Morgunblaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 24
matur
24 FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Tími fyrir vini og ættingja
Það eru eflaust margir sem ætla að njóta
komandi hvítasunnuhelgar í ró og næði með
fjölskyldu og vinum, ýmist heima við eða að
heiman. Á þeim landsvæðum þar sem ekki
snjóar er kannski kominn tími til að huga að
garðhreinsun, grænmetisræktun og sum-
arblómum, en þeir íbúar landsins sem enn búa
við hret og slyddu, þrátt fyrir að júnímánuður
sé handan hornsins, ættu kannski að bíða um
sinn með alvöru vorverk og nýta tímann í stað-
inn í annars konar útivist og uppákomur sem í
boði eru.
Kirkjuganga um hvítasunnu
Fyrir gönguglaða er upplagt að skella sér í
hvítasunnugöngu að kirkjustöðum Mosfells-
bæjar sem atvinnu- og ferðamálanefnd Mos-
fellsbæjar efnir til á morgun, laugardag. Geng-
ið verður að kirkjustöðum sveitarfélagsins og
lagt af stað frá Lágafellskirkju kl. 10.00 í
fyrramálið. Gengið verður að Varmá, Hrísbrú
og Mosfelli og sagt frá fornum og nýjum
kirkjustöðum sveitarfélagsins. Frá Mosfelli
verður ekið til baka að Lágafelli um kl. 13.00.
Leiðsögumaður verður Magnús Guðmundsson
sagnfræðingur.
Allir eru velkomnir í ferðina og er ekkert
rukkað fyrir þátttöku.
Skíðaglaðir í Hlíðarfjalli
Nægur snjór er enn í brekkum Hlíðarfjalls
fyrir ofan Akureyri og verða lyftur opnar frá
föstudegi til mánudags milli kl. 8.00 og 14.00.
Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður
Hlíðarfjalls, segist fagna kuldakasti síðustu
daga sem geri það að verkum að lítil bráðnun
hafi orðið og mönnum hafi tekist að safna snjó
í brekkurnar. „Flestum skíðasvæðum heims
hefur nú þegar verið lokað og það er frábært
að geta boðið upp á opnar lyftur og gott skíða-
færi svona langt fram á vorið, en það gerðist
síðast vorið 2002 að við gátum haft opið þessa
helgi.“
Kajakmenn í Hólminum
Í Stykkishólmi ætla kajakmenn að halda ár-
lega sjókajakhátíð um hvítasunnuhelgina,
kennda við Eirík rauða. Hátíðin stendur í þrjá
daga, en markmiðið er að auka kynni meðal
kajakræðara, byrjenda sem lengra kominna,
ásamt því að fá fremstu kajakræðara heims til
að flytja inn nýja þekkingu í greininni. Nýliða-
kynning verður haldin í kvöld og þá geta
áhugasamir nýliðar prófað sig áfram í kajak-
siglingum.
Fótboltafár á mánudag
Fyrir boltaglaða er upplagt að bregða sér á
völlinn annan dag hvítasunnu, en þá eru fjórir
leikir á dagskrá meistaradeildarinnar í knatt-
spyrnu.
Fylkir tekur á móti ÍA kl. 17.00 og kl. 19.15
tekur Keflavík á móti HK, KR á móti Víkingi
og Breiðablik á móti Val.
mælt með …
Eftir Guðbjörgu R. Guðmundsdóttur
gudbjorg@mbl.is
Við erum alltaf að hugsa um góðan mat,jafnvel draumfarir okkar snúast umfiskinn og auðvitað erum við enda-laust að þróa og leita leiða til að koma
með uppskriftir að einhverju nýju og spenn-
andi,“ segja æskuvinirnir Eyjólfur F. Pálsson
og Halldór Halldórsson sem reka saman fisk-
búðina Hafið – fiskiprinsinn í Hlíðarsmára. Þeir
sérhæfa sig í tilbúnum fiskréttum á grillið og í
ofninn þótt þeir selji auðvitað líka ferskan fisk.
„Við höfum verið að þróa ný fiskispjót og for-
réttaspjót fyrir þetta sumar og svo erum við
alltaf að lauma einhverju nýju inn.“
Þeir eru hrifnir af humri og selja hann fersk-
an og frosinn. „Humarsúpan okkar er vinsæl.
Við erum með grunninn sem fólk kaupir hjá
okkur og svo bætir það út í súpuna því sem
hentar.
Þar að auki sjáum við um humarveislur fyrir
fólk, gerum að humrinum og höfum hann tilbú-
inn á grillið fyrir viðskiptavini. Humar er nátt-
úrlega ótrúlega góður á grillið.“ En vinsælust er
þó lúðan í smjörkryddinu og laxinn í teríakílegi.
Þeir eiga þá rétti yfirleitt alltaf í fiskborðinu.
