Morgunblaðið - 16.06.2007, Page 6
6 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
ÝMSIR bæjarstjórar á höfuðborg-
arsvæðinu eru síður en svo ánægðir
með hvernig starfsbræður þeirra í
nágrannasveitarfélögunum hafa
staðið að því að bjóða stórum hópum
íbúa að ferðast gjaldfrjálst með
strætisvögnum.
Bæjarráð Kópavogs samþykkti í
gær að frá og með næstu áramótum
yrði gjaldfrjálst fyrir alla íbúa Kópa-
vogs í Strætó. Gunnar I. Birgisson
segir breytinguna til komna vegna
ákvörðunar Reykjavíkurborgar og
Hafnarfjarðarbæjar um að veita
ákveðnum hópum notenda fríar
ferðir með strætisvögnum. Frá og
með haustinu munu framhalds- og
háskólanemar búsettir í Reykjavík
geta ferðast með strætó án þess að
þurfa að greiða fargjald og Hafnfirð-
ingar eldri en 67 ára hafa frá og með
síðastliðnum áramótum fengið far-
miða gegn framvísun svokallaðs
vildarkorts. Bæði þessi sveitarfélög
ákváðu einhliða að veita sínum íbú-
um þessa þjónustu og gagnrýndi
Gunnar það á sínum tíma. „Mér þótti
sú aðferð ekki góð en við notum hana
núna og þá er bara jafnt með lið-
unum,“ segir Gunnar.
Hefðu viljað meira samráð
Jónmundur Guðmarsson, bæj-
arstjóri á Seltjarnarnesi, segist já-
kvæður gagnvart ákvörðun bæj-
arráðs Kópavogs og bendir á að
bæjarstjórar á svæðinu hafi lengi
rætt um að hafa gjaldfrjálst í strætó
fyrir ýmsa hópa. „Hins vegar er ég
þeirrar skoðunar að verkefni af
þessu tagi eigi sinn eðlilega vettvang
innan veggja stjórnar Strætó bs. þar
sem okkar fulltrúar sitja í mjög
skýru umboði sinna sveitarfélaga.
Þess vegna hefur mér fundist það
svolítið bagalegt að hin og þessi
sveitarfélög taki það upp hjá sér að
fara út í svona ívilnanir ein og sér.“
Seltjarnarnesbær samþykkti nýlega
að reyna ætti frá og með næsta
hausti að veita bæði námsmönnum
og eldri borgurum frítt í strætó og
sjá hver árangurinn yrði. „Ef nýting
þessara hópa á þjónustunni mun
aukast verulega þá er eðilegt að
menn skoði hvort bjóða eigi fleirum
upp á þennan möguleika.“
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri
Hafnarfjarðarbæjar, segir ákvörðun
bæjarráðs Kópavogs koma sér á
óvart. Hann segir að ekki hafi staðið
á Hafnarfjarðabæ hvað það varðar
að fella niður gjaldskylduna. „Í mín-
um huga snýst þetta um að sveit-
arfélögin séu samtaka í sínum
áherslum,“ segir Lúðvík og bendir á
að sér finnist sérkennilegt að þessi
mál séu ekki rædd á sameiginlegum
vettvangi Sambands sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu (SSH) þar sem
nú standi einmitt til að ræða málefni
Strætó bs.
