Morgunblaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2007 49
kvöld. Þegar staðurinn var opn-
aður hafði ákveðin stöðnun átt sér
stað í reykvískri skemmtistaða-
menningu og litlar breytingar orð-
ið í nokkur ár. Oliver var því kær-
komin breyting fyrir
skemmtiþyrsta Reykvíkinga sem
fylla staðinn enn þann dag í dag.
Áætlað er að 2.200 til 2.500
manns fari í gegnum Oliver á
venjulegu laugardagskvöldi, sem
er um það bil tvisvar sinnum fleiri
gestir en áætlað er að komi á
næstu staði á eftir.
Vinsælir frá því fyrir aldamót
Samkvæmt niðurstöðunum er
Hressó í öðru sæti, þótt Hverf-
isbarinn og Kaffibarinn séu ákaf-
lega skammt undan. Hér þarf þó
að taka mið af því að Hressó er
töluvert stærri staður en hinir
tveir, auk þess sem stutt er síðan
Hressó fór að njóta vinsælda, en
Kaffibarinn hefur verið einn vin-
sælasti skemmtistaður í Reykjavík
samfleytt frá því um miðjan tí-
unda áratug síðustu aldar.
Tveir rótgrónir staðir eru svo í
fimmta til sjötta sætinu, Vegamót
og Prikið. Staðirnir voru opnaðir á
svipuðum tíma undir lok síðustu
aldar og hafa notið mikilla vin-
sælda síðan. Vegamót á sér stóran
hóp fastagesta og margir sem
koma á staðinn snemma á laug-
ardagskvöldi fara ekki út fyrr en
lokað er. Af þeim sökum er alltaf
mikil röð fyrir utan staðinn á
laugardagskvöldum og getur
reynst erfitt að komast inn. Óhætt
er því að segja að Vegamót sé
einn allra vinsælasti skemmti-
staður á landinu, þótt rennslið sé
ekki nema 700 til 800 manns að
meðaltali.
Að meðaltali koma 11.000
manns á þessa 14 staði á laug-
ardagskvöldi, miðað við gefnar
forsendur. Sú tala er ekki svo
fjarri lagi því að sögn Árna Þórs
Sigmundssonar aðstoðaryfirlög-
regluþjóns hjá lögreglunni á höf-
uborgarsvæðinu er meðalfjöldinn í
miðbænum á laugardagskvöldi í
kringum 10.000 manns.
Aukinn sóðaskapur
Þrátt fyrir áhyggjuraddir
margra, bæði eigenda skemmti-
staða og reykingafólks, hefur að-
sókn að skemmtistöðum ekki
minnkað frá því reykingabannið
tók gildi. Skemmtanaglaðir reyk-
ingamenn voru fljótir að laga sig
að aðstæðum og bregða sér ein-
faldlega út fyrir staðina til að fá
sér sígarettu. Þannig myndast til
dæmis skemmtileg stemning með-
al reykingamanna í portinu milli
Ölstofunnar og Vegamóta við
Vegamótastíg. Það er þó hætt við
því að fækka muni í hópnum þeg-
ar kólna tekur í haust og vetur, og
spurning hvort reykingamenn
muni láta bjóða sér íslenskt vetr-
arveður.
Þá hafa íbúar í miðbænum
kvartað töluvert yfir þessari þró-
un, því nú eru mun fleiri undir
berum himni eftir miðnætti, og
hávaðinn eftir því. Þá hefur sóða-
skapurinn sömuleiðis aukist.
!
"
#
$
" % !
&
&
!
"
!
'
(
!"
#
$ %&
' () *
$ %+
!&, -
./
0
.0
0
$ %+
&, -
"
#
/
() *
$ %&
'
00
00
0
. 0
.
.
!.
!.
.
&
1 --
#
!
Mergð Það er af sem áður var að fólk safnist saman í miðbænum eftir samræmda lokun skemmtistaða, en oft á tíð-
um komu upp vandamál þegar stöðum var lokað klukkan 3. Litið yfir Austurstræti kl. 3.30 í maí 1997.
»Hvað sem öllumvarnöglum líður
er deginum ljósara
að Café Oliver á
Laugavegi 20A er
vinsælasti skemmti-
staður landsins.
27 ára karlmaður úr Reykjavík:
„Ég fer niður í bæ á milli 1 og 2 og er kannski kominn heim um 6,
þótt það sé auðvitað misjafnt. Ég fer mest á Barinn, Vegamót, Kaffi-
barinn, Oliver og Prikið. Ástæðan fyrir því að ég sæki þessa staði er
fólkið sem stundar þá. Ætli ég eyði ekki svona 5.000 krónum á barn-
um, en svo kostar að taka leigubíla og kaupa sér að borða. Tónlistin á
staðnum skiptir mig máli þótt ég dansi reyndar ekki mikið. Reyk-
ingabannið er fínt mál þótt ég reyki sjálfur.“
25 ára kvenmaður úr Reykjavík:
„Ég fer oftast í bæinn svona um 1 og er venjulega komin heim um
4.30. Ég fer mest á Vegamót, Oliver, Ölstofuna, Kaffibarinn og Bar-
inn. Að meðaltali eyði ég svona 3.500 krónum á barnum á slíku kvöldi.
Tónlistin skiptir mig mjög miklu máli á stöðunum enda dansa ég oft-
ast þegar ég fer út að skemmta mér. Mér finnst reykingabannið frá-
bært og ég veit að vinkonum mínum finnst það líka.“
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
Sýnum í dag glæsilegt og vandað 230 fm einbýlishús á 2 hæðum með bíl-
skúr. Vandað hefur verið til verks við allan frágang á húsi. Húsið stendur
ofan götu í lokuðum botnlanga með glæsilegu útsýni til suðurs og austurs,
stutt í alla þjónustu, skóla, gönguleiðir í nágrenni og stutt í náttúruna. Á
neðri hæð er anddyri, hol, gestasnyrting, stofa, borðstofa, sólstofa, stórt
eldhús, geymsla og þvottaherbergi inn af eldhúsi og 30 fm bílskúr. Efri
hæð: Steyptur stigi upp í gang, þrjú rúmgóð barnaherbergi, stórt hjóna-
herbergi og rúmgott baðherbergi. Suðaustursvalir, um 22 fm.
Stór og mikil lóð sem býður upp á mikla möguleika.
Verð: 67.300.000.-
Sveinn Eyland í síma 6-900-820 frá Fasteign.is verður á staðnum
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 14-15
Þorláksgeisli 104 - Grafarholt