Morgunblaðið - 16.06.2007, Blaðsíða 27
bar að garði því hvorugt barnanna
var heima þar sem dóttirin, sem út-
skrifaðist sem stúdent í fyrra, er nú
á frönsku Rivíeríunni að læra
frönsku og syninum, sem nemur
tölvunarfræði við HÍ, hafði áskotn-
ast gott togarapláss í sumar.
Gróttuvitinn í stofunni
„Afi var bankastarfsmaður og
amma var í alls konar viðskiptum.
Hún rak m.a. blómabúð, var með
konfektgerð og var auk þess með
tvær vinnukonur á heimilinu við að
búa til slaufur og bindi fyrir karl-
menn. Hún var svakalega dugleg
kona,“ segir Lóa, sem sjálfri er ým-
islegt til lista lagt því heimilið ber
vott um að í húsmóðurinni blundi
listaeðli. „Ég er bara að dunda mér
við ýmislegt sem ég hef gaman af og
hef aðstöðu í kjallaranum fyrir
sköpunarkraftinn,“ útskýrir Lóa og
hleypur reglulega niður til að huga
að ofninum, sem er á fullu við að
framleiða falleg glerlistaverk, sem
Lóa hefur mótað eftir kúnstarinnar
reglum. Leirlistaverkin hennar Lóu
prýða líka veggi og borð og uppi á
veggjum hanga myndir eftir hús-
móðurina og tengdamóðurina Sig-
ríði Gyðu Sigurðardóttur ásamt
myndverkum fjölda annarra lista-
manna enda hafa hjónin gaman af
myndlist, að sögn. „Þessa mynd
málaði til dæmis Tolli fyrir manninn
minn sérstaklega. Hann varð að fá
eitthvað af Nesinu hingað inn til að
horfa á,“ segir Lóa og bendir á
myndverk sem sýnir Gróttuvitann.
Fluttu með sér útidyrahurðina
Húsið, sem stendur á horni
Karfavogs og Gnoðarvogs og er á
þremur hæðum, er um 95 fermetrar
að grunnfleti auk bílskúrs. Auk
listasmiðju Lóu er í kjallaranum
þvottaaðstaða, gestaherbergi og
geymslur. Miðhæðin hýsir borð-
stofu, stofu og sjónvarpsherbergi
með brakandi upprunalegu eikarp-
arketi auk risastórs eldhúss, sem
tekið var í nefið enda er eldhúsið
hjarta hússins, eins og Lóa orðar
það. Útidyrahurðina, sem er afar
bresk, fluttu þau með sér frá Bret-
landi og gestasnyrting sem og
snyrtingin uppi á efstu hæðinni hafa
verið gerðar afar hlýlegar og nota-
legar og í anda gamla stílsins.
Barnaherbergin tvö sem og hjóna-
berbergið eru um tuttugu fermetrar
hvert og á þriðju hæðinni er auka-
sjónvarpsrými með upprunalegum
„eldhússkápum“ því þar var einu
sinni íbúð með öllu.
„Það má í raun segja að við höfum
tekið við húsinu eins og amma skildi
við það. Hér voru rauð plussteppi,
gullveggfóður og rokkokkóstíll út
um allt, en það hentaði auðvitað ekki
okkur þegar til kom. Við höfum því
smám saman verið að bæta og laga
og erum nú búin að taka allt í gegn
nema kannski húsið að utan. Það er
næst á dagskrá. Við endurnýjuðum
allar hurðir. Í eldhúsið völdum við
gegnheila eikarinnréttingu frá Ikea
og gráan tón á móti í gólfefnum og
eldhúsbekkjum, sem mér finnst
koma vel út, en eldhúsið samanstóð
af mörgum vistarverum hér áður
fyrr. Rósettur og lista í lofti létum
við halda sér og í fyrra tókum við
garðinn í gegn en hann var mikið
áhugamál afa og ömmu. Maðurinn
minn smíðaði og ég bæsaði. Gos-
brunnurinn hans afa fékk auðvitað
að halda sér sem og gróðurinn að
hluta, en við urðum að höggva tré
sem farin voru að skyggja á. Við
skiptum um allt gras þar sem kom-
inn var mikill mosi, settum niður
heitan pott, smíðuðum palla og tré-
verk út um allt og í garðinum erum
við á góðviðrisstundum,“ segir Lóa.
Þegar spurt er um stíl segist Lóa
vera bæði fyrir nýtt og gamalt þótt
heimilið beri kannski meiri vott um
gamalt. „Þegar við byrjuðum að búa
áttum við ekki neitt, en svo áskotn-
aðist okkur eitt og annað gamalt
sem við höfum verið að bæta upp
með ýmsu nýju sem passar við
gamla dótið. Við höfum bæði mjög
gaman af því að bæta og fegra og
næsta verkefni er til dæmis hjóna-
herbergið þar sem ég ætla að láta
smíða alvöru fataskáp í staðinn fyrir
þrjá innbyggða fataskápa með hurð-
um sem amma og afi létu gera til að
nýta súðina. Og svo er ég búin að
kaupa rosalega fallegt kremað vegg-
fóður frá Lauru Ashley sem á að
fara á einn vegginn.
