Morgunblaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Rokkgoðsögnin Fats Domino hélt tónleika fyr- ir fullum næt- urklúbbi í New Orleans síðast- liðinn laugardag. Domino fæddist í New Orleans og hefur ekki komið fram á tónleikum þar í tvö ár. Domino þótti ferskur og kraftmikill á tónleikunum og bar ekki með sér aldurinn, en hann er orðinn 79 ára. Aðdáendur goðsins æptu og hoppuðu af kæti þegar Domino tók lagið Blueberry Hill, sem er sjálf- sagt hans þekktasta lag. Domino til fulltingis var saxófónleikarinn Herbert Hardesty en þeir félagar hafa unnið saman í meira en hálfa öld. Domino tók fleiri þekkta slagara, meðal annars Blue Monday og Ain’t That a Shame. Domino missti heimili sitt í New Orleans í flóðinu mikla sem fylgdi fellibylnum Katrínu. Hjálparstarfs- menn björguðu Domino á heimili hans þann 29. ágúst 2004, en þá var húsið í hálfu kafi. Tónleikar Dominos á laugardag- inn voru skipulagðir af Tipitina- stofnuninni. Ágóði af þeim rennur til grunnskóla í borginni, til kaupa á hljóðfærum fyrir nemendur þar og til styrktar tónlistarmönnum sem urðu fyrir tjóni í fellibylnum. Fjórðungur ágóðans rennur svo til endurreisnar á heimili Dominos, en hún er þegar hafin. Domino tók lagið Kom fram á styrktartónleikum Fats Domino PINETOP Perk- ins, Íslandsvinur og einn fremsti píanisti gervallr- ar blússögunnar, hélt í gær mikla teiti í tilefni af útgáfu breið- skífu sinnar og mynddisks sem ber nafnið Born in the Honey, eða Fæddur í hun- anginu. Á mynddiskinum er ævi- saga Perkins rakin í tónum og myndum. Teitin var haldin á blús- klúbbnum Antone’s í borginni Austin í Texas. Pinetop er vinamargur maður og er meðal vina hans íslenska blúshljómsveitin Vinir Dóra. Ekki er ljóst hvort þeir mættu í teitina í gær en menn áttu þó von á því að sjá þar þekkta blúshunda. Má þar nefna þá Hubert Suml- in, Chris Layton, Scott Nelson, Riley Osborn og Gary Clark Jr, að ógleymdri gítargoðsögninni Buddy Flett. Á breiðskífunni nýju má meðal annars finna útgáfu af lag- inu Better To Quit Her Than Hit Her, sem hefur ekki áður verið aðgengileg á plötu. Útgáfuteiti Perkins Pinetop Perkins NEMENDUR Ljósmynda- skóla Sissu opna lokasýningu sína á morgun kl. 16 að Hólma- slóð 6. Sýningin stendur til 3. júní og er opin alla daga frá klukkan 14–19. Margir af helstu ljósmyndurum landsins kenna við skólann, m.a. Páll Stefánsson, Spessi, Einar Fal- ur, Golli, Börkur, Kristján Ma- ack, Sigfús Már, Gúndi, Sig- urgeir Sigurjónsson, Gunnar Svanberg, Kjartan Már og Atli Már, auk Sissu og Leifs. Enginn aðgangseyrir er á sýninguna. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu skólans á slóðinni www.ljosmyndaskolinn.is/ Ljósmyndun Sýning á myndum lokanema Af sýningunni ÚT ER komin hjá Bókasafni Kópavogs Minningabók Kópa- vogsbúa. Uppruna bókarinnar má rekja aftur til ársins 2005 þegar Kópavogsbær fagnaði fimmtíu ára afmæli en þá kom upp sú hugmynd að safna minningum bæjarbúa frá liðn- um dögum búsetu þeirra í bænum. Í bókinni er að finna tæplega þrjátíu kafla en bókin er um 170 síður. Um útgáfuna sáu Hrafn Andrés Harðarson og Inga Kristjáns- dóttir. Til að byrja með verður bókin aðeins