Ekki sannfærð um ágæti þess
að gjaldfrjálst sé í strætó
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri
Garðabæjar er sömu skoðunar hvað
varðar samráðið. Líkt og Lúðvík
bendir hann á að mikilvægt sé að
sveitarfélögin stilli betur strengi
sína í málaflokknum og fái rík-
isvaldið í auknum mæli inn í fjár-
mögnun. Álögur á strætisvagna-
rekstur séu miklar og þjóðhagslega
sé mikilvægt að öflugar almennings-
samgöngur séu á höfuðborgarsvæð-
inu. Hann gagnrýnir að sveit-
arfélögin gefi út einhliða yfirlýsingar
án þess að slíkt sé rætt í stjórn
Strætó en fulltrúi Garðabæjar í
stjórninni hefur óskað eftir fundi um
málið. „Fyrst og fremst hefði ég vilj-
að að stjórn Strætó fengi vinnufrið
til að vinna að ákveðnum útfærslum í
trausti síns baklands. Mér finnst
með ólíkindum ef gengið er framhjá
stjórninni með þessum hætti.“
Hvorki Gunnar né Ragnheiður
Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri Mos-
fellsbæjar, er viss um ágæti þess að
gjaldfrjálst sé í strætó. Bæði benda
þau á að skynsamlegra sé að ferðir
séu tíðar og komi mönnum á áfanga-
stað. Á endanum séu það alltaf bæj-
arbúar sem þurfi að greiða fyrir
þjónustuna. Ragnheiður telur jafn-
framt að þessi mál hefði átt að ræða
á vettvangi SSH. „Auðvitað er það á
forræði einstakra sveitarfélaga að
auka þjónustu en ég tel afar óheppi-
legt að einstök sveitarfélög séu með
yfirlýsingar sem þessar vegna þess
að þetta mun hafa ákveðin ruðn-
ingsáhrif til okkar í hinum sveit-
arfélögunum.“
Gagnrýna að ekki sé meira samráð milli
sveitarfélaga um gjaldtöku í strætó
Morgunblaðið/Sverrir
Kapphlaup Hvert sveitarfélagið á fætur öðru lýsir því nú yfir að það hyggist greiða fargjöld ákveðinna eða allra
íbúa sinna í strætó. Einungis Mosfellsbær og Garðabær hafa ekki ákveðið að fella niður einhverja gjaldskyldu.
RÍKEY Pétursdóttir, hárgreiðslumeistari í
Kópavogi, hefur allt frá árinu 2003 reynt að fá
starfsleyfi til að reka hárgreiðslustofu með
einum hárgreiðslustól á heimili sínu. Skipu-
lagsnefnd Kópavogsbæjar hafnaði erindi
hennar í fyrstu og vísaði til mótmæla nágranna
í hverfinu. Lögmaður Ríkeyjar, Sveinn Guð-
mundsson, segir að umbjóðandi sinn hafi mót-
mælt þeirri niðurstöðu og óskaði nefndin í
kjölfarið eftir umsögn lögmanns bæjaryf-
irvalda. Í umsögn lögmannsins komi fram að á
íbúðarsvæðum skuli fyrst og fremst gera ráð
fyrir íbúðarhúsnæði, en þar megi þó einnig
gera ráð fyrir starfsemi sem sé eðlilegt að sé
til reiðu fyrir íbúa viðkomandi hverfis, svo sem
verslunum, hreinlegum iðnaði, handiðn-
aðarfyrirtækjum og þjónustustarfsemi. Þrátt
fyrir umsögnina hafi bæjaryfirvöld hafnað um-
sókn um starfsleyfi þar sem tillaga um breytt
deiliskipulag hefði ekki náð fram að ganga.
Rétturinn til aflahæfis ótvíræður
Mál Ríkeyjar var á nýjan leik tekið fyrir á
bæjarstjórnarfundi í Kópavogi 12. júní sl. í
sömu andrá og fjallað var um rekstur nekt-
ardansstaðarins Goldfinger, sem haft hefur
starfsleyfi frá Kópavogsbæ til margra ára, og
segir lögmaður Ríkeyjar þetta endurspegla fá-
ránleika málsins. „Ég hef í á annan áratug
starfað sem lögmaður fyrir einstaklinga og
fyrirtæki og aldrei fyrr hef ég séð jafnlítið mál
stækka jafnmikið í smæð sinni eftir því sem
fram líða stundir,“ segir Sveinn. Á umræddum
fundi var afgreiðslu undanþágu Ríkeyjar
frestað og vísaði Gunnar I. Birgisson, bæj-
arstjóri Kópavogs, til þess að frekari lög-
fræðilegrar ráðgjafar væri þörf og ennfremur
væri nauðsynlegt að bæjarfulltrúar kynntu sér
málið betur.