Það er svo skemmtilegt að breyta
til svona stöku sinnum,“ segir lista-
konan Lóa.
Gróttuvitinn Húsbóndinn, sem er
Seltirningur í húð og hár, varð að
fá eitthvað af Nesinu heim í stofu.
Sígilt Kínversku engiferpottana
keyptu húsráðendur í Bretlandi.
Svipsterkar Þessar fallegu ragú-
grímur eru handverk Lóu Sigríðar.
Stofustáss Skenkinn átti amma
Sigurðar á Sauðárkróki.
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2007 27
Sending barst að norðan fráRúnari Kristjánssyni á
Skagaströnd með innganginum:
Sitthvað andann getur glætt,
glóðir kveikt í brjósti.
Berist manni af Blöndalsætt
bögur hér í pósti.
Rímsins afl í okkar sál
eðlis fylgi vöku,
þroski í öllu þjóðlegt mál,
þrumi í hverri stöku.
Pétur Stefánsson er kominn
aftur á Moggabloggiðog má finna
svohljóðandi kveðskap á slóðinni:
www.peturstef.blog.is:
Ég get eins og aðrir menn
ybbað gogg og „hoggið“.
Hingað kominn er ég enn
inn á Moggabloggið.
Sagt var frá því á Mbl.is að
ráðamenn í Japan og Kína hefðu
hvatt starfsfólk til orkusparnaðar
með því að mæta léttklætt í vinnu.
Sjálfur tók Pétur sér það til
fyrirmyndar og orti:
Víst er minn áhugi vakinn,
og veit ég að kætist nú makinn;
Ég ætla að spara
orku, og fara
að yrkja á bloggið mitt nakinn.
VÍSNAHORNIÐ
Af nekt og
rímsins afli
pebl@mbl.is
tækið sjálft upptækt,
þegar um stórfelldan
eða ítrekaðan hrað-
akstur er að ræða eða
akstur, sem telst sér-
staklega vítaverður.
Það er ekki fráleitt
að ætla, að þeir ökuníð-
ingar, sem hér eru á
ferð hugsi sig um tvisv-
ar, ef ökutæki þeirra
verður gert upptækt.
Þess vegna er það rétt
hjá sýslumanninum á
Selfossi að láta á þetta
lagaákvæði reyna í því
tilviki, sem mesta at-
hygli vakti nú í vikunni.
Hinir siðprúðari vél-
hjólamenn munu auðvitað líta svo á
að umræður sem þessar séu nei-
kvæðar fyrir þá. Þó er athyglisvert,
að gerðar eru athugasemdir við
framkomu mjög stórs hóps véhjóla-
manna á Þingvöllum, raunar svo
margra, að erfitt verður að segja, að
ökuníðingarnir séu örfáir, sem setji
svartan blett á ökumenn þessara
farartækja.
Vélhjólum hefur fjölgað mjög.
Þeir sem aka þeim telja það sérstaka
lífsreynslu. Það væri of langt gengið
að banna þessi tæki. En það er hægt
að gera þá kröfu til þeirra, sem aka
þeim að þeir stofni lífi annars fólks
ekki í hættu, þótt þeir virðist hirða
lítt um eigið líf. Ólafur Helgi Kjart-
ansson á marga stuðningsmenn.
Það er ástæða til aðfagna því, að Ólaf-
ur Helgi Kjartansson,
sýslumaður á Selfossi,
hyggst láta hart mæta
hörðu í samskiptum við
vélhjólamenn. Nú er að
vísu ljóst að stór hópur
þeirra, sem aka um á
véhjólum, er til fyr-
irmyndar í umferðinni
en í öðrum tilvikum
eru á ferð menn, sem
koma fram við sam-
borgara sína með svo
ótrúlegum hætti að orð
fá varla lýst.
Hvað er sá maður að
hugsa, sem ekur um
með son sinn, 13 ára gamlan, á vél-
hjóli á 181 km hraða?
Hvað voru þeir menn að hugsa,
sem lögreglan var að eltast við á
dögunum á ofsahraða?
Flestir vegfarendur hafa orðið
varir við vélhjól á ofsahraða á vorin
og sumrin, þegar engin lögregla er í
nánd.
Og í þessu samfélagi návígisins
hika menn enn við að kæra þá, sem
þannig haga sér, hvort sem þeir eru
á vélhjólum, bifreiðum eða á flutn-
ingabílum.
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu-
maður, minnir á það í Morg-
unblaðinu í gær, að á þessum vetri
hafi verið samþykkt á Alþingi lög,
sem heimili lögreglu að gera öku-
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Bæjarráð Reykjanesbæjar tók af-
stöðu til mótmæla íbúa vegna aðal- og
deiluskipulagsbreytinga á Hákots-
tanga í Innri-Njarðvík á fundi sínum
á fimmtudagsmorgun, en fjögur há-
hýsi hafa verið teiknuð á tangann.