til sölu á Bókasafni Kópavogs á kr. 2.000. Frekari upplýsingar á www.bokasafnkopavogs.is Bókmenntir Minningabók Kópavogsbúa Minningabók Kópavogs Í HAFNARBORG stendur nú yfir sýning á verkum eftir Elí- as B. Halldórsson, sem lést í byrjun maí. Elías stundaði myndlistarnám við Myndlista- og handíðaskólann og fór síðan utan til Þýskalands og Dan- merkur til frekara myndlist- arnáms. Elías málaði olíumálverk, gerði grafíkmyndir og mynd- skreytti bækur á ferli sínum. Árið 1993 gaf hann Hafnarborg eintak af öllum grafíkverkum sínum fram að þeim tíma og gaf fleiri verk á seinni árum. Sýningunni lýkur 24. júní og er aðgangur ókeypis. Myndlist Verk Elíasar í Hafnarborg Elías B. Halldórsson Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is ÞRENNIR tónleikar á Listahátíð fóru að þessu sinni fram í tónlistar- húsinu Laugarborg í Eyjafjarð- arsveit; tvennir um síðustu helgi og þeir þriðju á þriðjudagskvöldið. Þetta er í fyrsta skipti sem húsið er vett- vangur tónleika á Listhátíð. Þórarinn Stefánsson, listrænn stjórnandi húss- ins, vonar að framhald verði á; hann var hæstánægður með tónlistarflutn- inginn en varð hins vegar fyrir mikl- um vonbrigðum með aðsóknina. Íslensk tónlist var í boði í Laug- arborg. „Það er í samræmi við stefnu mína varðandi rekstur hússins að auka fjölbreytni í tónlistarflórunni; Myrkir músíkdagar hafa verið hér og Listahátíð er því líka sjálfsagður hluti í dagskránni. Við viljum vera með; taka þátt í því sem er um að vera,“ sagði Þórarinn í samtali við Morg- unblaðið. „Það er vandamál hjá íslenskum tónlistarmönnum hve lítið þeir geta raunverulega spilað; þeir sem vinna að metnaðarfullum efnisskrám hafa ekki í mörg hús að venda og við vilj- um gjarnan koma til móts við þá; því er ekki bara verið að hugsa um að hér á svæðinu sé blómlegt menningarlíf heldur líka – og ekki síður – að skapa vettvang og aðstæður til þess að gera íslenskum tónlistarmönnum kleift að flytja verk sín oftar en einu sinni.“ Tónlistarflutningurinn í Laug- arborg var frábær en aðsóknin öm- urleg, var svar Þ́órarins við spurn- ingu blaðamanns um hvernig hefði gengið. Hann var reyndar sáttur við aðsókn á tónleikana með þeim Atla Heimi en ekki hina. Þórarinn telur ástæðu lítillar að- sóknar geta verið þá litlu hefð sem hann segir fyrir flutningi íslenskrar tónlistar á svæðinu. „Hvað þá á þrennum tónleikum í röð. Ástæða þess að íslensk tónlist er lítið flutt hér er sú að það koma svo fáir að hlusta, og ástæðan fyrir því hve fáir koma er kannski sú að það vantar hefðina!“ Þórarinn er samt hvergi banginn. „Það tók mörg ár, jafnvel áratugi, að skapa hefð fyrir flutningi íslenskrar tónlistar í Reykjavík, en nú er það orðið fastur liður. Það eru ekki nema tvö ár síðan Myrkir músíkdagar komu hingað norður og það er verk- efni sem verður að vinna hægt og síg- andi að festa flutning íslenskrar tón- listar í sessi hér.“ Þórarinn segir ekki hafa verið rætt hvort framhald verði á því að atriði á Listahátíð verði í Laugarborg. „En það er klárlega áhugi á því af minni hálfu. Ég tel mikilvægt að það verði stöðugt framhald á þessu; að ekki verði tjaldað til einnar nætur því það væri eins og að slá upp í vindinn. Í þessu starfi horfi ég til lengri tíma varðandi kynningu og markaðs- setningu á Laugarborg sem tónlistar- húsi og kynningu á íslenskri tónlist og tónlistarmönnum á svæðinu.