Morgunblaðið - 16.06.2007, Qupperneq 21
Morgunblaðið/Golli
Afhending Þórarinn Eldjárn, faðir Kristjáns, og Unnur Sara Eldjárn, dóttir Kristjáns, veita
Kristni H. Árnasyni verðlaunin í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
Ég var eiginlega bara orðlaus,“ segirKristinn H. Árnason gítarleikarisem í gær hlaut verðlaun úr minn-ingarsjóði Kristjáns Eldjárns gít-
arleikara. Minningarsjóðurinn var stofnaður
af ættingjum Krist-
jáns, vinum og sam-
starfsmönnum eftir
að hann lést 22.
apríl árið 2002, tæp-
lega þrítugur að
aldri. Sjóðnum er
ætlað að veita við-
urkenningar fram-
úrskarandi tónlist-
armönnum og var
Kristinn fyrstur til
að hljóta þá við-
urkenningu. „Þetta
er gríðarlegur heið-
ur þannig að ég er
hæstánægður,“ seg-
ir Kristinn, og bæt-
ir við að það hafi
sérstaka þýðingu
fyrir sig að fá verð-
laun úr þessum
sjóði, enda hafi
hann þekkt Krist-
ján vel. „Við kennd-
um saman um tíma
í Tónlistarskóla
Kópavogs. Við spil-
uðum reyndar aldr-
ei saman en ég
þekkti hann vel og
hann var stórkost-
legur karakter og
frábær gítarleikari.
Hann hafði mikla
tónlistarhæfileika og var mjög fjölhæfur því
hann gat spilað bæði klassík, djass og rokk.
Hann var skarpgáfaður, bráðskemmtilegur og
var mikill frásagnamaður með mikla kímni-
gáfu. Þá gat hann fundið skemmtilegar og
frumlegar hliðar á öllu sem hann sá,“ segir
Kristinn um vin sinn.
Verðlaunaféð nemur hálfri milljón króna og
segir Kristinn það koma sér vel. „Ég er að æfa
nokkur prógrömm og ég held að ég muni nota
féð til þess að kaupa tíma. Nú til dags er tími
fé og allt verðlagt þannig að það er gott að
geta keypt sér frið til að æfa sig og svo spila á
tónleikum í kjölfarið,“ segir Kristinn, sem er
meðal annars að æfa verk eftir Bach og Alben-
iz sem hann hyggst flytja á tónleikum.
Kristinn H. Árnason hlýtur verðlaun úr minningarsjóði Kristjáns Eldjárns
Gríðarlegur heiður
Í HNOTSKURN
»Kristinn Árna-son hóf ungur
nám í klassískum
gítarleik, og lærði
á Íslandi, í Bret-
landi og Bandaríkj-
unum, þaðan sem
hann lauk BM námi
með láði. Að námi
loknu í New York
fór Kristinn til
Spánar þar sem
hann nam hjá Jose
Tomas.
»Kristinn hefurhaldið fjölda
tónleika á Íslandi
og erlendis, og
leikið inn á fjölda
platna. Hann hlaut
íslensku tónlist-
arverðlaunin árið
1997 fyrir plötu
með verkum eftir
Sor og Ponce.
Þá hefur hann leik-
ið með hljómsveit-
unum ISS, Júpí-
ters, Hringjum og
Rússíbönum.
Minningarsjóður Kristjáns Eldjárns: Reikn-
ingur 0513 18 430830, kt. 650303-3180.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2007 21
MENNING
Þetta gæti orðið útsýnið þitt!
Fyrstu íbúðirnar í 2. áfanga
komnar í sölu
Í boði eru 13 íbúðir á efstu hæðum
bygginganna og afhendast þær tilbúnar til innréttinga.
Allar nánari upplýsingar
á 101skuggi.is eða í síma 599 5000.
ALÞJÓÐLEGT orgelsumar í Hallgríms-
kirkju (til skamms tíma „Sumarkvöld við org-
elið“) tjaldaði við upphaf 15. vertíðar danska
organistanum Bo Grønbech (f. 1951) er starf-
ar við St. Olai kirkju í Helsingjaeyri. Allt frá
byrjun var auðheyrt að með því var sízt verið
að slaka á háum gæðastaðli tónleikarað-
arinnar, því leikur Grønbechs var ekki aðeins
gegnmúsíkalskur heldur líka það örðulaus að
gruna mætti jafnvel manninn um fullkomn-
unaráráttu í anda Glenn Goulds. Hvergi var
skeikað að sköpuðu enda hélzt spilamennskan
tandurskýr allt til enda, og hnitmiðað radd-
valið bar vott um næma tilfinningu fyrir því
sem hentaði hverju verki bezt. Kannski engin
furða þar eð organistinn hefur jafnframt sam-
ið talsvert fyrir hljóðfæri sitt (ætli orgelið
bjóði ekki upp á hæsta tónsmiðahlutfall allra
greina meðal iðkenda?), eins og menn fengu
reyndar að heyra í lokin. Í því ljósi – og úr
því ekki var hægt að kvabba um flutning „í
felum“ efra spilborðsins – mátti kannski helzt
harma að hlustendur fengju ekki að heyra
snarstefjaðan spuna af fingrum fram. Jafnvel
þótt, eftir á að hyggja, sé merkilega langt frá
síðasta dæmi um slíkt á þessum vettvangi,
a.m.k. að mér viðstöddum.
