Morgunblaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 4
Morgunblaðið/RAX
Bjartsýnn „Lífið er ekki búið þótt þetta hafi
gerst. Þegar ég kom af gjörgæslu leit ég svo á að
ég væri byrja nýtt líf,“ segir Heiðar Sveinsson.
ÞAÐ eru liðnir tæpir þrír mánuðir síðan Heiðar
Sveinsson, liðsstjóri hjá Norðuráli á Grund-
artanga, missti fótinn í vinnuslysi. Hann er einn
fjölmargra endurhæfingarsjúklinga á Grens-
ásdeild Landspítalans sem vinna kerfisbundið að
því að ná bata. Fótinn missti Heiðar þegar 7
tonna lyftari ók yfir hann þegar Heiðar hugðist
ganga milli vinnustöðva í leiðindaveðri hinn 24.
mars. Heiðar hafði með höndum eftirlit með
kerskála og sinnti stjórnunarstöðu í skálanum,
en starfsferill hans hjá fyrirtækinu spannar níu
ár.
„Ég lenti undir lyftaranum og sá strax að ég
myndi tapa fætinum en rannsakaði sjálfan mig
til að athuga hvort ég gæti hreyft aðra hluta lík-
amans,“ segir hann. Heiðari varð ljóst að þrátt
fyrir fótamissinn var hann í lagi að öðru leyti og
róaðist við það. „Ég sá að ég gat hreyft hnéð og
takmarkið hjá mér upp frá því hefur verið að
hnéð skuli ég aldrei missa.“ Og hnéð getur hann
hreyft sem fyrr.
Eftir stutta legu á gjörgæsludeildinni fór
Heiðar í endurhæfingu á Landspítalanum í Foss-
vogi áður en hann fór í frekari endurhæfingu á
Grensásdeild. Þar er hann nú í stífum æfingum
tvo og hálfan tíma á dag og lítur á bataferlið
sem nýja vinnu og segir gífurlega mikilvægt að
nálgast verkefnið með jákvæðni að leiðarljósi.
„Afleiðingar svona slyss eru ekki eingöngu áfall
fyrir mann sjálfan heldur er þetta líka gríð-
arlegt áfall fyrir manns nánustu,“ bendir hann á
og segir ekki mega vanmeta þetta atriði. „En líf-
ið er ekki búið þótt þetta hafi gerst,“ bætir hann
við. „Þegar ég kom af gjörgæslu leit ég svo á að
ég væri að byrja nýtt líf.
Heiðar segir spítalastarfsfólkið dugmikið með
eindæmum og fagmannlegt fram í fingurgóma.
„Mér finnst alveg ótrúlegt hvað starfsfólkið get-
ur í raun afkastað miklu miðað við hvað deildir
eru yfirsetnar. Maður hefur fengið alveg frá-
bæra umönnun, bæði hér og í Fossvogi,“ segir
hann.
Gervifót fær Heiðar að líkindum um næstu
mánaðamót, þegar hann er tilbúinn að hefja æf-
ingar með fótinn, en þá verða liðnir réttir þrír
mánuðir frá örlagadeginum. En Heiðar veltir
sér ekki mikið upp úr þessu. „Eins og maður
segir, þá getur enginn treyst á að hann komi
heill heim að kvöldi þegar haldið er að heiman
að morgni.“
„Sá strax að ég
myndi tapa fætinum“
Heiðar Sveinsson nýtur endurhæfingar á Grensás-
deild eftir að hafa lent í vinnuslysi á Grundartanga
4 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
PARTÝ-KYNNINGARHÁTÍÐ
Casa firma var að taka við einkaumboði til sölu á
eignum frá Activa á Spáni. Í tilefni þessa bjóðum við
til partýs í dag, laugardag, frá kl. 13-17 og kynningu
á eignum á Spáni að Hlíðasmára 14 Kópavogi.
Heitur spánskur matur ; snakk og drykkir frá
Vífilfelli á meðan birgðir endast.
