Morgunblaðið - 16.06.2007, Side 1
STOFNAÐ 1913 162. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
SILFRAÐUR
EGILL HELGASON RÆÐUR BARA EKKERT
VIÐ KYNJAHLUTFALLIÐ >> LESBÓK
LANDSLIÐSKONUR
MÆTA FRÖKKUM
HEIMSKLASSI
UPPHITUN >> ÍÞRÓTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
MIKIL breyting verður á fyrirkomulagi
veikindaréttar launafólks ef hugmyndir sem
til umræðu eru á milli ASÍ og SA verða að
veruleika í tengslum við gerð næstu kjara-
samninga. Grundvallarhugmyndin er sú að
launafólk búi við samræmd réttindi og vernd
óháð starfsgrein ef það lendir í áföllum
vegna veikinda og er fjarverandi frá vinnu
um lengri tíma. Jafnframt á kerfið að virka
hvetjandi á að viðkomandi hefji þátttöku á
nýjan leik á vinnumarkaði. „Markmið ASÍ er
að tryggja heildstæðan rétt, sem fólk geti
gengið að vísum ef á reynir. […] Þetta sé
gagnsætt kerfi, tiltölulega einfalt og að rétt-
indi séu tryggð sem eru vel þekkt og skýr og
þau séu í öllum aðalatriðum samræmd á
vinnumarkaði,“ segir Halldór Grönvold, að-
stoðarframkvæmdastjóri ASÍ.
Núverandi kerfi um veikindarétt launa-
fólks er flókið og margþætt og þau réttindi
sem launamenn njóta ef þeir verða fyrir
langvinnum veikindum mjög mismunandi
eftir starfssviðum. Í reynd eru þau bundin
við það hversu lengi viðkomandi hefur starf-
að hjá fyrirtæki. Eftir að greiðslum frá fyr-
irtæki lýkur taka svo sjúkrasjóðir stétt-
arfélaganna við og greiða út bætur og síðan
koma lífeyrissjóðir og Tryggingastofnun
(TR) til skjalanna. Margir sem hafa t.d. ný-
lega skipt um starf þegar veikindin byrja
geta í núverandi kerfi orðið fyrir mikilli
tekjuskerðingu eftir ákveðinn tíma.
Aukin réttindi og meiri kostnaður
Forsvarsmenn launþega leggja áherslu á
að breytingin feli í sér aukin réttindi og
henni muni því væntanlega fylgja aukinn
kostnaður. Er meginhugmyndin sú að ein-
staklingur njóti tveggja mánaða veik-
indaréttar hjá fyrirtæki sem hann starfar
hjá en ef hann er lengur fjarverandi vegna
veikinda fær hann framfærslugreiðslur í allt
að fimm ár frá sérstökum áfallatrygg-
ingasjóði, eins og atvinnurekendur hafa
nefnt sjóðinn. Áhersla er lögð á starfsend-
urhæfingu til að gera viðkomandi sem fyrst
kleift að hefja á ný störf. Ekki er frágengið
hvernig staðið verður að fjármögnun en ASÍ
og SA vinna að kostnaðarmati. Gert er ráð
fyrir að sjóðurinn verði myndaður að hluta af
núverandi greiðslum sjúkrasjóða og lífeyr-
issjóða, framlögum fyrirtækja og greiðslum
TR.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Veikindaréttur launafólks er flókið kerfi.
Réttarbót
og hvati
til vinnu
Áfallasjóður tryggi
greiðslur í allt að 5 ár
EIGNARHALDSFÉLAGINU Samvinnu-
tryggingum verður slitið og nýtt hlutafélag,
Gift fjárfestingafélag ehf., mun taka við öllum
eignum og skuldum félagsins. Hlutafé hins
nýja félags verður m.a. skipt á milli fyrrverandi
tryggingataka Samvinnutrygginga g.t. er áttu
skilyrtan eignarrétt í Eignarhaldsfélaginu
Samvinnutryggingum. Ákvörðun þessa efnis
var tekin á fulltrúaráðsfundi eignarhaldsfélags-
ins í gær, en hluthafar verða á fimmta tug þús-
unda. Mun það ráðast af því í hve miklum
tryggingaviðskiptum viðkomendur voru við
Samvinnutryggingar g.t. hve stóran hlut þeir
munu fá í hinu nýja hlutafélagi.