Lögmaður Ríkeyjar telur frekari lög-
fræðilegrar ráðgjafar ekki þörf í málinu, und-
anþágu frá starfsleyfi sé hægt að veita án mik-
illar lagaflækju. Hann segir rétt Ríkeyjar til
aflahæfis ótvíræðan auk þess sem meginregla
stjórnarskrárinnar um friðhelgi eignaréttarins
leiði til þess að allar takmarkanir á hagnýtingu
og umráði eigna beri að skýra þröngt. Hann
segir bæjaryfirvöld ekki hafa rökstutt afstöðu
sína fyrir synjun undanþágunnar og mótmæli
eins nágranna nægi ekki til þess að synja
mönnum um slík grundvallarréttindi. Auk
þess hafi helstu mótmæli nágrannans lotið að
aukinni umferð um hverfið, en þeirri röksemd
verið hafnað af lögmönnum bæjarins, sem
telja hvorki hættu á aukinni umferð né hættu
fyrir íbúa götunnar ef starfsleyfið fær fram-
göngu. Sveinn segir að fjölmörg sambærileg
mál hafi komið á borð kærunefndar fjöleign-
arhúsa og hafi þau ávallt fallið umráðamanni
eignar í hag, þar sem allar undantekningar frá
hagnýtingu eignar beri að skýra þröngt í ljósi
stjórnarskrárvarinna mannréttinda umráða-
mannsins.
Telur engin málefnaleg rök
mæla gegn afgreiðslu leyfisins
„Afstaða okkar [minnihluta bæjarstjórnar]
er alveg skýr. Við sjáum engin málefnaleg rök
sem mæla gegn afgreiðslu leyfis fyrir þennan
eina stól sem hún hefur í bílskúrnum,“ segir
Guðríður Arnardóttir, fulltrúi Samfylkingar í
bæjarstjórn. Hún bætir við að oft sé verið að
samþykkja skipulagsbreytingar á hinum og
þessum svæðum í bænum, þvert ofan í at-
hugasemdir íbúa, þar sem þær vegi ekki nægi-
lega þungt til þess að hafna skipulagsbreyting-
unum. „Ég furða mig á því hvernig þetta mál
hefur náð að velkjast í kerfinu þetta lengi,“
segir Guðríður og kveður töfina fyrst og
fremst bæjaryfirvöldum að kenna; menn verði
að taka af skarið með svona afgreiðslu, þrátt
fyrir að athugasemdir nágranna liggi fyrir.
„Við erum bara að bíða eftir þessu lögfræ-
ðiáliti og þeim gögnum sem til staðar eiga að
vera,“ segir Ómar Stefánsson, formaður bæj-
arráðs Kópavogsbæjar. Hann segir það ekki
rétt að mikil töf hafi verið á afgreiðslu málsins.
Bæjaryfirvöld hafi afgreitt málið 2004, síðan
hafi sú niðurstaða verið kærð til úrskurð-
arnefndar skipulags- og byggingamála þar
sem sú afstaða bæjarstjórnar að hafna um-
sókninni hafi verið staðfest. Ómar segir að
málið verði tekið fyrir á næsta bæjarstjórn-
arfundi sem fram fari eftir tæpar tvær vikur
og telur hann líklegt að málið verði þar afgreitt
á annan hvorn veginn.
Styr staðið um hárgreiðslustól í 4 ár
Morgunblaðið/Jim Smart
Umdeildur Ríkey hefur innréttað aðstöðu fyrir hárgreiðslustarfsemi sína en enn stendur á
starfsleyfinu fyrir þennan eina hárgreiðslustól.
Í HNOTSKURN
»Deilur hafa staðið um hvort veitaskuli hárgreiðslumeistara starfs-
leyfi til reksturs hárgreiðslustofu á
heimili sínu í Kópavogi.
»Lögmaður konunnar segir vegið aðaflahæfi og eignarétti hennar og
gagnrýnir bæjaryfirvöld.
»Formaður bæjarráðs segir töfinaekki vera vegna vanrækslu bæj-
arstjórnar, heldur langs kæruferils
málsins.
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
AÐ raunvirði hafa rekstrartekjur
Strætó nánast ekkert aukist á síð-
ustu árum. Aftur á móti hefur sam-
setning tekna breyst og æ stærri
hluti þeirra kemur í formi framlaga
frá eigendum. Er nú svo komið að
sveitarfélögin sem eiga Strætó bs.
niðurgreiða fargjald farþega um 70-
80%. Strætisvagnar fyrirtækisins
aka fleiri kílómetra nú en áður en að
sama skapi hefur farþegum fækkað.
Þetta er ein ástæða þess að Kópa-
vogsbær tók þá ákvörðun að reyna
að hafa gjaldfrjálst fyrir Kópavogs-
búa í strætó. Ef öll sveitarfélögin
hefðu frítt fyrir eldri borgara og
námsmenn yrðu tekjurnar af far-
gjöldum svo litlar að ekki tæki því að
innheimta þau.
Lítil sala