Morgunblaðið - 16.06.2007, Page 20
20 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
www.101skuggi.is
H
im
in
n
og
ha
f/
SÍ
A
MUNU ósánir akrar vaxa, nýr
sálmur eftir Matthías Johann-
essen og Atla Heimi Sveins-
son, verður fluttur við messu í
Dómkirkjunni á morgun,
þjóðhátíðardaginn kl. 11.
Sálmurinn var frumfluttur í
Krýsuvíkurkirkju um hvíta-
sunnuna. Í tilefni af því að þá
voru 10 ár síðan Sveinn
Björnsson málari var jarð-
settur í Krýsuvík og 150 ár frá
því að kirkjan sem nú stendur var reist, var þess
farið á leit við Matthías Johannessen, skáld og rit-
höfund, að hann semdi ljóðið og umbeðinn kvaðst
Atli Heimir strax fús að semja við ljóð Matthíasar.
Ljóðlist og tónlist
Sálmur Matthíasar
og Atla í Dómkirkju
Dómkirkjan
ENN er hátíð á Sólheimum og
í dag er komið að þriðju tón-
leikunum í tónleikaröð Menn-
ingarveislu Sólheimakirkju.
Það er gítarleikarinn Kristján
Kristjánsson, betur þekktur
undir nafninu KK, sem kemur
og syngur og spilar. Tónleik-
arnir hefjast klukkan 14, að-
gangur er ókeypis og eru allir
hjartanlega velkomnir. KK
hefur samið og spilað tónlist
fyrir leikhús, kvikmyndir og sjónvarp, átt sam-
starf með mörgum af leiðandi tónlistarmönnum
Íslands, þar á meðal Björk, auk þess að eiga far-
sælan sólóferil. Hann gefur út sólóplötu í haust.
Tónlist
KK í Menningar-
veislu Sólheima
KK með hatt.
ÓLÖF Arnalds verður stofu-
gestur að Gljúfrasteini á
stofutónleikum kl. 16 á morg-
un, þjóðhátíðardaginn. Ólöf
flytur lög af nýju plötunni
sinni, Við og við. Tónlist Ólaf-
ar er þjóðlagaskotin melódísk
popptónlist. Ólöf Arnalds
fæddist í Reykjavík 4. janúar
1980. Hún hóf tónlistarnám
árið 1986 og lauk B.A. gráðu í
tónsmíðum og nýmiðlun frá
Listaháskóla Íslands vorið 2006. Ólöf hefur unnið
með mörgum þekktum íslenskum tónlist-
armönnum og hljómsveitum. Þar mánefna Skúla
Sverrisson, múm, Slowblow og Mugison.
Tónlist
Ólöf Arnalds
á Gljúfrasteini
Ólöf Arnalds
„HANN er lif-
andi goðsögn,“
sagði José Lladó
Fernández-
Urrutia, forseti
spænsku list-
verðlaunanna
Astúríasprins-
ins, þegar þau
voru veitt í
Madríd í vikunni.
Verðlaunahafinn og goðsögnin var
enginn annar en Bob Dylan. Í áliti
dómnefndar sagði að Dylan væri
ein mikilvægasta tónlistarmann-
eskja okkar tíma og að í tónlist
sinni sameinaði hann fegurð ljóðs-
ins og manngildishugsjón. Bob Dyl-
an er 66 ára.
Bob Dylan
Dylan heiðr-
aður á Spáni
♦♦♦
„… LOKSINS hefur stórkostleg am-
erísk ópera verið smíðuð,“ sagði Wes
Blomster, gagnrýnandi Opera Today
um nýja óperu eft-
ir bandaríska tón-
skáldið David
Carlson. Ópera
Carlsons heitir
Anna Karenina,
og er byggð á
sögu Tolstoys, en
það var Colin Gra-
ham, óperuleik-
stjórinn kunni,
sem samdi óperutextann í samvinnu
við tónskáldið. Þessi nýja ópera er eitt
heitasta umræðuefnið meðal tónlist-
arfólks vestanhafs.
Það þykir ganga kraftaverki næst
að þeim Carlson og Graham skuli
hafa tekist að sjóða mörg hundruð
síðna skáldsögu niður í tveggja og
hálfs tíma óperu, og margir voru
vantrúaðir á að það myndi takast.
Óperan var frumsýnd í Flórídaóper-
unni í apríl, en er nú sýnd víðar um
Bandaríkin. Graham lést þrem vikum
fyrir frumsýninguna.
