Morgunblaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 24
|laugardagur|16. 6. 2007| mbl.is
daglegtlíf
FÍLABEINSHVÍTA, fallega, norræna
húðin á Íslendingum fær á sig annan
blæ yfir sumartímann, þegar landinn
skríður úr kofunum og lætur sólina
steikja sig. Fólk rífur sig gjarnan úr
görmunum og skyrhvít húðin roðnar
duglega undan geislum sólarinnar. Sól-
arþorstinn kemur kannski einmitt til af
löngum vetri og margir láta íslensku
sólina ekki duga, heldur fara til suð-
rænna landa til að baka sig á ströndum.
Nauthólsvíkin stendur samt alltaf fyrir
sínu og það er alveg sérstök stemning
sem fylgir því að fara á ylströndina í
Reykjavík, þar rekast margir á ólíkleg-
asta fólk og börnin leika á als oddi,
moka sandi og sulla í sjónum. Einhver
dularfull rómantík fylgir minningum
um strandlíf, það er eitthvað frelsi í
klæðaleysinu, kæruleysi í hlaupunum í
sandinum og nautn í slökuninni sem
fylgir því að liggja og sóla sig, spjalla og
sýna sig og sjá aðra. Og borða nesti. Svo
ekki sé talað um daðrið. Og auðvitað
þarf að klæða kroppinn fögrum baðföt-
um á dásamlegum sumardögum. Nota-
gildi baðfata er fjölbreytt og skemmti-
leg breidd í úrvali verslana sem selja
slíkar flíkur. Alltaf er gaman að skarta
litríkum baðfötum á björtustu dögunum
í sundlaugum landsins. En bikiníum,
sundbolum og sundskýlum er líka hægt
að klæðast heima í garði á góðum sól-
ardögum, eða þegar tekið er á því í
strandblakinu eða grillað á pallinum í
bústaðnum. Og það er gaman að dansa
heima í stofu á bikiníi á síðsum-
arkvöldum eftir góða máltíð. Og það er
ekkert sem mælir gegn því að arka upp
á fjall og svitna duglega á haldaranum
og míníbuxunum. En fyrir alla muni,
ekki gleyma sólarvörninni þegar stri-
plast er um, sólbruni er fjarska óhollur,
sérstaklega fyrir unga húð barnanna.
La Senza Toppur bund-
inn bak við háls kr. 3.490
og buxur bundnar á
hliðunum kr. 1.990.
Selena Toppur kr.
3.950 og buxur kr.
3.100.
Spútnik Sundbolur
með pífu kr. 2.900.
Reuters
SMASH Íslensk hönnun,
Nikita-bikiní kr. 8.990.
Selena Toppur kr. 4.600
og buxur kr. 3.100.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Morgunblaðið/G.Rúnar
Spútnik Fyrri
tíma sundbolur
kr. 2.900.
La Senza Toppur kr.
3.490 og buxur kr.
2.290.
Reuters
Um að gera að skreyta sig sem mest
þegar sprangað er um á baðfötum.
Skyrhvítt hörund
Frónbúa fagnar sól
Dásemdardýrð Að
skarta svona baðfötum
gleður bæði þann sem
klæðist og þann sem ber
augum og sloppurinn gefur
skjól í gjólu.