur í Þakgili til að annast þjónustuna þar. Þau hjónin byggðu þar hús í fyrravor en áður var Helga í hjólhýsi. Henni líður vel í Þakgili, segir að veð- ursæld sé þar einstök. Gilið sé umlukið fjöllum og því skjólgott og í norðanáttum sé Þakgil hreinn hitapottur. Bjarni Jón og Helga eru að undirbúa virkjun stærri lækjarins í Þakgili til að hafa orku fyrir starfsemina. Þótt undirbúningur sé kominn vel á veg á Helga ekki von á því að verkinu ljúki í ár. Því verði að hafa dís- ilrafstöð til að sjá nýju smáhýsunum fyrir rafmagni í sumar. Einstæð veðursæld í Þakgili Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Lambaskörð Bjarni Jón Finnsson kannar veginn í Lambaskörðum, áður en húsunum var ekið þar um, en þetta reyndist erfiðasti kafli leiðarinnar inn í Þakgil. Smáhýsin komust ósködduð á áfangastað. Djúpivogur | Hammond-hátíð verð- ur haldin á Djúpavogi dagana 31. maí til 3. júní. Á hátíðinni munu fjölmargir tónlistarmenn koma fram. Svavar Sigurðsson átti hug- myndina að hátíðinni og á lang- stærstan heiður af framkvæmd hennar, segir í fréttatilkynningu. Hátíðin er haldin til að heiðra og kynna fyrir tónlistaraðdáendum Hammond-orgelið sem úrsmiðurinn Hammond töfraði úr huga sínum til þess að gera fátækum söfnuðum kleift að syngja við orgelundirleik. Fimmtudaginn 31. maí verður Djúpavogsdagur hátíðarinnar þar sem hátíðin verður sett og tónlist- armenn frá Djúpavogi spila. Má þar sérstaklega nefna hljómsveitina Arachnophobia en hana skipa drengir á aldrinum 13 til 15 ára. Föstudaginn 1. júní verða Aust- firðingar í aðalhlutverki en þá munu blúshljómsveitirnar Blúsbrot Garðars Harðar og félagar og Mæðusveitin Sigurbjörn leika á Hótel Framtíð. Laugardaginn 2. júní sýna ungir hljómborðsleikarar hæfileika sína á Hammond auk þess sem Agnar Már Magnússon og Hrund Ósk Árna- dóttir koma fram. Um kvöldið verða svo eðaltónleikar á Hótel Framtíð þar sem landsliðið leikur listir sínar. Í landsliðshópinn kom- ust að þessu sinni Einar Rúnarsson, Ásgeir Óskarsson, Halldór Braga- son, Jakob F. Magnússon, Andrea Gylfadóttir, Eðvald Lárusson og Jón Ólafsson. Eftir þessa tónlist- arveislu er ætlunin að dansa diskó fram á rauða nótt. Sunnudaginn 3. júní verður svo Hammond í Djúpavogskirkju en þar verður hljóðfærið notað í sjó- mannadagsmessu og eftir messu verða leikin sjómannalög á Ham- mond. Hátíð til heiðurs Hammond haldin á Djúpavogi AUSTURLAND Hornafjörður | Vegagerðin þarf ekki að láta meta umhverfisáhrif þeirra kosta sem ekki fullnægja kröfum Vegagerðarinnar um bætt- ar vegasamgöngur um Hornafjarð- arfljót. Því verða umhverfisáhrif lagfæringar á núverandi leið ekki metin samhliða þeim kostum sem Vegagerðin telur koma til greina. Áformað er að leggja nýjan kafla á Hringveginum, yfir Hornafjarð- arfljót. Með nýrri brú og vegteng- ingum mun Hringvegurinn styttast um 11 kílómetra og þrjár ein- breiðar brýr hverfa. Vegagerðin lagði fram hugmynd að þremur veglínum sem allar gera ráð fyrir vegtengingu og brú í beinu framhaldi af Hringveginum með ströndinni en ekki er gert ráð fyrir að krækja inn fyrir ósinn eins og núverandi leið. Skipulags- stofnun ákvað að taka þyrfti inn í matið fleiri valkosti, meðal annars endurbætur á núverandi veglínu og veglínum sem landeigendur lögðu til. Vegagerðin kærði ákvörðunina til umhverfisráðherra á þeim grundvelli að einungis þeir þrír kostir sem hún gerði ráð fyrir sam- rýmdust þeim markmiðum sem sett væru með framkvæmdinni, að bæta vegasamgöngur á svæðinu. Nefndi stofnunin í því sambandi styttingu Hringvegarins og aukið umferð- aröryggi. Umhverfisráðherra féllst á rök Vegagerðarinnar. Vegagerðin áætlar að ljúka mats- áætlun vegna leiðanna þriggja í næsta mánuði, að því er fram kem- ur í Framkvæmdafréttum. Í vegaáætlun 2007-2010 er gert ráð fyrir 682 milljóna króna fjár- veitingu til verksins á árunum 2008 til 2010, auk þess sem gert er ráð fyrir samtals 800 milljóna króna fjárveitingu af söluhagnaði Símans á næstu tveimur árum. Samkvæmt því ættu framkvæmdir að geta haf- ist á næsta ári. Þarf ekki að meta áhrif allra leiða                                              ! " ' +,(  Eftir Andrés Skúlason Djúpivogur | Í eyjunni Brimilsnesi í Álftafirði eystri er þekkt selalátur, á eiðinu á sunnanverðri eyjunni. Í seinni hluta maímánaðar safnast þar saman tugir sela og ber þessi fallega eyja því nafn með rentu. Þar lágu kópar í tugatali fyrr í vik- unni. Urturnar renndu sér hver á fætur annarri í sjóinn þegar ljós- myndari nálgaðist og þeir kópar sem burði höfðu til dönsuðu á eftir með miklum bægslagangi. Kóparnir, sem vega um 15 kg við fæðingu, liggja í látrum fyrstu vikuna áður en þeir fara á sundið. Þeir nær- ast á móðurmjólkinni í allt að mánuð og á þeim tíma fitna þeir mikið. Nýkæpt- ur kópur í látri Morgunblaðið/Andrés Skúlason SENDUM Í PÓSTKRÖFU www.simnet.is/heilsuhorn Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889, fæst m.a. í Lífsins Lind í Hagkaupum, Gjafir jarðar Ingólfsstræti 2, Maður Lifandi Borgartúni 24, Maður Lifandi Hæðarsmára 6, Lyfja, heilsuvörudeild, Selfossi, Yggdrasil Skólavörðustíg 16 og Fjarðarkaupum, Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka, Krónan Mosfellsbæ Nóatún Hafnarfirði Zinc-Asporoate Fyrir sjónina og einbeitinguna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.