Þórólfur Gíslason, stjórnarformaður eignar-
haldsfélagsins, segir að um einstakan atburð í
íslensku athafnalífi sé að ræða. „Þetta er í
fyrsta sinn sem viðskiptavinir fyrirtækis eign-
ast með þessum hætti fyrirtækið sjálft.“
Þeir sem teljast eiga skilyrtan eignarrétt í
eignarhaldsfélaginu, og þar með tilkall til
hlutafjár í hinu nýja félagi, eru þeir einstak-
lingar og lögaðilar sem voru í tryggingavið-
skiptum við Samvinnutryggingar á árunum
1987-1998. Lögaðilar verða að hafa haldið
áfram viðskiptum við Vátryggingafélag Ís-
lands, VÍS, til 1. júní 2006, en engin slík skilyrði
íþyngja einstaklingum.
Eins og áður segir var eignarrétturinn skil-
yrtur og felur það í sér að hann var ekki fram-
seljanlegur og erfðist ekki. Eignarréttur þeirra
einstaklinga sem látist hafa frá árinu 1988 gekk
því ekki til erfingja þeirra heldur til Samvinnu-
sjóðsins sjálfseignarstofnunar. Mun sjóðurinn
því verða stærsti hluthafinn í hinu nýja félagi.
„Ekki hefur enn verið ákveðið hvort félagið
verði skráð í Kauphöll Íslands að skiptum lokn-
um, en ljóst er að tryggja verður að eðlileg við-
skipti geti átt sér stað með hluti í jafn fjöl-
mennu hlutafélagi,“ segir Þórólfur.
„Einstakur atburður
í íslensku athafnalífi“
Eignarhaldsfélagið Samvinnutryggingar leyst upp og nýtt hlutafélag stofnað
Í HNOTSKURN
» Samvinnutryggingar voru gagn-kvæmt tryggingafélag, en það rekstr-
arform þýðir að eigendur eru þeir sem
eru í viðskiptum við það á hverjum tíma.
» Við stofnun VÍS hættu Sam-vinnutryggingar beinni þátttöku í
tryggingasölu og til varð eignarhalds-
félagið Samvinnutryggingar.
Samvinnutryggingum | 14
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
FYRIR framúrskarandi ævistarf í
þágu leiklistar á Íslandi hlutu leik-
ararnir Herdís Þorvaldsdóttir og
Róbert Arnfinnsson heiðurs-
verðlaun Leiklistarsambands Ís-
lands sem voru afhent á Grímunni,
Íslensku leiklistarverðlaununum
2007, í gærkvöldi. Það var forseti
Íslands, hr. Ólafur Ragnar Gríms-
son, sem afhenti þeim verðlaunin
undir dynjandi lófataki hátíð-
argesta í Íslensku óperunni.
Herdís minntist þess að þau Ró-
bert hefðu oft leikið hjón en til-
hugalífið hefði líklega byrjað í Iðnó
árið 1945 þegar þau léku elskendur
í leikritinu Manni og konu og síðan
þá hefði gagnkvæm virðing og vin-
átta haldist þeirra á milli. | 20Morgunblaðið/Kristinn
Heiðurs-
verðlaun
Dubai, Gaza. AFP. | Útlægur leiðtogi Hamas-samtak-
anna palestínsku, Khaled Meshal, fullyrti í gær að
alþjóðasamfélagið ætti með „þögn sinni um glæpi
Ísraela“ mesta sök á þeirri ringulreið og klofningi
sem nú ríkir í Palestínu. Það hefði ekki verið ætlun
Hamas að leggja Gaza undir sig en þau hefðu
neyðst til þess að hrifsa völdin af öryggissveitum
Mahmoud Abbas forseta, leiðtoga Fatah.
Meshaal, sem er í útlegð í Sýrlandi, hvatti til við-
ræðna milli flokkanna tveggja og sagði hvorki
Fatah né Abbas vera vandamálið. „Við virðum
bróður okkar, Abu Mazen [Abbas]. Við berum virðingu fyrir lögmæti
hans, enginn dregur það í efa. Hann er kjörinn forseti,“ sagði Meshaal.
Talsmenn Fatah slógu þegar á sáttahönd Hamas og sögðu samtökin
hafa staðið fyrir skipulögðu valdaráni á Gaza. | 16
Leiðtogi Hamas
býður sættir
Khaled Meshaal