Morgunblaðið - 16.06.2007, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2007 23
LANDIÐ
Á FYRSTA áratug tuttugustu aldar
var farið að mótorvæða fiskibáta
landsmanna. Eftir að fyrstu bátarnir
höfðu sannað sig breiddist notkun
mótora út eins og eldur í sinu. Þörfin
fyrir þjónustu þeirra sem kunnu með
vélar að fara og gátu gert við þær
varð fljótt mjög mikil og ný stétt
vélamanna varð til. Vélsmiðjur þar
sem aðstaða var til að sinna þeim
verkefnum sem urðu til vegna tækni-
væðingarinnar spruttu upp víða um
land. Meðal þeirra fyrstu var Vjela-
smiðja Jóhanns Hanssonar, stofnuð
1907 og er hún jafnframt orðin sú
elsta sem eftir er.
Í dag, laugardaginn 16. júní kl.
15.00, verður opnuð ný sýning á
Tækniminjasafni Austurlands, Seyð-
isfirði. Sýningin verður í Vjelasmiðju
Jóhanns Hanssonar sem er aldar-
gömul á þessu ári. Fjallað verður um
fyrstu áratugina í Vjelasmiðjunni og
stofnandann Jóhann Hansson sem
ferðaðist ungur út í heim til náms og
gerðist síðan afkastamikill frum-
kvöðull á afgerandi tímamótum í
sögu þjóðarinnar. Töluverðar endur-
bætur hafa verið gerðar á húsi Vjela-
smiðjunnar og ný svæði verða opnuð
almenningi. Ýmis búnaður frá stofn-
árinu 1907 er á sýningunni. Stóri Cu-
pola málmbræðsluofninn frá 1918,
sem var stóriðja síns tíma, er nú
loksins orðinn aðgengilegur frá öll-
um hliðum. Einnig túrbínusamstæð-
an og rafstöð Jóhanns frá 1911.
Aðrar sýningar safnsins og safn-
asvæðið er einnig opið. Tækniminja-
safnið er opið alla daga frá 11-17.
www.tekmus.is sími 472 1596.
Strákurinn frá Djúpavogi
sem höndlaði nútímann
Aldarafmæli
Vjelasmiðju
Jóhanns Hans-
sonar á Seyðisfirði
Smíðar Á sýningunni verður fjallað um fyrstu áratugina í starfsemi Vjela-
verksmiðju Jóhanns Hanssonar, en smiðjan er aldargömul á þessu ári.
AUSTURLAND
Vopnafjörður | Heilsugæslustöðinni
á Vopnafirði og Bakkafirði hefur
verið færður að gjöf stafrænn fram-
köllunarbúnaður fyrir röntgen-
myndatökur. Búnaðurinn kostar um
fjórar milljónir króna og er gjöf frá
HB Granda, Bílum og vélum, Mæli-
felli, Kiwanisklúbbnum á Vopnafirði
og Helgu Jónsdóttur. Baldur Frið-
riksson, læknir á Vopnafirði, segir
búnaðinn koma til með að auðvelda
greiningu enda sé hægt að senda
myndirnar stafrænt t.d. á FSA og
fá sérfræðiálit á skömmum tíma.
Þessi búnaður hentar einkar vel á
stað eins og Vopnafirði en það get-
ur tekið um eina og hálfa klukku-
stund að koma sjúklingi á spítala og
svo getur vetrareinangrun sett
strik í reikninginn.
Heilsugæslustöðinni
færð vegleg gjöf
Morgunblaðaið/Jón Sigurðsson
Tækni Baldur Friðriksson læknir á Vopnafirði við framköllunarbúnaðinn.
Eftir Björn Björnsson
Skagafjörður | Ása Jakobsdóttir og
Pálmi Ragnarsson, bændur í Garðakoti í
Skagafirði, buðu nýlega gestum og gang-
andi að skoða nýtt og verulega tækni-
vætt fjós sem þau hafa nú tekið í notkun.
Fjósið er fyrir áttatíu og fjóra gripi og
er um níu hundruð og níutíu fermetrar
að stærð en við það er um þrjú þúsund
rúmmetra haughús. Kýrnar ganga laus-
ar og um mjaltirnar sér mjaltaþjónn en
annað vélmenni sér um alla hreinsun á
flórum, og er sá hinn fyrsti sinnar gerðar
hérlendis.
Allur mjalta- og kælibúnaður er frá
Alfa Laval, en flórhreinsarinn og allt
járnverk er frá Vélavali í Varmahlíð. Eft-
ir fjósinu endilöngu er brú, en ofan af
henni og úr eftirlitsherbergi þar, er unnt
að fylgjast með mjöltum og öllu því sem
mjólkurframleiðslunni tengist í tölvu-
kerfi hússins.
Þarf að bæta við
Pálmi sagði að mjög vel hefði gengið
að aðlaga kýrnar hinu nýja húsi og
mjaltaaðferðum, rétt væru um tíu dagar
síðan fjósið var tekið í notkun og nú
gengi allt eins og í sögu.
Að sögn Pálma er búið nú með um tvö
hundruð og þrjátíu þúsund lítra kvóta og
með einu pennastriki.
Fjölmargir gestir heimsóttu þau Ásu
og Pálma í Garðakoti og skoðuðu þetta
tæknivædda fjós og fylgdust með þeim
störfum sem þar eru unnin og sann-
anlega gekk allt eins og til var ætlast.
„Já, hér virkar allt rétt, nema kannski
ég,“ sagði Pálmi Ragnarsson hlæjandi og
sagðist vilja þakka öllum þeim ágætu
iðnaðar- og tæknimönnum sem hefðu
komið að byggingu þessa glæsilega fjóss.
ljóst að við hann yrði að bæta ef fullnýta
ætti rýmið sem í fjósinu er. Hins vegar
væri bændum sem mjólkurframleiðslu
stunduðu mikil nauðsyn að fá um það
upplýsingar hvort fyrirhugað væri að
fella framleiðslurétt á mjólk niður, eins
og hann vissi að fyrirhugað væri að gera
í nágrannalöndunum, svo sem í Svíþjóð
og Hollandi, óþolandi væri að leggja
verulega fjármuni í kaup á þessum rétti,
sem svo yrði ef til vill gerður verðlaus
„Hér virkar allt rétt“
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Bændur Pálmi Ragnarsson og Ása Jakobsdóttir í nýju og glæsilegu fjósi í Garðakoti.
Húsavík | Fyrir skömmu fóru rúmlega þrjátíu börn og ung-
lingar ríðandi á hestum frá Saltvík út á Húsavík. Þessir ungu
knapar hafa verið á reiðnámskeiðum í hestamiðstöðinni í
Saltvík í vetur. Ferðin var lokapunkturinn á námskeiðunum
og voru þeir þarna á ferð með leiðbeinendum sínum, auk þess
sem einhverjir foreldrar voru með í för. Meðal knapanna var
Ófeigur Óskar Stefánsson sem reið þessa leið með föður sín-
um, Stefáni Haraldssyni.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Feðgar á ferð
Landið er fallegra á löglegum hraða