“ Þórarinn segir markaðinn fyrir sunnan mettaðan. „Þar kemst ekki meira fyrir af tónleikum og mér finnst vel við hæfi að tónlistarmenn líti ekki bara til útlanda varðandi út- rás heldur líka hingað norður; útrásin gæti því alveg orðið innrás.“ Útrásin felist í innrás Laugarborg í Eyjafirði var vettvangur viðburða á Listahátíð í fyrsta skipti Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Líflegt í Laugarborg Þórarinn Stefánsson, listrænn stjórnandi Laugarborgar, t.v, ásamt Einari Jóhannessyni, Nina Kavtaradze og Erling Blöndal Bengtsson þegar þau léku í húsinu á eftirminnilegum tónleikum fyrr á árinu. Í HNOTSKURN »Á laugardaginn var boðiðupp á flaututónlist eftir Atla Heimi Sveinsson, þar sem léku Áshildur Haraldsdóttir, Anna Guðný Guðmundsdóttir og Atli Heimir sjálfur. »Kvartett KammersveitarReykjavíkur flutti á sunnu- daginn strengjakvartetta eftir Jón Leifs. »Á síðustu tónleikunum áþriðjudaginn lék Tinna Þor- steinsdóttir íslenska píanótónlist. KIRKJULISTAHÁTÍÐ í Reykjavík verður haldin í 11. sinn, dagana 11.- 19. ágúst. Hátíðin var fyrst haldin árið 1987, á vígsluári Hallgríms- kirkju og heldur því upp á tuttugu ára afmæli sitt. Að þessu sinni verða fjörutíu er- lendir listamenn gestir hátíðarinnar, en á fjórða hundrað flytjenda mun koma fram á hátíðinni. Bakhjarlar Kirkjulistahátíðar hafa frá upphafi verið Listvinafélag Hallgrímskirkju, Reykjavíkurprófastsdæmi og biskup Íslands. Tvö stærstu verk hátíðarinnar verða flutt í Hallgrímskirkju og Skálholtsdómkirkju og er það í fyrsta sinn sem farið er út á land með hátíðina. Í ár verða tvö stórverk flutt í upphafi og við lok hátíð- arinnar: Messa í H- moll eftir J.S. Bach og óratórían Ísrael í Egypta- landi eftir G.F. Händel, sem verður flutt í fyrsta sinn á Íslandi í Skál- holtskirkju hinn 17. ágúst og síðan í Hallgrímskirkju á lokatónleikum há- tíðarinnar 19. ágúst. Meðal erlendra listamanna sem fram munu koma er kontraten- órsöngvarinn Robin Blaze en hann er heiðursgestur hátíðarinnar. Blaze syngur einsöng í báðum óratóríun- um og leiðbeinir söngvurum í flutn- ingi óratóríu Händels. Einn fremsti bassasöngvari heims, Peter Kooij, kemur einnig fram, hinn heims- kunni, þýski tenórsöngvari Gerd Türk og Monica Frimmer sópr- ansöngkona. Íburðarmikil Kirkjulistahátíð Morgunblaðið/RAX Himneskir tónar Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari lék fyrir gesti á blaðamannafundi vegna hátíðarinnar í gær, í turni Hallgrímskirkju. www.kirkjulistahatid.is ♦♦♦ ÞAU mistök urðu við vinnslu á frétt um starfsmannakannanir SFR sem birtist í Morgunblaðinu í gær, að leiðrétting Tinnu Gunnlaugsdóttur Þjóðleikhússtjóra skilaði sér ekki í endanlega útgáfu greinarinnar. Af þeim sökum vill Tinna koma því á framfæri að það hafi ekki vakað fyrir sér að draga úr ábyrgð sinni sem stjórnanda, eða yfirfæra hana á aðra. Beðist er velvirðingar á mistökun- um. Athugasemd ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.