Eyjólfur segir að neysla á þorski sé alltaf að
aukast og þorskhnakkarnir séu hreint sælgæti
á grillið. Þá mæla þeir líka með steinbít á grillið,
segja hann sérstaklega feitan og góðan á sumr-
in.
– En hver er galdurinn við að grilla góðan
fisk?
„Fyrsta flokks hráefni er auðvitað forsendan
en síðan mælum við ekki með því að fólk sé að
grilla í álbökkum. Það borgar sig að þrífa grillið
vel, strjúka yfir það með sundurskornum lauk
og grilla svo fiskinn beint á grindinni. Fólk
verður svo bara að gæta þess að snúa ekki of oft
og grilla ekki of lengi. Ofeldaður fiskur er aldrei
góður. Flest fiskstykki þurfa bara nokkrar mín-
útur og sum stykki borgar sig að grilla bara á
roðhliðinni eins og bleikjuflökin. Við gefum okk-
ar viðskiptavinum auðvitað alltaf ráðleggingar
þegar þeir eru að kaupa á grillið því auðvitað er
mismunandi hversu lengi á að grilla hvað og
með hvaða hætti.“
Í lokin fáum við nokkrar vinsælar fisk-
uppskriftir hjá þeim félögum.
Humar með hvítlauk og steinselju
Allir réttirnir eru fyrir fjóra.
12 stórir humarhalar í skel
hvítlaukssmjör með steinselju
maldon-sjávarsalt
fersk steinselja
Klippið skel humarhalans eftir endilöngu og
notið þumlana til að opna skelina. Smyrjið hvít-
laukssmjörinu ofan í skelina og stráið fing-
urbjörg af maldonsalti og vel saxaðri steinselju
yfir hvítlaukssmjörið. Næst eru halarnir lagðir
á vel heitt grillið og látnir grillast í u.þ.b. sex
mínútur.
Forréttarspjót
8 risarækjur
4 stórir hörpudiskar
Hot spot mango jalapeno glaze-lögur
Hot spot Texas honey marinade
maldon-sjávarsalt
4 lítil grillspjót
Látið risarækjurnar liggja í Texas honey-
sósunni og hörpudiskinn liggja í mango jala-
peno-leginum í u.þ.b. fjóra tíma. Raðið svo upp
á lítil grillspjót. Spjótin eru svo grilluð á heitu
grillinu í þrjár mínútur á hvorri hlið og smá-
vegis maldonsalti er stráð yfir meðan þau grill-
ast.
Fiskispjót
200 g lax roðlaus og beinlaus
200 g lúða roðlaus og beinlaus
200 g langa roðlaus og beinlaus
200 g steinbítur roðlaus og beinlaus
Hot spot teriyaki-sósa
grænt pestó
curry paste frá Rajah
satay-sósa frá Thai choise
4 stór grillspjót
Skerið fiskinn í 50 gramma bita. Leggið svo
fiskinn í legina; laxinn í teriyaki, lúðan fer í
karrímaukið, langan í græna pestóið og stein-
bítur í satay í u.þ.b. fjóra tíma. Raðið svo fisk-
inum sitt á hvað upp á spjótin. Grillað á heitu
grillinu í fimm mínútur á hvorri hlið.
Keila í indversku karríi
1 kg keila, roðlaus og beinlaus, skorin í steikur
1 hvítur laukur
1 chili
1⁄2 hvítlauksgeiri
50 g ólífur, bæði svartar og grænar
50 g sólþurkaðir tómatar
1 tsk. salt
1 tsk. pipar
2 tsk. karrí
1 tsk. paprikuduft
1 tsk aromat
2 dl ólífuolía
Krydd, grænmeti og olía er sett í mat-
vinnsluvél og maukað saman. Keilan er svo látin
liggja í u.þ.b. fjóra tíma í leginum.
Keilan er sett á vel heitt grillið í fjórar mín-
útur á hvorri hlið. Mjög gott er svo að hafa
kryddlöginn og pensla honum á meðan grillað
er.
Að lokum mæla þeir Eyjólfur og Halldór með
góðu kartöflusalati, ýmsum útgáfum af salati,
bökuðum kartöflum, köldum grillsósum, hrís-
grjónum eða kúskús sem meðlæti með grillfisk-
inum.
Morgunblaðið/Ásdís
Fiskiprinsar Eyjólfur F. Pálsson og Halldór Halldórsson með fisk og annað sjávarfang tilbúið á grillið.
Þá dreymir góða fiskrétti
Freistandi Forréttaspjót að hætti fiskiprinsins.
Fiskispjót Fyrir sumarið bjóða félagarnir
Halldór og Eyþór upp á þessa nýjung.
Humar Vinsæll veislumatur sem bregst ekki
þegar hann er settur á grillið.