„Falleg tónlist, vel saminn óperu-
texti, stórkostlegar raddir og áhrifa-
mikil sviðsmynd, – allt þetta átti sinn
þátt í því að gera frumsýninguna á
Önnu Kareninu eftir David Carlson
að sannkölluðu meistaraverki,“ sagði
Daniel Fernandez, gagnrýnandi á
blaðinu El Nuevo Herald á Flórída.
Síðustu ár hefur mikið verið rætt
um hvort dagar óperunnar verði senn
taldir, þar sem þótt hefur vanta góð
ný verk sem standast þeim eldri og
vinsælli snúning.
Ópera um
Önnu Karenínu
slær í gegn
David Carlson
GRÍMAN, íslensku leiklistarverð-
launin, var afhent við hátíðlega at-
höfn í Íslensku óperunni í gær-
kvöldi. Handhafar Grímunnar 2007
eru:
Sýning ársins: Dagur vonar eftir
Birgi Sigurðsson í sviðsetningu
Leikfélags Reykjavíkur. Leikstjórn
annaðist Hilmir Snær Guðnason.
Leikskáld ársins: Benedikt Erlings-
son fyrir einleikinn Mr. Skallagríms-
son í sviðsetningu Söguleikhúss
Landnámsseturs.
Leikstjóri ársins: Benedikt Erlings-
son fyrir leikstjórn í leiksýningunni
Ófögru veröld í sviðsetningu Leik-
félags Reykjavíkur.
Leikari ársins í aðalhlutverki:
Benedikt Erlingsson fyrir hlutvek
sitt í leiksýningunni Mr. Skalla-
grímssyni.
Leikkona ársins í aðalhlutverki:
Sigrún Edda Björnsdóttir fyrir hlut-
verk sitt í leiksýningunni Degi von-
ar.
Leikari ársins í aukahlutverki:
Þröstur Leó Gunnarsson fyrir hlut-
verk sitt í leiksýningunni Killer Joe í
sviðsetningu leikhússins Skámána.
Leikkona ársins í aukahlutverki:
Charlotte Bøving fyrir hlutverk sitt í
leiksýningunni Ófögru veröld.
Leikmynd ársins: Gretar Reynisson
fyrir leikmynd í leiksýningunni
Ófögru veröld.
Búningar ársins: Þórunn Elísabet
Sveinsdóttir fyrir búninga í söng-
leiknum Legi í sviðsetningu Þjóð-
leikhússins.
Lýsing ársins: Halldór Örn Óskars-
son fyrir lýsingu í leiksýningunni
Ófögru veröld.
Tónlist ársins: Hljómsveitin Flís
fyrir tónlist í söngleiknum Legi.
Söngvari ársins: Bjarni Thor Krist-
insson fyrir hlutverk sitt í óperunni
Brottnáminu úr kvennabúrinu í svið-
setningu Íslensku óperunnar.
Dansari ársins: Erna Ómarsdóttir
fyrir hlutverk sitt í danssýningunni
Mysteries of love í sviðsetningu
Ernu Ómarsdóttur og Jóhanns Jó-
hannssonar.
Danshöfundur ársins: Erna Ómars-
dóttir og Margrét Sara Guðjónsdótt-
ir fyrir kóreógrafíu í danssýningunni
Mysteries of love.
Barnasýning ársins: Abbababb!
eftir Gunnar Lárus Hjálmarsson í
sviðsetningu leikhópsins á Senunni í
samstarfi við Hafnarfjarðarleikhús-
ið.
Útvarpsverk ársins: Harún og
sagnahafið eftir Salman Rushdie í
þýðingu Karls Emils Gunnarssonar.
Heiðursverðlaun Leiklistarsam-
bands Íslands: Herdís Þorvaldsdótt-
ir og Róbert Arnfinnsson fyrir fram-
úrskarandi ævistarf í þágu leiklistar.
Sýning ársins
er Dagur vonar
Sæl Sigrún Edda Björnsdóttir hampar hér kát verðlaunagripnum sem
besta leikkona ársins í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni
Degi vonar sem var sett upp hjá Leikfélagi Reykjavíkur.
Í HNOTSKURN
» Íslensku leiklist-arverðlaunin, Gríman,
voru fyrst veitt sumarið 2003.
» Leiklistarsamband Ís-lands stendur fyrir hátíð-
inni.
» Á hátíðinni eru sviðsverkog útvarpsverk verðlaun-
uð og listamönnum veittar við-
urkenningar fyrir fram-
úrskarandi árangur í
sviðslistum.
» Verðlaunagripurinn,Gríman, er hönnuð af Sig-
urði G. Steinþórssyni gull-
smíðameistara, og er kenni-
merki hátíðarinnar.
Morgunblaðið/Kristinn