Morgunblaðið - 25.05.2007, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2007 17
Við gerum nýjan 27 holu golfvöll
og frístundasvæði á Indriðastöðum í Skorradal
www.indridastadir.is
Kynningarfundur á Indriðastöðum í Skorradal laugardaginn 26. maí
Kl. 14:00 Stofnfundur Golfklúbbs Skorradals
Á Indriðastöðum er unnið að uppbyggingu á einu glæsilegasta golfsvæði á landinu. Verið er að vinna að 27 holu
golfvelli með fyrsta flokks aðstöðu í einstakri náttúruumgjörð. Allir golfáhugamenn sem vilja gerast stofnfélagar
eru boðnir velkomnir á fundinn. Skráning á www.indridastadir.is
Kl. 15:30 Kynning á framtíðaruppbyggingu Indriðastaðalandsins
Á þessu fallega svæði er hafin sala á lóðum fyrir frístundahús. Lóðirnar eru í hlíðinni fyrir ofan golfvöllinn með
útsýni yfir dalinn og vatnið og til Snæfellsjökuls í vestri og Langjökuls í austri. Deiliskipulag gerir ráð fyrir
sveigjanleika í stærð og gerð húsa. Lóðirnar eru sólríkar og njóta kvöldsólarinnar sérstaklega vel. Stutt er á
golfvöllinn og á Indriðastöðum verður góð aðstaða til íþróttaiðkunar, siglinga, gönguferða og klettaklifurs auk
þess sem skilyrði til skógræktar eru ein hin bestu á Íslandi.
Kaffiveitingar á staðnum.
Indriðastaðir eru aðeins um klukkustundarakstur frá höfuðborginni. Ekið er sem leið liggur í átt að
Borgarnesi en í stað þess að fara yfir Borgarfjarðarbrúna er beygt til hægri rétt áður en komið er að
henni. Ekið eftir vegi númer 50 og síðan er beygt aftur til hægri inn á veg númer 508 þar til komið er að
vesturenda Skorradalsvatns en þar eru Indriðastaðir á hægri hönd.
BRESKA stjórnin hefur kynnt áætl-
un um hvernig fullnægja eigi orku-
þörf Bretlands þegar fram líða
stundir og hún leggur áherslu á að
kjarnorka gegni mikilvægu hlut-
verki í því sambandi þrátt fyrir and-
stöðu umhverfisverndarsamtaka.
Ráðherrar breska Verkamanna-
flokksins vilja að dregið verði úr
notkun jarðefnaeldsneytis með því
að auka kjarnorkuframleiðsluna og
þrefalda notkun endurnýjanlegra
orkugjafa fyrir árið 2015, eða úr
fimm prósentum í 15%.
Áhersla lögð á kjarnorku
!" #$%&
-./01(0-/ + 230456
3
.
I?CJA
8B
.I
4<
J
I
3
L C
.M
I
;B
NMI
J I
NOP75NPFN
= 1*4>L1
;1<=, >;?-><@
>;?-+?> 7 #?A5<-=,
C
@
A
%
'!
'%
"!
-
Q#& Q#( Q# Q## Q%% Q%" Q%' Q% Q%$ Q%! Q%&
;B '
4<
J
I
*<B5 << ? +?>B
I?CJA
3
.
.I
7
L C
J I
3
'! !%
8B
.M
I
NMI
<!8!
>;?-:
+?>B9A?
#?A5<-=&
4 '( )" *
8 R
/ G 9 *G SG
G
YFIR 300.000 manns söfnuðust saman í miðborg Dam-
askus í gær til að láta í ljósi stuðning við Bashar Assad,
forseta Sýrlands. Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram á
sunnudag um hvort Assad eigi að gegna embættinu í
sjö ár til viðbótar og talið er nánast öruggt að það verði
samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða.
Reuters
Fylkja sér um forseta Sýrlands
HEILBRIGÐISYFIRVÖLD í
Bandaríkjunum sögðust í gær vera
að kanna hvort tannkrem, sem flutt
er til landsins frá Kína, innihéldi eit-
urefni, að því er fram kom á fréttavef
breska ríkisútvarpsins, BBC, í gær.
Áður höfðu stjórnvöld í Panama
og Dóminíska lýðveldinu skýrt frá
því að efnið diethylín glýkól, sem
notað er í kælivökva í vélar, hefði
fundist í tannkremi frá Kína. Þetta
efni fannst einnig í hóstasaft sem
varð rúmlega 50 manns að bana í
Panama í fyrra.
The New York Times sagði að kín-
versk efnaverksmiðja hefði selt efnið
sem glýserín, en það er oft notað í
tannkrem, sápur og snyrtivörur.
Diethylín glýkól, sem er ódýrara, er
stundum notað í staðinn fyrir glýser-
ín og kínverskir tannkremsframleið-
endur hafa sagt að lítið magn af efn-
inu sé hættulaust í tannkremi.
Yfirvöld í Dóminíska lýðveldinu
og Panama segja að efnið hafi fund-
ist í tveimur kínverskum tannkrems-
tegundum, Excel og Mr Cool, sem
hafi verið fluttar inn ólöglega. Yf-
irvöld í Kína segjast vera að rann-
saka málið.
Eiturefni í tannkremi?
Rannsakað hvort kínverskt tannkrem inniheldur eitur