ALLIR VELKOMNIR
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
BÍLAR eru orðnir betri og sterkari,
vegir öruggari, en þrátt fyrir þessar
staðreyndir hefur alvarlegum slys-
um með hryggbrotum og mænus-
köðum síst fækkað, heldur fjölgað
og það mjög mikið. Á Grensásdeild
Landspítalans fer fram endurhæf-
ing sjúklinga eftir slys og tekur
endurhæfing marga mánuði og er
flestum sjúklingum mjög erfið. Gísli
Einarsson, yfirlæknir á Grensás-
deild, segir að frá árinu 2000 hafi
mænusköðum fjölgað gríðarlega
eftir ákveðna fækkun á árabilinu
1973-1998. Læknar sem annast af-
leiðingar alvarlegra bílslysa eru
óneitanlega nokkuð uggandi í sum-
arbyrjun yfir því hvað muni gerast
á vegum landsins þegar sumarfrí
fólks standa sem hæst með tilheyr-
andi umferð.
„Þótt bílarnir séu orðnir miklu
betri en áður, þá eru slysin ekkert
minna alvarleg en áður,“ bendir
Gísli á. Með kraftmeiri bílum hefur
hraðinn aukist og þar með hættan á
alvarlegum meiðslum en auk þess
vekur athygli að vanræksla hvað
varðar bílbeltanotkun hefur átt sinn
þátt í að orsaka hin erfiðu meiðsli.
„Á 25 ára tímabili 1973-1998,
fækkaði mænusköðum, sennilega
mest fyrir bættar aðstæður í um-
ferðinni, s.s. með bílbeltanotkun og
betri bílum, en síðastliðin 7-8 ár
hefur mænusköðum hins vegar
fjölgað stöðugt. Þarna er aðallega
um að ræða ungt fólk sem keyrir út
af og er ekki í bílbelti. Við þetta
bætast síðan mænuskaðar vegna
slysa á fjórhjólum, hestum og bif-
hjólum.
Við vitum ekki alveg hvort þessi
aukning er komin til að vera en hitt
er víst að hún er alveg gríðarleg á
nokkrum árum,“ segir Gísli.
Á Grensásdeild eru alls 60 pláss,
en ekki eru allir í meðferð vegna
umferðarslysa, heldur er fólk þar
líka í endurhæfingu vegna veikinda.
Erfiður tími fer nú í hönd hjá
Grensásdeild vegna sumarlokana í
heilbrigðiskerfinu sem gerir það að
verkum að 10-15 sjúklingar, sem
náð hafa endurhæfingu en þurfa
samt áfram stofnanavist, komast
ekki af Grensásdeild í næstu bata-
skref sín og eru því „fastir“ á deild-
inni. „Það er það allra versta,“
bendir Gísli á. Þetta hefur í för með
sér að yfir hásumarið er aðeins
hægt að vera með 7-10 rúm í notkun
fyrir nýjar innlagnir í stað 22 rúma.
Mænusköðum eftir slys
hefur fjölgað gríðarlega
Fólk hryggbrotn-
ar í slysum og
læknar uggandi
Morgunblaðið/Júlíus
Slys Endurhæfing eftir alvarleg slys
tekur fleiri mánuði og reynist flest-
um erfið. Hófstilltur hraði og belta-
notkun er mikil vörn gegn slysum.
KONUR um landið allt munu taka
upp hlaupaskóna í dag því komið
er að hinu árlega Sjóvá-Kvenna-
hlaupi ÍSÍ, sem nú er haldið í 18.
skipti. Áætlað er að alls hlaupi
um 16-18 þúsund konur af þessu
tilefni að sögn Ingibjargar Berg-
rósar Jóhannsdóttur hjá ÍSÍ, og
verða fjölmennustu hlaupin í Mos-
fellsbæ og Garðabæ.
Mikil stemning myndast yf-
irleitt í kringum kvennahlaupin
og konur á öllum aldri, af öllum
stærðum og gerðum taka þátt.
Yfirskrift hlaupsins í ár er
„Hreyfing er hjartans mál“ og
verður hlaupið til styrktar
Hjartavernd. Hægt er að skrá sig
á staðnum.
16–18 þúsund
konur í
Kvennahlaupi
EINN lax veiddist í opnun Laxár í
Kjós og Bugðu í gær. Var það mar-
íulax Jóhönnu Hreinsdóttur, bónda
í Káraneskoti, átta punda hængur
sem tók í Höklunum í gærkvöldi.
Fram að því var dauft yfir veið-
inni. Skilyrðin voru þó góð og
flestir veiðimenninrnir þekkja ána
vel.