Margar athugasemdir bárust bæjar-
yfirvöldum, auk undirskriftalista, og
telur bæjarráð mikilvægt að tekið
verði tillit til þeirra sjónarmiða sem
þar koma fram. Málinu hefur verið
vísað til Umhverfis- og skipulagssviðs
til frekari skoðunar.
Hópur ungs listafólks hefur hreiðrað
um sig í samkomuhúsinu í Höfnum og
hefur á undanförnum dögum breytt
húsinu í listasmiðju. Listamennirnir
eru þátttakendur í verkefni sem
gengur undir nafninu Díónýsía. Þeir
lögðu land undir fót í vikubyrjun og
settust að í fámennustu byggðarlög-
um landsins. Heimamenn eru virkj-
aðir í þessu verkefni og að sögn
Hörpu Daggar Kjartansdóttur, sem
fer fyrir hópnum í Höfnum, hefur
fjöldi heimamanna lagt þeim lið, fólk
sem tengist leiklist, tónlist og mynd-
list. Hópurinn mun taka þátt í hátíð-
arhöldunum 17. júní og bjóða gestum
og gangandi að heimsækja vinnustof-
una og jafnvel taka þátt í sköpuninni.
Annars verður 17. júnídagskráin með
hefðbundnu sniði og ef marka má
veðurspá virðist sem veðrið ætli að
verða með ágætum. Þó skyldi spyrja
að leikslokum í þeim efnum.
Sýningar hefjast í listasölum Duus-
húsa klukkan 13 og af nýjum sýning-
um má nefna Húsafellsmyndir Ás-
gríms Jónssonar í Listasafninu,
Rokkmyndir í Bíósalnum klukkan 13
og 15 og sýningu á verkum Steinunn-
ar Einarsdóttur í Gömlu búð. Dag-
skráin í skrúðgarðinum hefst klukkan
14.
Biblía foreldra á sumrin er sumar-
bæklingur Menningar-, íþrótta- og
tómstundasviðs sem leit dagsins ljós í
síðasta mánuði. Þar er að finna öll
námskeið sem eru í boði fyrir börn og
unglinga yfir sumarið. Úrvalið er gott
þótt þau allra yngstu geti einungis
valið um sundnámskeið. Mesta úrval-
ið er fyrir börn 6-13 ára og þau sem
eldri eru geta valið sér annars konar
sundnámskeið, nefnilega sportköfun.
Og af því að biblía var nefnd hér að
ofan þá ætlar Keflavíkursókn að
brydda upp á skemmtilegri nýjung í
sumar, nefnilega útimessum og
gönguferðum í einum og sama pakk-
anum. Ferðirnar verða þrjár og þar
fer saman heilbrigð útivera, helgihald
og fróðleikur um sögu og náttúru.
Rannveig Lilja Garðarsdóttir leið-
sögumaður mun leiða göngurnar. Sú
fyrsta verður 24. júní um söguslóðir
Keflavíkurkirkju og hinn 15. júlí
verður stefnumót við Prestsvörðu,
þar sem tveir gönguhópar munu
leggja af stað frá Keflavíkurkirkju
annars vegar og Útskálakirkju hins
vegar og mætast á miðri leið við
Prestsvörðu. Síðasta ferð sumarsins
verður 12. ágúst en þá verður Presta-
stígurinn genginn, frá Höfnum að
Grindavík.
Þeir sem hyggjast stunda nám við
Keili – Miðstöð vísinda, fræða og at-
vinnulífs á gamla varnarsvæðinu
næsta vetur, þurfa að fara að huga að
umsóknum. Frestur til að leggja inn
umsóknir rennur út 30. júní næst-
komandi en stefnan hefur verið sett á
að hefja nám í frumgreinadeild og
flugakademíu næsta haust. Þar með
verður háskólanám orðið mjög blóm-
legt í Reykjanesbæ því Keili til við-
bótar er Íþróttaakademía, sem ný-
verið útskrifaði fyrstu einkaþjálfar-
ana, og fjölbreytt fjarnám í gegnum
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.
Úr bæjarlífinu
Gönguferðir og útimessur undir
kjörorðinu Döggin blikar, grund-
in grær! er meðal nýjunga hjá
Keflavíkursókn í sumar.
REYKJANESBÆR
Svanhildur Eiríksdóttir blaðamaður
Skrifstofur okkar í
Reykjavík og Hafnarfirði
eru opnar alla virka daga
frá kl. 9-17
Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr., lögg. fast.- og skipasali
Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali
Sími: 533 6050 www.hofdi.is
Til sölu fallegur og vel byggður sumarbústaður í landi Dagverðarness
í Skorradal. Skiptist m.a. í 2 svefnherb. og stofu með kamínu. Geysi-
fagurt útsýni yfir Skorradalsvatn og alla leið til Snæfellsjökuls. Verð
14 millj. Nánari upplýsingar veitir Runólfur á Höfða í síma 892 7798.
Sumarhús í Skorradal