Verkefnavalið spannaði allt frá miðbarokki
til nútíma. Eftir pedallausa en ljúfa Suite du
deuxième Ton eftir L.-N. Clérambault (d.
1749) og 3 keltneskt seiðandi þætti úr Neuf
Chants de Bretagne eftir Langlais, einn fyrr-
um kennara einleikarans, kom Choral nr. III
í a-moll eftir César Franck í djúpri en sveigj-
anlegri túlkun. Þarnæst 3 verk eftir Dietrich
Buxtehude, og af tvöföldu tilefni – 300. dán-
arári „des großen Däne“, og því að sá var
m.a. organisti á Helsingjaeyri, starfsbæ ein-
leikarans. Það var enda ekki að sökum að
spyrja; Grønbech var hér greinilega á heima-
slóðum ef marka má hve undraferskur þessi
nafntogaða fyrirmynd J. S. Bachs kom út í
snjallri útfærslunni.
Klykkt var út með bráðskemmtilegri „Fan-
tasia in tre parti“ (1999) eftir sólistann, unn-
inni úr þrem gömlum sálmalögum. Gráupp-
lögðu dæmi um eðlilega þróun síðrómantíkur
til sannfærandi og tilhöfðandi nútímatónmáls
í sæmilegum friði fyrir svæsnari botn-
langaútúrdúrum framúrstefnunnar. Alltjent
saknaði maður ekki frumlegra tilþrifa – þrátt
fyrir bullandi hlustvænleika.
Frumlegt
en hlust-
vænt
TÓNLIST
Hallgrímskirkja
Verk eftir Clérambault, Langlais, Franck, Buxtehude
og Grønbech. Bo Grønbech orgel. Sunnudaginn 10.
júní kl. 20.
Orgeltónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson
KRISTJÁN Eldjárn gítarleikari fæddist í
Reykjavík 16. júní árið 1972, og hefði því orð-
ið 35 ára í dag. Hann hóf ungur gítarnám í
Tónmenntaskóla Reykjavíkur og Tónlistar-
skólanum í Reykjavík og nam loks í Tónskóla
Sigursveins hjá Einari Kristjáni Einarssyni
og lauk þar burtfararprófi 1996. Jafnframt
lagði hann stund á rafgítarleik við djassdeild
Tónlistarskóla FÍH og lauk burtfararprófi
þaðan árið 1995. Á árunum 1997 til 1998
stundaði hann framhaldsnám í klassískum
gítarleik við Tónlistarháskólann í Turku í
Finnlandi undir handleiðslu finnska gít-
arleikarans Timo Korhonens og lauk þaðan
einleikara- og kennaraprófi.
Kristján kenndi um skeið við ýmsa tónlist-
arskóla en starfaði fyrst og fremst sem hljóð-
færaleikari og tónsmiður. Á árunum 1996 til
2000 hélt hann á annan tug einleikstónleika
víða um land og rúmlega 130 skólatónleika.
Hann kom fram með fjölda hljómsveita og
hópa hér heima og erlendis, má þar nefna
Stuðmenn, Caput-hópinn, finnsku hljómsveit-
ina Giant Robot og finnsk-íslenska dúettinn
Helvík. Hann lék inn á fjölmargar hljóm-
plötur, sá um útsetningar og stjórnaði upp-
tökum. Loks samdi hann og/eða lék tónlist
við ótal leikverk, danssýningar, kvikmyndir,
sjónvarpsþætti og auglýsingar.
Kristján lést árið 2002 og hefur fjáröflun
minningarsjóðsins staðið yfir síðan. Hún
byggist fyrst og fremst á frjálsum framlögum
og sölu minningarkorta, auk þess sem sjóð-
urinn hefur aflað fjár með því að gefa út
hljómdisk og bók. Þegar ár var liðið frá and-
láti Kristjáns voru haldnir veglegir minning-
artónleikar í Íslensku óperunni þar sem fram
komu fjölmargir tónlistarmenn og rann allur
ágóði til sjóðsins. Gert er ráð fyrir að unnt
verði að veita verðlaun úr sjóðnum annað
hvert ár í fyrstu en árlega í framtíðinni.
Áfram verður haldið að efla sjóðinn.
Fjölbreyttur ferill