Á fimmtudagskvöldið voru þrír
menn af erlendu bergi brotnir
staðnir að veiðiþjófnaði í Bugðu.
Voru kaststangir þeirra og tveggja
punda urriði gerð upptæk. Veifuðu
mennirnir Veiðikortinu og þóttust
í fullum rétti.
Einn lax náðist
í Kjósinni í gær
Úrskurðarnefnd
skipulags- og
byggingamála
hafnaði í gær
kröfu kærenda
um stöðvun
framkvæmda í
og við vegstæði
væntanlegs
Helgafellsvegar
og við endurnýj-
un fráveitulagna
meðfram Varmá í Mosfellsbæ til
bráðabirgða meðan málið er til
meðferðar fyrir úrskurðarnefnd.
Nítján íbúar og eigendur fasteigna
við Álafossveg og Brekkuland í
Mosfellsbæ höfðu kært leyfi skipu-
lags- og bygginganefndar Mosfells-
bæjar til framkvæmda. Í úrskurði
nefndarinnar segir að umdeilt sé
hvort framkvæmdirnar styðjist við
kæranlega ákvörðun.
Hafna kröfu
kærenda
Framkvæmdunum
mótmælt.
FORSÆTISRÁÐHERRA hefur
skipað Margréti Maríu Sigurðar-
dóttur lögfræðing í embætti um-
boðsmanns barna til næstu fimm
ára. Alls sóttust 13 manns eftir
embættinu en einn dró umsókn
sína til baka.
Margrét segist hlakka til að
kynna sér starfið betur og setja
mark sitt á það þegar fram í sækir,
enn sem komið er þurfi að ganga
frá lausum endum áður en hún tek-
ur við embættinu. „Það er eitt
skref í einu, þannig nær maður á
toppinn.“
Margrét hefur starfað við ým-
islegt og hyggst nýta sér alla þá
þekkingu og reynslu sem hún hefur
aflað sér hingað til, stofnuninni til
framdráttar. „Ég er með breiðan
bakgrunn og kannski að einhverju
leyti öðru vísi sýn á hlutina.“
Óhætt er að segja að gærdag-
urinn hafi verið
Margréti við-
burðaríkur, því
ekki einasta var
hún ráðin til nýs
starfs heldur út-
skrifaðist hún
líka úr stjórn-
endanámi sem
hún hefur sótt
undanfarið hjá
Capacent. „Það
hefur verið mjög fróðlegt og mik-
ilvægt fyrir mig og ég mun örugg-
lega nýta mér það í mínu starfi.“
Margrét mun hefja störf 1. júlí
en hún hefur verið framkvæmda-
stjóri Jafnréttisstofu frá 2003. Áð-
ur starfaði hún sem lögfræðingur,
en hún lauk embættisprófi í lög-
fræði við Háskóla Íslands árið 1990
og rak eigin lögmannsstofu um
árabil. Hún starfaði sem fulltrúi
sýslumanns á Ísafirði, Húsavík og
Blönduósi, auk þess sem hún hefur
sinnt margvíslegum trúnaðarstörf-
um á sviði jafnréttis- og fjölskyldu-
mála jafnt innanlands sem erlendis.
Aðrir sem sóttu um embættið
eru Árni Guðmundsson, uppeldis-
og menntunarfræðingur, Bergþóra
Sigmundsdóttir, lögfræðingur, Elín
Vigdís Hallvarðsdóttir, lögfræðing-
ur, Eygló S. Halldórsdóttir, lög-
fræðingur, Guðrún Ögmundsdóttir,
félagsfræðingur, Herdís Þorgeirs-
dóttir, doktor í lögum, Hrafn
Franklín Friðbjörnsson, sálfræð-
ingur, Kolbrún Baldursdóttir, sál-
fræðingur, Ólína Þorvarðardóttir,
doktor í íslenskum bókmenntum,
Sigurður Ragnarsson, sálfræðing-
ur, Sverrir Óskarsson, félags-
ráðgjafi og stjórnsýslufræðingur
og Vigdís Erlendsdóttir, sálfræð-
ingur.
Ný kona í embættið
Margrét María Sigurðardóttir hættir hjá Jafnréttisstofu
og tekur við embætti umboðsmanns barna hinn 1. júlí
Margrét María
Sigurðardóttir